Morgunblaðið - 27.09.1983, Page 48

Morgunblaðið - 27.09.1983, Page 48
etta lestuídag m.a.: „Bara skemmtilegt klúður “ segir Jóhanna Kristjónsdóttir í leikdómi um Skvaldur. Sjá bls. 14. Tölvupappír llll FORMPRENT Hverfisgotu 78, simar 25960 25566 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1983 Nýfundnaland: Sameinuð ríkisútgerð og fiskvinnsla stofhuö SAMKOMULAG tókst í gær milli ríkisstjórnar Kanada og fylkisstjómarinn ar á Nýfundnalandi um að sameiginlega myndu stjórnirnar standa að sam- einingu allra stóru útgerðar- og riskvinnslufyrirtækjanna á Nýfundnalandi. Fyrirtækin sem hér um ræðir eru Fishery Products, The Lake Group og John Penny & Sons. Verða tæplega 70 togarar og rúmlega 20 frystihús í eigu hins nýja fyrirtækis. Hæstiréttur á Nýfundnalandi hafnaði í gær rökum sem lögfræð- ingar Fishery Products höfðu uppi gegn kröfu Bank of Nova Scotia um gjaldþrotaskipti á félaginu, sem er stærsta útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækið á Nýfundna- landi. Gerði bankinn kröfu um skiptin eftir að stjórnendur fyrir- tækisins höfðu neitað að sætta sig við áform ríkisstjórnar Kanada um sameiningu þess og minni fyrirtækja á eyjunni. Eftir að Hæstiréttur hafði kom- ist að þessari niðurstöðu efndu Briam Peckford, forsætisráðherra Nýfundnalands, og Pierre de Bané sjávarútvegsráðherra Kanada- stjórnar, til blaðamannafundar og tilkynntu stofnun hins nýja fyrir- tækis. Kanadastjórn leggur fram 75,3 milljónir kanadískra dollara í hlutafé, fylkisstjórnin 31,5 milljón og Bank of Nova Scotia 44,1 millj- ón. Þá verður starfsfólki og Félagi sjómanna og fiskvinnslufólks á Nýfundnalandi boðið að gerast hluthafar. Kanadastjórn mun eiga 5 menn í stjórn, fylkisstjórnin 3, bankinn 1 og starfsfólkið 1. Sömu aðilar munu eiga fulltrúa í stjórn mark- aðsfyrirtækis sem komið skal á fót til að selja framleiðslu hins nýja stórfyrirtækis og einnig annast sölu á framleiðslu minni fiskverk- enda á Nýfundnalandi. Ætlunin er að hið nýja fyrir- tæki verði rekið með arðsemi að leiðarljósi en Kanadastjórn standi undir tapinu á þeim frystihúsum sem rekin verða í því skyni að halda uppi atvinnu. Ráðist á 4 í Klúbbnum 25 ARA maður var handtekinn að- faranótt sunnudagsins eftir að hafa ráðist á þrjá menn í og við Klúbbinn. Lögregla var kvödd til á fjórða tím- anum. Þá hafði maðurinn sparkað í andlit pilts fyrir utan húsið svo fram- tennur losnuðu. Nærstaddur maður hugðist ganga í milli, en árásarmaðurinn sló hann í andlitið svo framtönn losnaði. Skömmu síðar kom maður út úr veitingahúsinu og hafði ver- ið ráðist á hann inni, svo tvær framtennur brotnuðu. í ljós kom, að sami árásarmaðurinn hafði verið að verki. Fyrr um nóttina hafði verið gerð tilraun til þess að ræna veski konu fyrir utan húsið. Konan slas- aðist svo sauma var 14 spor í and- lit hennar. Árásarmaðurinn náð- ist. Tveir hund- ar aflífaðir TVEIR hundar voru aflífaðir á föstudagskvöldið eftir að þeir höfðu bitið fjórar manneskjur — þrjá karla og konu. Enginn slasað- ist alvarlega, en öll voru þau flutt í slysadeild. Lögregla var kvödd í hús á Framnesvegi, vegna deilna, sem upp komu. Húsráðandi, kona um fertugt, bað lögregluna að fjar- lægja tvo menn. I íbúðinni voru hundar, annar þeirra — Labrador-hundur — lét ófriðlega. Hundurinn beit, konuna, þegar hún hugðist fjar- lægja hann, að því er fram kem- ur í lögregluskýrslum. Áður hafði hundurinn bitið eiganda sinn. Þegar lögregluþjónn hugðist færa Labrador-hundinn í lög- reglubíl, beit hundurinn