Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 55 »i VELVAKANDI SVARAR f SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ; * Förum eins ad Einar Gunnarsson skrifar: „Velvakandi. Nú eru jólin, mesta hátíð kirkjunnar. Allir eru að keppast við að vera góðir við náungann og sumir gefa í söfnun handa hungruðum heimi, sem kirkjan stendur fyrir um þessar mund- ir. Það kom fram í útvarpi nú á dögunum, að markmiðið með söfnuninni væri að geta sent milljón dagskammta matar til hungraðra barna úti í heimi. Er mjög ánægjulegt til þess að vita, að þetta skuli ætla að tak- ast. Nú er haldin hátíðleg fæð- ingarhátíð frelsarans, Jesú Krists. Flestir hafa eflaust lesið sér til um kenningar hans í Biblíunni eða heyrt um þær annars staðar. Samt sem áður virðist sem íslenska þjóðkirkjan sé gjörsamlega búin að gleyma boðskap hans, og það enda þótt nafn hennar verði naumast nefnt án þess að nafn hans fylgi með. Framanskráð mætti rök- styðja á hundrað vegu, en ég ætla að láta nægja að tína til eitt atriði, sem mér virðist Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til fdstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisrdng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. renna stoðum undir þessa full- yrðingu mína. Kjarna þess mætti setja fram í eftirfarandi spurningu: „Hvað mundi ein kirkja (af öllum hinum mikla fjölda kirkna á höfuðborgar- svæðinu) nægja fyrir mörgum dagskömmtum matar henda hungruðum börnum og hvað gæti andvirði einnar slíkrar kirkjubyggingar bjargað mörg- um mannslífum? Nú er ég ekki að segja, að kirkjur séu óþarfar, síður en svo. En ég trúi því, að frelsarinn hefði látið annað ganga fyrir en ofgnótt húsnæðis til helgihalds. Hvað um ársnýtingu sæta í guðshúsum þessum? Förum eins að. Gefum allt sem við erum aflögufærir um og látum ganga til þeirra sem þurfa þess með. Með ósk um gleðileg jól.“ Þessir hringdu . . Fréttaþættir Ingva Hrafns hafa notið trausts og vinsælda Þórarinn Björnsson, Laug- arnestanga, hringdi og hafði eftirfarandi að segja. — Ég heyri að Ingvi Hrafn Jónsson sé að hætta í þingfréttastarfi þingfréttamanns sjónvarpsins og allnokkrir hafi sótt um þetta starf. Auðvitað getur maður ekki annað en óskað þeim velfarnaðar, sem tekur við af Ingva Hrafni, en það verður erfitt hlutskipti að fara í fötin hans. Þættir hans frá Alþingi hafa notið trausts og vinsælda og honum hefur tek- ist frábærlega vel að þræða götu óhlutdrægninnar. Það Ingvi Hrafn Jónsson hefur sjálfsagt verið meira heldur en að segja það eftir að þingflokkarnir voru orðnir sex. Ingvi hefur aldrei þurft að grípa fram í fyrir mönnum eða sýna frekju; hann hefur kom- ist þetta á prúðmennskunni. Það er synd að sjónvarpið skuli ekki geta haldið í svo góðan starfskraft. Ég er viss um, að það verða fleiri en ég sem munu sakna Ingva úr þingfréttamennskunni. Mætti og ætti að endurflytja leikrit frá fyrri árum Þórunn Gudmundsdóttir skrifar: „Góði Velvakandi. Þegar leitað var til útvarpsnot- enda um álit þeirra á útvarpsefni var spurningum beint til fólks allt að sjötugu. Ekki þótti ástæða til að spyrja okkur, sem eldri erum. Við erum þó æði fjölmennur hópur og mörg okkar hinir dyggustu vin- ir útvarpsins. Ég veit ekki, hvort yfirmenn út- varps og sjónvarps lesa pistla sem þennan. Það ættu þeir þó að gera. Við reynum þar að koma á fram- færi hugmyndum okkar og tillög- um um útvarpsefni. Mér finnst margt ágætt bæði í sjónvarpi og útvarpi, einkum þó því síðarnefnda. Nú þegar rás 2 er komin til skjalanna, ættu flestir að fá saðningu sína af léttri tón- list, svo að áhugamenn