Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983
41
dtv-Brockhaus
Erlendar
bækur
Siglaugur Brynleifsson
dtv-Brockhauís Lexikon
in 20 Banden.
Deutscher Taschenbuch Verlag
1982.
Þessi útgáfa er upprunnin út-
gáfa Brockhaus leksikonsins. Upp-
sláttarorðin eru 130.000, 6000
myndir og 120 litmyndasíður.
I 11. útgáfu Encyclopædia Brit-
annica, sem er besta útgáfa þeirr-
ar frægu alfræðiorðabókar, segir
um Brockhaus: „Ekkert uppslátt-
arrit hefur orðið mönnum gagn-
legra og betur heppnað, ekkert rit
þessarar tegundar hefur oftar ver-
ið stælt og þýtt...“ Þessi umsögn
heldur fullu gildi þótt um 70 ár
séu liðin frá útgáfuári. Fyrsta út-
gáfa Brockhaus kom út í sex bind-
um á árunum 1809—11. Síðan rak
hver útgáfan aðra, gefnar voru út
alfræðibækur bæði í mörgum
bindum og fáum, uppflettibækur í
ýmsum efnum og viðbætur við lex-
ikona. Allt fram á okkar daga hef-
ur Brockhaus verið í fremstu röð í
lexíkonaútgáfu.
Brockhaus Enzyclopádie í 20
bindum kom út á árunum
1966—79 og er meðal viðamestu
lexíkona forlagsins. Þessi dtv. út-
gáfa er byggð á þeirri útgáfu. Það
hefur farið í vöxt í seinni tíð að
gefa út vasabrotsútgáfur lexikona,
með stórstígum framförum í
prenttækni er þetta orðið mun
auðveldara en áður, þessi útgáfa
dtv er önnur í röðinni, forlagið gaf
út vasabrotsútgáfu af Brockhaus
fyrir nokkrum árum. Munurinn á
þeirri útgáfu og þessari er einkum
sá, að efnið er endurskoðað og
uppsetningin er fullkomnari,
betra letur og brotið stærra,
myndefnið fjölbreyttara og band
betra.
Alfræðiorðabækur voru fyrrum
nokkuð dýrar og það var ékki á
færi allra að eignast þær, nú er
svo komið að hver sem er ætti
auðvelt með að eignast sæmi-
legustu vasabrotsútgáfur og af
þeim er þessi dtv-útgáfa meðal
hinna vönduðustu. Það er mikil
þörf fyrir endurskoðaðar útgáfur
uppflettirita nú á dögum, vegna
hinna öru breytinga sem eiga sér
stöðugt stað á flestöllum helstu
þekkingarsviðum. Þó fer því fjarri
að eldri útgáfur tapi algjörlega
gildi sínu, þær viðamestu hafa
fullt gildi enn þann dag i dag,
vegna ritgerða, sem þar má finna
um ýmis efni, þó einkum söguleg,
svo hafa þær einnig gildi sem
heimild um samtímann.
Af þeim alfræðibókum sem
halda gildi sínu, bæði um söguleg
efni og einnig varðandi upplýs-
ingar sem ekki verða fundnar ann-
ars staðar, má nefna t.d. Espasa,
eða stóru spænsku alfræðiorða-
bókina sem tók að koma út 1905 og
1930 voru komin út 70 bindi, síðan
hafa verið prentuð ófá viðbótar-
bindi. Þetta rit er einstakt varð-
andi spænska heiminn. Enciclo-
pedia Italiana kom út í 35 bindum
á árunum 1929—37. Af nýlegum
útgáfum stærri alfræðibóka má
nefna m.m.: Encyclopedia Ameri-
cana, 29 bindi 1979. The New En-
cyclopedia Britannica, 30 bindi
1974, og síðan La Grande Encyclo-
pédie Larousse, 20 bindi, 1971—76.
HOTUM
FLUTT
OKKUR
__________UMSET___________________
og getum bœtt vió okkur verkefnum
í nýju, björtu og rúmgóöu húsnæði bjóöum viö alhliða þjónustu og
ráðgjöf um bókhald og eignaumsýslu fyrirtækja og einstaklinga.
Tölvuvinnsla: viðskiptamannabókhald, launabókhald,
fjárhagsbókhald og reikningsútskrift.
Eignaumsýsla: Fjármála- og eignaumsjón.
Framtalsaðstoð: Skattaframtöl og reikningsskil fyrir einstaklinga
og félög.
Bókhaldsþjónusta
nú í ÁRMÚLA38
Gengið inn frá Selmúla
sfmor 84700 84701
GEYSIFJÖLBREYTT ÚRVAL - GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Viö höfum séö landsmönnum fyrir áramótaflugeldum og neyöarmerkjum frá 1916. Aöeins 1. flokks vörur.
Skipablys — skipaflugeldar, okkar sérgrein. — Mjög góö kaup í fjölskyldupokum á kr. 600 og kr 1 OOO
\3SQ2tLi3a ©jauiiiGKaaaa m
ÁNANAUSTUM GRANDAGARÐI. SÍMAR 28855 ~ 13605.
Opid i kvöld til kl. 20.00