Morgunblaðið - 27.09.1983, Síða 37

Morgunblaðið - 27.09.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 37 Norðmenn eru stærstu álframleið- endur í Evrópu. Meðalverð orku til álvera í heiminum 1982 var hins- vegar um 17 mill, en hefur farið lækkandi og sumstaðar er orku- verð niðurgreitt til að tryggja samkeppnisstöðu framleiðslunnar. Orkuverð til álvera í Frakklandi var þannig lækkað úr 22 mill í u.þ.b. 11 mill, en þar er ríkið eig- andi orkuveranna og álbræðsln- anna. Þetta samkomulag lækkar rekstrarhalla Landsvirkjunar 1983 um 50 m.kr., en hann var áætlaður 180 m.kr. Greiðsluhall- inn lækkar úr 90 m.kr. í 40 m.kr. f þessum tölum er reiknað með óbreyttu heildsöluverði til raf- veitna út árið. Ekki er talin þörf á hækkun almenns heildsöluverðs orku 1984 umfram það sem al- mennar verðlagsbreytingar segja til um, eftir þessa áfangahækkun til álversins. Frekari hækkun, sem að er stefnt, ætti því að rétta af fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og hugsanlega að geta sagt til sin í lægra almennu orkuverði. Skulda- staða og lánakjör Landsvirkjunar hafa afgerandi áhrif um það efni. Efnisrýr aðfinnsluat- riði Hjörleifs Gutt- ormssonar Gagnrýnispunktar Hjörleifs Guttormssonar, fyrrv. iðnaðarráð- herra, eru einkum þessir: 1) ÍSAL getur sagt upp bráðabirgðasam- komulaginu og lækkar þá orku- verð aftur í 6,5 mill. 2) Þegar hef- ur verið samið um stækkun ál- versins og heimild til handa Alu- suisse um sölu 50% af eigin hluta- fé í ÍSAL, svo þessi atriði eru ekki lengur vopn i samningum um frekari hækkun. 3) Stækkun ál- versins þýðir markað fyrir nýja virkjun, sem verður með hærra kostnaðarverð á raforku en eldri virkjanir. 4) Rangt var að taka eldri deilumál úr gjörðadómi. Þetta eru efnisatriði gagnrýninn- ar þegar stóryrði eru síuð frá. Hvern veg standast þessar að- finnslur nánari skoðun? • 1) Uppsagnarákvæði bráða- birgðasamkomulagsiiis eru gagn- kvæm. Þau undirstrika að hér er ekki um frambúðarsamning að ræða, heldur undanfara nýs og væntanlega hagstæðari samnings, bæði varðandi orkuverð og skatta- reglur. Áfangahækkunin er því forgjöf. Uppsögn af hálfu Alu- suisse er heldur ekki líkleg nema forsjármenn þess taki þá ákvörð- un að gefa rekstur álversins i Straumsvík upp á bátinn. • 2) Bráðabirgðaákvæði sam- komulagsins felur í sér yfirlýsingu beggja aðila um áhuga þeirra á því að stækka álbræðsluna um 80 megawött eða 50% við fyrstu hentugleika (alls ekki bindandi ákvörðun). Stækkunin er áfram háð samkomulagi um önnur efnis- atriði, þ.á m. orkuverð. Hag- kvæmnisathugun á byggingu raf- skautaverksmiðju í Straumsvík tengist einnig þessu atriði. — Spyrja má: hvert ætlaði Hjörleif- ur að selja orku frá Blönduvirkj- un, ef ekki til álvinnslu? Almenni orkumarkaðurinn er þegar mett- aður. Er það ekki hægstætt Is- lendingum að álverið sé af þeirri stærð og hafi þann búnað er geri arðsemi þess lfklegri, svo ekki sé fastar að orði kveðið. í 22. grein gildandi samnings er ákvæði sem heimilar Alusuisse að selja allt að 49% af eign sinni í álverinu, en salan skal háð sam- þykki ríkisstjórnar íslands. Bráðabirgðasamkomulagið ítrekar þessa heimild með hliðstæðu skil- yrði, að því einu breyttu að hún nær til 50% í stað 49%. • 3) Hér kemur enn að því að for- senda nýrra virkjana, hvort held- ur er virkjun Blöndu, Fljótsdals- virkjunar eða virkjun annarra valkosta, er sú, að tiltækur mark- aður sé fyrir orkuna. Engin leið er að segja fyrir um það nú, hvert verður endanlegt verð orku til ál- versins í væntanlegum orkusölu- samningi. Naumast heldur, hvert verður endanlegt kostnaðarverð orku frá Blönduvirkjun. Orku- verðið til bráðabirgða er áþekkt því sem tíðkast í Noregi og nokkru hærra en helzti samningamaður Hjörleifs, Ingi R. Helgason, lagði til að samþykkt yrði á sínum tíma. Hjörleifur Guttormsson mun hafa miðað við orkuverð 17,5 mill er hann setti upp kostnaðardæmi kísilverksmiðju á Reyðarfirði, sem hlaut að byggja á raforku frá nýrri virkjun. • 4) Fyrrverandi iðnaðarráðherra hafði sjálfur margoft rætt um þá leið, sem nú hefur orðið að ráði, til að setja niður eldri deilur. Það var Alusuisse en ekki hann sem vísaði deiluefnum