Morgunblaðið - 11.10.1983, Page 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
Þorvaldur Garðar
Kristjánsson forseti
sameinaðs þings
Ingvar Gíslason neðri deildar —
Salome Þorkelsdóttir efri deildar
H)RVALI)IJR Garðar Kristjánsson var kjörinn forsetaefni
Sjálfstæðisflokksins í sameinuðu þingi á þingflokksfundi á
sunnudag. Hlaut hann 10 atkvæði, Friðjón Þórðarson sex at-
kvæði en Pétur Sigurðsson fimm. Einn seðill var auður. Þorvald-
ur var því kjörinn forseti sameinaðs þings á alþingí í gær.
Framsóknarmenn munu bjóða
Ingvar Gíslason fram sem forseta
neðri deildar, en Salome Þorkels-
dóttir er forsetaefni Sjálfstæðis-
flokksins í efri deild. Hlaut hún 14
atkvæði í kjöri til embættisins í
þingflokknum, fimm seðlar voru
auðir.
Stjórnarandstaðan þáði tilboð
stjórnarliða um að skipa fyrstu
INNLENT
varaforseta í deildum eftir stærð
þingflokka þeirra. Fyrsti vara-
forseti sameinaðs þings verður Al-
þýðubandalagsmaður, Helgi Selj-
an. Fyrsti varaforseti neðri deild-
ar Alþýðuflokksmaður og var Jó-
hanna Sigurðardóttir kjörin í það
embætti á þingflokksfundi í gær.
Bandalag jafnaðarmanna skipar
fyrsta varaforseta efri deildar og
var Stefán Benediktsson kjörinn
til þess embættis í þingflokki sín-
um í gær. Stjórnarliðar skipa aðra
varaforseta sameinaðs þings og
deilda og verða þeir úr öndverðum
flokki við aðalforseta. Annar
varaforseti sameinaðs þings verð-
ur Ólafur Þ. Þórðarson, neðri
deildar Birgir ísl. Gunnarsson og
efri deildar Davíð Aðalsteinsson.
Fjarvistir Ellerts B. Schram:
„A.m.k. fram yfir jólaleyfi“
Alþingi samþykkti samhljóöa í
gær kjörbréf 60 þingmanna sem og
kjörbréf þriggja varaþingmanna:
Geirs Hallgrímssonar, utanrfkis-
ráðherra, sem gegnir þingmanns-
störfum f fjarvist Ellerts B. Schram;
Björns Dagbjartssonar, 1. varaþing-
manns Sjálfstæðisflokks í Norður-
landskjördæmi eystra, í fjarveru
Halldórs Blöndals, og Margrétar
Frímannsdóttur, 1. varaþingmanns
Alþýðubandalagsins í Suðurlands-
kjördæmi, í fjarveru Garðars Sig-
urðssonar. Konur skipuðu því 10
þingsæti við þingsetningu í gær og
hafa ekki fyrr verið jafn margar á
Alþingi.
Ellert B. Schram, alþingismað-
ur, hefur ritað Alþingi nýtt bréf,
dagsett 10. þ.m., þar sem vitnað er
til fyrra bréfs frá 23. september sl.
í hinu nýja bréfi segir m.a.: „Vil ég
með skírskotun til 138. greinar
laga um kosningar til Alþingis
taka fram að forföll mín munu
vara a.m.k. fram yfir jólaleyfi Al-
þingis."
Boj raðkerfiö er svo auðvelt að laga
að þörfum hvers og eins og svo
ódýrt að það er sjálfsagt að láta það
eftir sér að eignast það.
Boj er tilvalið í barnaherbergið og
síðan í unglingaherbergið, því næst
má nota það fyrir bókahirslur eða í
tómstundaherbergið og víðar.
Boj raðkerfið fylgiröllum aldri, hvar
semeráheimilinu. Bojertil
hvítlakkað, með völdum furuspæni
eðavönduðum beykispæni. Þaðer
prófað í „möbelfakta" og stenst því
gæðakröfur.
HAGKAUP
Skeifunni15
Þingstörf hefjast
utan dagskrár
Stefnurædan í næstu viku
Stjórnarandstöðuflokkarnir fóru
þess á leit á þingsetningardaginn i
gær að strax á fimmtudaginn færu
fram umræður utan dagskár á al-
þingi um stöðuna í kjaramálum og
afnám samningsréttar til 1. febrú-
ar næstkomandi og vísaði stjórnar-
andstaðan í því sambandi til mót-
mæla á Austurvelli við þingsetn-
inguna sem verkalýðshreyfingin
stóð fyrir.
I gær dreifði Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
stefnuræðu sinni til þingmanna,
en með ræðuna er farið sem
trúnaðarmál þar til hún er flutt
í upphafi útvarpsumræðna um
störf og stefnu ríkisstjórnarinn-
ar. f ráði mun að þær fari fram
þriðjudaginn 18. október næst-
komandi.
Ingvar Helgason með nýjan smábíl
INGVAR Helgason, umboðsmaður Nissan-Datsun-bfla, hélt um helgina sýningu
á hinum nýja Micra-smábfl frá verksmiðjunum. Micra er nokkru minni en Sunn
y-bíllinn frá Nissan-Datsun, sem seldur hefur verið hér á landi undanfarin ár.
Um er að ræða fjögurra manna smábfl, sem að sögn Nissan-verksmiðjanna er
einstaklega sparneytinn.
Garðastræti:
Framkvæmdir sovétmanna
án leyfis borgaryfirvalda
ÞEIR starfsmenn sovéska
sendiráðsins sem á fimmtudag voru
að taka upp gangstéttarhellur og
grafa skurð fyrir framan hús sov-
éska sendiráðsins í Garðastræti
höfðu ekki leyfi borgaryfirvalda til
verksins, að sögn Inga Ú. Magnús-
sonar gatnamálastjóra Reykjavíkur-
borgar.
Gatnamálastjóri sagði að mað-
ur sem átt hefði leið um götuna
hefði látið vita um þessar fram-
kvæmdir Sovétmannanna en þeg-
ar málið hefði verið kannað síð-
degis þann sama dag hefði enga
missmíð verið að sjá á gangstétt-
inni og hefði hann því ekki séð
ástæðu til frekari aðgerða.