Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 1

Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 1
220. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ronald Reagan Bandarfkjaforseti á Allsherjarþinginu: „Kjarnorkustríð er ekki hægt að vinna“ „Mannréttindi fótum troðin víða um heim og ekki bjart framundan,“ sagði Geir Hallgrímsson Sameinuðu þjóðunum, 26. september. AP. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti hélt sína fyrstu ræðu í Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag og sagði við þaö tækifæri að „kjarnorkustríð væri ekki hægt að vinna og að stríð af þessu tagi mætti aldrei brjótast út“. Meðal þeirra sem ávörpuðu allsherjarþingið í dag var Geir Hallgrímsson utanríkis- ráðherra. í ræðu sinni lýsti Reagan vilja Bandaríkjamanna til að fækka meðaldrægum eldflaugum, sem fyrirhugað er að koma fyrir í Evr- ópu, gegn því að Sovétmenn yrðu við áskorun um fækkun kjarnorku- vopna. Lagði hann áherzlu á að fundin yrði friðsamleg lausn á ýmsum alþjóðlegum deilumálum. Jafnframt notaði Reagan tæki- færið og hirti Sovétmenn fyrir að skjóta niður kóresku farþegaþot- una. Kvað hann það mál dæmi um hve Sovétmenn virtu að vettugi al- þjóðasamninga og hversu erfitt væri að treysta að þeir stæðu við gefin loforð. í ræðu sinni sagði Geir Hall- grímsson utanríkisráðherra, að í byrjun hefðu íslendingar gert sér vonir um að ríki Sameinuðu þjóð- anna bæru gæfu til að gera sam- tökin svo sterk og áhrifamikil, að þau gætu tryggt friðsamlega lausn deilumála og komið í veg fyrir vopnaviðskipti og stríð. Þessar vonir hefðu því miður ekki ræst. Einmitt vegna þessa og sífelldrar stríðshættu hefðu íslendingar séð sig knúna til að tryggja öryggi sitt, og fyrir rúmur þremur áratugum hefði ríkisstjórnin og Alþingi talið nauðsynlegt að Islendingar yrðu þátttakendur í varnarbandalagi Atlantshafsríkjanna og gert varn- arsamning við Bandaríkin. Þannig hefðu íslendingar bund- ist samtökum með vinaþjóðum, sem ættu sameiginlegar hugsjónir frelsis og lýðræðis. Enn væri þörf fyrir þessi samtök, en Islendingar væntu þess þó að sá dagur kæmi þegar ekki væri þörf slíkra sér- stakra varnarráðstafana. Væru þeir þó ákveðnir að halda vöku sinni svo lengi sem nauðsyn krefði um leið og þeir vildu stuðla að því að Sameinuðu þjóðirnar gætu gegnt því hlutverki, sem ætlast hefði verið til af þeim í upphafi. Geir sagði að ekki væri bjart um- horfs og langt frá því að sæist til lands. Mannréttindi væru fótum troðin í Austur-Evrópu og víðar um heim. Stríð væri háð í Líbanon, írak og íran. Sovétríkin hefðu ekki dregið innrásarher sinn í Afganist- an til baka, Víetnamar létu heldur ekki segjast í Kampútseu, Suður- Afríka héldi til streitu aðskilnað- arstefnu sinni, ófriðaröldur ógnuðu Mið-Ameríku og grimmdarlegt at- hæfi Sovétmanna er þeir skutu niður kóreska farþegaflugvél mætti ekki líðast eða endurtaka sig. Ræða Geirs Hallgrímssonar verður birt í heild í Morgun- blaðinu á morgun. Sjá nánar á bls. 18. Ronaid Reagan Bandaríkjaforseti í ræðustól í Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. AP/Simamynd. Wazzan fer frá til að auðvelda einingu Beirút, 26. aeptember. AP. SHAFIK Wazzan forsætisráðherra baðst í dag lausnar fyrir sig og ráðu- neyti sitt til að auðvelda myndun þjóðstjórnar er sameinað gæti líb- önsku þjóðina og reist landið úr rúst- um eftir þriggja vikna borgarastríð. Wazzan tilkynnti ákvörðun sína í framhaldi af vopnahléssamkomu- lagi stríðandi afla í Líbanon, en fulltrúar deiluaðila hafa heitið að virða samkomulagið. Sýrlendingar og drúsar höfðu krafizt afsagnar Wazzans vegna hlutdeildar hans í samkomulagi um brottflutning ísraelskra herja frá Líbanon. Svo virtist sem vopnahléð væri Gunnar Thoroddsen látinn GUNNAR THORODDSEN, fyrrum forsætisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, andaðist aðfaranótt sunnudagsins 25. september í sjúkrahúsi í Reykjavík. Með Gunnari Thoroddsen hverfur af sjónarsvið- inu stjórnmálamaður sem verið hefur í forystusveit á alþingi um hálfrar aldar skeið. Gunnar Thoroddsen fæddist í Reykjavík 29. desember 1910 og var því sjötíu og tveggja ára þeg- ar hann lést. Foreldrar hans voru Sigurður