til alþjóðlegs gjörða- dóms. Mikilvægt er að sætzt hefur ver- ið á viðunandi leið til að eyða eldri deilumálum, vinnubrögð varðandi gerð nýrra samninga um orkuverð og skattareglur, verðtryggingu orkuverðs í nýjum sölusamningi og stækkun álversins í Straumsvík (að vísu háð skilyrðum um sam- komulag um önnur atriði). Alltaf má deila um einstök atriði í samn- ingi sem þessum. Mestu máli skiptir, að ríkisstjórnin hefur höggvið á hnútinn og komið sam- skiptum við álverið í eðlilegan far- veg á ný. Stefán Friðbjarnarson er þing- fréttaritari Morgunblaðsins og skrifar jafnframt reglulega um stjórnmál. Frá þingflokki Alþýðuflokksins: Ríkisstjórnin byrji sparn- að þar sem sólund er mest ÞINGFLOKKUR Alþýðuflokksins telur, að ríkisstjórnin ráðist á garð- inn þar sem hann er lægstur, ætli hún að byrja sparnaðarviðleitni sína með því að láta loka vinnustöðum láglaunafólks, eins og þvottahúsi og mötuneyti Ríkisspítalanna. Þingflokkurinn telur að laun- þegaheimilin í landinu hafi þegar tekið á sig nógar byrðar með því að una bótalaust sviptingu samn- ingsréttar, hrikalegri kjaraskerð- ingu og verðhækkunum vöru og þjónustu, þótt ótti við yfirvofandi atvinnumissi bætist ekki við. Ríkisstjórnin á að byrja sparn- aðarviðleitni sína þar sem sólund- að er mest. Sem dæmi um það má nefna ríkistryggðan milliliðagróða vinnslu- og dreifingaraðila land- búnaðarkerfisins, útflutningsbæt- ur landbúnaðarafurða, ferða- kostnað og fríðindi toppanna í ríkiskerfinu, greiðslur skv. sjálf- teknum töxtum, hrikalegan skattaundandrátt forréttindahópa í neðanjarðarhagkerfinu, frestun ótímabærra byggingafram- kvæmda á vegum opinberra stofn- ana svo nokkuð sé nefnt. Þingflokkurinn skorar á ríkis- stjórnina að aflétta hið fyrsta ríkjandi óvissu um atvinnuöryggi láglaunafólks í opinberri þjón- ustu, með því að birta þjóðinni áform sín um niðurskurð og sparnað í yfirbyggingu ríkiskerf- isins. Fréttatilkynning Sendiherra * Islands í V-Þýskalandi IINN 16. september afhenti Hannes Jónsson, sendiherra, Dr. Karl Cartens, forseta Sambands- lýðveldisins Þýskalands, trúnað- arbréf sitt sem sendiherra Islands í Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Haglabyssur — Haglabyssur fyrir gæs og rjúpu Hinar margeftirspurðu CBC-einhleypur eru komnar. 3“ magnum með sjálfvirkum útkastara. 30“ hlauplengd. Verð aðeins 4,950,- Hafið samband viö viðkomandi útsölustaði. Takmarkað magn. Útsölustaöir O.H. Jónsson hf., Sundaborg 31, sími 83518, Reykjavík. VESTURRÖST LAUGAVEGI 178 EYFJÖRD HF., AKUREYRI, K.H.B. SEYÐISFIRÐI, K.H.B. REYDARFIRÐI. SKIPASMÍÐASTÖÐ MERSELIUSAR BERNHARDSSONAR, ÍSAFIRÐI. Sparneytni í fyrirrúmi í tengslum við sparakstur Vikunnar og DV á hringveginum í sumar fylgdi Suzuki Fox jeppi keppendum eftir sem eftirlitsbíll. Fylgst var með eyðslu bílsins og reyndist hún vera 7,9 I. pr. 100 km að meðaltali. Þessa tölu staðfestir dómari keppninnar, Sigurður Tómasson, starfsmaður orkusparnaöarnefndar. Suzuki Fox er sterkbyggður og lipur japanskur jeppi, sem hentar sérstaklega vel fyrir íslenzkar aðstæður. Byggður á sjálfstæðri grind. Eyösla 8—10 I. pr. 100 km. Hjólbarðar 195x15 — Sportfelgur. Hæð undir lægsta punkt 23 cm. Stórar hleösludyr að aftan. Aftursæti sem hægt er að velta fram. 4ra strokka vél 45 hestöfl. Hátt og lágt drif. Beygjuradius 4,9 m. Þyngd 855 kg. Rúmgott farþegarými með fyrir 4. sætum Verð kr. 253.000. (gengi 20/9 '83) SÖLUUMBOO: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Suöurgötu 62, simi 93-2000 Borgarnes: Bílasala Vesturlands, sími 93-7577 ísafjöröur: Bílaverkstæöi Isafjaróar, sími 94-3837 Sauðárkrókur: Bílaverkstæöi Kaupf. Skagfiröinga, simi 95-5200 Akureyri: Bílasalan hf., Strandgötu 53, sími 96-21666 Húsavík: Bílaverkstæði Jóns Þorgrímssonar, simi 96-41515 Reyöarfjörður: Bílaverkstæöiö Lykill, simi 97-4199 Egilsstaöir: Véltækni hf„ Lyngási 6—8, sími 97-1455 Höfn í Hornafiröi: Ragnar Imsland, Miötúni 7, sími 97-8249 Selfoss: Árni Sigursteinsson, Austurvegi 29, sími 99-1332 Hafnarfjörður: Bílav. Guóvaröar Elíass., Drangahraun 2, simi 91-52310 & Sveirin Egilsson hf. 8UZUKI Skeifan 17. Sími 85100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.