Morgunblaðið - 27.09.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 27.09.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 23 Evrópukeppnin i handknattleik: Góðir möguleikar Víkinga á að kom- ast í aðra umferó VÍKINGAR töpuðu fyrri leik sínum í Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik gegn norsku meisturunum Koboden meö 18 mörkum gegn 20. Leikur liðanna fór fram í Osló síðastliöinn laug- ardag. Síöari leikur liðanna fer fram í Laugardalshöllinni nasst- komandi sunnudag. Norska liöiö haföi yfir í hálfleik, 13—9. Framan af leiknum í Noregi var jafnræöi meö liöunum og léku Vík- ingar þá nokkuö vel. En er líöa tók á hálfleikinn fór róöurinn aö þyngj- ast. Staðan var þó jöfn, 8—8, en þá kom slæmur leikkafli hjá Vík- ingum og Norömennirnir sigu framúr og staöan í hálfleik var 13—9. Koboden — Víkingur 20—18 Þeir Viggó Sigurösson og Sig- uröur Gunnarsson voru atkvæöa- miklir hjá Víkingi í fyrri hálfleik og var brugöiö á þaö ráö hjá Norö- mönnum aö taka þá úr umferö í síðari hálfleiknum. Norðmenn juku forskot sitt í leiknum og komust í 16—11, og höföu góö tök á leikn- um. En Víkingar gáfust ekki upp heldur náðu aö minnka muninn meö mikilli baráttu og góöum leik. Sér í lagi var þaö Ellert Vigfússon markvöröur liösins, sem kom vel frá leiknum. Ellert varöi hvaö eftir annaö frábærlega vel. Víkingum tókst aö minnka muninn niöur í tvö mörk og lokatölur uröu eins og áö- ur sagöi 20—18. Víkingar eiga því mjög góöa möguleika hór heima í síöari leiknum. Takist (jeim aö sigra meö þriggja marka mun komast þéir áfram í keppninni. Mörk Víkinga skoruöu þeir Viggó Sigurösson 5, Sigurður Gunnarsson 5, Karl Þráinsson, Hilmar Sigurgíslason, Höröur Haröarson 2 hver. Steinar Birgis- son og Guömundur Guömundsson skoruöu 1 mark hvor. „Víkingar geta brotið blað í íslenskri knatt- spyrnusögu ef þeir sigra" „VÍKINGUR getur brotiö blað í ís- lenzkri knattspyrnusögu á miö- vikudag meö því aö sigra ung- versku meistarana Raba hér á landi. Ég tel möguleika Víkings é aö komast í 2. umferö 20%, — viö megum ekki gleyma þvf aö Ung- verjar eru geysísnjallir knatt- spyrnumenn. Eg þekki vel til Raba — sá þá vinna Standard Liege 3—0 í fyrra. Þeir heföu allt eins getað skoraö fimm til sex mörk, slíkir voru yfirburöir þeirra. Árangur Víkings í Ungverjalandi er því frábær og áhorfendur hylltu leikmenn Víkings eftir leik- inn; þökkuðu Víkingi góöan leik,“ sagöi Jean Paul Colonval, þjálfari Víkings. „Ungverjar eru í mínum huga Brazilíumenn Evrópu — saga ungverskrar knattspyrnu er saga frábærra einstaklinga og þar fer auövitaö fremstur Ferenz Puskas. Landsliösmenn Raba eru geysi- snjallir — trúöu mér. Þeir geta gert ótrúlegustu hluti meö knöttinn. En veikleiki Ungverja er sá, aö þeim hættir til aö gleyma liösheildinni — þeir leika fremur sem einstaklingar en liösheild. Þetta eigum við að geta nýtt okkur — viö lókum varnarleik í Ungverjalandi en veröum aö sækja hér á landi. Ef áhorfendur styöja vel viö bakið á okkur, þá geta þeir oröiö okkar 12. liösmaöur. íslenzk- ir áhorfendur sönnuöu þaö þegar íslenzka landsliðið lék gegn irum. En frammistaöa islensku atvinnu- mannanna var til skammar. Þeir brugöust íslenzkri knattspyrnu. Ég er sannfæröur um aö áhugamenn hér á landi heföu gert betur. Ég fullvissa þig um, aö leikmenn Vikings munu gera allt sem þeir eiga — frá upphafi til enda. Þeir geröu þaö í Ungverjalandi — léku sinn langbesta leik í sumar. Viking- ur fékk meira aö segja mjög góö tækifæri til þess aö jafna — sér- staklega í síöari hálfleik. Ómar Björnsson, sem aöeins hefur leikiö 3 leiki í sumar, var fremsti maöur og stóð sig mjög vel og tvívegis varö ungverski markvörðurinn að bjarga vel frá honum. Þetta sýnir hvaö íslenzk lið geta gert þegar allir leggjast á eitt.