Morgunblaðið - 11.10.1983, Page 19
Veður
víða um heim
Akureyri
Amaterdam
Aþena
Barcelona
Bertfn
BrUsael
Buenoa Airea
Chicago
Feneyiar
Frankfurt
Heisinki
Hong Kong
Jenisalem
Jóhannesarborg
Kaupmannahöfn
Kairó
Las Palmas
Ltsaabon
London
Loa Angeles
Madrfd
Malaga
Mexfkóborg
Miami
Mœkva
New York
Osló
Parfs
Peking
rtnn
Reykjavík
Rio de Janeiro
Róm
San Fransisco
Seoul
Stokkhóhnur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vínarborg
Varsjé
S skýjaó
15 rígning
25 heióskfrt
25 mistur
15 skýjaó
14 skýjaó
22 heiðskirt
13 heióskfrt
25 þokumóóa
14 rigning
• heióskfrt
29 heiósklrt
30 heióskirt
19 úrkoma
12 rigning
32 heióskírt
25 heiðakfrt
24 helóskfrt
15 heióskirt
26 skýjað
27 heióskfrt
25 mistur
24 heióskfrt
28 skýjaó
11 rigning
23 skýjaó
10 rigning
15 skýjaó
17 skýjaó
31 skýjaó
5 súld
36 heióakfrt
23 heióskfrt
22 skýjað
23 heióskfrt
7 heióskfrt
22 rigning
30 heióskfrt
25 skýjað
11 skýjaó
12 rfgning
HM í bridge:
Bandarísku
Asarnir heims-
meistarar
BANDARÍSKU Ásarnir sigruðu ítali
í sögulegum úrslitaleik á heims-
meistaramótinu í bridge í Stokk-
hólmi í síðustu viku. Leikurinn var í
járnum fram á síðasta spil og skipt-
ust sveitirnar á um að hafa foryst-
una. Fyrir síðustu 16 spila lotuna í
176 spila leik leiddu ltalir með 9
IMPum, 385—376. Þegar þrjú spil
voru eftir áttu Ásarnir tveimur IMP-
um meira, en ítalirnir skutust upp
fyrir þá í næstsíðasta spilinu þegar
Lauria og Mosca tóku harða slemmu
sem lá til vinnings. Aðeins eitt spil
eftir, sem var einfalt geim, og ftal-
irnir virtust öruggir með sigur.
ítölsku áhorfendurnir í sýn-
ingarsalnum voru farnir að fagna
sigri þegar síðasta spilið var tekið
úr spilabakkanum í lokaða saln-
um. Gömlu kempurnar í liði ftala,
Garozzo og Belladonna, töldu að
heldur hefði sigið á ógæfuhliðina
hjá sér og nauðsynlegt væri að
vinna stig í síðasta spilinu. Þeir
sprengdu sig eftir þvælingslegar
sagnir, enduðu í slemmu i spili þar
sem andstæðingarnir gátu byrjað
á því að taka tvo ása. Það var 11
IMPa tap og bandarísku Ásarnir
unnu því leikinn með 5 IMPum.
í bandarísku sveitinni eru góð-
kunningjar íslendinga, Alan Son-
tag, Peter Weischel, Ron Rubin og
Mike Becker, en þessir fjórir komu
hingað til lands á stórmót Bridge-
félags Reykjavíkur 1982. Þá eru í
sveitinni nafnarnir Bob Hamman
og Bob Wolff, en þeir hafa lengi
verið í eldlínunni vestanhafs.
í ítölsku sveitinni spiluðu Gar-
ozzo og Belladonna allan úrslita-
leikinn, fyrst með Dano DeFalco
og Franco, en síðan með Mosca og
Lauria. Var það mál manna að
gömlu mennirnir hefðu spilað vel,
ef undan er skilið hið örlagaríka
spil númer 176. „Bobbarnir“ tveir
spiluðu mest úr liði Ásanna, en
voru ekki í góðu formi.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
19
Fjórir s-kóreskir ráðherrar
fórust í sprengingu í Burma
Seoul, S-Kóreu, 10. október. AP.
SORG ríkti í Suður-Kóreu í dag
vegna dauða 16 borgara í öflugri
sprengingu i Rangoon í Burma. Á
meðal þeirra sem létust voru fjórir
ráðherrar stjórnarinnar. Voru þeir
að hefja 18 daga heimsókn sína til 6
landa. Var Burma fyrsti viðkomu-
staður þeirra. Chun Doo-Hwan, for-
seti landsins, var einnig á ferð með
ráðherrunum, en slapp ómeiddur.
