Morgunblaðið - 08.12.1983, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.12.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1983 51 Er leiðbeiningarstöð hús- mæðra óþörf stofnun? — eftir Þórunni Eiríksdóttur Flestir vita, að úti á landi eru starfandi margir ráðunautar, sem vinna við það að leiðbeina bænd- um um rétta fóðrun og meðferð búfjár. Ekki býst ég við að bænd- um þyki þeir of margir, svo mikla þýðingu sem það hefur fyrir af- komu þeirra, að búsmalinn sé heilsuhraustur og skili hámarks- afurðum. En vitið þið, að hér á landi er aðeins starfrækt ein leiðbein- ingastöð, sem gefur góð ráð um „fóðrun“ mannfólksins og nánasta umhverfi þess? Er ykkur ljóst, að þessi stöð hefur aðeins á að skipa einum ráðunaut í hálfu starfi, sem jafnframt leiðbeiningastarfinu þarf að annast skrifstofustörf fyrir Kvenfélagasamband ís- lands? Vitið þið, að sökum fjár- skorts er ekki hægt að hafa stöð- ina opna nema 2 klst. á dag, og að stöðugt er þrengt að þessari starf- semi, svo að viðbúið er að hún leggist niður? Ohætt er að segja, að þörfin fyrir heimilisfræðslu af ýmsu tagi fari vaxandi. Margir hússtjórn- arskólar hafa hætt störfum, og heimilisfræðikennslu í grunnskól- um er víða ábótavant, enda allt of naumur tími ætlaður til slíkrar fræðslu í námsskrá. Víða út um landið er engin heimilisfræði- kennsla í grunnskólunum, þar sem kennsluaðstöðu til slíks vantar al- veg. Samhliða þessu er þróunin sú, að á meiri hluta íslenzkra heimila starfa báðir foreldrarnir úti á vinnumarkaðinum, og sé um ein- stætt foreldri að ræða, er vinnu- dagur þess utan heimilis oft óhemju langur. Þó að foreldri reyni að veita sér þann munað að vera heima hjá kornungum börnum sínum, er oft farið út á vinnumarkaðinn til að afla heimilinu tekna þegar börnin stækka, og einmitt þyrfti að fara að kenna þeim til verka. Gefst því í mörgum tilfellum of naumur tími til að kenna börnum og ungi- ingum hússtjórn og heimilishald. Þegar ungt fólk svo flytur úr for- eldrahúsum og stofnar eigin heim- ili, er það fákunnandi um æði margt, sem að heimilishaldi snýr. Þá koma oft upp ýmis vandamál, og dýrmætt að geta leitað til aðila, sem leiðbeinir um rétt vinnu- brögð, ráðdeild, nýtni og sparnað. Slíkur aðili er Leiðbeiningastöð húsmæðra, sem Kvenfélagasam- band íslands rekur. Stöðin er að Hallveigarstöðum við Túngötu, Reykjavík, sími 12335. Þangað er hægt að koma eða hringja kl. 3—5 síðdegis virka daga og fá góð ráð ókeypis. Sigríður Kristjánsdóttir hús- stjórnarkennari vinnur við Leið- beiningastöðina. Hún er mjög fær og dugleg kona og áhugasöm í sínu starfi. Þó að hún í hálfu starfi af- kasti eflaust eins miklu og margur myndi gera á heilum vinnudegi, eru þó takmörk fyrir því, hvað hún kemst yfir. Hún kannar margvís- legt erlent efni um neytendamál og skráir þær spurningar sem ber- ast, þegar þær koma þá ekki það ótt að henni gefst ekki timi til slíks. Hún veitir 300—400 aðilum svör í mánuði hverjum, en enginn veit hvað margir verða að hringja dag eftir dag án þess að ná sam- bandi. En margir, sem leitað hafa ráða hjá Sigríði, hafa látið í ljósi mikla ánægju með úrlausn hennar á þeirra vandamálum. Hún selur einnig leiðbeiningabæklinga, sem KÍ hefur gefið út um ýmislegt varðandi heimilishald, s.s. fryst- ingu matvæla, mat og hreinlæti, meðferð á þvotti, hagkvæm vinnu- brögð við heimilisstörf, bletta- hreinsun, gerbakstur, glóðarsteik- ingu o.m.fl. Kvenfélagasamband íslands, sem telur yfir 23 þús. félaga, er nú búið að beita sér fyrir aukinni heimilisfræðsiu í rúmlega hálfa öld. Ýmislegt hefur áunnist, en nú síðustu árin hefur ekki miðað áfram, heldur aftur á bak hjá að- alstöðvum KÍ. Ríkisstyrkur nægði fyrir nokkrum árum til að launa starfskraft i heilt starf fyrir Leiðbeiningastöðina. Nú nægir hann tæplega fyrir hálfum, því ofurlitlu fé verður þó að verja til að sinna sambandsfélögunum og til nauðsynlegra stjórnarstarfa. En engum er það ljósara en stjórn Þórunn Eiríksdóttir „Er nú ekki orðið tíma- bært að veita heimilunum aðgang að góðri leiðbein- ingaþjónustu, fyrst það þykir sjálfsagt að fjöldi ríkislaunaðra ráðunauta leiðbeini bændum um meðferð á skepnum, auk allrar annarrar ráðunauta- þjónustu í landinu?