Morgunblaðið - 11.10.1983, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 11.10.1983, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 45 VELVAKANDI SVARAR f SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI , . TIL FÖSTUDAGS nyi/jyam^-a^'u n Vonandi sameinast Reykvíking ar um að stöðva þennan ósóma 0545—0098 skrifar: „Velvakandi. Ég skrifaði þér fyrir nokkru um fremur fátæklegt útlit eldri húsa við Austurstræti. Þessi ábending hefur greinilega borið árangur, því nú hafa mörg þessara húsa verið máluð, þrátt fyrir rigningasamt sumar, og sum, samanber hús Thorvaldsensfé- lagsins, fengið nýtt útlit strætinu til sóma. Lesandi svaraði grein minni fáum dögum eftir að hún birtist með viðeigandi mynd af strætinu, og lýsti því yfir, að eigendur verzl- unarhúsa hefðu ekki efni á því, að halda þeim við, vegna gjalds, sem lagt er á verzlunarhúsnæði. Þessi barlómur virðist hafa verið ónauð- synlegur. Nú er annað vandamál á ferð- inni í okkar kæru borg. Eftir hverja einustu helgi má sjá á göt- um og strætum borgarinnar, og ekki síst á bifreiðastæðum bygg- inga í nágrenni við skemmtistað- ina, hrúgur af glerbrotum, sem kærulausir borgarar á leið til heimkynna sinna frá veitingahús- unum hafa myndað, með því að kasta gos- og vínflöskum í göturn- ar og að því er virðist, hafa ánægju af því að heyra þær brotna og springa. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — cða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þcir iáti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Þetta hefur í för með sér miklar skemmdir á hjólbörðum bifreiða- eigenda, sem verða að aka um þessar götur og stræti og nota bílastæðin snemma dags eftir helgina, áður en hreinsunardeild borgarinnar, sem vafalaust hefur nóg á sinni könnu, er komin i gang með að hreinsa ósómann. Þá er sú hætta að vegfarendur, gamalt fólk, böm og menn og kon- ur á öllum aldri, geta stórmeitt sig, ef þeim yrði á það óhapp að detta í frumskóg glerbrotanna. Framundan er vetur og hálka oft óhjákvæmileg, a.m.k. snemma á morgnana, og því enn meiri hætta á slíkum slysum, þótt ekki sé rætt um alla hjólbarðana, sem skemm- ast eða springa. Samkvæmt lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar er bannað að kasta rusli og brjóta gler á götum og strætum borgarinnar, en engin Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkis- skattstjóri, skrifar 6. október: „í blaði yðar, sem út kom 1. þ.m., er fyrirspurn frá Haraldi Blöndal til ríkisskattstjóra. Af því efni vil ég taka fram: 1. Enginn á rétt á að fá afslátt af aðflutningsgjöldum. Hins vegar segir í 3. gr. laga nr. 120/1976 um tollskrá o.fl., að fjármála- ráðuneytinu sé í allmörgum til- vikum heimilt að lækka eða fella niður aðflutningsgjöld af vörum sem fluttar eru til lands- ins. Skv. 14. tl. 3. gr. er heimilt að fella niður aðflutningsgjöld af bifreiðum ráðherra og sendi- viðurlög eru við þessu athæfi, svo lögreglan getur ekki beitt sektum, ef hún stæði fólk að verki við að brjóta flöskur á götum borgarinn- ar eða óhreinka hana á annan hátt. Vonandi sameinast allir Reyk- víkingar um að stöðva þennan ósóma og taka saman höndum um að halda borginni hreinni og glerbrotalausri. Ég kom til Húsavíkur í sumar. Allar götur bæjarins voru tand- urhreinar, hvergi sást glerbrot, bréf, plastpokar eða nein önnur óhreinindi og mega Húsvíkingar vera stoltir af bæ sínum. Ef fjölga þarf í hreinsunardeild borgarinnar vegna kæruleysis okkar sjálfra, verðum við að greiða kostnaðinn með hærri út- svörum. Þökk fyrir birtinguna." ráðsstarfsmanna. Skv. 27. tl. 3. gr. er heimilt að lækka eða fella niður aðflutningsgjöld af bif- reiðum til öryrkja. Þá er skv. 41. tl. 3. gr. heimilt að lækka aðflutningsgjöld af bifreiðum til bifreiðastjóra, sem hafa at- vinnu af akstri leigubifreiða til fólksflutninga, af akstri sendi- ferðabifreiða eða af kennslu i bifreiðaakstri. 2. Eftirgjöf fjármálaráöuneytis- ins á aðflutningsgjöldum hefur ekki verið talin til skattskyldra tekna. Virðingarfyllst." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Við reynum að koma á sem flesta staði að við getum. Rétt væri: Við reynum að koma á sem flesta staði. Eða: Við reynum að koma á svo marga staði sem við getum,. .-,.,—« -.ij.ij.i ..i/j • i. . t'.f'ií Ríkisskattstjóri: Eftirgjöf á aðflutnings- gjöldum ekki verið talin til skattskyldra tekna GRLRNT STATION Verð frá kr. 325.700 (Gengl 5.8. ’83) HUGSAÐU þig tvisvar um áður en þú kaupir kæli- og frystiskáp. - Stílhrein hágæða heimilistæki. EINAR FARESTVEIT CO. HF. BERGSTADASTRÆ.TI I0A Slmi 16995 Ég valdi KF 325 kæli- og frystiskápinn frá Blomberg vegna þess að skápurinn er hagan- lega innréttaður með 175 lítra kæli og 150 lítra frysti. Kuldahlífar eru fyrir hillum í frysti og mælamir vel staðsettir að utan. Hann notar aðeins ■ ' i. \\ . i: ! 11 i ni! Blomberq

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.