Morgunblaðið - 27.09.1983, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983
45
VELVAKANDI ^
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
j ir
Hugvekja til ökumanna
Ekki hefði þurft mikið hugvit til
að forðast þennan vanda; hefði
bara dugað að hafa aflíðandi halla
upp í gegnum minna hliðið, svo að
hver sem er gæti ekið hjólastól
upp í garðinn. Það stakk mig illa
að sjá þennan vankant á nýju
mannvirki. Ég veit, að þetta hefur
ekki verið gert af illum hvötum,
heldur af hugsunarleysi. En af
hugsunarleysi hefur margt illt
hlotist.
Eftir að hafa skoðað garðinn og
listaverkin þar, fórum við (en það
var systir mín sem var í fylgd með
mér og aðstoðaði mig í hjólastóln-
um) í Hallgrímskirkju. Þar er gott
að komast inn, ekkert þrep, aðeins
lágur þröskuldur. Við fórum upp í
turninn, en þangað upp er ágæt
lyfta. Þegar upp í útsýnisstaðinn í
turninum kom, kom upp enn eitt
vandamálið fyrir hjólastólafólk,
því að gluggarnir eru það hátt frá
gólfi, að ekki sést út um þá nema
staðið sé upp. Mér tókst það með
hjálp systur minnar, en þetta var
nú samt hálfgert basl. Margt
hjólastólafólk er þannig á sig
komið, að það getur ekki staðið
upp og hlýtur því að fara alveg á
mis við hið mikla og fagra útsýni
úr turninum.
En úr þessu mætti bæta á mjög
auðveldan og ódýran hátt og hef
ég reynslu af því, sem ég ætla að
lýsa í fáum orðum.
Þannig var, að í fyrrahaust var
ég í rúmar tvær vikur úti í Banda-
ríkjunum, nánar tiltekið í New
York, í boði frænku minnar og
hennar fjölskyldu. Einn góðan
veðurdag (en allir dagar voru góð-
ir veðurdagar meðan ég dvaldist
þarna vestra) tóku þau hjónin mig
með sér til Washington. Meðal
annarra merkra staða, sem þau
sýndu mér í höfuðborg Bandaríkj-
anna, var minnisvarði um Georg
Washington. Þetta er súla ein
mikil, hol að innan, yfir 500 fet á
hæð, og gengur lyfta þar upp. Þau
með mig upp í lyftunni og þegar
upp var komið, kom upp sami
vandinn og í Hallgrímskirkju:
Gluggarnir voru svo hátt frá gólfi,
að ég sá ekki út um þá. En þessi
vandi leystist brátt. Það vindur
sér að mér maður, einn af umsjón-
armönnunum þarna, og fær mér
eins konar sjónpípu, og var hún
það löng, að hún náði upp fyrir
neðri brún útsýnisglugganna. Og
gegnum þetta apparat gat ég séð
vítt um borgina án þess að hreyfa
mig úr stólnum.
Eg vil hér með leggja til að
reynt verði að fá þannig sjónpípu í
Hallgrímskirkjuturn, fyrir þá sem
þess þurfa með vegna fötlunar
sinnar."
Ragnar Fjalar Lárusson skrifar:
„Það kemur eflaust oft fyrir í
umferðarþunga borgar eins og
Reykjavíkur, að húsdýr, t.d. kettir,
verðir fyrir bíl. í fæstum tilfellum
geta bifreiðarstjórar nokkuð að
því gert, þó að of hröðum akstri
geti líka verið um að kenna. Flest-
um þykir eflaust leitt að verða
fyrir slíku. Stundum eru dýrin
ekki merkt, og er því eigi hægt að
hafa beint samband við eigendur
þeirra. En allir, sem láta sér annt
um dýrin sín, auglýsa eftir þeim í
blöðunum, jafnvel birta af þeim
mynd. Það er því oftast hægur
vandi fyrir þá, sem aka á ómerkta
ketti að fylgjast með slíkum aug-
lýsingum eða hafa samband við
Kattavinafélagið.
En því miður munu þeir vera til,
Austurbæingur skrifar:
„Velvakandi góður.
