Morgunblaðið - 30.10.1983, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1983
81
Til þess að gera lesendum þess-
arar minningargreinar nokkra
grein fyrir esperanto, skal þetta
skráð. Esperantó er hugsað sem
alþjóðiegt hjálparmál. Það er ein-
falt í byggingu. Höfundur máisins
var pólskur gyðingur, Ludvig
Zamenhof að nafni. Hann fæddist
árið 1859 og lést 1917. Tungumálið
var hugsað sem aflgjafi bræðra-
lags allra manna. Tungumála-
glundroðinn var að dómi Zamen-
hofs ein af orsökum úlfúðar milli
manna. Á heimaslóðum sínum, í
Póllandi, hafði hann séð fjögur
þjóðabrot, er ekki skildu hvert
annað, liggja í stöðugum erjum.
Þetta lagði ólafur S. einnig
áherslu á. Esperanto er spor í þá
átt, að þjóðir heimsins vinni sam-
an og verði eins og bræður. En
hræddur er ég um, að Ólafi vini
mínum hafi þótt miða hægt hug-
sjónamáli dr. Zamenhofs. í ljóði,
er ég orti á esperanto, um höfund
esperantos, eftir hvatningu ólafs,
kemst ég m.a. þannig að orði (þýð-
ingin er mín. A.B.S.):
I brjósti þínu hugsón átti hæli,
þín hugsjón var að skapa frið á jörð.
Það gerðist fyrir fjöldamörgum árum,
og fæstir vita hve sú raun var hörð.
En hvernig skyldi skapa frið í heimi
og skilning auka millum þjóða hans?
Það yrði fært með einni hjálpartungu;
og aflið stærst er þroski sérhvers manns.
En þótt hugsjónamenn verði oft
fyrir vonbrigðum, brennur ætíð
hið innra með þeim eldur áhug-
ans. Sú var gæfa ólafs S. Magn-
ússonar. Sú var einnig gæfa þeirr-
ar þjóðar, er fékk að njóta verka
hans.
Að lokum skal hér getið kvon-
fangs Ólafs. Nokkuð var liðið á
manndómsár hans, er hann
kvongaðist. Og átti esperanto-
hreyfingin þar hlut að máli, því að
á einu slíku móti erlendis mun
hann hafa kynnst konuefni sínu.
Þau voru meira að segja gefin
saman á alþjóðamálinu og var það
fyrsta hjónavígsla á esperanto hér
á landi. Konan heitir Gerda Har-
mina, f. Leussink, frá Hollandi.
Hefur hún nú íslenskt nafn: Gerða
Jónsdóttir. Bæði voru þau sam-
hent í lífi og starfi. Hugsjónina
áttu þau sameiginlega: esperanto.
Gaman var að koma á fund með
þeim og öðrum esperantistum.
Samstaðan og hugsjónin var öll-
um þar hvati að vinna vel. Gerða
reyndist manni sínum góður lífs-
förunautur. Þau eignuðust tvö
mannvænleg börn, Einar og Guð-
rúnu.
ólafur lést í Borgarsjúkrahús-
inu eftir stutta vanheilsu. Hjarta-
sjúkdómur var þar að verki. Hann
er allur, 65 ára. Nýlega hafði hann
látið af störfum og hugðist nú geta
sinnt áhugamálum sínum, og bar
þar vitanlega hæst alþjóðamálið.
Siðasta verk sem hann vann að,
var að snúa Njáls sögu á esper-
anto. Því verki varð ekki lokið, en
mikið og gott starf liggur eftir
þennan vin minn. Hann skilaði
góðu dagsverki og miklu. Að lok-
um langar mig til að kveðja ólaf
með nokkrum orðum á esperanto:
Koran dankon, mia kara amiko!
„En via brusto kreskis idealo: et-
ernan krei pacon sur la ter’". „En
la mondon venis nova sento, tra la
nondo iras forta voko.“ (Zamen-
hof.)
Ástvinum Ólafs sendi ég samúð-
arkveðjur.
Auðunn Bragi Sveinsson
Við óvænt fráfall ólafs S.
Magnússonar rifjast upp áralöng
kynni og góðar minningar í göml-
um vinahópi, sem jafnan hefur
gengið undir heitinu „hollenski
hópurinn" meðal þeirra sem heyra
og heyrðu honum til. Þessi hópur
varð til á 6. áratugnum í kringum
nokkra Hollendinga, konur og
karla, sem festu ráð sitt á íslandi
eða komu hingað í atvinnuleit.
Traustur kunningsskapur og vin-
átta tókst með þessu fólki ásamt
mökum þess, börnum og vinum.
Ólafur var í þessum hópi ásamt
Gerðu konu sinni, sem er borin og
barnfædd í Hollandi.
Með láti Ólafs er enn höggvið
skarð í þennan gamla vinahóp, og
enn setur söknuð og trega að þeim,
sem eftir standa. En minningin
geymir líka gleði og lífsfyllingu,
sem aldrei verður burtu tekin. Ég
er sannfærður um að ólafur átti
hvort tveggja í ríkari mæli en
ætla mætti af hógværð hans og
lítillæti. Hann var sáttur við lífið
og innilega þakkláttur fyrir það
sem hann fékk að njóta í faðmi
góðrar fjölskyldu og taldi sig
gæfumann. Þetta var honum efst í
huga þegar hann grunaði að
hverju dró með svo skömmum
fyrirvara.