Thoroddsen, verk- fræðingur og yfirkennari við Menntaskólann í Reykjavík, og kona hans, María Kristín Thor- oddsen f. Claessen. Gunnar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1929 og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla íslands 1934. Síðan stundaði hann framhaldsnám, aðallega í stjórnlagafræði og refsirétti, í Danmörku, Þýska- landi og Englandi. Doktor í lögfræði frá Háskóla íslands fyrir ritið Fjölmæli 24. febrúar 1968. Hann stundaði lögfræðistörf 1936—1940 en í okt. 1940 var hann ráðinn og síðar skipaður prófessor i lagadeild Háskóla ís- lands og gegndi því starfi þar til í febrúar 1947 þegar hann var kjörinn borgarstjóri í Reykjavík. Varð að nýju prófessor við laga- deild Háskóla íslands 15. mars 1971. Landskjörinn á alþingi 1934—37 og 1942 (sumarþing), þingmaður Snæfellsnessýslu 1942 (haustþing) til 1949. Þing- maður fyrir Reykjavík 1949—65 og frá júní 1971 til 23. apríl 1983. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1938—62, bæjarráðsmaður 1946—60. Borgarstjóri í Reykja- vík 1947-59. Fjármálaráðherra nóv. 1959 til maí 1965. Sendiherra íslands í Danmörku og Tyrklandi 1965 til 31. des. 1969. Hæstaréttar- dómari 1. jan. 1970 til 16. sept. 1970. Lagaprófessor frá mars 1971. Félags- og iðnaðarráðherra ágúst 1974 til sept. 1978. Forsæt- isráðherra feb. 1980 til maí 1983. Gunnar Thoroddsen var for- maður Heimdallar félags ungra sjálfstæðismanna 1935—39. Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 1940—42. I miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1948-65 og 1971-81. Varafor- maður Sjálfstæðisflokksins 1%1—65 og 1974—81. Formaður þingflokks sjálfstæðismanna 1973-79. Hann bauð sig fram í embætti forseta fslands 1968 þegar Kristján Eldjárn náði kjöri. Gunnar Thoroddsen var kjör- inn til margvíslegra trúnaðar- starfa í nefndum og ráðum. Hann sat meðal annars í stjórn- arskrárnefnd frá 1972 og var formaður hennar frá 1978. Lagði á síðasta þingi fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá fyrir ís- lenska lýðveldið. Eftir hann liggja ritverk og ritgerðir um lögfræði og stjórnmál. Hann var sæmdur fjölda heiðursmerkja og var heiðursfélagi Tónlistarfé- lagsins og SÍBS. Árið 1941 kvæntist Gunnar Thoroddsen eftirlifandi konu sinni, frú Völu Ásgeirsdóttur Thoroddsen. Þau eignuðust fjög- ur börn. Morgunblaðið sendir frú Völu, börnum þeirra hjóna og vanda- mönnum öllum innilegar samúð- arkveðjur. virt í kvöld, en samt er spenna mik- il í fjallahéruðunum umhverfis Beirút og skutu leyniskyttur drúsa á stjórnarhermenn í fjöllunum og í úthverfum Beirút. Heyra mátti stöku sprengjuhvelli eftir myrkur. Þá lá við skotbardaga er stjórn- arhermenn komu í veg fyrir tilraun hóps drúsa til að laumast inn í Souk El-Gharb. Leyniskyttur drúsa felldu tvo stjórnarhermenn í þorpinu Kaifoun þar skammt frá. Vopnahléð gekk í gildi í morgun, en um það var samið eftir stranga fundi diplómata og embættis- manna frá Bandaríkjunum, Saudi- Arabíu, og Sýrlandi, og fulltrúa hinna stríðandi fylkinga í Líbanon. Viðbrögð víða um heim einkennast af miklum létti, og Robert Mc- Fariane sendimaður Reagans Bandaríkjaforseta sagði samkomu- lagið marka þáttaskil, þar sem full- trúar allra deiluaðila hefðu fallist á að ræðast við um framtíð lands- ins. Talið er að 806 manns hafi týnt lífi og 1725 særst í bardögum, sem brutust út eftir að ísraelar drógu heri sína frá Chouf-fjöllunum 4. september sl. Astralíu- skútan sigraði Newport, 26. september. AP. Ástralíuskútan „Ástralía H“ rauf 132 ára einokun bandarískra sigl- ingamanna f Ameríkubikarnum, er hún tryggði sér sigur í keppninni á sjöunda og síðasta degi, í kvöld. Bandaríska skútan „Liberty" náði betra viðbragði í dag, eins og endranær, en sú ástralska sigldi hana fljótt uppi og kom 41 sekúndu á undan i mark. Áströlsku siglingamennirnir hafa spjarað sig með glæsibrag í keppninni, þar sem um tíma leit út fyrir auðveldan sigur bandarísku skútunnar. Sú skúta fer með sigur af hólmi sem vinnur fjóra keppn- isdaga, og um tíma var staðan 3:1 fyrir Liberty, en síðan kom Ástralía II þrisvar fyrst í mark og vann þar með sögulegan sigur í keppninni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.