Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 2

Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 Ljósm. Jón Gunnlaugsson. Ómar Ragnarsson varð fyrir því óhappi í laugardaginn, að flugvél hans, TF-FRÚ, datt i nefið ofan í skurð við Innsta-Vog á Akranesi, er hann var að laga hana til vegna óveðurs sem var að skella á. Vélin skemmdist hins vegar lítið, og flaug Ómar henni til Reykjavíkur á sunnudag. Kvaðst Ómar í samtali við Mbl. líklega þurfa að lagfa-ra vélarhlíf og „mótorbúkka“ en annað ekki. — Aðfaranótt sunnudags gerðist það hins vegar að neyðarsendir fór í gang í Frúnni, þar sem hún stóð uppi á Skaga 12 tímum eftir óhappið. Sagðist Ómar ekki vita hvernig það gerðist, en sem betur fer hefði vélin fundist áður en farið væri að skipuleggja mikia leit um nóttina. Er ánægður með viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar — segir Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ „ÉG ER mjög ánægður með hvernig viðbrögð talsmanna verkalýðshreyf- ingarinnar við þeim hugmyndum okkar að hefja viðræður um lausn þeirra miklu vandamála, sem við er að etja um þessar mundir, hafa ver- ið. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, lýsti því m.a. yfir í sjónvarps- þætti sl. föstudag, að verklýðshreyf- ingin væri tilbúin til viðræðna. Formlegt svar hefur reyndar ekki borizt ennþá,“ sagði Magnús Gunn- Byggingarvísitala hækkar um 6,4% * — Arshraðinn um 28,2% HAGSTOFA íslands hefur reiknað út vísitölu byggingarkostnaðar eftir verð- iagi í fyrri hluta septembermánaðar og reyndist hún vera 149 stig. Hún gildir fyrir tímabilið október-desember nk. Hækkun vísitölu byggingar- kostnaðar frá því hún var reiknuð út samkvæmt verðlagi í byrjun júnímánaðar er 6,4%, en þá var hún 140 stig. Árshraði vísitölu byggingarkostnaðar miðað við þessa þriggja mánaða hækkun er því tæplega 28,2%. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala bygg- ingarkostnaðar hækkað um 66,3%. í fréttatilkynningu Hagstofunn- ar segir ennfremur, að í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar, um að vísitala framfærslukostn- aðar skuli reiknuð út mánaðarlega til ársloka, hafi Kauplagsnefnd reiknað hana út miðað við verðlag í septemberbyrjun. Reyndist hún vera 365,21 stig, eða 0,74% hærri en í ágústbyrjun, þegar hún var 362,52 stig. Vísitala vöru og þjónustu reynd- ist vera 364,73 stig í september- byrjun og var einnig um að ræða 0,74% hækkun frá ágústbyrjun. Þá segir í annarri fréttatilkynn- ingu Hagstofunnar, að leiga fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhús- næði, sem bráðabirgðalögin frá í Útför dr. Gunnars gerð á föstudag ÚTFÖR dr. Gunnars Thoroddsen, fyrrverandi forsætisráðherra, verður gerð á föstudaginn. Verður útförin á kostnað ríkisins og fer fram frá Dómkirkjunni í Reykja- vík. Athöfnin hefst klukkan 13.30 og séra Þórir Stephensen dóm- kirkjuprestur jarðsyngur. vor taka til, skuli haldast óbreytt í mánuðunum október til desember nk., frá því sem hún er í septem- ber. „Það skal tekið fram, að húsa- leiguhækkun svarandi til 4% al- mennrar launahækkunar frá 1. október 1983 kemur ekki til fram- kvæmda fyrr en í janúarbyrjun 1984,“ segir ennfremur orðrétt. arsson, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambands íslands, í samtali við Mbl. „Þeir hafa lýst sig sammála því grundvallaratriði, að heppilegast sé, að aðilar vinnumarkaðarins leysi sín deilumál innbyrðis án af- skipta ríkisvaldsins," sagði Magn- ús ennfremur. „Það er reyndar ljóst af þeirri umræðu, sem farið hefur fram í þjóðfélaginu að undanförnu, að þau miklu vandamál, sem við verðum að glíma við í nánustu framtíð, verða ekki leyst