Morgunblaðið - 04.01.1984, Síða 1

Morgunblaðið - 04.01.1984, Síða 1
36 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 2. tbl. 71. árg. MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Jackson fékk flugmanninn lausan: „Hlakka mest til að knúsa konuna“ — voru fyrstu orö flugmannsins Goodman WjLshington, Damascus. 3. janúar. AP. SÉRA JESSE Jackson, sem keppir að útnefningu sem forsetafram- bjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, tókst að fá banda- ríska þotuflugmanninn Robert Goodman leystan úr haldi í Sýrlandi, en mánuður er síðan að Goodman var handsamaður eftir að Sýr- lendingar höfðu skotið niður þotuna sem Goodman var í er hún gerði loftárásir á stöðvar Sýrlendinga í Líbanon. Félagi Goodmans í þotunni, lét lífið. Robert Goodman brosir breitt er hann rabbar við fréttamenn í Damascus í gær. Næsti maður til vinstri við hann er séra Jesse Jackson. Shagari er á lííi og hjá herforingjunum „Þetta er gullin stund og margir hafa lagt hönd á plóginn til að greiða götuna í þessu máli,“ sagði Jackson við fréttamenn í Damasc- us. Hann sagði einnig að þetta sýndi friðarvilja Sýrlendinga og nu væri tækifæri til að leggja deilumál flest eða öll á hilluna og komast að samkomulagi um frið. „Ég hef ástæðu til að ætla að Assad Sýrlandsforseti og Reagan Bandaríkjaforseti gætu náð sam- an ef þeir einfaldlega ræddust við. 6g hef því hvatt Reagan til að bera sig eftir viðræðum við Assad,“ bætti Jackson við. „Ég er engin hetja, langt því frá, það var einungis forsjónin sem réði því að það var ekki félagi minn heldur ég sem stend hér nú. Ég missti góðan vin. En ef fyrstu fjórir dagarnir eru undanskildir, þá var farið vel með mig, en jafn vel eftir að ég frétti um ferð Jacksons, gerði ég mér engar von- ir,“ sagði Goodman sjálfur. Sagð- ist hann hlakka mest til að knúsa eiginkonu sína við heimkomuna. Ronald Reagan forseti latti Jackson til fararinnar, enda var það mál margra að hún væri ekk- ert annað en kosningabrella hins síðarnefnda og eru skoðanir skipt- „Kraftaverk að ég skuli vera lifandi“ Osló, 3. januar. Frá Jan Erik Laure, fréUaritara Mbl. „ÞAÐ ER kraftaverk að ég er enn á lífi, kraftaverk og ekkert annað," sagði norskur verka- maður í samtali við norska fjöl- miðla í gær, en hann var þá nýsloppinn úr ótrúlegri lífs- hættu, en slapp með fótbrot og marbletti. Þannig var mál með vexti, að maðurinn var að vinna við sekkjapressu. Hún var þann- ig úr garði gerð, að pokum var rennt í gegn um 5 metra löng og 11 sentimetra há göng. Ohappið átti sér stað, er maðurinn festist í einum sekknum og lenti í göngunum þröngu. Dróst hann í gegn, 5 metra, og missti meðvitund. Hann var kominn hálfur út hinum megin er hann rakn- aði úr rotinu og gat kallað á hjálp. Var hann ótrúlega lítið- meiddur og allir sammála um að það gengi kraftaverki næst hvernig farið hefði. ar þar um. En Reagan lét ekki skoðun sína á Jackson hafa of mikil áhrif á yfirlýsingu sína um afrek prestsins. „Menn deila ekki við menn sem ná svona árangri. Það er stór stund í Bandaríkjun- um, að Goodman skuli nú vera frjáls ferða sinna og martröð hans lokið,“ sagði Reagan. Shehu í haldi Lundúnum, 3. janúar. AP. SHEHU Shagari, forseti Nígeríu, sem steypt var af stóli í valdaráni um áramótin, er enn á lífi. Vitni sáu hermenn leiða hann frá þotu á flug- vellinum í Lagos og var hann hand- járnaður og vonsvikinn á svip. Hinn nýi þjóðarleiðtogi, Mohameð Buhari, sór embættiseið í gær, ásamt 19 manna herráði sínu. Fór hann ófógr- um orðum um „hina illþefjandi spill- ingu“ sem viðgekkst í stjórn Shagar- is. Buhari gat þess við athöfnina, að einn maður hefði fallið er valdaránið var