Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
47
Verðlagsráð:
Fiskur hækkar um
4,7—5,2% í útsölu
Utseld vinna hækkar um 4%, bíómiðar um 6,7%
og far- og farmgjöld í innanlandsflugi um 2,8%
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í síðustu viku, að heimila 4%
hækkun á úseldri vinnu í samræmi við hina almennu 4% launahækkun um
mánaöamótin.
Þá samþykkti Verðlagsráð að
heimila 4,7—5,2% hækkun á fiski.
Sem dæmi um hækkunina á fiski
má nefna, að hausuð ný ýsa hækkar
úr 31,00 krónu hvert kíló í 32,60
krónur. Ný ýsuflök, án þunnilda,
hækka úr 56,00 krónum hvert kíló í
58,80 krónur. Ef um nætursöltuð
flök er að ræða er hækkunin úr
57,60 krónum kílóið í 60,50 krónur.
Hausaður þorskur hækkar úr
31,90 krónum hvert kíló í 33,50
krónur. Ný þorskflök, án þunnilda,
hækka úr 57,30 krónum í 60,30
krónur. Ef flökin eru nætursöltuð
er hækkunin úr 59,20 krónum í
62,00 krónur.
Verðlagsráð samþykkti að heim-
ila 6,7% hækkun á aðgöngumiðum
kvikmyndahúsa, sem hefur það í för
með sér, að miðinn hækkar úr 75,00
krónum í 80,00 krónur.
Lýst eftir
bifreiðum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir tveimur bifreiðum. Aðfara-
nótt föstudagsins 7. október var
bifreiðinni R-29231 stolið frá
Borgartúni 29. Þetta er Volks-
wagen, árgerð 1974, drapplituð.
Þann 19. ágúst var númers-
lausri Volkswagen-bifreið stolið
frá Tunguseli 8. Bifreiðin var í
óökufæru standi, ljósgræn að lit
árgerð 1962.
Þeir sem kunna að búa yfir
upplýsingum hvar þessar bif-
reiðir er að finna eru vinsam-
lega beðnir að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík.
Seldu erlendis
TVÖ ÍSLENZK fiskiskip seldu afla
sinn erlendis í gær.
Patrekur BA seldi 82,7 lestir í
Hull. Heildarverð var 1.627.800
krónur, meðalverð 19,69.
Sveinborg GK seldi 83,9 lestir í
Grimsby í gær og föstudag. Heild-
arverð var 1.964.100 krónur, með-
alverð 23,42.
Þá samþykkti Verðlagsráð að
heimila 2,8% hækkun far- og farm-
gjalda í innanlandsflugi. Og loks
samþykkti Verðlagsráð að heimila
1,3% hækkun á borðsmjörlíki, sem
hefur þau áhrif, að kílóið hækkar úr
57,50 krónum í 58,30 krónur.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Mbl. var heimiluð 9—11,5% hækk-
un á öli og gosdrykkjum fyrr í vik-
unni. Sanitas fékk heimild til að
hækka framleiðslu sína um 11,5%,
en að sögn Ragnars Birgissonar,
forstjóra fyrirtækisins, var tekin
ákvörðun um að nýta heimildina
ekki að fullu. Sagði Ragnar, að
ákveðið hefði verið að hækka pilsn-
er ekkert og verður hann áfram á
20,00 krónur. Lageröl kostar eftir
sem áður 22,00 krónur. Pepsiflaska
hækkar úr 8,50 krónum í 9,30 krón-
ur, eða um liðlega 9%. Maltöl
hækkar úr 16,50 krónum í 18,00
krónur, eða um 9%.
Info-Rama, Sandvika, Norway
Ferð á Nor-
Robot ’83
NOR-ROBOT er yfirskrift iðnvél-
mennasýningar sem haldin verður (
Osló dagana 16.—19. október. Er
þetta fyrsta sýning af þessu tagi sem
haldin hefur verið á Norðurlöndum.
í tilefni þessa munu Verkfræð-
ingafélag íslands og Flugleiðir efna
til almennrar fræðslu- og skemmti-
ferðar til Osló. Hefst ferðin 14.
október og stendur til 18 október.
Er öllum heimil þátttaka í ferð
þessari.
Nánari upplýsingar veitir skrif-
stofa Flugleiða, Hótel Esju.
Nefrennsli hættir
„HUÓMSVEITIN Nefrennsli hefur
nú loks tekið sönsum og ákveðið að
leggja upp laupana," segir í frétta-
tilkynningu sem Mbl. hefur borist
frá hljómsveitinni.
„Kveðjutónleikar sveitarinnar
verða haldnir í félagsmiðstöðinni
Þróttheimum þriðjudagskvöldið 11.
október kl. 21.00. Þetta munu verða
tuttugustu (og seinustu) tónleikar
Nefrennslis. Hljómsveitin var
stofnuð í júlí 1982 í bílskúr einum í
Fossvoginum. Tíðar mannabreyt-
ingar voru fastur liður framan af,
en í eftirfarandi mynd hefur sveit-
in verið síðan í maí á þessu ári:
Sigurbjörn R. Úlfarsson (Bjössi)
bassi), Jóhann G. Bjarnason (Jói)
(orgel), Hannes A. Jónsson
(trommur/slagverk) og Alfreð Jó-
hannes Alfreðsson (Alli Jói) (gít-
ar/söngur). Tónleikarnir í Þrótt-
heimum í kvöld munu hefjast um
kl. 21.00.“
Ljóam: Kristján örn Ellmnnon.
Ileimsókn forsætisráðherra Nýfundnalands og fijtuneytis hans hingað til lands lauk í gær. Hér á landi hafa
Kanadamennirnir rætt við ýmsa forystumenn í þjóðlífi og atvinnulífi, og skoðað atvinnufyrirtæki í sjávarútvegi. Hér
eru Peckford forsætisráðherra (fyrir miðju) og fleiri að skoða salarkynni Bæjarútgerðar Reykjavíkur ásamt starfs-
mönnum fyrirtækisins.
Tveir þrælgóðir
kuldajakkar
■ Níðsterkt ytra byrði ■ „dúnvatt“ (Holofill) fóöraöir.
■ Fisléttir ■ Góð hönnun.
KARNABÆR
Laugavegi 66, Austurstræti 22, Glæsibæ.
Sími frá skiptiborði 45800.
Umboðsmenn um land allt. ,
i Reykjavík: Austurstræti 22 — Laugavegi 20 — Glæsibæ.
Úti á landi: Eplið isafiröi — Eyjabær Vestmannaeyjum — Fataval Keflavik — Álfhóll Siglufiröi — Nina Akranesi — Ram
Húsavík — Bakhúsiö Hafnarfiröi — Austurbær Reyöarfiröi — Kaupfél. Rangæinga Hvoisvelli — Sparta Sauöárkróki —
Skógar Egilsstöum — isbjörninn Borgarnesi — Lea Ólafsvík — Lindin Selfossi — Paloma Vopnafiröi — Patróna
Patreksfiröi — Báran Grindavík — Þórshamar Stykkishólmi — Hornabær Höfn Hornafirði — Nesbær Neskaupstaö —
Karnabær Akureyri.