Morgunblaðið - 11.10.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
15
1 ; .
J M
Frá tónleikum kórsins í Vestmannaeyjum.
Kór Landakirkju
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Tónlistarmenn er starfa út um
allt land eru margir hverjir mjög
athafnasamir og dugandi tónlist-
armenn og hafa seinni árin rofið
þá einokun er Reykjavík hefur
haft á markverðum tónflutningi
um árabil. Kór Landakirkju í Vest-
mannaeyjum minntist þess nýlega
að tíu ár eru frá gosinu fræga og
flutti í því tilefni Nelson-messuna
eftir Haydn og auk þess fjóra
helgidúetta eftir Schiitz. Undirrit-
aður las það einhvers staðar í blaði
að um frumflutning messunnar
væri að ræða. Það mun ekki vera
rétt, því Nelson-messan hefur ver-
ið flutt hér í Reykjavfk. Það mun
vera nokkuð algengt að eldri upp-
færslur gleymist, t.d. er kór hér í
Reykjavík að ráðgera frumflutning
á Stabat Mater eftir Rossini, sem
þegar hefur verið flutt hér á landi.
Hvað sem því líður er flutn-
ingur þeirra Vestmanna nokkur
tíðindi. Kórinn söng af þó
nokkru öryggi, en það vantar
meiri söngkunnáttu, sem er hvað
greinilegust er reynir á söngvar-
ana, t.d. er varðar svokallaðan
stuðning, þannig að styrkur og
háir tónar voru framkallaðir
með óeðlilegum átökum. Þá
skortir mjög á hljómgun (resón-
ans) er leiðir til einhæfrar tón-
unar. Þarna er verk að vinna
fyrir Vestmenn og fá til eyja
söngvara, stofna söngskóla, er
geti með stöðugri kennslu lagt
grunn að góðum söng. Stjórn-
andinn, Guðmundur H. Guðjóns-
son, hefur unnið þarna gott verk
og mikils um vert að halda þessu
verki áfram og vinna markvisst
að vexti tónmenntar hjá Eyja-
mönnum. Á fyrri hluta tónleik-
anna voru sungnir fjórir helgi-
dúettar eftir Schiitz. Tveir
reyndir söngvarar, Anna Júlíana
Sveinsdóttir og Sigurður
Björnsson, sungu þarna með
yngri og óreyndari söngvurum,
Sigríði Gröndal og Geir Jóni
Þórissyni.
Sigríður Gröndal er þegar orð-
in góð söngkona og söng t.d. ein-
söngsatriðin í Nelson-messunni
frábærlega vel. Þarna er von í
mikilli söngkonu, þegar hún hef-
ur leypt heimdraganum. Geir
Jón Þórisson er ólærður í söng-
list en hefur þvílíka rödd að
hann á hiklaust að leggja fyrir
sig söng. Það er ávalt erfitt að
ráðleggja fólki, því að að mörgu
þarf að hyggja, og að ætla sér að
leggja út í það að verða söngvari
er ef til vill það sama og að fórna
öllu fyrir óvissuna. Hvað sem því
líður, verður ekki annað sagt en
að Geir Jón Þórisson hafi allt til
að bera til að verða góður söngv-
ari. Félagar úr sinfóníuhljóm-
sveit íslands léku með og lék
hljómsveitin of sterkt, sem verð-
ur að skrifa á reikning hljóm-
sveitarstjórans.
Flugleiðir:
Uppsögnum flug-
virkja frestad
UPPSÖGNUM sex flugvirkja hjá
Flugleiðum sem taka áttu gildi 1. des-
ember nk. hefur verið frestað að sögn
Sæmundar Guðvinssonar, fréttafull-
trúa Flugleiða, sem sagði aukin verk-
efni ástæðuna.
„Við lánuðum 10 flugvirkja til
Cargolux og til stóð að þeir yrðu þar f
hálfan mánuð. Nú hefur Cargolux
óskað eftir þvf, að flugvirkjarnir verði
að minnsta kosti hálfan mánuð til við-
bótar," sagði Sæmundur ennfremur.
Þá koma það fram hjá Sæmundi,
að DC-8 þota Flugleiða, TF-FLB,
sem verið hefur í pflagrímaflugi fé-
lagsins milli Saudi Arabfu og Alsfr,
muni koma hingað til stórskoðunar
11.—18. október nk., en um er að
ræða svokallaða C-skoðun, sem fram
fer eftir 2.400 flugtfma. „Vélin átti
upphaflega að fara f skoðun hjá
Cargolux, en það var ákveðið að
kanna möguleika þess, að láta skoð-
unina fara fram hér á landi, og þá
kom í ljós, að slíkt var mögulegt án
þess að til komi aukinn tilkostnað-
ur,“ sagði Sæmundur ennfremur.
Sæmundur sagði, að gert væri ráð
fyrir að 60—70 flugvirkjar myndu
vinna við skoðunina, en það jafngilti
um 14 mannmánuðum.
RÍKISSKIP
SKIPAÚTGERÐ
RÍKISINS
m/s Baldur
fer frá Reykjavík þriöju-
daginn 18. október til
Breiöafjarðarhafna.
Vörumóttaka fimmtu-
dag — föstudag —
mánudag.
TIL DAGLEGRA NOTA
SÆKIÐ UM Á NÆSTA
AFGREIÐSLUSTAÐ OKKAR
VŒZLUNRRBRNKINN
r
Vió minnum á
vctrar
skoóunina
0SKODA 3.0 t verð m/ssk. kr. 1.086
CAfói ■ Zýýcmec* ■ 4.0 t kr. 1.447
4cyl. 6cyl. CHRYSLER 8cyl. 3.0 t 3.5 t 4.0 t kr. 1.086 kr. 1.266 kr. 1.447
v
Meö fullkomnum rafeindamælitækjum sem
tengd eru við vélina og rafkerfi hennar má
mæla öll gangstig af mikilli nákvæmni.
Markús Úlfsson, móttökustjóri þjónustu-
deildar, tekur við bókunum og veitir allar
frekari upplýsingar um vetrarskoðunina.
Auk þess sem „Vetrarskoöunin" ætti að
fyrirbyggja alls kyns hugsanleg óþægindi
sem óneitanlega fylgja vetrarakstri, er
ástæða til að vekja athygli bifreiða-
eigenda á þeim bensínsparnáði sem rétt
stillt vél hefur í för með sér. Vanstillt
vél getur hæglega kostað eigandann
þúsundir króna í óþarfan bensínkostnað
á tiltölulega skömmum tíma.
JÖFUR hf
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
ih
J
HEFIM PÚÁHUBA Á
— nýjungum tengdum
sjávarútvegi
— við tölum viö
farmenn og fiskimenn
— velferöarmálum
sjómannastéttarinnar