Morgunblaðið - 27.09.1983, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983
47
Stjómmálaskóli Sjálfstæðisflokksins hefst 3. október:
Fjölbreytni námsins aukin
og boðið upp á þrjú sérsvið
„í TILEFNI af 10 ára afmæli Stjórn-
málaskóla Sjálfstæðisflokksins hef-
ur verið ákveðið að gera breytingar
sem varða stækkun skólans og auka
fjölbreytni," sagði Árni Sigfússon,
framkvæmdastjóri fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, en
jafnframt er hann skólastjóri Stjórn-
málaskólans, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Það var árið 1973 sem skólinn
var endurreistur að frumkvæði
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og
fleiri og var þá sett upp sérstakt
svið um helstu þætti þjóðmála og
stjórnmála. Skólinn hefur verið
rekinn með svipuðu sniði þessi tíu
ár. í skólanum hefur verið lögð
áhersla á þjálfun í fundarstörfum,
auk þess sem áhersla hefur verið
lögð á almenna fræðslu um stjórn-
mál, hagfræði, stjórnkerfismál,
utanríkismál og fræðslu um
stjórnmálaflokkana almennt og
svo framvegis," sagði Árni.
„Helsta breytingin sem við ger-
um núna er sú að við bjóðum upp á
sérsvið. Við höfum orðið vör við
það að fóik sem lokið hefur námi í
Stjórnmálaskólanum er mjög
ánægt með þá fræðslu sem það
hefur fengið og talið sig fá mjög
víða mynd af því sem er á baugi,
en jafnframt hefur fólk nefnt að
það vildi gjarnan fá aukna fræðslu
um sín sérstöku áhugasvið. Nú
gerum við tilraun til að koma til
móts við þessar óskir, með því að
bjóða upp á þrjú sérsvið. Þessi
svið varða utanríkismál og þar er
lögð aukin áhersla á þau, fyrir þá
sem sérstakan áhuga hafa á þeim
málaflokki. Annað sviðið er um
efnahagsmál. Þá ber að geta
þriðja sviðsins, sem er verkalýðs-
og atvinnumálasvið, og er þar í
raun kominn Verkalýðsskóli
Sjálfstæðisflokksins, sem starf-
ræktur hefur verið um árabil af
Verkaiýðsráðinu og hefur það yf-
irumsjón með þessu sviði,“ sagði
Árni.
Árni Sigfússon sagði að í skól-
ann hefði sótt fólk á öllum aldri og
hópurinn hefði yfirleitt talið
20—30 manns í hvert sinn. Með
fyrrgreindri breytingu sagði Árni
fært að stækka hópinn eitthvað og
reyndar hefði komið i ljós nú þeg-
ar að fólk hafði tekið breytingun-
um mjög vel. „Undanfarið hefur
verið mikil aðsókn og mikið spurt
um skólann," sagði Árni.
Árni sagði að áhersla væri lögð
á að kennarar við skólann hefðu
staðgóða þekkingu og reynslu af
þeim málum sem fjallað er um.
Við skólann að þessu sinni munu
kenna sérfræðingar á sviði utan-
ríkismála, efnahagsmála, alþjóða-
stjórnmála, þjálfaðir ræðu- og
fundarmenn og menn sem hafa
þekkingu á ritstörfum, og einnig
verða sérfræðingar á sviði laga,
stjórnkerfismála og verkalýðs-
mála.
Skólinn verður starfræktur á
kvöldin á tímabilinu frá 3. október
og verður til 15. október.
Sem dæmi um dagskrá í skólan-
um, má nefna þann þátt sem varð-
ar verkalýðs- og atvinnumál.
Verður þar rætt hlutverk laun-
þega- og atvinnurekendasamtaka,
en um það fjalla þeir Magnús L.
Sveinsson, formaður VR, og
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ. Þá verður fé-
lagsmálaráðuneytið heimsótt í
boði ráðherra. Fjallað verður
einnig um félags- og kjaramál,
sem Hilmar Jónasson, formaður
verkalýðsfélagsins Rangæings, sér
um. Þá verður fjallað um atvinnu-
leysistryggingar af Pétri Sigurðs-
syni, alþingismanni, og um stjórn-
un, uppbyggingu og fjármál laun-
þegasamtaka, en um það sér
Sverrir Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri FÍH.
Gunnar Bachmann, formaður
fræðslunefndar Verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokksins, sagði í sam-
tali við Mbl. að menn væru mjög
ánægðir með sameiningu skólanna
tveggja. Með því myndu m.a.
kynni ungs fólks innan flokksins
eflast og einnig hitt að Sjálfstæð-
isflokkurinn hefði einn stjórn-
málaafla náð að reka skóla þar
sem bæði væri fjallað um stjórn-
mál, en einnig færi fram hlutlaus
uppfræðsla um verkalýðsmál.
