Morgunblaðið - 05.10.1983, Blaðsíða 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1983
Borg, Miklaholtshreppi:
Versta dag september
má telja til góðviðris
Borg, VliklaholLshreppi, 30. Neptember.
í DAG eru dagar septembermánaðar að telja út. Ólíkur hefur
hann verið þeim þremur mánuðum, sem hafa verið þar á
undan. Versta dag í september má telja til góðviðris. I>ó er
einn dagur þar undantekning, laugardagurinn 24. þessa mán-
aðar. Þann dag var eitt það versta veður, sem komið hefur á
þessu sumri, mikil úrkoma og hvassviðri.
Síðastliðinn miðvikudag var
réttað hér í Langholtsrétt í blíð-
skaparveðri, ský sást ekki á himni
þann dag. Leitarmenn lögðu
snemma morguns, tveggja stiga
frost var þá um morguninn, en
hlýnaði svo er á daginn leið. Rétt-
arhald gekk vel. Mikill fjöldi af
fólki mætti til réttar, en fé var
ekki eins margt og oft áður.
Slátrun hófst í Borgarnesi þann
19. þessa mánaðar, er því búið að
flytja þangað margt fé til förgun-
ar og því kom færra fé til réttar.
Dilkar reynast misjafnir, en þó
ekki verri en menn áttu von á eftir
þetta illviðri, sem yfir þá hefur
gengið á sumrinu. En september-
mánuður hefur bætt þar nokkuð
um, gróður er ágætur til fjalla og
hefur fé haldið sig vel í fjalli í
september.
Sá ágæti siður er hér á réttar-
dag að Konur sveitarinnar bjóða
öllu fólki, sem til réttar kemur,
upp á fjölbreyttar veitingar, kakó,
kaffi, mjólk og fjölbreytt meðlæti.
Kunna réttargestir vel að meta
þessar rausnarlegu veitingar.
Meðal réttargesta þennan dag
voru burtfluttir Miklhreppingar,
sem búsettir eru í Reykjavík. Einn
sem var þar mættur og nú er 77
ára, lét þau orð falla: Sveitina
mína sé ég aldrei eins fallega og í
heiðskíru veðri á réttardag.
— Páll
Fyrir nokkru efndu þessir krakkar til hlutaveltu og afhentu ágóðann í Hallgrímskirkju og létu hann ganga til hjálpar
„Hungruðum heimi“, hjálparstarfs á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar. Krakkarnir söfnuðu rúmlega 370 krónum.
I>au heita Dagbjört Hafliðadóttir, Kristín Sigr. Hall, Gunnur Róbertsdóttir, Hrefna Grímsdóttir og Dýrleif Hrönn
Harðardóttir.
Vólin er háþróuö 6 strokka 2800 cc. meö beinni innspýtingu og TURBO — 5 gíra — fjögurra
manna — aftursæti má leggja niöur — aluminium sportfelgur — protenza dekk — Spoiler aö
aftan og framan — Rafmagnsrúöur — aflstýri, létt og nákvæmt — upphituö afturrúöa meö
rúöuþurrku og rúöusprautu — skottlok má opna úr ökumannssæti — stereo-segulband og
-útvarp — tölvuklukka sem jafnframt er skeiöklukka — rafmagnsloftnet, stjórnaö frá mæla-
boröi — lesljós — og ótal margt fleira.
Datsun 280 ZX 2+2 TURBO meö kraft sem einungis sárafáir sportbílar í heiminum geta státaö
af og þægindi og aksturseiginleika í samræmi viö þaö.
Aðeins eitt eintak til
IMISSAIM
/ngvar Helgason h f.
SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI S33560
DATSUN 280 ZX 2+2 TURBO
Einn glæsilegasti lúxus-sportbíll allra tíma.
Sigurvegari ótaldra kappakstra og rallýa.
Þær eiga heima í Kópavogi þessar dömur, en þær efndu til hlutaveltu til
ágóða fyrir Sjálfsbjörg, Fél. fatlaðra í Reykjavík og nágrenni. Þær heita
Kristín B. Viðarsdóttir, Margrét Jónsdóttir og Guðbjörg Gústafsdóttir.
Þessir krakkar færðu „Ferðasjóði íbúa Hátúns 12“ 1000 kr. en það var ágóði
af hlutaveltu sem þau efndu tii. Þau heita Sara Hermannsdóttir, Rut Her-
mannsdóttir og Benedikt Viggósson.
Þeir heita Loftur Þór Einarsson, Friðrik Örn Guðmundsson og Loftur Þór
Jónsson og efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra. Þeir söfnuðu rúmlega 330 krónum.
í Hafnarfirði efndu þessar stöllur til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél.
lamaðra og fatlaðra og varð ágóðinn 800 krónur. Þær heita Ólafía Helgadótt-
ir, íris Guðmundsdóttir og Guðrún Berglind Sigurðardóttir.