Morgunblaðið - 05.10.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1983
39
Janúar — júní:
Um 46% aukning á
heildarsölu Volvo
— Söluaukningin hjá
orkufyrirtækjum sam-
steypunnar um 72%
HEILDARSALA Volvo-samsteyp-
unnar sænsku jókst um 46% á
fyrstu sex mánuðum þessa árs,
þegar hún nam samtals um 49.900
milljónum sænskra króna, borið
saman við liðlega 34.114 milljónir
sænskra króna á sama tímabili á
síðasta ári.
Ef litið er á einstaka þætti
starfseminnar kemur í ljós, að
orkufyrirtæki Volvo-samsteyp-
unnar eru orðin stærsti þáttur-
inn í starfseminni. Fyrstu sex
mánuði ársins var heildarsala
orkufyrirtækjanna um 24.005
milljónir sænskra króna og
hafði salan aukizt um 72% frá
sama tíma í fyrra, þegar hún
var um 13.980 milljónir sænskra
króna.
Volvo Car Corporation, eða
það fyrirtæki sem við þekkjum
bezt. sem framleiðir fólksbíla-
fyrirtækisins, er í öðru sæti með
heildarsölu á fyrri helmingi árs-
ins upp á liðlega 13.492 milljónir
sænskra króna og hafði salan
aukizt frá fyrra ári um liðlega
51%, þegar hún var tæplega
8.940 milljónir sænskra króna.
Sala Volvo Trucks stóð nokk-
urn veginn í stað fyrstu sex
mánuði ársins, þegar heildarsal-
an var að upphæð um 4.973
milljónir króna. Aðrir þættir í
starfsemi Volvo-samsteypunnar
vega mun minna.
Ef síðan er litið á sölu fyrir-
tækisins á 2. ársfjórðungi þessa
árs, kemur í ljós að hún var að
upphæð um 26.269 milljónir
sænskra króna og hafði aukizt
um 37% frá 2. ársfjórðungi sl.
árs, þegar heildarsalan var
tæplega 19.180 milljónir
sænskra króna. Söluaukningin
hjá orkufyrirtækjum samsteyp-
unnar á 2. ársfjórðungi var um
51% og söluaukningin í fólks-
bílaframleiðslunni var um 47%
á umræddu tímabili.
Danmörk:
Verulega dregur
úr vöruskiptahalla
VERULEGA hefur dregiö úr vöru-
skiptahalla í Danmörku að undan-
förnu. Sem dæmi um það má
nefna, að vöruskiptahallinn í ág-
ústmánuði var um 42 milljónir
dollara, borið saman við 119 millj-
ónir dollara á sama tíma í fyrra,
samkvæmt upplýsingum dönsku
hagstofunnar.
Vöruskiptahallinn í júlímán-
uði var hins vegar 23 milljónir
dollara, borið saman við liðlega
109 milljónir dollara á sama
tíma í fyrra.
Heildarverðmæti útflutnings
Dana í ágústmánuði sl. var um
1,2 milljarðar dollara, en til
samanburðar var verðmæti út-
flutningsins á sama tíma í fyrra
liðlega 1,03 milljarðar dollara.
Verðmæti innflutnings á um-
ræddu tímabili var um 1,24
milljarðar dollara, borið saman
við 1,15 milljarða dollara á sama
tíma í fyrra.
Það kom ennfremur fram hjá
talsmanni dönsku hagstofunnar,
að verðmæti eldsneytisinnflutn-
ings hefði verið um 226 milljónir
dollara í ágústmánuði sl., borið
saman við 263 milljónir dollara
á sama tíma í fyrra. Samdrátt-
urinn milli ára er því liðlega
14%.
Góður gangur
hjá Heineken
Hagnaður jókst
um 38% á fyrri
helmingi ársins
HEINEKEN-bjórverksmiðjurnar
hollenzku tilkynntu í liðinni viku, að
hagnaður fyrirtækisins heföi aukizt
um 38% á fyrri helmingi ársins, þeg-
ar hann var samtals um 87,6 milljón-
ir hollenzkra gyllina, borið saman
við 63,7 milljónir hollenzkra gyllina
á sama tíma í fyrra.