“ Nú hefur liö Víkings valdiö vonbrigöum í sumar, eftir aö hafa unnið islandsmótiö tvö ár í röö. Hverjar eru helstu orsakirnar? „Fyrst og fremst slæmur undir- búningur — ég kom hingaö til lands aöeins tveimur vikum fyrir byrjun islandsmótsins. Við byrjuö- um afleitlega. FnEgum aöeins 1 stig úr þremur fyrstu leikjunum. Síöan náöi liöið sér vel á strik — lék mjög vel úti á vellinum, en illa var fariö meö tækifærin. Viö þörfn- umst annars miðherja — viö hliö Heimis Karlssonar. Heimir missti sjálfstraustiö fyrir framan markiö tvo fyrstu mánuöina. Og þaö kom illa niöur á liöinu. Síöan fór Heimir aö skora, en liöiö lék þá ekki eins vel og áöur. í seinni umferöinni fékk liöiö 8 stig af 10 mögulegum, en fyrir tvo síöustu leikina haföi Víkingur misst af möguleikanum á aö verja titilinn og leikmenn slök- uöu á. Víkingur þarfnast sterks miöherja viö hlið Heimis — ef viö fáum góöan miöherja þá veröur liöiö illstöövanlegt. Eins er vert aö nefna, að ham- ingjudísirnar voru ekki í liöi okkar. Viö misnotuðum tækifærin hvaö eftir annaö. Til aö mynda gegn Skagamönnum. Viö byrjuöum af- leitlega, — fengum á okkur tvö mörk í byrjun, en í síöari hálfleik yfirspiluöum viö Skagamenn, og fengum fjölmörg tækifæri til þess aö vinna leikinn, en eins og svo oft áöur misnotuöum viö þau. En ég verö aö taka fram, aö Skagamenn voru meö sterkasta liöiö í sumar. Þar var hvergi veikur hlekkur," sagöi Jean-Paul Colonval. Undirbúningur fyrir Brasilíuferðina „UNDIHBÚNINGUR fyrir feröina til Brasilíu gengur mjög vel. Þaö er ýmislegt sem bendir til þess aö við munum senda mann til Sví- þjóöar á næstunni til þess aö hitta forsvarsmann þeirra móta sem viö komum til meö aö leika (, en þau veröa tvö,“ sagöi Sævar Jónsson þjálfari 3. fiokks Vals í knattspyrnu. En eins og Morgun- blaðiö hefur skýrt frá þá mun flokkurinn fara í keppnisferö til Brasilíu á næsta ári. Aö sögn Sævars er reiknað með því aö alls fari 22 leikmenn ásamt fararstjóra. Þá munu foreldrar hafa áhuga á því aö slást í hópinn og margt bendir til þess aö rúmlega þrjátíu manns komi til meö aö fara til Brasilíu. Hópurinn mun fara utan til Rio í kringum 22. mars á næsta ári. Knattspyrnumótin fara fram 29. mars til 9. apríl. Allar feröir og uppihald í Brasilíu er Valsmönnum aö kostnaöarlausu. Valsmenn eru meö ýmiss konar fjáröflun á prjón- unum. Tólf liö víös vegar aö úr heiminum munu taka þátt í mótinu sem Valsmenn leika í í Brasilíu. — ÞR. Fyrsta tapið hjá Bayern FORTUNA DUsseldorf tók Bor- ussia Dortmund heldur betur í bakaríiö á föstudagskvöldió í Bundesligunni vestur—þýsku. Fortuna sigraöi 7:0 en hvorki Atla ná Pátri tókst þó aó skora. Atli lák meö allan tímann og Pátur kom inná sem varamaöur. Þaö gekk ekki eins vel hjá Ás- geir og félögum í Stuttgart. Þeir geröu jafntefli viö Bayer Leverkus- en 1:1 á útivelli. Urslitin í Þýskalandi uröu þessi um helgina: Braunschweig — Frankfurt 4:3 Leverkusen — Stuttgart 1:1 Waldhof — Núrnberg 1:0 Gladbach — Köln 4:2 Bochum — Bayern 3:1 Dússeldorf — Dortmund 7:0 Offenbach — Kaiserslautern 3:2 Bremen — Hamburger 0:0 Þetta var fyrsta tap Bayern á nýbyrjuöu keppnistímabili. Frank Schultz skoraöi fyrst fyrir Bochum, Malter geröi mark númer tvö og Schultz geröi þriöja markiö. Karl Heinz Rummenigge skoraöi eina mark Bayern á síðustu mínútunni. Frank Hartmann skoraöi fyrst fyrir Köln gegn Borussia Mönch- engladbach, en Frank Mill jafnaöi. Wilfred Hannes (úr víti) og Uwe Rahn komu Gladbach í 3:1. Pierre Littbarski skoraöi annaö mark Kölnarliösins beint úr hornspyrnu, en Ewald Lienen geröi fjóröa mark Gladbach. Paul Linz geröi sigurmark Waldhof gegn Núrnberg. • Siguröur Gunnarsson skoraói fimm mörk gegn Koboden. í síðari hálfleik var hann tekinn úr umferö. Mary Decker-Tabb Decker-Tabb og Navratilova — íþróttakonur ársins Frjálsíþróttakonan Mary Deck- er Tabb var um helgina útnefnd íþróttakona áhugamanna í Bandaríkjunum og tennisstjarnan Marina Navratilova var útnefnd íþróttakona ársins meöal at- vinnumanna um helgina. Firmakeppni Breiða- bliks í knattspyrnu Knattspyrnudeild Breiöabliks heldur firmakeppni í knattspyrnu utanhúss á Vallargeröisvelli dagana 30 sept.—2. október nk. Tekiö er á móti skráningu og upplýsingar veittar í síma 40935 kl. 17—20 mánu- dag, þriðjudag og miövikudag. Knattspyrnudeild Breiðabliks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.