Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 38

Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, GUNNARTHORODDSEN, andaöist í Landspítalanum aö morgni 25. september. Vala Ásgeirsdóttir Thoroddsen, börn, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, BERGÞÓRA MAGNÚSDÓTTIR, Ásvallagötu 11, Reykjavík, andaöist í Hrafnistu Hafnarfirði 14. september. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Þakka öllum er líknuöu henni í veikindum hennar. Jakob Bjarnason.. + Eiginmaöur minn og faöir, AOALSTEINN JOCHUMSSON, Meistaravöllum 29, lést í Borgarspítalanum 24. september. Anna Ólaffa Árnadóttir, Grétar Aðalsteinsson. + SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR, Amtmannsstíg 5, lést 16. september. Vandamenn. + Bróöir minn, ÓLAFUR ÞORSTEINSSON, Steindyrum, Hrísey, varö bráökvaddur á heimili sinu 25. september. Fyrir hönd vandamanna, Björg Þorsteinsdóttir. + Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, JÓHANNA MARIA BERNHÖFT, andaöist í Landspítalanum 24. september. Guido Bernhöft, örn Bernhöft, Svava P. Bernhöft, Ragnar V. Bernhöft, Kristín Bernhöft, Pétur Orri Þóröarson og barnabörn. + Maöurinn minn, ' LAURENCE ROONEY, Belgree, Mulhuddart, co. Dublin Eire, andaöist 15. september sl. Ágústa Ellen Daníelsdóttir Rooney. Systir mín. + FANNEY VILHELMSDÓTTIR PEACOCK, búsett í Kanada, er látin. Stefén Vilhelmsson. Kveðjukaffi Hlýleg salarkynni fyrír erfiadrykkju og ættarmót. Upplýsingar og pantanir í síma 11633. LKvödinnL Cat* Roaanbarg. Minning: Sigurður Bjami Jóns- son bakarameistari Fæddur 1. desember 1930. Dáinn 19. september 1983. Vil fráfall vinar míns og læri- föður, Sigurðar B. Jónssonar, kemur upp í huga mér sá tími er ég var við nám í bakaraiðn. Ég var svo heppinn að komast á náms- samning hjá Sigurði og reyndist hann ekki aðeins góður kennari, heldur einnig sannur vinur. Öll mín námsár bjó ég fjarri föðurhúsum og skildi Sigurður vel þá aðstöðu mína. Alltaf stóð heim- ili hans mér opið eins og væri ég einn af fjölskyldunni. Til hans gat ég einnig alltaf leitað ef eitthvað bjátaði á. Það trúnaðartraust sem mynd- aðist milli okkar á þessum tíma hélst óbreytt eftir að ég Iauk mínu námi. Sigurður fylgdist áfram vel með lærlingnum sínum og aðstoð- aði hann eftir bestu getu. Síðustu ár áttum við saman margar ánægjustundir. Sigurður var alltaf uppfullur af nýjum og skemmtilegum hugmyndum í sambandi við starf okkar og alltaf var eitthvað að gerast sem átti hug hans allan. Eg vil, með þessum fátæklegu orðum, láta í ljós þakklæti mitt fyrir allt sem hann Siggi minn gerði fyrir mig. í minn vinahóp er nú komið stórt skarð. Að lokum viljum við Sigrún votta aðstandendum Sigurðar okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur. Jón J. Jóhannesson. + Sonur okkar og bróöir, SIGURÐUR SMÁRI HILMARSSON, sem lést af slysförum 18. september sl., veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 28. september kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélag Islands. Bjarnheiöur Einarsdóttír, Hilmar H. Svavarsson, Kriatjén Mér Hilmarsson. + GUNNLAUGUR ÓLAFSSON, bryti, Meistaravöllum 31, veröur jarösunginn í Fossvogskirkju, fimmtudaginn 29. september kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna, Jón V. Guöjónsson. + Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir, SÆMUNDUR B. ÞÓRÐARSON, Baldursgötu 7, sem lést á Öldrunardeild Borgarspítalans 21. september sl., verö- ur jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 29. september nk. kl. 13.30. Guöríóur Jónsdóttir, Þórhildur Sæmundadóttir, Jón Gunnar Sæmundsson, Kristín Kjartansdóttir, Sméri Sæmundsson, Guöríóur Gísladóttir. + Eiginkona mín og móöir, ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Hrauntungu 20, veröur jarðsett frá Fossvogskapellu, miövikudaginn 28. september kl. 10.30. Þeir sem vildu minnast hennar eru beðnir aö láta Hjúkrunarheimili aldraöra í Kópavogi njóta þess. Júlíus Lérusson, Unnur Júlíusdóttir. + Innilegar þakkir færum viö öllum þelm sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö fráfall ástkærrar eiginkonu, móöur, tengdamóöur og ömmu, HJÖRDÍSAR ÞORBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki deildar 21A Landspítalanum. Kristinn Hallsson, Guörún Kristinsdóttir, Brynjar Dagbjartsson, Ágústa Kristinsdóttir, Siguröur Kristinsson, og barnabörn. Lokað í dag vegna jaröarfarar Siguröar Bjarna Jónssonar, bakarameistara. Bakaríiö Kringlan, Starmýri 2, Skólavöröustíg 2. Þegar minnst er ötuls kollega er fellur frá á miðjum starfsaldri vakna margar minningar sem leita á hugann. Sigurður lærði bakaraiðn hjá Sigurði Guðmundssyni bakara- meistara í Félagsbakaríinu á Isa- firði, en þar í bænum fæddist Sig- urður heitinn. Á þeim árum sá ekki fram úr vinnu í þeim tveimur bakaríum er voru starfandi á staðnum og þar lærði Sigurður þá lexíu, sem hann hafði sér til hliðsjónar fram á síðustu árin sem hann gekk heill til skógar, að morgunstund gefur gull í mund í orðsins fyllstu merkingu. Vinnu- dagurinn var oft á tíðum 12 til 16 stundir við frekar erfiða vinnu- aðstöðu og aðeins hinir hraustustu menn gátu haldið út fjögurra ára nám eins og það var í þá daga. Að loknu námi á ísafirði fluttist Sigurður til höfuðborgarinnar í leit að frekari frama í iðn sinni. í fyrstu vann Sigurður hjá Magnúsi Kristinssyni í Björnsbak- aríi við Hringbraut I Reykjavík í 10 ár. En 1962 hóf Sigurður sjálfstæð- an rekstur á brauða- og kökugerð í samvinnu við annan kollega og var það bakaríið A.B. við Dalbraut. 1964 skildu leiðir hjá þeim félög- unum og Sigurður stofnaði bak- aríið Kringluna í Starmýri 2 í Reykjavík. Síðustu árin rak Jón, sonur Sig- urðar, bakaríið í samvinnu við föður sinn, enn heilsufar Sigurðar undanfarin ár var honum oft þungbært. Sigurður var fylginn sér í hvívetna og hinn mesti dugn- aðarforkur og réð yfir góðri þekk- ingu á öllu er varðar brauð- og kökubakstur. Sigurður var með þeim fyrstu bakarameisturum sem tóku að flytja til iandsins hráefni til eigin framleiðslu og sýnir það framtaksemi sem var öðrum til fyrirmyndar er starf- rækja smærri bakarí. Þegar Sigurður var félagi í Sveinafélagi bakara gegndi hann um árabil ritara- og gjaldkera- störfum með sóma. Við innflutning á hráefnum til bakarísins kynntist Sigurður náið óraunhæfum reglum er giltu um tolla á hráefni til iðnaðar á ís- landi. Vegna reynslu sinnar við innflutning fól Landssamband bakarameistara honum að kanna þau mál með hliðsjón að frekari kröfum um lagfæringar og eru sumar hverjar komnar í þolanlegt horf þó að enn vanti mikið á sanngirni vegna samkeppnisiðn- aðar við innflutta brauðvöru. Sigurður B. Jónsson kvæntist Einínu Einarsdóttur 28. febrúar 1953 og átti hún ríkan þátt í stofn- un Kringlunnar Starmýri 2. Sigurður og Einína eignuðust tvö börn, Jón Sigurðsson bakara- meistara og Signýju Sigurðardótt- ur og eru barnabörnin þrjú. 1978 slitu Einína og Sigurður samvistir. Félagar Landssambands bak- arameistara minnast nú Sigurðar B. Jónssonar sem trausts félaga og baráttumanns fyrir velgengni hinnar íslensku brauðgerðarstétt- ar í samkeppni við innfluttar brauðgerðarvörur og þakka fyrir hans góða framlag fyrir íslenska bakara. Börnum og fjölskyldum þeirra eru sendar dýpstu samúðarkveðj- ur og óskir um styrk þeim til handa. Blessuð sé minning Sigurðar B. Jónssonar bakarameistara. Landssamband bakarameistara, H.Br.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.