Heildarsala Heineken jókst um
17% á umræddu tímabili, en hún
var samtals um 2,28 milljarðar
hollenzkra gyllina, borið saman
við 1,95 milljarða dollara á sama
tíma í fyrra.
Talsmaður Heineken sagði á
fundi með blaðamönnum, að sala
fyrirtækisins hefði aukizt jafnt og
þétt á öllum mörkuðum, en fyrir
utan heimamarkað væru Banda-
ríkin stærsti markaður fyrirtæk-
isins.
Aðeins
á gólfinu
ódýrara
að sofa
Verð með dýnum og
náttborði
13.510
3ja ára ábyrgð.
Hagsýnn velur þaö bezta
HUSGAGNAHOLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK « 91-81199 og 81410
Sjö „smá"atriði
sem stundum deymast
viðvaT
á nýrri þvottavél
IÞvottavél sem á að nægja venju-
legu heimili, þarf að taka a.m.k.
5 kfló af þurrum þvotti. því það ér
ótrúlega fljótt að koma í hvert kfló
af handklæðum, rúmfötum og bux-
um. Það er líka nauðsynlegt að hafa
sérstakt þvottakerfi fyrír lítið magn
af taui, s.s. þegar þarf að þvo við-
kvæman þvott.
2Pað er ekki nóg að hægt sé að
troða 5 kflóum af þvotti innf
vélina. Þvottavélin þarf að hafa mjög
stóran þvottabele og þvo f miklu
vatni, til þess að þvotturinn verði
skfnandi hreinn. Stærstu heimilis-
vélar hafa 45 Htra hvotiaHflo
3Vinduhraði er mjög mikilvægur.
Sumar vélar vinda aðeins með
400-500 snúninga hraða á mfnútu,
adrar með allt að 800 snúninea
hraða. Góð þeytivinda þýðir ekki
aðeins að þvotturinn sé fljótur að
þorna á snúrunni (sum efni er reynd-
ar hægt að strauja beint úr vélinni),
heldur sparar hún mikla orku ef
notaður er þurrkari.
4Qrkuspamaður er mikilvægur.
Auk verulegs sparnaðar af góðri
þeytivindu, minnkar raforkunotkun-
in við þvottinn um ca. 45% ef
þvottavélin tekur inn á sig bæði heitt
oe kalt vatn.
5Verðið hefur sitt að segja. Það
má aldrei gleymast að það er
verðmætið sem skiptir öllu. Auð-
vitað er lítil þvottavél sem þvær
lítinn þvott f litlum þvottabelg, tekur
aðeins inn á sig kalt vatn og þeyti-
vindur illa, ódýrari en stór vél sem
er afkastamikil, þvær og vindur vel
og sparar orku. A móti kemur að sú
litla er miklu dýrari og óhentugri í
rekstri og viðhaldsfrekari.
6Þjónustan er atriði sem enginn
má gleyma. Sennilega þurfa eng-
in heimilistæki að þola jafn mikið
álag og þvottavélar og auðvitað
bregðast þær helst þegar mest reynir
á þær. Þær bestu geta líka brugðist.
Þess vegna er traust og fljótvirk
viðhaldsþjónusta og vel birgur vara-
hlutalager algjör forsenda þegar ný
þvottavél er valin.
7Philco er samt aðalatriðið. Ef
þú sérð Philco merkið framan á
þvottavélinni geturðu hætt að hugsa
um hin „smáatriðin“ sem reyndar
eru ekki svo lítil þegar allt kemur
til alls. Framleiðendur Philco og
þjónustudeild Heimilistækia hafa
séð fyrir þeim öllum:
5 kíló af þurrþvotti, 45 lítra belgur,
800 snúningar á mínútu, heitt og kalt
vatn, sanngjarnt verð og örugg
þjónusta.
Við erum sveigjanlegir
í samningum!
yertu
oruesur
velduPniIco
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 - 15655