hann. Lögregluþjónninn náði taki á dýrinu og var það aflffað. Hinn hundurinn var æstur og beit lögregluþjón. Farið var með hann á lögreglustöðina og hann aflífaður. Hræin voru brennd í brennsluofni tilraunastofu Há- skólans í meinafræði að Keld- um, án þess að beðið væri um rannsókn. Sjá viðtöl bls. 30. Ferðimar sem fylltu mælinn: Ráðuneytið lét undan þrýstingi TVEIR af þremur ráðuneytisstjórum í utanfaranefnd ríkisins hafa sagt sig úr nefndinni þar sem þeir telja ekki nægilegt tillit tekið til álits hennar, eins og fram kom í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Nefndinni hefur verið ætlað að virka sem „bremsa" á utanferðir ríkisstarfsmanna en ráðuneytisstjórarnir tveir telja að tíma sínum á fundum hennar hafi verið illa varið. Það munu hafa verið tvær ferðir á vegum stofnana er heyra undir menntamálaráðuneytið, sem fylltu mælinn hjá ráðuneyt- isstjórunum tveimur. í báðum tilfellum lagðist nefndin gegn því að umræddar ferðir yrðu farnar en menntamálaráðuneyt- ið hunsaði álit nefndarinnar og veitti heimild fyrir ferðunum engu að síður. Runólfur Þórar- insson, deildarstjóri safna- og listadeildar ráðuneytisins, sagði blm. Morgunblaðsins í gær að um hefði verið að ræða ferðir á vegum Þjóðminjasafnsins og sjónvarpsins. „Frá Þjóðminja- safninu kom beiðni um að starfs- maður yrði sendur á stjórnar- nefndar- og aðalfund Alþjóða- sambands textilfræðinga, CI- ETA,“ sagði Runólfur. „Um- ræddur safnvörður hafði verið beðinn að flytja erindi um ís- lenska vefstaðinn (stólinn) og ýmsa þætti vefnaðar hérlendis á fundinum í Lyon í Frakklandi. Ráðuneytið var fýsandi þess að af þessu gæti orðið en nefndin lagðist gegn því. Það var svo tek- in um það ákvörðun Jiér í ráðu- neýtinu, að ferðin skyldi farin engu að síður. Þessi ferð tengdist annarri ferð, sem verið var að fara, og ríkið greiddi ekki, svo farseðill var ekki greiddur nema að hluta. Sá kostnaður var 5—6000 krónur," sagði Runólfur. Um hina ferðina sagði Runólf- ur: „Þar var um það að ræða, að sjónvarpið óskaði eftir að tveir dagskrárfulltrúar frá tveimur deildum, lista- og skemmtideild og frétta- og fræðsludeild, færu til London á svokallaðan Multi Media Market. Sjónvarpið lagði áherslu á að tveir menn færu, enda væri um 60% af sjónvarps- efni keypt frá útlöndum og ekki væri gott að kaupa það óséð. Utanfaranefndin hafnaði ann- arri beiðninni, en féllst á hina. Niðurstaða ráðuneytisins varð sú, að báðir skyldu fara,“ sagði Runólfur Þórarinsson, sem kvað ráðuneytið hafa tekið tillit til eindreginna óska viðkomandi stofnana í þessum málum. Morgunblaðinu hefur ekki tek- ist að ná tali af Sveinbirni Dag- finnssyni, ráðuneytisstjóra, sem situr einn eftir í utanfaranefnd- inni, þar sem hann er f Noregi. Frá réttum í Efstadal í Laugardal sl. sunnudag, en féð sem þar var dregið í dilka fer beint í sláturhús vegna riðuveiki. Sjá: „Öllu fé slátrað af þreraur bæjum“ á rniðsíðu. Ljóam. Mbl. Frfða Proppé. Fólk á varðbergi gagnvart hundum FÓLK var mjög á varðbergi í Reykjavík í gær gagnvart hundum. Lögreglunni bárust þrjár tilkynn- ingar um hunda, sem fólki stóð stuggur af. Hin fyrsta barst í gærdag um hund, sem gekk laus við Bugðu- læk. Lögreglumenn fóru á staðinn, en urðu einskis varir. Þá barst tilkynning um svartan Labrador-hund við Hátún, en hann fannst ekki þrátt fyrir eftir- grennslan lögreglu. Loks barst til- kynning seint í gærkvöldi um hund við Nökkvavog, en enn einu sinni gripu lögreglumenn í tómt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.