Morgunblaðið - 05.10.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1983
37
ísafjörður:
Fatlaðir í heim-
sókn hjá Kiwanis
ísafjorður, 27. september.
UM SÍÐUSTU helgi voru fatl-
aðir í heimsókn hjá Kiwan-
isklúbbnum Básum á ísafirði.
Kristinn Guðmundsson úr
Reykjavík sem sjálfur er fatl-
aður hefur gengist fyrir slíkum
ferðum síðastliðin fimm haust.
Upphaflega hafði hann sam-
band við Ingimar Eydal á Akur-
eyri, en hann er Kiwanismaður.
Síðan hefur Ingimar aðstoðað við
skipulagningu þessara ferða þar
sem Kiwanismenn á viðkomandi
stöðum hafa tekið á móti gestun-
um. Fyrsta ferðin var farin til Ak-
ureyrar, en einnig hefur verið far-
ið til Vestmannaeyja og Hafnar í
Hornafirði.
Yfirleitt hafa farið milli 10 og
20 manns í hverja ferð, en nú
gengu margir úr skaftinu svo að
að endingu urðu aðeins 6 manns í
hópnum. Flugleiðir hf. hafa alltaf
veitt góðan afslátt af þessum ferð-
um.
Félagar í Básum á ísafirði tóku
á móti hópnum og buðu auk máls-
verðar í Kiwanishúsinu í skoðun-
arferð til Bolungarvíkur.
Um kvöldið þegar halda átti
heim var komið ófært flugveður.
Kiwanismenn buðu þá gestunum
gistingu á hóteli á ísafirði, en síð-
degis á sunnudag var flogið til
Reykjavíkur aftur.
Úlfar
* ** ^ B >MSHH
# ~ JV m.
Almannavarnakerfi:
Prófanir
á miðviku-
dögum
ALMANNAVARNIR ríkisins vilja
vekja athygli fólks á því að framveg-
is mun viðvörunarkerfi almanna-
varna verða prófað kl. 12.00 á há-
degi, fyrsta miðvikudag í hverjum
ársfjórðungi, sem ekki ber upp á al-
mennan frídag (var á laugardögum
áður).
Reglugerðarbreyting hér að lút-
andi var gefin út af dómsmála-
ráðuneytinu 12. september 1983.
Samkvæmt hinni nýju reglu-
gerð mun því næsta prófun á við-
vörunarkerfi almannavarna verða
miðvikudaginn 5. október nk. kl.
12.00 á hádegi.
Almannavarnir ríkisins vilja að
framansögðu hvetja fólk til að
fletta upp á bls. 575 í sfmaskránni
og kynna sér upplýsingar um við-
vörunarmerki og önnur hagnýt at-
riði um almannavarnir sem þar er
að finna.
FrétUtilkynning frá
Almannavörnum rfkisins
Perusala í
Borgarfirði
llvannatúni í Andakíl, 2. okt.
HIN árlega Ijósaperusala
Lionsklúbbs Borgarfjarðar stendur
nú yfir. Klúbburinn selur á svæðinu
frá Skarðsheiði aö Norðurá.
f kynningu um klúbbinn, sem
félagar afhentu heimilum á svæð-
inu í fyrrahaust, segir m.a.:
„Klúbburinn hefur aðallega
sinnt málefnum aldraðra, farið í
vetrarheimsóknir í Dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi og fært
heimilinu ýmsa nytsamlega
hluti... Til að standa undir
rekstri klúbbsins greiða félagar
ársgjöld, en söfnunarfé rennur
óskipt til góðra mála ... Sala á
ljósaperum er orðinn fastur liður I
fjáröflun klúbbsins og verðum við
greinilega varir við velvilja fólks I
söluferðum okkar. Við þökkum al-
mennan stuðning fólks við þessi
áhugamál okkar, en án hans gæt-
um við harla lítið.“
Ofanritað gildir óbreytt í haust
að sögn formanns klúbbsins,
Böðvars Pálssonar á Hvanneyri.
DJ
Kynnist ameriska draumnum að eigin raun á ferð um
Kaliforníu. Flogið er alla þriðjudaga til San
Francisco, eða Los Angeles, um New York, og heim aftur
á þriðjudegi eftir eina, tvær eða frleiri vikur. Við mælum
með ferð í bílaleigubíl frá San Francisco til Los Angeles:
Ævintýraferð um sólríkaKyrrahafsströndina.
Verð frá kr. 27.509.-
Innifalið: Flug, gisting 13 nætur í Kalifomíu, 1 nótt í
New York. Gisting pr. mann miðað við tvo í herbergi.
íslenskur flugvallarskattur ekki innifalinn.
Athugið: Verð fyrir 4—5 manna Chevette bílaleigubfl í
hálfan mánuð er kr. 6.376.-, sem deilist á farþegana í
bflnum. Kaskótrygging er ekki innifalin.
„California, here I come"
Njótið lífsins á sykurhvítum ströndum karabísku
eyjanna. Flogið er með Flugleiðum tfl New York og það
til Puerto Rico. Eftir vikudvöl þar er stefnan sett á
Jómfrúreyjar, nánar tiltekið St. Thomas. Eyjar
Karabíska hafsins bjóða upp á sælutíð undir sólhlif,
með daiquiri við calypso-takt.
Verð frá kr. 31.698.-
Innifalið: Flug: Keflavík-New York—San Juan, gisting
7 nætur í San Juan og 7 nætur á St. Thomas, og
flutningur tfl og frá hóteli. Gisting pr. mann miðað við
tvo í herbergi.
Ekki innifalið: Flug til St. Thomas, sem kostar um $45,
fram og tfl baka pr. mann. íslenskur flugvallarskattur
ekki innifalinn.
Frægasta baðströnd Bandaríkjanna er Daytona Beach
á Flórída. Flugleiðaferð tfl Daytona opnar leið að
stórkostlegustu orlofsstöðunum þama fyrir vestan.
Ferðalangurinn hefur úr ótæmandi möguleikum að
velja: Disney World, Epcot Center, Circus World, Sea
World, Kennedy Space Center, að ógleymdum heitum
sjónum og fallegri ströndinni.
Mexíkó er hrífandi ferðamannaland: Þægflegt
hitabeltisloftslag, blómskrúð, ævafom menning
aztekanna, frábær veitingéihús og þjónusta tryggja
ógleymanlega ferð. Helsti dvalarstaðurinn er Acapulco,
draumastaður sóldýrkenda. Sælkerum skal bent á að
nautasteikin kostaði innan við 75 krónur íslenskar, eftir
því sem við fréttum síðast.
Verð frá kr. 26.851.- Verð frá kr. 30.701.-
Innifalið: Flug, gisting tvær vikur, akstur til og frá
hóteli. íslenskur fararstjóri tekur á móti fólkinu, og
kemur síðan tvisvar í viku í heimsókn. Fólki er gefið
upp símanúmer fararstjóra. Gisting pr. mann miðað við
tvo í herbergi.
íslenskur flugvallarskattur ekki inniféflinn.
Innifalið: Flug, gisting: 1 nótt í New York á útleið, 3
nætur í Mexico City, 1 nótt í Taxco og 10 nætur í
Acapulco. Akstur milh fyrmefndra borga. Gisting pr.
mann miðað við tvo í herbergi.
íslenskur flugvallarskattur ekki innifalinn.
Nánari upplýsingar fást hjá söluskrifstofum Flugleiða,
umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
Gengi 30/9 '83
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi