Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 46

Morgunblaðið - 27.09.1983, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 Portúgölsk vika á Hótel Holti KYNNINGARVIKA á portugölskum réttum og vínum hófst að Hótel Holti i sunnudagskvöld og stendur hún til 3. október. Að kynningunni standa fyrirt*kið Sogrape, en það framleiðir m.a. Mateus Rosé, svo og Hótel Holt undir forsji hótelstjór- ans, Skúla Þorvaldssonar. Ríkisferðaskrifstofa Portúgals og Ferðaskrifstofan Útsýn færa einnig fram nokkurn skerf. Hingað eru komnir fyrir forgöngu Sogrape tveir Portúgalir, Jose Manuel Veloso, sem mun leika á píanó fyrir matargesti undir borð- um, og matreiðslumaðurinn Fransisco Viera, aðalmatreiðslu- maður Sogrape. Hann mun bjóða gestum upp á aðskiljanlega portúgalska kjöt- og fiskrétti og vín verða svo á boðstólum með matnum. Samtímis þessu hefur umboðsmaður Mateus Rosé hér- lendis, Björn Jóhannsson, inn- flytjandi, látið koma upp sýningu á ýmsum portúgölskum vörum í anddyri Hótel Holts, svo sem silf- urmunum, textilvarningi, postulíni, keramik og húsgögnum. Viðskiptaskrifstofa Portúgals í Noregi hefur og veitt aðstoð sína. Þessi kynningarvika er haldin að sögn forráðamanna hennar til að vekja athygli á Portúgal og portúgölskum varningi, en eins og öllum ætti að vera ljóst eru við- skipti okkar á saltfiski til Portúg- al einkar mikilvæg og um árabil hafa Portúgalir sýnt áhuga á því að íslendingar verzluðu meira við þá, a.m.k. með þær tegundir vöru, sem hagstæðari eru en annars staðar frá eða alltjent sambæri- legar að verði og gæðum. Þá hafa íslendingar undanfarin ár lagt í auknum mæli leið sína til Portúgals í leyfum sínum. Vetrarstarf Samkórs Trésmiða- félagsins að hefjast VETRARSTARF Samkórs Tré- smiðafélags Reykjavíkur hefst mánudaginn 3. október og verður byrjað á að undirbúa þátttöku f kór- anámskeiði Landssambands bland- aðra kóra, sem verður haldið í Reykjavík síðustu helgi október- mánaðar. Samkór Trésmiðaféiagsins er eini kórinn sem starfar innan verkalýðsfélags á landinu, eftir því sem segir í fréttatilkynningu frá kórnum. Hann er hluti af starfsemi Trésmiðafélagsins, en innan hans eru margir hópar sem fást við ýmis verkefni. Kórinn hef- ur starfað í ellefu ár og þrátt fyrir nafnið og þá staðreynd að uppi- staðan í kórnum séu trésmiðir og treámiðakonur, þá er hann opinn öllu alþýðufólki og í honum hafa frá upphafi verið félagar úr flest- um stéttum þjóðfélagsins. Engin inntökuskilyrði eru í kór Trésmiðafélagsins og óskar hann nú eftir fólki í allar raddir. Þeim sem áhuga hafa er bent á að hafa samband við Guðjón Böðvar Jóns- son söngstjóra eða örn Er- lendsson formann, samkvæmt þvf sem segir í fréttatilkynningu frá Samkór Trésmiðafélags Reykja- víkur. Norræna húsið: Norskur fiðluleikari með tónleika ÞRIÐJUDAGINN 27. september heldur norskur fiðluleikari, Sven Nyhus, tónleika í Norræna húsinu og á efnisskránni eru norsk þjóðlög, valsar og gamlir dansar, sem leikin verða á fiðlu og harðangursfiðlu. Sven Nyhus hefur komið fram í ótal útvarps- og sjónvarpsdag- skrám í Noregi og Svíþjóð og hald- ið tónleika víða í Evrópu og í Bandaríkjunum, auk þess sem hann hefur leikið inn á hljómplöt- ur norska þjóðlagatónlist og gömlu dansana. ERANN Á NORÐA og Húsgagnahöllin í Bíldshöfða ei stútíull af norðanvörum. Góðum vörum á góðu verði, sem fjúka út jafnharðan. Við opnum á fimmtudaginn klukkan 1. Á boðstólum: Gallabuxur, úlpur, peysur, sokkar, skór í öllum regnbogans litum og mörgum gerðum og barnaíatnaður alls konar. Enntiemui: Kvenkápur, kjólar, pils og tiskuvörur ur ull. Líka: Herraíöt, stakar buxur, stakir tweed jakkar, írakkar og eínisbútar. Þai að auki: Teppabútar, áklœðisefni og gluggatjöld, buxnaeíni, einlitt og teinótt terylene og gullfalleg ullarteppi á gjaíverði. Einnig: Teppagœrur, mokkaskinn 1 mörgum litum, mokkaíatnaður og mokkah úíur. ^ DTO Og auðvitað: Gam, m.a. i stórhespum, loðband og lopi. Fimmtudag kl. 13-22 Stiœtisvagnateiðii irá Hlemmtoigi: Leið 10. *VEBKSmJUSAlA* SAMRANDSVmSMIÐJANNA Á AKUEEW

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.