Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 16

Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 Karnabær selur hlut sinn í Steinum hf. BREYTINGAR á eignahlutföliuin í hljómplötuútgáfunni Steinum hf. eru fyrirsjáanlegar, þar sem Guðlaugur Bergmann, f.h. Karnabæjar hf., hef- ur ákveðið að bjóða fjórðungshlut sinn í fyrirtækinu til sölu. Guðlaugur hefur ákveðið að ein- beita sér að fataframleiðslu og rekstri tískuverslana Karnabæjar, en Steinar Berg ísleifsson, for- stjóri Steina hf., hyggst annast rekstur fyrirtækisins sem hingað til. Samstarf Steina hf. og Karna- bæjar hefur staðið í liðlega sjö ár. „Við munum eftir sem áður eiga samstarf um rekstur þeirra tveggja hljómplötuverslana sem eru í húsnæði Karnabæjar og sömuleiðis um aðra viðskiptalega hagræðingu," sagði Steinar Berg í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Hlutabréf Karnabæjar í Steinum hf. hafa enn ekki verið verðlögð né endanlega ákveðið hvenær sala þeirra fer fram. MILLIVEGGJA PLOTUR Stærðir: 50x50x 5 50x50x 7 50x50x10 VANDAÐAR PLOTUR VIÐRÁÐ ANLE GT VERÐ BMVALIÁ" PANTANIR: Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk. Símar: 91-25930 og 91-25945 á KRisunn f Á\#SIGGeiRSSOn HF ^ J LAUGAVEGI 13, REYKJAVIK, SÍMI 25870 Opið á fimmtudögum til kl. 21, á föstudögum til kl. 19 og til hádegis á laugardögum. AF ERLENDUM VETTVANGI EFTIR JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Marcos Sin erkibiskup við útför Aquinos. Filippseyjar: Gæti valdarán hersins verið yfirvofandi? SAMTÍMIS því að ólgan og ókyrrðin á Filippseyjum magnast í kjölfar morðsins á stjórnarandstöðuleiðtoganum Benigno Aquino hefur annað vandamál, töluvert flókið, komið á daginn. Rannsóknarnefndin, sem Marcos forseti skipaði til að kannað morðmálið, virðist að minnsta kosti í bili óstarfhæf. Formaður nefndarinnar, Enrique Fernando, hæstarétt- ardómari, hefur látið af því starfi vegna þess að mikil gagnrýni kom fram á skipan hans. Annar nefndarmanna, Guillermo Santos, er á sjúkrahúsi, sagður hafa fengið hjartaáfall. Sin erkibiskup neitaði að starfa með nefndinni og þeir þrír fulltrúar, sem eftir eru þá, hafa ákveðið að fresta rannsókninni um ótiltekinn tíma. Væntanlega ekki sízt vegna þess að margir á Filippseyjum og utan þeirra telja fráleitt að nefndin geti starfað hlutlaust og sjálfstætt. Marcos valdi sjáifur fulltrúana og þó að enginn bendli hann beinlínis við morðið, hefði verið hyggilegra af forsetanum að velja einhverja úr hópi hinnar svokölluðu hófsömu stjórnarandstöðu og einhverja kirkjunnar menn. Jafnvel þótt Sin erkibiskup hefði ekki viljað taka sæti í nefndinni, er ekki þar með sagt, að ekki hefði mátt sýna viðleitni í þessa átt. Síðan Aquino var myrtur hefur raunar ýmislegt ver- ið dregið fram í dagsljósið, sem vekur undrun ef rétt er. Sem stendur bendir ýmislegt til þess, að öfl innan hersins hafi látið fremja morðið, án vitundar Marcosar. Sé þetta á rökum reist gerir Marcos sér auðvitað grein fyrir, að staða hans hefur veikzt, þar sem hann hefur fram að þessu getað treyst á tilstyrk hersins. Heimildir bandaríska tímaritsins Newsweek, svo og blaðsins Far Eastern Economic Review, greina frá því að meint- um morðingja, Rolando Galman, hafi líklega ekki verið kunnugt um, hvað það var nákvæmlega sem í vændum var á flugvellin- um í Manilla. Galman átti sér vinstúlku að nafni Anna Oliva sem vann á skemmtiklúbbi f Manilla. Síðustu þrjá sólar- hringana fyrir tilræðið héldu Oliva og Galman til á litlum gististað, skammt frá flugvellin- um. Þrír vopnaðir menn voru á verði við vistarverur þeirra allan sólarhringinn. Heimildir innan fjölskyldu stúlkunnar segja, að hún hafi tjáð fjölskyldu sinni að „mikið verkefni" biði Galmans og þegar því væri lokið myndi margt breytast til batnaðar, en ekki var þetta skýrt nánar. Oliva var um kyrrt á gistiheimilinu, þegar mennirnir þrfr komu að sækja Galman og fylgja honum til ótiltekins ákvörðunarstaðar. Hins vegar hefur Anna Oliva hvorki sézt á vinnustað né heim- ili sínu síðan morðið var framið. Eiginkona Galmans og ungur sonur eru horfin sporlaust lfka. Við þetta má einnig bæta að talsmenn ýmissa stjórnarand- stöðuhópa hafa sagt, að ellefu sjónarvottar væru reiðubúnir að sverja, að þeir hefðu séð her- menn skjóta Aquino niður og síðan Galman. Hins vegar treysta þessir ellefu sér ekki til að stíga fram og bera vitni þess efnis, nema öryggi þeirra verði tryggt og fram til þessa hefur enginn aðili treyst sér til að gera það. Sé því nú svo háttað, að Marc- os forseti sé ekki á einn eða neinn hátt viðriðinn morðið, benda stjórnmálaskýrendur á, að hann sé að missa tökin á hernum. Það eru í þessu fólgnar ýmsar mótsagnir: Marcos er gagnrýndur fyrir að vera flækt- ur í morðmálið í fyrstu. Síðan kemur upp úr dúrnum, að líkast til hefur hann ekkert vitað um hvað til stóð. Og þá hlýtur hann ámæli fyrir að hafa ekki alla þræði í höndum sínum. Það er ekki tekið út með sitjandi sæld- inni að vera í sporum Filipps- eyjaforseta þessar vikurnar. Stjórnmálaskýrendur benda á að Marcos hafi vissulega gert ítrekaðar tilraunir til að sann- færa landa sína um að hann hefði fyllstu stjórn á öllu sem fyrr og hann er sýknt og heilagt að koma fram í sjónvarpi og út- varpi til að gefa yfirlýsingar um bráðgott heilsufar sitt. Einnig þessar yfirlýsingar vekja grun- semdir um að ekki sé allt með felldu og Marcos sé sárveikur maður. Kona hans, Imalda, hef- ur lítt látið að sér kveða í þess- um umræðum öllum, að því frá- töldu, að hún segist ætla að láta af öllum trúnaðarstörfum, sem hún gegnir nú, eftir ár, vegna þess hún finni að hún hafi misst tiltrú þjóðarinnar. Ekki blandast neinum hugur um, að það ríkir vond og grimm- úðleg harðstjórn á Filippseyjum. En málið er flóknara en svo, að það væri einhver stórsnjöll lausn að steypa Marcosi einungis til að koma honum frá. Það er hætt við að óöldin og ringulreiðin myndi magnast um allan helming. Eng- inn er sjálfskipaður eða sjálf- sagður eftirmaður Aquinos, þess eina manns, sem sennilega hefði getað sameinað þorra þjóðarinn- ar að baki sér. Þrír möguleikar eru augljósir: Herinn gæti gripið til þess að ræna völdum og Ver hershöfðingi, illræmdur maður, sem oft hefur verið getið í frétt- um, myndi þá líkast til taka við stjórnartaumunum. Annar möguleiki er kommúnískt vald- arán með tilheyrandi afleiðing- um. Kommúnistum hefur vaxið mjög fiskur um hrygg á harð- stjórnarárum Marcosar, en for- ystumannavandi hrjáir þá. Þriðji og síðasti kosturinn er svo að stjórnarandstöðuflokkarnir, aðrir en kommúnistar og kirkj- an, sem er býsna áhrifamikil, tækju höndum saman. En að Aquino gengnum virðist heldur enginn vera þar sem Filippsey- ingar geta sameinazt um sem leiðtoga. Það er því deginum ljósara, að framtíðin hefur ekki um langar tíðir verið Filippsey- ingum jafn óviss og nú. Það er sorglegt til þess að vita, því að Filippseyingar gætu án efa bætt hag hins almenna borgara til muna ef þeir fengju að búa við betra og heilbrigðara stjórnar- far og vera lausir við að lifa í stöðugum ótta um afkomu sína og framtíð. (Heimildir: Newsweek, Far Estern Economic Review.) Jóhanna Kristjónsdóttir er blaða- maður á Morgunbiaðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.