Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983
Liam Brady:
„Eg spái Juventus sigri
ÞEIR SEM sáu Liam Brady leika
meö írska landsliöinu hér á dög-
unum fengu sönnun fyrir því aö
þar fór snjall knattspyrnumaöur.
Hann fór sér í engu óöslega á
vellinum. Hver hreyfing hans virt-
ist vera úthugsuð og sendingar
hans á samherjana voru með
ólíkindum nákvæmar. Þá var það
ekki ósjaldan í leiknum að hann
var upphafsmaöur hættulegrar
sóknar með því aö gefa boltann á
leikmenn sem voru óvaldaöir í
þeirri aðstööu aö þeir gátu skap-
aö mikinn usla í vörn mótherj-
anna. Já, þaö fór ekki á milli mála
aó yfirsýn Brady á leiknum var
mikil. Enda er hann álitinn af
knattspyrnusérfræöingum einn
besti miövallarleikmaöur heims-
ins. Brady sem áóur lék meö Ars-
enal leikur nú á Ítalíu. Þeir bestu
fara flestir þangaó, enda eru tekj-
urnar þar þær hæstu sem þekkj-
ast í atvinnuknattspyrnu.
— En Brady lét ekki mikiö yfir
sér þegar ég hitti hann þegar hann
var hér meö írska landsliöinu á
dögunum. Þaö var ekki aö sjá að
þar færi einn besti knattspyrnu-
maöur heims. Hann var mjög lítil-
látur og bauð af sér einstaklega
góöan þokka. Hann tjáöi mér strax
aö hann heföi því miður ekki mik-
inn tíma til þess aö spjalla viö mig
og baö mig því um aö koma mér
beint aö efninu.
Ég baö hann aö segja mér frá
knattspyrnunni á italíu, hvaöa liö
væru best og hver væri helsti mun-
urinn á því aö leika þar og í Eng-
landi.
— Knattspyrnan á ítalíu er
mjög góð um þessar mundir. Nú
leika þar margir af bestu knatt-
spyrnumönnum heims, á því leikur
enginn vafi. Ég get nefnt nöfn eins
og Platini, Boniek, Zico, Fraqncis,
Falcao, Rossi, Conti og ótal marga
fleiri. Enda er aösóknin aö leikjum
á ítalíu mikil. Og sennilega er
hvergi í heiminum meiri áhugi á
knattspyrnu en þar. Allavega ekki í
Evrópu.
— Knattspyrnan á Italíu er hörö
og atvinnumennskan er erfiöari en
margur hyggur. Þegar vel gengur
er þér hrósaö í hástert, en þegar
illa gengur þá ert þú tekinn illilega
í gegn. Þaö er eiginlega ekkert
þarna á milli á ítalíu. Öfgarnar eru
svo miklar. Þaö er gífurlegt álag á
Mark Lawrenson. Hann er af
mörgum talinn besti alhliða
leíkmaöurinn á Bretlands-
eyjum í dag — en hann hef-
ur að eigin sögn leikið í sjö
eöa átta mismunandi stöö-
um fyrir Liverpool.
mann í þessu, ekki aðeins líkam-
legt heldur líka andlegt. En þetta
er líka vel borgað. Þess vegna
standa menn nú í þessu.
— En þrátt fyrir þetta hefur mér
líkað nokkuö vel á ítalíu. Þetta er
tímabil sem ég hef ekki viljaö
missa af.
— Nú, bestu liöin á Ítalíu núna;
þau eru tvö sem skara fram úr,
Roma og Juventus. Ég myndi
segja aö Sampdoria sé eitt af fimm
bestu liðunum á Ítalíu um þessar
mundir. En keppnin er afar hörö
og jöfn. Ég spái því aö Juventus
vinni meistaratitilinn í ár. Þeir spila
betur núna en í fyrra.
Brady var nú farinn aö veröa
órólegur, írska landsliöiö var aö
fara á æfingu. Ég spuröi hann aö
lokum hvort aö hann kæmi alltaf
svona langar leiöir í landsleiki.
— Já, ef ég mögulega get. Ég
legg metnaö minn í aö spila fyrir
írland hvar og hvenær sem er,
sagöi Brady.
— ÞR.
írar hafa undanfarin ár átt
mjög marga snjalla knatt-
spyrnumenn í herbúöum sín-
um — leikmenn á heims-
mælikvaröa, eins og Liam
Brady, fyrrum fyrirliöa Arsen-
al, sem leikur nú meö ítalska
félaginu Sampdoria. Brady er
talinn einn besti miövallar-
spilari heims — er mjög leik-
inn meö knöttinn og hefur
mjög gott auga fyrir samleik.