um önnur efni ættu að geta fengið meira úr- val sinna áhugamála. Einkum æski ég þess að fá alltaf ieikrit á fimmtudögum. Mætti og ætti að endurflytja leikrit frá fyrri árum. Þau eru mörg góð og gild. Og þætti mörgum gaman að fá að heyra raddir gömlu og góðu leik- aranna, sem nú eru horfnir af sjónarsviðinu. Kvöldgestir Jónasar eru mjög vinsælt útvarpsefni og sýnir það vel að menn kunna að meta svo ágæta og fágæta meðferð efnis sem þar er boðið upp á. Ég vil gjarnan sjá föstudagsmyndir sjónvarpsins, sem oft eru góðar og mér finnst það mikið tillitsleysi hjá dagskrárstjórn útvarpsins að hafa þátt Jónasar á sama tíma. Væri ekki hægt að hafa hann rétt á eftir fréttum og flytja einhverja tónlist aftur fyrir. Eg er viss um að margir yrðu því fegnir. Ég sakna þess, að spurninga- keppnin, sem hefur verið í útvarpi á vetri hverjum, virðist eiga að falla niður í vetur. Þetta hefir þó verið mjög vinsæll liður í vetrar- dagskránni. Virðingarvert ér, hversu auglýs- ingar eru oft færðar til betra máls. Sérstaklega þykir mér vænt um, að verslanaheiti, sem enda á -kaup, eru höfð í fleirtölu. Verður þannig vit í þeim og eru þetta þá ágæt nöfn, en notuð í eintölu bara bull. Mig langar til að benda á, að laga þyrfti auglýsingar um opnun ýmissa fyrirtækja. Algengt er að segja að verslun opni, í stað þess að sagt sé að hún sé opnuð. Nýlega hlustaði ég á Orð kvölds- ins í útvarpinu. Ung kona fór með erindi Hallgríms: „Son guðs ertu með sanni, sonur guðs, Jesú minn.“ Mér hnykkti ónotalega við, þegar hún breytti þessu í „Jesús minn“. Veit ég vel að kirkjuyfir- völd hafa fyrirskipað að ávarpa frelsarann þannig. Mér finnst bara að þau eigi ekkert með að breyta ávarpi Hallgríms á slíka lund. Engum dettur í hug að færa dönskuskotin orð, sem finnast í sálmum hans, til betra máls, setja t.d. „guðspjallasagan" i staðinn fyrir „guðspjallshistorían“. Því síður finnst mér leyfilegt að betrumbæta hjá onum þetta nafn, sem honum var helgast allra. Hvað snertir skáldlega fegurð, þá eru ávörp eins og: Sonur guðs, Jesú minn“ og „Víst ertu, Jesú, kóngur klár“ ljúfari og hljómþýð- ari en þegar þetta hvæsandi s bæt- ist við og mætir öðrum samhljóða (upphafshljóði í næsta orði á eft- ir). Ég skora á þá, sem fara með sálma Hallgríms Péturssonar, að sýna honum þá virðingu að hann fái að hafa sitt Jesú-nafn í friði.“ GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Fólkinu þykir vænt hvert um annað. Rétt væri: Fólkinu þykir vænt hverju um annað. SÍNE-félagar Jólafundur SÍNE — fyrri fundur — veröur haldinn í Félags- stofnun stúdenta viö Hringbraut föstu- daginn 30. desember 1983 og hefst kl. 14. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Jólaball SÍNE veröur haldiö í Félagsstofnun stúdenta viö Hringbraut á föstudagskvöld. Húsiö verö- ur opnaö kl. 21 en um kl. 22 hefst dagskrá: Arnaldur Ragnarsson leikur ren- aissance-tónlist og lög frá Róm- önsku Ameríku á klassískan gítar. Kristinn Sigmundsson, barintón- söngvari, syngur klassísk lög og negrasálma. Sjón og fleiri flytja Játningu tígrisdýrsins og Von- brigöi Ijúka tónleikunum meö kraftmiklu rokki. Aö dagskránni lokinni tekur alþjóölegt diskótek Andreu og Láru völdin og heldur því fram eftir nóttu. Fjölmenniö og mætiö tímanlega til að missa ekki af dagskránni. Verö kr. 150,- Stjórn SÍNE Skátabúðin, Snorrabraut Volvosalurinn, Suðurlandsbraut Fordhúsið, Skeifunni Alaska, Breiðholti I Austurstræti Seglagerðin Ægir, Grandagarði Við Miklagarð Styðjið okkur-stuðliö að eigin öryggi Hjálparsveit skáta Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.