nema í viðræðum verkalýðshreyfingar- innar og vinnuveitenda. Þær samningaviðræður, sem stjórn- völd hafa verið þungamiðjan í undanfarin ár, hafa einfaldlega ekki skilað þeim árangri, sem nauðsynlegur var. Þessir samn- ingar hafa oft á tíðum verið dýrir og óraunhæfir. Það er því ljóst, að raunhæfar kjarabætur fást ekki á næstunni, nema til komi aukin framleiðni og aukin framleiðsla," sagði Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, að síðustu. Þorsteinn Gíslason forstjórí Coldwater: Engin verðlækkun á ufsa hjá Coldwater „ÞAÐ hefur engin veróbreyting orð- ið á ufsaflökum hjá okkur í seinni tíð og engin áform eru uppi um lækkun á þeim,“ sagði Þorsteinn Gíslason, forstjóri Coldwater, sölu- fyrirtækis Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna í Bandaríkjunum, er Morgunblaðið spurði hann um verð- lækkun á þessari söluvöru, sem ný- lega var frá skýrt. Þorsteinn Gíslason sagði að hvað snerti ufsablokkir mótaðist verð þeirra af markaðsástandi í Bandaríkjunum á hverjum tíma, og væri það ekki háð ákvörðun Coldwater Seafood Corporation. „Coldwater kaupir ufsablokkir og selur á því verði, sem þær eru á á markaðinum," sagði Þorsteinn Gíslason. Rækjuverð lækkar á heimsmarkaði „ÞAÐ ER STAÐREYND að verð fer nú lækkandi á rækjumörkuðum erlend- is. Verð fyrir djúprækju komst hæst í 260 pence pundið CIF í sumar, en það er nú komið niður í 230—240 pence pundið CIF og er sennilega nær 230 pencunum,“ segir Óttar Yngvason, forstjóri íslenzku útflutningsmiðstöðvar- innar hf„ í samtali við Fiskifréttir sl. fostudag. í samtalinu við Fiskifréttir seg- ir Óttar, að mikil rækjuveiði við Island í sumar og haust eigi engan þátt í lækkandi rækjuverði á er- lendum mörkuðum. Það væri fyrst og fremst hinar miklu veiðar Norðmanna sem réðu verðinu. Þá segir í blaðinu, að þegar hrá- efnisverð á rækju hafi verið reikn- að út fyrir yfirstandandi rækju- vertíð hafi verið reiknað með að 230—240 pence fengjust fyrir pundið. Verðið hafi hins vegar far- ið hærra eins og áður sagði og hafi því stórar fjárhæðir verið greidd- ar í Verðjöfnunarsjóð fiskiðn- aðarins á nýjan leik, en langt er liðið frá því mögulegt var að greiða inn í rækjudeild sjóðsins. Einkennileg yfirlýs- ing forsætisráðherra — segir Jón Hákon Magnússon „ÞESSI yfirlýsing forsætisráðherra °g vera * ósamræmi við staðreynd- finnst mér í hæsta máta einkennileg Ný flugstöð: Samningar undirritaðir í DAG klukkan 15 verða undirritað- ir samningar byggingarnefndar nýrr- ar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli og verktakafyrirtækisins Hagvirki hf. um fyrsta áfanga mannvirkisins. Byggingarnefndin ákvað fyrir skömmu að taka tilboði Hagvirkis, sem var þriðja lægsta tilboðið í verkið, en alis bárust 16 tilboð. Tilboð Hagvirkis nam um 9,6 milljónum króna. Reiknað er með að framkvæmdir hefjist fyrir mánaðamót og að þeim verði lokið fyrir endaðan mars, nk. og vera ir,“ sagði Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri markaðs- og flutningasviðs Hafskips, í samtali við Mbl., er hann var inntur álits á þeim ummælum Steingríms Her- mannssonar, forsætisráðherra, á dögunum, að hann væri andvígur sölu á Ríkisskip, þar sem hann teldi þjónustu við landsbyggðarbúa ekki tryggða í höndum einkaaðila. „Ef grannt er skoðað kemur í Ijós, að hluthafar í þeim þremur fyrirtækjum, sem staðið hafa í viðræðum um sameiginlegan rekstur strandflutninga, Eimskip, Hafskip og SÍS, eru tæplega 56.000 talsins, eða tæplega fjórðungur þjóðarinnar. Mér finnst óneitan- lega fremur einkennilegt ef ekki er hægt að treysta fjórðungi þjóð- arinnar fyrir þessu verkefni," sagði Jón Hákon ennfremur. Austfirðingar