Brady fór frá Arsenal til
Juventus, þar sem hann lók
við mjög góöan oröstír. Fé-
lagiö gerði mikil mistök þegar
þaö lét hann fara til Samp-
doria. Paolo Rossi, knatt-
spyrnukappinn kunni, sagöi
aö þaö hafi verið stór mistök
að láta Brady fara. — Hann er
frábær knattspyrnumaöur og
var lykilmaðurinn á miöjunni
hjá Juventus. Ef Brady heföi
leikið með okkur úrslitaleik-
inn gegn Hamburger SV í
Evrópukeppninni í Aþenu,
heföum viö fariö meö sigur af
hólmi. Okkur vantaöi illilega
stjórnanda á miðjuna eins og
Brady er, sagöi Rossi.
Trevor Francis, enski
landsliösmaðurinn, sem leik-
ur meö Brady hjá Sampdoria,
hefur sagt þetta um Brady:
Þegar ég lék í Englandi,
vissi ég aö Brady var mjög
góður leikmaður. Nú þegar ég
leik viö hliöina á honum hjá
Sampdoria, hef ég fengið þá
vitneskju aö Brady er einn
besti miövaliarspilari heims.
Hann er í sama gæöaflokki og
Brasilíumennirnir Falcao og
Socrates, sagöi Francis.
„Skiptir ekki máli í
hvaða stöðu ég leik“
— segir Mark Lawrenson, í samtali við MorgunMaðið
„VIÐ ERUM enn meö mjög ungt
lið, þannig aö hver leikur er góö
reynsla fyrir okkur. Viö komum
frekar sjaldan saman þannig aö
við reynum allir aö standa okkur
sem allra best þegar það gerist.
Við vonumst til að komast í úr-
slitakeppni næstu heimsmeist-
arakeppni — því síóast misstum
viö af lestinni vegna óhagstæórar
markatölu," sagöi Mark Lawren-
son, knattspyrnumaöurinn snjalli
hjá Liverpool og írlandi, í samtali
viö Morgunblaöió er hann var
staddur hér á landi í síöustu viku.
Lawrenson sýndi í landsleiknum
á Laugardalsvelli aö þar er enginn
meöalmaöur á ferö, leikmaöur
sem gerir hlutina einfalda, og lend-
lr sjaldan í vandræöum. Enda leika
engir nema frábærir knattspyrnu-
menn meö liöum eins og Liver-
pool.
Þegar ég sagöi Lawrenson aö
„enska knattspyrnan“ væri senni-
lega vinsælasta rþróttin á íslandi,
sagöi hann aö ekki væri erfitt að
ímynda sér aö svo væri. „Síðan viö
komum hafa veriö hópar af ungum
strákum hér í kringum okkur, safn-
andi eiginhandaráritunum og þeir
hafa veriö meö mikiö af enskum
fótboltatímaritum og viröast vita
mikið hvaö er aö gerast í Englandi.
Fólkiö hór á íslandi er mjög vin-
gjarnlegt."
Stefnir ekki hugur flestra enskra
knattspyrnumanna til þess að leika
meö Liverpool?
„Jú, sennilega, Liverpool og
Manchester United. Þaö eru
stærstu og vinsælustu klúbbarnir.
Sko, viö hjá Liverpool vinnum yfir-
leitt einhvern titil á hverju ári,
þannig aö þaö er ekki óeölilegt aö
klúbburinn sé vinsæll. Þessi tvö liö
eru þau vinsælustu og sigursæl-
ustu á Englandi.
Hvernig stendur á því aö Liv-
erpool-liöið er svo sterkt ár eftir
ár?
„Tja, ég veit þaö eiginlega ekki.
Ætli þaö séu ekki bara svona góöir
leikmenn í liöinu. Framkvæmda-
stjórar liösins hafa alltaf veriö
mjög skynsamir, og klúbburinn er
einfaldlega mjög góöur. T.d. núna
þegar Fagan tók viö af Paisley
uröu ekki neinar breytingar á An-
field. Fagan hefur veriö þar lengi
og þaö má segja aö viö höfum aö-
eins fengiö nýtt nafn á fram-
kvæmdastjórann. Ekkert annaö
hefur breyst. Þaö er mjög gott aö
hann er búinn aö vera þarna lengi,
þannig aö hann gerir engar rót-
tækar breytingar. Hann er mjög
góöur maður.“
Eigiö þiö ekki möguleika á því
aö vinna deildina þriöja áriö í röö?
„Þaö veröur vitaskuld mjög erf-
itt, en viö gerum auövitaö okkar
besta og verðum aö vona að þaö
takist.”
Lawrenson er mjög fjölhæfur
leikmaöur, og ég spuröi hann í
hvaöa stööu hann kynni best viö
sig.
„Ég hef leikið í sjö eöa átta mis-
munandi stööum á vellinum fyrir
Liverpool, og mér finnst þaö ekki
skipta máli hvar ég leik, svo fremi
sem ég er meö. Þaö er gott aö
hafa leikiö í mörgum mismunandi
stööum — þaö er mjög góö
reynsla."
— SH.