Morgunblaðið - 05.10.1983, Blaðsíða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1983
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
Fyrstu 9 mánuðir ársins:
Um 74% söluaukn-
ing hjá Apple-
tölvufyrirtækinu
Hagnaður jókst um 68%
HEILDARSALA Apple-tölvufyr-
irtækisins bandaríska fyrstu níu
mánuði ársins var um 709,6
milljónir dollara, borið saman
við 407,3 miiljónir dollara á
sama tíma í fyrra. Aukningin
milli ára er um 74%. John
Scully, hinn nýi forstjóri Apple,
sagði á fundi með frétta-
mönnum, að útkoman væri mjög
ánægjuleg, ekki sízt með hlið-
Gjaldþrotum
fer fjölgandi
í Japan
FLEIRI fyrirtæki urðu gjaldþrota í
Japan í ágúst en nokkru sinni fyrr
í sögunni, eða 1.606 talsins, sam-
kvæmt upplýsingum þarlendra
stjórnvalda, en fjöldi þeirra sem
varð gjaldþrota í ágúst sl. er um
22% meiri en á sama tíma í fyrra,
þegar alls urðu 1.318 fyrirtæki
gjaldþrota.
í júlí sl. urðu samtals 1.425
fyrirtæki gjaldþrota í Japan,
sem þýðir að þeim hefur fjölgað
um 12,7% milli mánaðanna ág-
úst og júlí.
sjón af mjög harðnandi sam-
keppni frá tölvurisanum IBM.
Hagnaður Apple á umræddu
tímabili var um 71,6 milljónir
dollara, borið saman við 42,6
milljónir dollara á sama tíma í
fyrra. Aukningin milli ára er því
um 68%. Hagnaður á hvern hlut
í fyrirtækinu er 1,20 dollarar,
borið saman við 0,74 dollara á
hvern hlut í fyrra.
Ef litið er á afkomu Apple á
þriðja ársfjórðungi kemur í ljós,
að heildarsala fyrirtækisins
jókst um 89%, þegar hún var
samtals um 267,3 milljónir doll-
ara, borið saman við 142,7 millj-
ónir dollara á sama tíma í fyrra.
Hagnaður Apple jókst á þriðja
ársfjórðungi um 59%, þegar
hann var um 24,2 milljónir doll-
ara, borið saman við 15,2 millj-
ónir dollara á sama tíma í fyrra.
Hagnaður Apple á hvern hlut á
þriðja ársfjórðungi var um 0,40
dollarar, borið saman við 0,26
dollara á sama tíma í fyrra.
Aðspurður um hvers vegna
hagnaður hefði ekki aukizt í
samræmi við söiuaukninguna,
sagði John Scully ástæðuna
fyrst og fremst vera fjárfest-
ingar vegna markaðssetningar
hinnar nýju tölvu fyrirtækisins,
sem hefur hlotið nafnið Lisa, en
hún hefur verið kynnt víðs vegar
um heiminn undanfarnar vikur.
Frakkland:
Um 0,6% hækkun
framfærslukostn-
aðar í ágúst
NOKKUÐ hægði á hækkun fram-
færslukostnaðar í Frakklandi í
ágústmánuði sl., en mánaðar-
hækkunin var 0,6%. Hækkun
framfærslukostnaðar í júlí til
samanburðar var um 0,9%, að
sögn talsmanns frönsku hagstof-
unnar.
Vísitala framfærslukostnaðar
var 140,2 stig í ágúst og er þá
miðað við grunntöluna 100 á ár-
inu 1980. Vísitala í júlí var 139,4
stig. Hækkun framfærslukostn-
aðar frá því á sama tíma í fyrra
er um 9,7%.
Hækkun framfærsluvísitöl-
unnar sl. þrjá mánuði, þe. júní-
ágúst, var um 3% og hækkun
hennar sl. sex mánuði, þ.e.
mars-ágúst, var um 5%.
Sérfræðingar telja næsta
vonlaust að stjórnvöldum takist
að ná verðbólgumarkmiði sínu
fyrir árið, en samkvæmt því átti
verðbólgan að vera komin niður
fyrir 8% í árslok.
