Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983
19
NBC skaut keppinaut-
unum ref fyrir rass
Los Angeles, 26. september. AP.
NBC-sjónvarpsstöðin skaut keppi-
nautum sínum, CBS og ABC, rétt eina
ferðina ref fyrir rass er Emmy-verð-
launin svonefndu voru afhent í gær-
kvöldi.
NBC, sem er þriðja stærsta sjón-
varpsstöðin í Bandaríkjunum, sóp-
aði nefnilega til sín verðlaunum.
Hlaut 33 á móti 14 verðlaunum
ABC og 11 til handa CBS. Þetta er
þriðja árið í röð, sem NBC er keppi-
nautunum sterkari' í þessari út-
nefningu. Hún fór nú fram í 35.
sinn.
Hlutabréfin í
BP seljast vel
London, 26. september AP.
SALA hófst í dag á hlutabréfum í British Petroleum að nafnverði 130 millj.
pund, sem verið hafa í eigu brezku stjórnarinnar. Vonir standa til, að 565,5
millj. pund fáist fyrir þessi hlutabréf og fari svo, mun ríkissjóður Bret-
lands hagnast verulega á sölu þeirra. Gekk sala hlutabréfanna mjög vel f
dag og var það talið benda til þess, að almenningur hefði mikla trú á
framtíð BP.
Nigel Lawson, fjármálaráð- þeim halla, sem væri á brezku
herra Bretlands, tilkynnti í júlí fjárlögunum. Hlutdeild brezka
sl., að þessi hlutabréf yrðu seld í ríkisins í BP hefur minnkað úr
því skyni að afla fjár til þess að 50% niður í 33% á fjórum árum.
standa að nokkru leyti straum af
Skemmtiþátturinn „Cheers" hjá
NBC-stöðinni var útnefndur sá
besti sinnar tegundar og lögreglu-
myndaflokkur stöðvarinnar, „Hill
Street Blues", var einnig verðlaun-
aður. Fjöldamörg verðlaun fylgdu
þessum tveimur þáttum, m.a. fyrir
handrit, mynda- og hljóðupptöku
og leikstjórn.
Helsta tromp ABC-stöðvarinnar
var á hinn bóginn þáttaröðin „The
Thorn Birds", sem byggð er á
skáldsögu Colleen McCullough um
þrjá ættliði ástralskrar fjölskyldu.
inumm
í
m
*»»«•* | EB'
Brezkir hermenn leita fanganna, sem brutu sér leið út úr Maze-fangelsinu í
Belfast. Gífurleg leit er nú gerð að föngunum á Norður-írlandi og í nyrstu
héruðum írska lýðveldisins.
AP/Símamynd.
Flóttinn úr Maze-fangelsinu:
Tæpur helmingur
fanga hefur náðst
Andófsmaður bar
inn af lögreglu
Vínarborg, 26. september. AP.
Belfast, 26. september. AP.
Um 5.000 lögreglumenn og hermenn leituöu ákaft aö föng-
unum, sem brutu sér leiö út úr Maze-fangelsinu í Belfast í
gær, og hefur tekist að hafa hendur í hári 17 fanga af 38.
EINN kunnasti andófsmaöur Ung-
verjalands, Gabor Demszky, liggur nú
á sjúkrahúsi í kjölfar barsmfðar af
hálfu lögreglumanna á föstudag, að
því er félagar hans segja.
Demszky var á föstudag stöðvað-
ur af fjórum lögreglumönnum, sem
kröfðust þess að fá að leita í bifreið
hans. Er hann neitaði skipti engum
togum að hann var dreginn út úr
bifreið sinni og barinn með gúmmí-
kylfum. Hlaut hann margvísleg út-
vortis meiðsl, auk heilahristings.
Demszky er aðstoðarritstjóri
tímarits, sem er andvígt stjórnvöld-
um í Ungverjalandi.
í leitinni fundust vopnahreiður
og sprengjuverksmiðjur, sem til-
heyra hinum ólöglega írska lýð-
veldisher, IRA, sem fangarnir eru
félagar í.
Meðal fanganna sem enn fara
huldu höfði eru þrír helztu hryðju-
verkamenn IRA og 11 sem afplán-
uðu lifstíðardóm fyrir morð og
hermdarverk.
Á flóttanum drápu fangarnir
vörð, sem reyndi að koma í veg
fyrir flóttann með því að aka bif-
reið í veg fyrir bíl þann sem fang-
arnir komust á út úr fangelsinu.
Sex fangaverði særðu fangarnir,
þar af einn alvarlega.
Leitin að föngunum er gífurlega
umfangsmikil og hafa vegtálmar
verið reistir á nær hverju götu-
horni. Einkum beinist leitin að
hverfum kaþólskra í Belfast og
nágrenni, og að svæðum við landa-
mæri írska lýðveldisins.
Yfirvöld í írska lýðveldinu hafa
heitið samvinnu við brezk yfirvöld
og sagt að fangar, sem næðust
sunnan landamæranna, yrðu
dregnir fyrir rétt þar og sóttir til
saka fyrir flóttatilraunina og
morð á fangaverði.
Maze-fangelsið er eitt hið
rammgerðasta á Norður-írlandi
og þar eru vistaðir helztu glæpa-
menn héraðsins. Af 900 föngum,
sem þar eru í haldi, afplána 250
lífstíðardóm.
«i»ih» i> .*<• * * jr .* * $