Morgunblaðið - 23.09.1983, Page 19

Morgunblaðið - 23.09.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1983 19 Fastráðinn verði starfsmaður að Ríkisútvarpinu á Akureyri „FJÓRÐUNGSÞING Norðlendinga, haldið á Raufarhöfn 1. til 3. sept- ember 1983, fagnar því, að tekizt hefur að byggja upp myndarlega starfsemi Ríkisútvarpsins á Norður- landi. Uppbygging Ríkisútvarpsins í landshlutanum er veigamikill þáttur í menningarhlutverki útvarpstarf- seminnar í landinu. Fjórðungsþingið minnir á, að með bættri húsnæðisað- stöðu og tækjakosti geti deild Ríkis- útvarpsins á Norðurlandi sinnt betur verkefnum sínum á sviði fréttaöflun- ar og dagskrárgerðar," segir meðal annars í ályktunum þingsins um fé- lags- og menningarmál. Þar segir ennfremur, að þingið beini því til forráðamanna Ríkis- útvarpsins að fastráðinn verði starfsmaður við deild Ríkisút- varpsins á Akureyri svo efla megi enn frekar fréttaþjónustu og dag- skrárgerð frá Norðurlandi. Þá tel- ur þingið brýnt að nýta þegar í stað þann möguleika að útvarpa sérstakri dagskrá nokkrar stundir vikulega til Norðurlands frá Ak- ureyri samhliða dagskrá Ríkisút- varpsins í Reykjavík. Ennfremur verði Ríkisútvarpinu á Akureyri leyft að hagnýta sér þá sjálfstæðu tekjustofna, sem völ er á. Hilmar Karls- son með fjöltefli HILMAR Karlsson, ís- landsmcistari í skák, teflir fjöltefli á vegum Taflfélags Seltjarnarness í Valhúsa- skóla á laugardag og hefst taflið klukkan 14. Öllum er heimil þáttaka og eru menn beðnir að taka með sér tafl. Skagafjörður: Haustlegt um að litast Bjp, Höfðaströnd, 22. september. HÉR ER orðið haustlegt um að líta og snjór víða niður í miðjar hlíðar. Undanfarið hefur verið norðankuldi og úrfelli á útsveitum enda snjóað niður í fjöll. Frá höfuðdegi og fram í miðjan september var þó ágætt veður og góð heyskapartíð se ,i bjargaði heyfeng margra bænda sem áður höfðu átt í miklum erfiðleikum með heyskap. Hey eru þó víða í lakara lagi, sérstaklega hvað heygæði snertir en margir eru þó með mikil hey. Sauðfjárslátrun er nú hafin og gengið á ýmsu vegna óstillu. Um er fallþungi misjafn eins og alltaf tíma fékkst síld í lagnet fyrir er en margir telja sig þó hafa náð mynni Skagafjarðar og þá var betri vikt en í fyrra. Kartöfluupp- einnig sæmileg þorskveiði á línu skera er rýr og sumstaðar hefur og vænn fiskur. En nú undanfarið ekki þótt taka því að taka upp. hefur þeta farið úrskeiðis vegna Best mun uppskeran vera fjögur norðanáttar og storma en sjó- til fimmföld. Kýr eru ennþá á menn vona þó að úr rætist og beit á káli, höfrum og túnum en stillur komi. mjólk í mjólkursamlagið hefur — Björn minnkað mikið. Til sjávar hefur Góö aðsókn aö sýningu Ragnars MJÖG góð aðsókn var fyrstu sýn- ingarhelgina að sýningu Ragnars Kjartanssonar myndhöggvara í Listmunahúsinu, Lækjargötu 2. Sýningin sem haldin er í tilefni af sextugsafmæli Ragnars sem var þann 17. ágúst síðastliðinn og var opnuð síðastliðinn laugardag. Sýn- ingin stendur til 2. október og er hún opin daglega frá 10 til 18 en 14 til 18 laugardaga og sunnudaga. Látid Hörpu gefa tóninn Ekki® /ii/ yí i hláinn Þaö er ekki út í blá- inn aö lífga upp á til- veruna meö Ijósu tízkulitunum frá VERÐHRUN Sængur + Koddar Verö áöur TtTQ.- T546< Kerrupokar Verö áöur'88d.- Verö nú 680.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.