Janúar — júní:
Um 1% aukning þjóð-
arframleiðslu í Svíþjóð
— Einkaneyzla dróst saman um 2,8% en samneyzla j'ókst um 1,3%
UJÓÐARFRAMLEIÐSLA jókst
um liðlega 1% í Svíþjóð á fyrri
helmingi þessa árs, samkvæmt upp-
lýsingum sænsku hagstofunnar og
er þá miðað við sama tímabil á síð-
asta ári.
Talsmaður sænsku hagstof-
unnar sagði meginástæðuna
fyrir aukinni þjóðarframleiðslu
vera aukna starfsemi í ýmsum
útflutningsgreinum landsmanna,
ekki sízt í kjölfar gengisfellingar
sænsku krónunnar sl. haust.
Á umræddu tímabili dróst
einkaneyzla í Svíþjóð saman um
liðlega 2,8%, sem er nokkru
meiri samdráttur, en sérfræð-
ingar stjórnvalda höfðu spáð í
upphafi ársins.
Samneyzla í Svíþjóð jókst á
fyrri helmingi ársins um liðlega
1,3%, sem talsmaður hagstof-
unnar sagði að væri undir fyrri
spám, sem gerðu ráð fyrir liðlega
1,6% aukningu á tímabilinu.
Þá kom fram hjá talsmanni
hagstofunnar, að útgjöld ríkisins
hefðu aukizt um liðlega 3% á
fyrri helmingi ársins, en í árs-
byrjun hafði því verið spáð, að
ríkisútgjöldin myndu ekki aukast
nema um 2,3%.
Fjárfesting í iðnaði dróst sam-
an um liðlega 11% á fyrstu sex
mánuðum ársins. Hins vegar
dróst fjárfesting í þjónustugrein-
um ekki saman nema um tæplega
5%.
Loks kom fram hjá talsmanni
sænsku hagstofunnar, að kaup-
máttur launa hefði rýrnað um
3%, þegar tekið hefði verið mið
af verðbólgunni á fyrri helmingi
ársins, sem er um 0,5% minni
rýrnun en gert hafði verið ráð
fyrir.
Verulega harðnar á daln-
um hjá tölvufyrirtækjum
Osborne-tölvufyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta
MJÖG HEFUR harðnaö á dalnum hjá mörgum tölvufyrirtækjum undanfarna mánuöi og
mi.sseri, samfara síaukinni og harönandi samkeppni. I síóustu viku tilkynnti eitt af
þekktustu tölvufyrirtækjum Bandaríkjanna Osborne Computer Corporation ad það hefði
óskað eftir gjaldþrotaskiptum viö þarlend stjórnvöld.
í sambandi við Osborne er
haft á orði að skammt sé
stórra högga á milli því ekki
eru mörg ár síðan Adam
Osborne kallaði sjálfan sig
„Henry Ford minnitölvanna"
og ekkert var talið athugavert
við það. Á síðasta ári gekk
sala fyrirtækisins mjög vel
framan af, en þegar líða tók á
árið datt sala fyrirtækisins
niður samfara snarharðnandi
samkeppni og um mitt sumar
var orðið ljóst að hverju
stefndi.
Það eru fleiri en Osborne
sem átt hafa í erfiðleikum.
Fyrir nokkru tilkynntu þrír af
stærri framleiðendum smá-
tölva um gríðarlegt tap á fyrri
helmingi ársins. Það voru
fyrirtækin Atari, Texas
Instrument og Mattel. Tap
þessara þriggja fyrirtækja á
fyrstu sex mánuðum ársins,
samkvæmt upplýsingum tíma-
ritsins Newsweek nam liðlega
500 milljónum dollara. Sér-
fræðingar telja verulegar lík-
ur á því, að þessi fyrirtæki
fari sömu leið og Osborne, ef
ekki komi til óvæntur veru-
legur bati í sölu þeirra. Slíkt
sé hins vegar afar ósennilegt.
Adam Osborne sagði á
blaðamannafundi á dögunum,
að það væri orðið næsta óger-
legt fyrir hina smærri aðila að
keppa við risana, IBM, Digital
og Ápple, sem hefðu yfir gríð-
arlegu fjármagni að ráða og
gætu eins og hann orðaði það
gert nánast það sem þeim
sýndist.