framið, einn af nánustu samstarfsmönnum hans. Ekki gat hann þess hvernig fall félagans hafði borið að, en sagði algera firru blaðafregnir þess eðl- is að Shagari hefði fyrirskipað líflát hans. Beirút, 3. janúar. AP. ísraclskar herþotur gerðu í gærmorgun árásir á stöðvar uppreisnarmanna innan PLO, við þjóðveginn milli Beirút og Damascus, í og við borgina Bhamdoun. Er þetta fyrsta loftárás ísraela á svæöi innan umráðasvæðis Sýrlendinga á þessu ári, en hún, og fleiri í síðasta mán- uði, hafa verið gerðar í kjöl- farið á vaxandi umsvifum hryðjuverkamanna gegn ísra- elska herliðinu í suðurhluta Líbanon. Shehu Shagari Útvarpsstöðin „Rödd Líban- ons“ greindi frá atburðunum í gær og sagði fjórar þotur hafa varpað sprengjunum, en átta aðrar hefðu fylgt þeim til halds og trausts. Sýrlendingar skutu mörgum eldflaugum að þotunum, en hæfðu enga. Útvarpið greindi frá því, að þoturnar hefðu hæft tvær byggingar sem skæruliðar hafa hafst við í um nokkurra mánaða skeið, meðal annars 5 hæða gistihús. Þá sagði í út- varpsfrásögninni, að skotfæra- birgðir í nágrenni gistihússins hefðu sprungið í loft upp. Um mannfall var ekki getið. Valdataka Buharis og manna hans hefur orðið til þess að vel er fylgst með gangi mála í Nígeríu, enda landið auðugt af olíu. Buhari gat þess í gær, að Nígería myndi eftir sem áður vera aðili að OPEC og jafnframt virða alla þá samn- inga sem í gildi,eru við önnur lönd. í gær tilkynntu svo talsmenn banka í Bretlandi, að Nígeríu- stjórn hefði greitt á gjalddaga fyrstu afborgun af 2 milljarða dollara láni, upphæð sem talin er nema 60 milljónum dollara. I fyrstu var talið að borgað hefði verið til þess að auka traust Vest- urlanda á hinum nýju stjórnvöld- um. Hins vegar er ekki útilokað að gengið hafi ^rið frá greiðslunni áður en valdaránið var framið. Talsmenn drúsa, sem þarna eru einnig öflugir, neituðu því sem sagt var í útsendingu „Radd- ar Líbanons", sögðu gistihúsið ekki hafa orðið fyrir sprengju og sögðu uppreisnarmenn PLO ekki hafa haldið til þar. Þvi næst for- dæmdu þeir árás ísraela og hót- uðu hefndum. í Beirút gerðist það og í gær, að franskur bifreiðarstjóri, starfsmaður sendiráðsins, var skotinn í höfuðið af óþekktum tilræðismanni. Bílstjórinn hlaut ekki bana af, en var milli heims og helju síðast er fréttist. Ýmislegt í gær benti til þess að stjórn Buharis hefði allgóð tök á landinu, þannig var útgöngubanni aflétt og bæði innanlands- og millilandaflug hófst að nýju. Hins vegar verða landamærin lokuð að nokkru fyrst um sinn. Þá var sums staðar ólga og á einum stað fór múgur og margmenni rænandi og ruplandi um verslunarmiðstöð. Annars staðar lokuðu kaupmenn fremur fyrirtækjum sínum en að lækka verð á vörum sínum eins og hermenn fyrirskipuðu. Skáld í svart- holið í Júgó- slavíu Bclgrad, 3. janúar. AP. Júgóslavneska Ijóóskáldið Momcilo Ilic var í gær dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar í heimalandi sínu, þar eð yfir- völdum þvkir kveðskapur hans „andsósíalískur“ og „rakki niður stjórnkerfi landsins og ráðamenn,“ eins og sagði í fréttatilkynningu sem birt var með dóminum. Ilic er 59 ára gamall og bú- settur í Bjelovar í Króatíu. Litið er á dóminn sem viðvör- un til annarra skálda og rit- höfunda um að sitja ekki við sömu iðju. Öðru ljóðskáldi var stungið í svartholið í mars síðastliðnum og sakirnar hin- ar sömu, svo og dómurinn. Yf- irvöld sáu sig hins vegar til- neydd að sleppa skáldinu vegna heilsubrests, en þó ekki fyrr en samningar höfðu náðst um að viðkomandi skáld héldi sig á mottunni framveg- is í list sinni. Loftárásir ísraela á Palestínumenn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.