Hingað til hefði árangurinn verið
mjög góður og ekki ástæða til að
ætla að hann verði lakari eftir
sameininguna, heldur þvert á
móti.
Sýning á silkiþrykki og leir-
list í Gallerí Langbrók
LAUGARDAGINN 24. september
hófst sýning á silkiþrykki og leirlist I
Gallerí Langbrók á Bernhöftstorfu.
Þar sýna Ásrún Kristjánsdóttir og
Elísabet Haraldsdóttir. Þær stund-
uðu nám við Myndlista- og handíða-
skóla fslands á árunum 1967—1971
á tímura Kurt Ziers og Harðar Ág-
ústssonar.
Ásrún lauk prófi úr kennara-
deild skólans og bætti við sig einu
ári í textildeild 1971-1972. Hélt
síðan til Stokkhólms og stundaði
nám í textildeild „Konstfackskol-
an“ frá 1973-1976. Að námi loknu
kom hún sér upp vinnustofu og
varð meðlimur í „Sólon Islandus",
stofnaði svo ásamt fleirum Gallerí
Langbrók sumarið 1978.
Ásrún hefur unnið mikið að fé-
lagsstörfum fyrir textil-listafólk
og verið myndlistarkennari und-
anfarin ár. Verkin á sýningunni
eru öll unnin í silkiþrykk á vef.
Stúdentaráð Háskóla íslands:
Megn óánægja með frest
un á greiðslu haustlána
Elísabet Haraldsdóttir stundaði
nám í Vínarborg við Hochschuie
fur angewandte Kunst í keramik-
og skúlpturdeild skólans á árunum
1971-1975. Eftir diplom-próf
starfaði hún um eins árs skeið
sjálfstætt við skólann og I Galerie
Alte Schmiede í Vín.
Elísabet hefur verið búsett á
Hvanneyri, Borgarfirði, síðan 1978
og hefur þar eigið verkstæði. Hún
hefur verið félagi í Gallerí Lang-
brók síðan 1979 og er stofnfélagi
leirlistarfélagsins.
Báðar listakonurnar hafa tekið
þátt í fjölda sýninga hér heima og
erlendis.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
9. október og er opin virka daga
frá 12 18, og um helgar frá
14—18.
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi ályktun ffa fundi Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands þann 12. sept-
ember sl.
„Stúdentaráð Háskóla fslands
lýsir megnri óánægju sinni með
samþykkt stjórnar Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna að fresta
hluta af greiðslum haustlána nú i
haust.
Sérstaklega er SHÍ óánægt með
þá skerðingu á kjörum sem verður
hjá nemendum á 1. ári nú á haust-
mánuðum. Það er engin lausn
fyrir starfsemi LÍN að fresta
greiðslum og því sfður lausn fyrir
námsmenn.
SHÍ ítrekar kröfur sínar um að
staðið verði við þær skuldbind-
ingar við námsmenn sem felast í
lögum og reglum sjóðsins. SHf
skorar á stjórnvöld að útvega það
fé sem á vantar svo úthlutun
námslána geti farið eðlilega fram
án þeirra frestana sem nú standa
til.
Ennfremur skorar SHÍ á alþingi
að á fjárlögum fyrir árið 1984 verði
LÍN veitt það fjármagn sem sjóður-
inn þarfnast og kemur fram í fjár-
beiðnum sjóðsins fyrir næsta ár.“
Stúdentaráð Háskóla íslands.
ARMAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verð.
Steinull — glerull — hólkar.
'Armúla 16 sími 38640
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Bre\ðholtsbúW
•ottGerðuberg.
cprT1 vilia grennasx uy
jsrs——
matseöla, ^® )ur 0g matarlyst.
faeöuval, matarven)u nAOtiA.
Höganás
stendur af sér
fiost og f una
Höganás f ramleiöir sérstakar flísar fyrir íslenskar aðstæður,
þær eru hálkufríar, hrjúfar, mattar og að sjálfsögðu frost-
þolnar. Þær eru ætlaðar á stéttar og tröppur. En það er líka til
mikið úrval annarra frostþolinna Höganásflísa í fjölbreyttum
litum. Allar Höganásflísar eru eldfastar.
Höganás hefur um áraraðir framleitt eftirsóttan eldfastan
stein, bæði fyrir kamínur og til iðnaðarnota.
Skoðið Höganás úrvalið í sýningarsal okkar, þar finnið þið
réttu flísarnar.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI2, REVKJAVÍK