Morgunblaðið - 27.09.1983, Page 34

Morgunblaðið - 27.09.1983, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 Karl Lúðvíksson apótekari 75 ára Sjötíu og fimm ára er í dag Karl Lúðvíksson apótekari. Vil ég nota tækifærið og senda honum, eig- inkonu hans, Svanhildi Þorsteins- dóttur, og fjölskyldu beztu árnað- aróskir og jafnframt rifja upp með nokkrum orðum ýmislegt af því, sem á daga hans hefur drifið. Karl Lúðvíksson er fæddur á Neskaupstað 27. september 1908, níundi í röð ellefu systkina. For- eldrar hans voru Lúðvík Sigurður Sigurðsson, útgerðarmaður og kaupmaður í Nesi við Norðfjörð, og kona hans, Ingibjörg Þorláks- dóttir. Lúðvík var Austfirðingur að ætt, en Ingibjörg ættuð af Suð- urnesjum. Höfðu þau hjónin hafið búskap þar á Neskaupstað með lít- il sem engin efni, en með dugnaði og hagsýni stofnað til mikils at- vinnurekstrar, sem óx með hverju árinu, svo að Karl ólst upp við líf og störf, þar sem aldrei var færra en 20—30 manns í heimili. Lúðvík Sigurður, faðir hans, var útsjón- arsamur ráðdeildarmaður, sem aldrei skipti skapi, en hafði með jafnlyndi og göðlyndi stjórn á fólki án þess að hækka raustina og fékk alla til að vinna vel að verk- um sínum. Ingibjörg var og dugn- aðarforkur, svo að orð fór af. Lúð- vík hafði stundað nám við gagn- fræðaskólann á Möðruvöllum og lært til skósmiðs á Seyðisfirði, en atvinnan var stopul, og honum varð brátt starsýnt niður að sjón- um, þar sem síldin óð oft upp við landsteina á þessum árum. Hann sneri sér því að sjómennsku og út- gerð, fyrst á árabát, en færði svo út kvíarnar og varð til að kaupa einn fyrsta vélbátinn á Norðfjörð kringum 1904, en báturinn fékk nafnið Víkingur. Þótt sá bátur færist ótryggður, eins og var um alla báta er týndust á þeim árum, blómgaðist útgerðin í höndum Lúðvíks. Og fyrir fyrra stríð hafði hann keypt tvo öfluga vélbáta á þeirra tíma vísu frá Danmörku. Bjuggu þau hjónin fyrst í litlu húsi niðri við sjóinn, en þegar 1912 reistu þau stórt íbúðarhús, sem ennþá stendur á Neskaupstað og gengur undir nafninu Lúðvíkshús. Og allt gerðist þetta um leið og hinn stóri barnahópur stækkaði, svo að vel hefur verið haldið á spöðunum. Eins og nærri má geta, var þetta umhverfi bjartsýnisáranna eftir aldamótin þroskavænlegt fyrir uppvaxandi æsku. Það var vor í hugum manna. Nýir atvinnu- hættir ruddu sér til rúms og nátt- úran var gjöful þeim, sem höfðu kjark og dug til að sækja björgina í greipar hennar. Þetta tækifæri kunnu þau Lúðvík og Ingibjörg að færa sér í nyt, enda naut heimili þeirra ekki aðeins sjávargagns, heldur höfðu þau og lítið bú, og var heyjað bæði heima og inni í Norðfirði. Ný mjólk var því á borðum hvern dag. Börnin drukku og í sig kapp, athafnaþrá og vinnusemi hinna fullorðnu og vildu ekki láta sitt eftir liggja, jafnskjótt og þau fengu vettlingi valdið. Lærðist Karli því snemma dugnaður við öll verk, elja og kapp, hvort heldur var við að beita bjóðin, hausa golþorsk niðri á bryggju eða að breiða saltfisk á reitinn í sólskininu. í rauninni urðu störfin undir lipurri stjórn fjölskylduföðursins þeim systkin- um