Ég leyfi mér að kalla þetta opið
bréf til forráðamanna kirkjugarð-
anna hér í Reykjavík, en það á
einnig erindi til fjölmargra ann-
arra, sem hlut eiga að máli.
Mér er kunnugt um að vaknað
hefur áhugi fyrir því hér í Reykja-
vík að aftur verði tendruð jólaljós
suður í Fossvogskirkjugarði nú á
komandi jólum, en til þess þarf
auðvitað leyfi kirkjugarðastjórn-
arinnar og fulltingi.
Þetta var gert hér á árum áður,
en var svo hætt. Nauðsynlegt er að
málið komi á dagskrá núna, því
áður en við vitum af er jólafastan
komin, en mál af þessu tagi þarf
að sjálfsögðu verulegan undirbún-
ing. Trúlega fékkst nú einhver
reynsla á þetta hér á fyrri árum,
en það getur vel verið að hún komi
sem ekki sinna slíku. Er það mjög
miður og raunar óafsakanlegt, því
að flestum finnst betra að vita um
örlög vinar síns en að búa við
óvissuna.
Ég varð fyrir því nú fyrir rúmri
viku að tapa fallegum heimilis-
ketti (högna). Hann er svartur
með hvita bringu. Ef hann hefir
orðið fyrir bifreið t.d. á Snorra-
braut eða þar í grennd, vil ég vin-
samlega biðja þann, er valdur var
að því, að láta mig vita.
Og við þá ökumenn, sem kunna
að verða fyrir því óhappi að aka á
húsdýr, vil ég segja þetta: Sé dýrið
sært, sjáið um að það sé aflífað.
Gerið það, sem í ykkar valdi
stendur til þess að fregnin berist
til réttra aðila, því að óvissan er
verst."
ekki að gagni í dag. Vera má að
rafleiðslurnar sem lagðar voru í
kirkjugarðinum séu enn til, en
þurfi lagfæringar við og svona
mætti lengi telja.
Aðalatriði núna þykir mér vera
að fara þess á leit við kirkjugarða-
stjómina, að hún taki málið upp á
fundum sínum hið bráðasta og
þykist ég vita það að þú, Velvak-
andi, myndir þá vera tilbúinn til
að annast um það milligöngu,
þannig að þú t.d. myndir birta
bréf frá kirkjugarðastjórninni
okkur til leiðbeiningar, m.a.
hvernig rétt sé að standa að þessu
máli séð frá bæjardyrum kirkju-
garðastjórnarinnar.
í þeirri von að þetta áhugamál
mjög margra nái fram að ganga
þakka ég þér, Velvakandi, fyrir
undirtektir þínar með því að koma
þessari hugmynd nú á framfæri."
Jólaljós í Foss-
vogskirkjugarð
Arnþrúður Karlsdóttir
þess á leit að viðtal Arnþrúðuar
við Pálma Gunnarsson verði
endurtekið.
Stórkostlegt
Jón Geir Árnason hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langaði til að koma á framfæri
þökkum mínum til Páls Guðjóns-
sonar, sveitarstjóra í Mosfells-
sveit. Mér fannst það stórkostlegt,
að hann skyldi bjóða börnunum,
einu dýrgripum okkar íslendinga,
að taka fyrstu skóflustunguna að
dagvistarheimilinu.
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættjpum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisróng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
Lærið vélritun
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Ný námskeiö hefj-
ast þriöjudaginn 3. október. Engin heimavinna. Innritun
og upplýsingar í síma 36112 og 76728.
Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20, sími 85580.
v ______________y
T0Y0TA-VARAHLUTAUMB0DIÐ
ÁRMÚLA 23 — SÍMI 81733
HUGSAÐU
þig tvisvar um áður en þú
kaupir kæli- og frystiskáp.
Blomberq
- Stílhrein hágæða heimilistæki.
EINAR FARESTVEIT ð, CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A Slmi I6995
Ég valdi KF 325 kæli-
og frystiskápinn frá
Blomberg vegna þess
að skápurinn er hagan-
lega innréttaður með
175 lítra kæli og 150
litra frysti. Kuldahlífar
eru fyrir hillum í
frysti og mælamir
vel staðsettir að utan.
Hann notar aðeins
1.55 kw á sólarhring.