gera klárt fyrir sfldarsöltunina: Vaðandi síld í Norðfirði og Reyðarfirði Sfldveiðar í reknet hefjast næstkomandi sunnudag, 2. október. Á Aust- fjörðum eru menn að gera sig klára til að veiða og salta sfldina og fylgjast grannt með fréttum af sfldinni, hvor og hvart til hennar sést. Morgun- blaðið hafði samband við nokkra af fréttariturum sínum fyrir austan og fara frásagnir þeirra hér á eftir: Ncskaupstaó, 26. september. FJÖRÐURINN er fullur af stórri og feitri síld. Bátar hafa lóðað niður á margar torfur hér í firðinum, en lítils háttar hefur verið veitt til frystingar í beitu. Sýni sem voru tekin og mæld sýndu allt upp í 18% fitu. Síldarsöltunin hefst væntan- lega 2. október og er undirbún- ingur undir söltunina nú í full- um gangi. Auk þess sem saltað verður í Síldarvinnslunni eins og venjulega verður að þessu sinni saltað hjá Gylfa Gunnarssyni. Sigurbjörg. Reyðarrirði, 26. september. HÉR VAR unnið alla helgina og einnig hefur verið unnið fram á nætur að undanförnu við að und- irbúa síldarsöltunina. Menn eru mjög bjartsýnir á góða vertíð. Byrjað verður að salta hjá nýrri síldarsöltunarstöð, Austursíld, en auk þess verður saltað í gömlu stöðvunum. Eskifjarðarbátur lóðaði á síld hér úti í firði og stórar torfur eru hér inn allan fjörð og hefur síld sést alveg hér inn að bæ. Gréta. Fáskrúðsflrði, 26. september. HÉR ERU menn langt komnir með að undirbúa síldarsöltunina til að vera tilbúnir þegar síldin kemur. Ekkert hefur orðið vart við síld hér inni á firði enn sem komið er en vonandi er að hún fari að sjást, því veiðarnar hefj- ast um helgina. Albert. GskitirAi, 26. septeraber. HÉR ER unnið af fullum krafti við að undirbúa síldarsöltunina. í ár verður saltað hér hjá 5 stöðvum, þar af einni nýrri. Um helgina, þegar veiðarnar hefjast, verður allt tilbúið og vonandi að síldin láti þá ekki á sér standa, en ég hef ekki haft neinar fregn- ir af henni hér inni á firði enn sem komið er. Ævar. Ilöfn, Mornaflrði, 26. september. Útgerðarmennirnir eru að undirbúa þá 20 báta sem fara héðan á síld í haust. Nú bíða bát- arnir því nýmálaðir og fínir eftir því að síldin gefi sig. Lítið hefur frést af síld hér í nágrenninu og fara bátarnir fyrst á firðina til að reyna fyrir sér. Steinar. Seyðisfirði, 26. september. FYRSTA síldin barst til Seyð- isfjarðar nú á hádegi er Auð- björg EA-22 frá Hauganesi land- aði hjá Norðursíld hf. 40 tunnum af síld sem veiðst hafði í lagnet. Að sögn skipstjórans, Oðins Valdimarssonar, fengu þeir síld- ina, sem var nokkuð góð beitu- síld, inn með Dalalandinu í Norðfjarðarflóanum. „Þetta virðist vera að glæðast núna. Við höfum lagt 4 sinnum en ekki fengið neitt fyrr en nú en orðið varir við þó nokkra síld," sagði Öðinn. Einnig töldu trillukarlar sig sjá vaðandi síld inni á Norð- fjarðarflóa og sunnanmegin í Seyðisfirði. Hér á Seyðisfirði er nú allt að verða klárt fyrir síld- arvertíðina og undirbúningur á lokastigi. Hjá Norðursíld hf. er búið að reisa nýja 640 fermetra skemmu fyrir síld og fleira. Að sögn Hreiðars Valtýssonar framkvæmdastjóra mun verða aðstaða fyrir 42 söltunarstúlkur en alls munu starfa á milli 60 og 70 manns við söltunina hjá hans fyrirtæki. Þá hefur verið stofnað nýtt fyrirtæki, Strandarsíld sf., sem er í eigu Mikaels Jónssonar og sona hans. Það fyrirtæki stendur þar sem söltunarstöðin Ströndin var og hefur verið endurbyggt auk þess sem byggt hefur verið nýtt söltunarhús. Mikael sagði að aðstaða vaeri fyrir 36 söltunarstúlkur hjá þeim en alls myndu starfa á milli 40 og 50 manns í kringum síldina þegar allt verður komið í fullan gang. Ólafur Már.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.