kappleikur og íþrótt í afköst- um. Hefur vinnusemi sú og íþróttaandi sem Karl lærði svo snemma, dugað honum vei á lífs- leiðinni. Að loknum starfsdegi átti og Lúðvík Sigurður til að grípa í harmonikkuna í eldhúsinu, og voru þeir tónar, sem þá rufu nátt- úrulega kyrrð kvöldsins velkomnir ungum sem öldnum. Á heimilinu var og orgel og eitt af fáum píanó- um þar á staðnum á þeim tima. Var tónskáldið Ingi T. Lárusson tíður aufúsugestur þar í húsinu, og þar við píanóið urðu til mörg hans yndislegu lög. Karl Lúðvíksson vildi þó kynn- ast fleiru í heiminum og dreif sig, þá er hann hafði aldur og aðstöðu til, norður á Akureyri í gagn- fræðaskólann þar og lauk þaðan prófi. Ákvað hann þá þegar að gerast apótekari. Þótt lífið í heimavistinni væri skemmtilegt, var það þó jafnframt á margan hátt erfitt, enda aðbún- aður skólafólks þá ekki sami og nú er. Berklar voru algengir, og tók margur skólapilturinn þá og hlaut aldurtila af. Þau urðu m.a. örlög tveggja herbergisfélaga Karls. Telur hann, að mikil útivist upp á hvern dag allan veturinn, einkum við knattspyrnu, hvernig sem viðraði, hafi bjargað honum frá því þá að verða tæringunni að bráð. Knattspyrnuna iðkaði Karl og áfram, eftir að hann kom suður til Reykjavíkur og gerðist lærling- ur í lyfjafræði. Keppti hann á þessum árum fyrir Víking við góð- an orðstír ásamt ýmsum öðrum kunnum hetjum þess tíma, svo sem Birni Fr. Björnssyni, síðar sýslumanni Rangæinga. Hefur Karl og alla tíð verið heilsusterk- ur og haft yndi af skíðagöngum og annarri útivist. Á síðari árum hef- ur hann og gerzt snjall laxveiði- maður og svo slyngur að kasta flugu, að þeir munu fáir hér á landi, sem standast honum snún- ing í þeirri íþrótt. Leikni í flugu- kasti tamdi Karl sér fyrst uppi á Elliðavatni. Við vatnið á hann sumarbústað og hefur getað horfið þangað upp eftir daglega að lokn- um erli dagsins inn í veröld full- komins friðar. Við lyfjafræðinám var Karl í Reykjavíkur apóteki 1930—’33 og síðan hélt hann utan til Danmerk- ur og lauk kandidatsprófi í lyfja- fræði frá Lyfjafræðiskólanum í Kaupmannahöfn 1937 með ágæt- um vitnisburði. Að loknum skemmtilegum árum þar úti tók starfið við hér heima. Var Karl lyfjafræðingur í Reykjavíkur ap- óteki og Laugavegs apóteki næstu árin, uns hann stofnaði sjálfur Apótek Austurbæjar 2. maí 1953. Á þessum árum var hann og kall- aður til félagsmála og var for- maður í félagi lyfjafræðinga 1945—’47. Voru þá undir for- mennsku hans gerðir fyrstu samn- ingar við Apótekarafélagið um laun og kjör lyfjafræðinga, sem voru þeim vitaskuld mikil réttar- bót. Karl vann og afar mikið í fagi sínu á þessum árum. Átti hann því talsverðan höfuðstól véla og fjár- magns, þegar hann fékk lyfsölu- leyfi 1953, og þurfti að fjármagna byggingu apóteks og búa það vél- um og vörum. Skipti það sköpum, því að dyr banka voru síður en svo opnar upp á gátt. Einnig valdist hann til forystu í stjórn Apótek- arafélagsins og var formaður þess í 4 ár. Um þessar mundir var tals- verður skortur á lyfjafræðingum hér á landi, svo að ráða þurfti út- lendinga til starfa. Tók Karl þá sem