Ólafur var hlédrægur maður að
eðlisfari, en innra með honum
brann eldur hugsjóna um fegurra
mannlíf og sanna þekkingu á til-
verunni. Ahugi hans á alþjóðleg-
um hugðarefnum og íslenskum fé-
lagsmálum bar vitni um ábyrgð-
artilfinningu og þrá hugsjóna-
mannsins, sem er sannfæringu
sinni trúr. Hann átti sér trausta
lífsskoðun, sem dægurflugur
fengu ekki haggað, og helgaði
henni tíma sinn og orku í djúpri
einlægni. í þessum efnum voru
þau hjón samhuga og samtaka og
unnu að daglegum verkefnum og
áhugamálum hlið við hlið svo að-
dáun vakti. Á heimili þeirra ríkti
jafnan andi einhugar og staðfestu,
sem ekki fór framhjá neinum, er
sótti þau heim.
Þótt dægurhjal lægi ólafi ekki
laust á tungu, gat hann brugðið
fyrir sig eftirminnilegum athuga-
semdum og tilsvörum, ekki síst ef
spurningum var til hans beint sem
snertu viðhorf hans eða lífsskoð-
anir á einhvern hátt. Þá var eins
og eldmóðurinn fengi útrás, hann
lifði sig inn í málefnið af óskiptum
áhuga, en jafnan með heilbrigða
skynsemi og umburðarlyndi að
leiðarljósi.
Við í „hollenska hópnum" þökk-
um óiafi samfylgdina og eftir-
minnilegt framlag hans til sam-
eiginlegra stunda. Heilindi og
hreinskilni voru skýrustu eigin-
leikar hans í gagnkvæmum kynn-
um í hartnær þrjátíu ár. Það er
örvandi og bætandi að hafa átt
slíkan mann að vini og félaga.
Gerðu, börnum þeirra hjóna,
fjölskyldum þeirra og öðrum að-
standendum færum við einlægar
samúðarkveðj ur.
Ingi K. Jóhannesson
Blaðburóarfólk
óskast!
Vesturbær Austurbær
Skerjafjöröur sunnan flugvallar II Skipholt 1—50
Qranask'6' Úthverfi
Baröavogur
Skeiöarvogur
ENN EINU SINNI HOFUM VIÐ ENDURUTGEFIÐ ÞESSI
GULLALDARVERKÍSLENSKRAR
LEIKRITUNAR
Rögnvaldur Sigurjónsson
Á hljómplötu þessari er aö finna sýnishorn af píanóleik
Rögnvaldar Sigurjónssonar frá ýmsum tímum á listabraut
hans. Er hér bæöi um aö ræöa endurútgáfur fyrri hljóðritana
og hljóöritanir sem nú koma í fyrsta sinn á plötu. Verö aöeins
kr. 349.
SONGKmm rR
fw GULLNA
Æw HLIÐIÐ: Eftir Daviö
Stefánsson. Fá eru þau
skáldrit sem i líkum mæli
ÆW og Gullna hliðið hafa átt
Rr þvíliku hlutskipti aö fagna aö
ZW vera sigild eign allrar þjóöar-
Y innar. Allir helstu leikarar lands-
manna á fjóröa áratug koma fram í
þessu öndvegisverki. 3 plötur í setti,
auk leikskrár Verö aöeins 990,00 kr.
KLUKKAN eftir Wf
Halldór Laxness.
Frumuppfærsla Þjóö-
leikhússins, þar sem fram
kemur fjöldi þjóökunnra leik-
ara. T.d. Brynjólfur Jóhannes-
son, Lárus Pálsson, Valur Gisla- ^
son og fleiri. Leikstjóri var Lárus ”
Pálsson. 4 plötur í setti, auk leikskrár.
Verö aöeins 1250,00 kr.
ÚRVALSSÖNGLÖG:
M.A.-kvartettinn og Smára-
jmf kvartettinn frá Akureyri. Viö
Vb M þessa hugljufu hljómplötu eru
bundnar margar minningar um liöin
ár. Hver man ekki eftir þessum lögum:
fr .Laugardagskvöld á Gill", „Rokkarnir eru
þagnaöir" og “Upp til fjalla" meö M.A.-
kvartettinum og „Manstu ekki vina" meö
^ Smára-kvartettinum frá Akureyri. Öll helstu lög
P þeirra eru einnig á þessari hljómplötu. Hljómplata
þessi hefur ekki veriö fáanleg lengi. Verð 349,00 kr.
Fæst einnig í fyrsta sinn á snældu.
EINSONGSPERLUR:
14 vinsælustu lög islensku T V
þjóöarinnar í meira en þrjá
áratugi. Fram koma t.d. Stefán v
Islandi — I dag skein sól, Einar
Kristjánsson — Hamraöorgin, - f ' ■
Gunnar Pálsson — Sjá dagar
koma, Guömundur Jónsson —
Hraustir menn, Erling Ólafsson — wB|
Mamma, Hreinn Pálsson — Dalakofinn, *
Guörún Á. Símonar — Jealousy og flelrl. ,,
Verö 299,00 kr. Fæst einnig á snældu. K'
SÖNGKVEÐJUR:
^^18 sönglög eftir Sigurð Ágústsson frá Birtingarholti viö Ijóös^
^^eftir okkar þekktustuskáld, svosem Davíö Stefánsson, Jóhannes út X
^ Kötlum, Einar Benediktsson og fleiri. Verð 399,00 kr.
FÆST í HLJÓMPLÖTUVERSLUNUM UM LAND ALLT.
FÁLKINNnF
Ql lAl irlanHchrai it fl I Ol mnimni O A A ■ mli ■mirvví
Suöurlandsbraut 8, Laugavegi 24, Áusturveri