Lík hinna látnu voru sótt og flutt
heim í dag.
Sprengingin varð í grafhýsi í
miðborg Rangoon, aðeins nokkr-
um mínútum áður en von var á
Chun þangað. Átti hann að leggja
blómsveig að minnismerki í graf-
hýsinu. Auk kóresku ráðherranna
fjögurra létu tveir ráðherrar úr
stjórn Burma lífið svo og þrír
blaðamenn. A.m.k. 48 manns slös-
uðust í sprengingunni.
Að sögn vitna var bifreið Doo-
Hwan aðeins um þriggja mínútna
akstur frá minnisvarðanum í
miðborg Rangoon er sprengingin
varð. Bifreiðalest forsetans sneri
þegar við þegar sprengingin varð.
Suður-kóresku stjórnarliðarnir á flugvellinum í Seoul f Suður-Kóreu skömmu áður en þeir héldu til Burma.
Talið er líklegast, að tíma-
sprengju hafi verið komið fyrir í
þaki grafhýsisins.
Chun sneri þegar heimleiðis
eftir að ljóst var hvað gerst hafði.
Sagði hann sprenginguna aug-
ljóslega hafa verið ætlaða sér.
Boðaði til neyðarfunda með ráða-
mönnum landsins strax eftir að
hann kom aftur til Seoul. Jafn-
framt sakaði hann stjórnvöld i
Norður-Kóreu um að standa að
baki sprengingunni sem hann
sagði „ruddalegan glæp“. Þá var
Símamynd AP.
her landsins skipað að vera í
viðbragðsstöðu.
Norður-kóresk dagblöð skýrðu
frá sprengingunni í Burma með
stóru letri á forsíðum. Mátti þar
m.a. lesa fyrirsögnina: „Fagnað
með öflugri sprengingu".
Noj^krar
GOEAR ASTMXJR
í Amsterdamferð
3111
211
%$*
Hverra þessara 15 atriða
gætirðu hugsað þér að
njóta?
Merktu x þar sem við á
Lúxushótel í hjarta borgarinnar.
□ Bflaleigubfll til reiðu á Schiphol flug-
velli.
Iðandi mannlíf frá morgni til kvölds,
t.d. á Damtorgi, Rembrandtsplein og
Leidseplein.
□ Úrvals þjónusta um borð í þotu Am-
arflugs.
□ Dag- eða kvöldsigling með síkjabát
um „Feneyjau- norðursins“.
□ Frábærar verslunargötur, og skraut-
legir markaðir, fyrir gangandi vegfar-
endur.
□ Listasöfn, ss. Rijksmuseum, Stedlich
Museum og Van Gogh Museum - öll
á sama svæði!
□ Viðtalstími íslensks fararstjóra á
hverju hóteli tvisvar til þrisvar í
hverri viku.
□ Hollenskur bjór og líflegar krár.
□ Allra þjóða veitingastaðir með vand-
aðri þjónustu og ógleymanlegum mat.
□ Ein besta fríhöfn heims á Schiphol
flugvelli.
□ Jasstónleikar um alla miðborg
□ Næturlíf sem á engan sinn lfka f
Evrópu.
□ Helgar- og vikuferðir.
□ Verð frá kr. 10.800, bamafsláttur 4500.
Átt þú að skjótast til
Amsterdam?
0 — 1 atriði: Taktu þér bók í hönd og
gleymdu þessu.
1-4 atriði:Þig langar, en ekkert
mjög.
4 — 10 atriði: Engin spuming - þú ferð.
10— 15 atriði: Þú bókstaflega verður að
fara. Þér liði svo miklu
betur á eftir.
Brottfarardagar: 14. okt.t21.okt.: 28. okt , 4. nóv.,
11. nóv.t 18. nóv., 25. nóv., 2. (les.t 9. des., 16. des.,
23. des. og 30. des.
Innlfallð: Flug, gisting með morgunverði, flutningur
til og frá flugvelli erlendis og íslenskur fararstjóri (
lerðum merktum *.
Haíið samband við soluskrifstofur Samvinnuferða-
Landsýnar eða umboðsmenn.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899