formaður félagsins það ráð að skrifa rektor danska lyfjafræð- ingaskólans og kom ásamt honum á samningi um, að íslensk apótek mættu taka lærlinga eins og áður hafði verið, með sömu réttindum og Háskóli íslands. Var sá háttur á hafður, að nemar voru fyrst eitt ár við íslenskt apótek, síöan annað ár við danskt apótek og tóku svo inntökupróf í danska lyfjafræði- skólann. Lærðu nokkrir íslend- ingar lyfjafræði eftir þessari leið. Aldrei hefur farið fram hjá mönnum, að Karl Lúðvíksson er einstakur dugnaðarmaður og mik- ill í framkvæmdinni. Hann hlaut gott vegarnesti úr foreldrahúsum og hefur ávaxtað pund sitt vel í lífinu. Hann hefur ávallt haft rík- an vilja til að standa sig vel i hverju, sem hann hefur tekið sér fyrir hendur, og þannig hafist langt upp fyrir meðalmennskuna. Alla tíð hefur Karl grundvallað velgengni sína á eigin dugnaði, og greinilega hefur hann erft ráð- deild og útsjónarsemi föður síns, því að mikið orð fer af ríkidæmi hans. Hefur hann verið skarp- skyggn á nýjar leiðir í uppbygg- ingu atvinnurekstrar, átt áberandi létt með að taka ákvarðanir og hrinda þeim í framkvæmd þegar í stað. Apótek Austurbæjar hefur hann nú rekið í 30 ár af stakri festu og reglusemi. En einnig hef- ur hann átt frumkvæði að ýmsum öðrum atvinnurekstri. Má þar nefna, að hann var helsti hvata- maður og frumkvöðull að stofnun Pharmacós hf. 1956, sem er inn- flutnings- og framleiðslufyrirtæki á lyfjasviðinu. Hvíldi rekstur þess fyrirtækis að miklu leyti á hans herðum fyrstu 10 árin. Þá hefur Karl og nýlega reist stórhýsi við Háteigsveg 3 í Reykjavík, og eru þar til húsa tvö fyrirtæki, sem hann hefur átt hlut að því að stofna: Innréttingahúsið hf. 1978 og vagnar hf. 1979. Árið 1943 gekk Karl Lúðvíksson að eiga Svanhildi Þorsteinsdóttur, sem er fædd 16. nóv. 1916 og er dóttir Þorsteins Jósefs Sigurðs- sonar prentara, síðar kaupmanns í Reykjavík, og Þórönnu Rebekku Símonardóttur. Svanhildur er fal- leg kona, gædd ríkum persónu- töfrum, mild og listræn að skap- Akureyri: AÐSÓKN að Amtsbókasafninu á Akureyri hefur aldrei verið meiri en það sem af er þessu ári. í ágústlok síðastliðinn voru útlánin orðin jafn mikil og ársútlánin fyrir 10 árum. Hin mikla útbreiðsla mynd- banda sem orðið hefur á síðustu árum virðist ekki hafa haft nein áhrif á bókalesturinn því útlánin hafa aukist jafnt og þétt. Þó hafa útlán á bókakössum í skip dregist saman um meira en helming vegna áhrifa myndbanda. ferli og bókelsk. Hefur hjónaband þeirra verið farsælt. Er gott að koma á heimili þeirra við Háteigs- veg 10, og njóta gestrisni þeirra. Þau hafa eignast fjögur börn: Lúð- vík, flugstjóra, f. 1943, er fórst 1975, kvæntan Hrafnhildi Helga- dóttur; Önnu Þóru teiknikennara, f. 1946,. gifta Stefáni Jörundssyni tæknifræðingi; Sigurð, viðskipta- fræðing, f. 1951, kvæntan Guð- rúnu Þórarinsdóttur, og Ingi- björgu, f. 1958, sem er við nám í uppeldisfræðum við Háskóla ís- lands. Öll eru börnin hæfileikafólk hvert á sínu sviði. Afar ríkt í skapferli Karls er að leggja lið mönnum, sem til hans leita. Hefur hann veitt mörgum ungum manninum brautargengi