“ KÍ hvað Leiðbeiningastöðin er ófullnægjandi eins og hún er, mið- að við þá heimilisfræðslu, sem þarf að vera í gangi, ef vel á að vera. Einn umferðarráðunautur í heimilisfræðum í hverjum lands- fjórðungi og 2—3 á höfuðborg- arsvæðinu er eiginlega alveg lág- mark. En þeir, sem okkar sameig- inlegu fjármunum úthluta, þ.e. Al- þingi, hafa alltaf látið þessa starf- semi sitja á hakanum eins og fleira, sem konur hafa barist fyrir, enda hafa þær og þeirra málefni átt fáa málsvara þar fram að þessu. Nú hafa þær framfarir orð- ið, að konur eru mun fleiri á Al- þingi en áður hafa verið. Þeim skulu fylgja allar góðar óskir og þær vonir, að þær sjái til þess að KÍ verði ekki troðið undir í pen- ingakapphlaupinu. En skylt er að taka fram, að Leiðbeiningastöð húsmæðra er ekkert sérmál kvenna, það eru allt eins karl- menn, sem þangað leita. Stjórnmálamenn tala oft fjálg- lega um heimilin í landinu sem hornsteina þjóðfélagsins, og að setja beri hag fjölskyldunnar og heimilisins öðru ofar. Er nú ekki orðið tímabært að veita heimilunum aðgang að góðri leiðbeiningaþjónustu, fyrst það þykir sjálfsagt að fjöldi ríkislaun- aðra ráðunauta leiðbeini bændum um meðferð á skepnum, auk allrar annarrar ráðunautaþjónustu í landinu? Það er ekki hægt að færa tölu- leg rök fyrir því, hvað íslensk heimili gætu sparað með meiri leiðbeiningum, en víst er, að margir myndu verða betur nærðir og miklum verðmætum verða bjargað frá því að fara í súginn. Nú eru erfiðir tímar, og allir eiga að spara. Ég geri mér það ljóst, að ekki þýðir að fara fram á 7 heimilisráðunauta að svo stöddu. Því er sjálfsagt að fara vægara í sakirnar, en fara þess eindregið á leit við háttvirta alþingismenn og aðra aðila fjárveitingavaldsins, að Kvenfélagasamband íslands fái nægilegt fé af fjárlögum til þess að ráða sér 2—3 fasta starfsmenn. Þá mun KÍ sjá um að þeir nýtist sem best. Sambandið hefur langa reynslu í leiðbeiningastörfum og er tengiliður kvenfélaga út um allt land. KÍ og kvenfélögin eru aðilar, sem eru færir um að skipuleggja slíka starfsemi á sem hentugastan og ódýrastan hátt. Leggið okkur lið. Leiðbeiningastöð húsmæðra er ekki óþörf stofnun. Þórunn Eiríksdóttir er húsfreyja i Kadalsstödum í Borgarfírði. Sýning á verkum úr sam- keppni Reykingavarnanefndar í dag, fimmtudag, klukkan sext- án verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á nálægt tvö hundruð mynd- um sem sendar voru inn af nem- endum grunnskólanna í vegg- spjalda- og myndasögusamkeppni sem Reykingavarnanefnd gekkst fyrir í fyrravetur. Verðlaun voru afhent í apríl. Þá voru jafnframt valdar úr tvö þúsund myndum sem í keppnina bárust myndir til að sýna á Kjarvalsstöðum. Sýningin stend- ur frá áttunda til tólfta desem- ber í austursal Kjarvalsstaða frá klukkan 14 til 22. Gamla góða Síríus Konsum súkkulaðið er í senn úruals suðusúkkulaði og gott til átu. Það er framleitt úr bestu hráefnum, er sérlega nærandi og dijúgt til suðu og í bakstur, enda jafnuinsælt í nestispökkum ferðamanna og spariuppskriftum húsmæðra. Síríus Konsum er uinsælast hjá þeim sem uelja bara það besta. M o, ferASt V erUnu”t ',**‘**í ' **y*i Síríus Kbnsum suóusúldculaói

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.