og ekki horft í fyrirhöfn og kostn- að í þeim efnum, ef það mætti verða til þess að koma einhverjum til aukins þroska. I hverfulli ver- öld munu þau verk hans ekki gleymast þeim, sem allt sér. Við, sem um mörg ár höfum átt samleið með Karli, furðum okkur flest á því, að það er eins og hann hafi nánast gleymt að eldast. Smekklegur klæðaburður og snyrtimennska, kröftugar hreyf- ingar og athafnir ásamt útliti vekja hugmyndir um, að þar sé á ferðinni maður 10—20 árum yngri en árin segja til um. Er það mikil Guðs gjöf að halda slíkri heilsu. Um leið og ég nú óska afmælis- barninu til hamingju með daginn vil ég og óska þess, að hann megi enn um mörg ókomin ár njóta ávaxtanna af miklu ævistarfi, ganga með sömu vinnugleðinni til starfa sinna eða hafa hressandi útivist við eitthvert veiðivatnið. Það athugast að Karl Lúðvíks- son er að heiman á afmælisdag- inn. Sigurður Gizurarson Fyrir skömmu var gerð lausleg könnun á útlánum bóka íslenskra höfunda í Amtsbókasafninu, og kom í ljós að Guðrún frá Lundi og Snjólaug Bragadóttir áttu flest út- lánin, 37 bindi hvor, og í þriðja sæti var Ingibjörg Sigurðardóttir með 32 bindi. Bókasöfnin í Keflavík og Kópa- vogi hafa fyrir skömmu birt niðurstöður úr samskonar könn- unum hjá sér og voru útkomur þar mjög svipaðar þessari. Aukin aðsókn að Amtsbókasafninu , radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Al'élagsstarf Sjálfstœðisffokksins | Kosning fulltrúa á landsfund Fundur t Valhöll kl. 8.30. Fundarelni: Kosnir fulltrúar á landsfund og önnur mál. Aðalfundur Sjálfstæðis- félags Skagafjarðarsýslu veröur haldinn i Miögaröi, miövikudaginn 28 sept. kl. 9 síödegis Dagskrá 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á landsfund. 3. Önnur mál. Sl/órnin. Félag sjálfstæðismanna Bakka- og Stekkjahverfis Boöar til almenns félagsfundar, fimmtudaginn 29. september kl. 20.30 aó Seljabraut 54 (hús Kjöt og fisks). Dagskrá: Kosning þriggja fulltrúa á iandsfund Sjálfstæöisflokksins 1983. Önnur mál. Selfoss — Selfoss Slálfstæöisfélagiö Óöinn heldur félagsfund i Sjálfstæölshúsinu Sel- fossi, miövlkudaginn 28. sept. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa landsfund Sjálfstæö- ísflokksins. 2. Þorsteinn Pálsson, alþingismaöur ræöir stjórnmálaviðhorfiö. 3. Almennar umrasöur. Félagar fjölmenniö. Stjórnin. Hafnfirðingar Launþegafélagiö Þór heldur almennan fund i sjálfstæöishúsinu f Hafnarfiröi föstudaginn 30. sept. kl. 17.00. Fundarefni: Kosning fulltrúa á 25. landsfund Sjálfstæöisflokksins. Önnur mál. Sljórnin. Húsavík Sjálfstæöisfélag Húsavíkur efnir til almenns fundar um lönaöar- og atvinnumál í félagsheimill Húsavikur fimmtudaginn 29. sept. nk. kl. 21. Ræöumenn: Sverrir Hermannsson, Halldór Blöndal og Björn Dag- bjartsson Félag sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi Félag sjálfstæöismanna i Hóla- og Fellahverfi boöar til almenns fé- lagsfundar þrlöjudaginn 27. sept kl. 20.30 aö Seljabraut 54 (i húsl Kjöts og fisks). Dagskrá: Kosning 5 fulltrúa á landsfund Sjálfstæöisflokkslns 1983. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.