Morgunblaðið - 04.01.1984, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 04.01.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 5 Reykjavík: í 8 daga fangelsi vegna hundahalds HALLDÓRA Aradóttir, til heimilis að Grettisgötu 90 í Reykjavík, sem fyrir nokkru var dæmd til ad greiða 6.500 króna sekt vegna ólöglegs hundahalds í Reykjavík, hefur neit- að að greiða sektina. Hefur henni því verið gert að mæta í dag, mið- vikudag, klukkan 10, í Hegningar- húsið við Skólavörðustíg, til að sitja af sér sektina. Halldóra sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að hún væri staðráðin í því að greiða ekki sektina, enda væri að sínu mati fráleitt að sekta fólk fyrir jafn sjálfsagðan hlut og að eiga hund. Hún myndi því sitja af sér sektina í fangelsi í átta daga, en hundurinn, sem er kjölturakki, myndi verða í umsjá foreldra hennar á meðan. Mæðrastyrksnefnd: 300 aðstoðarbeiðnir bárust fyrir jólin „FYRIR þessi jól bárust 300 um- sóknir um peningaaðstoð og þeim gátum við sinnt öllum, síðan voru töluvert fleiri sem fengu fatahjálp," sagði Unnur Jónasdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, þegar hún var innt eftir því hve mörgum Mæðra- styrksnefnd hefði veitt aðstoð nú fyrir jólin. „Sú upphæð sem við höfðum úr að moða var kr. 280.000 sem ýmis 70 atvinnulaus- ir á Selfossi NÚ UM áramótin voru 70 skráðir atvinnulausir á Selfossi, samanborið við 52 á sama tíma í fyrra. Hefur atvinnuástand verið fremur slæmt frá því að vinnu 1 sláturhúsunum lauk í haust að sögn talsmanns verkalýðsfélags- ins Þórs. Sagði hann að atvinnu- ástand hefði verið þokkalegt fram að því eða frá því snemma í fyrra- vor. Heldur eru það fleiri konur en karlmenn, sem eru atvinnulausar, en þess ber að geta að talsvert er um það að þessar konur hafi verið í hálfsdagsvinnu. fyrirtæki, starfsmannafélög og einstaklingar hafa látið af hendi rakna," sagði Unnur. „Þessi upp- hæð er nokkru hærri en um jólin þar á undan, en nú voru um 40 fleiri umsóknir en þá. Við aðstoð- um bæði einstaklinga og fjölskyld- ur eftir bestu getu, peningahjálp getum við ekki veitt nema í des- embermánuði, en fataúthlutunin stendur allan ársins hring. Þá hef- ur Mæðrastyrksnefnd á undan- förnum árum selt mæðrablómið og notað ágóðann til að bjóða tutt- ugu konum í vikulangt sumarleyfi. Þá hefur Mæðrastyrksnefnd haft lögfræðing á sínum snærum og boðið konum upp á ókeypis lögfræðiaðstoð einu sinni í viku á kostnað nefndarinnar, en nú höf- um við nýlega misst þá konu sem var lögfræðingur okkar og leitum að annarri. Eins og ég sagði þá var sjáanleg aukning í beiðnum og einnig í fataúthlutuninni frá því sem áður hefur verið og bersýnilega þurfa fleiri aðstoð nú en áður. Eg vil fá að nota tækifærið og þakka inni- lega öllum þeim sem hafa styrkt Mæðrastyrksnefnd," sagði Unnur Jónasdóttir að lokum. Páll P. PálsNon hljómsveitarstjóri. Gísli Magnússon píanóleikari. Sinfóníuhljómsveit íslands: Sjöundu áskriftartónleik- ar vetrarins á morgun SJÖUNDU áskriftartónlcikar Sin- fóníuhljómsvcitar íslands á þessu starfsári verða nk. fimmtudag, 5. janúar, klukkan 20.30 í Háskólabíói. Á efnisskránni eru: Concerto breve, op. 19 eftir Herbert H. Ág- ústsson, Fantasía um ungversk þjóðlög fyrir píanó og hljómsveit eftir Franz Liszt og Sinfónía nr. 9 í Es-dúr, op. 70 eftir Dmitri Shostakovich. Hljómsveitarstjóri tónleikanna er Páll P. Pálsson, en Gísli Magnússon leikur einleik á píanó. Kammersveit Reykjavíkur 10 ára: Árstíðirnar eftir Vivaldi * í Askirkju á sunnudag Kammersveit Reykjavíkur minnist þess með tónleikum í Ás- kirkju sunnudaginn 8. janúar næstkomandi að 10 ár eru liðin frá því að sveitin var stofnuð. Á tón- leikum verða Árstíðirnar eftir A. Vivaldi fluttar, eitt fegursta og vinsælasta verk barokktímans. Það voru 14 hljóðfæraleikarar sem stofnuðu Kammersveit Reykjavíkur 1974. Hefur hún starfað samfleytt síðan og að jafnaði haldið ferna tónleika á ári og auk þess tekið þátt í lista- hátíðum í Reykjavík. Segja má að Árstíðirnar eftir A. Vivaldi séu fjögur einleiks-* verk fyrir fiðlu. Á tónleikunum á sunnudag leikur Helga Hauks- dóttir á fiðluna í Vorinu, Unnur María Ingólfsdóttir í Sumrinu, Þórhallur Birgisson í Haustinu og Rut Ingólfsdóttir í Vetrinum. Þorsteinn Gylfason, lektor, hefur þýtt sonnettuna Árstíðirn- ar sem A. Vivaldi orti sjálfur um leið og hann samdi tónverkið og verður þýðingin birt í tónleika- skránni. Aðgöngumiðar að tónleikun- um verða seldir í ístóni, Freyju- götu 1, Reykjavík, nú í vikunni og að auki við innganginn í Ás- kirkju fyrir tónleikana sjálfa sem hefjast klukkan 17 á sunnu- daginn. Fyrirhugadur Grafarvogsskóli: Miðað við samfelldan skóla- dag og einsetningu að mestu FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkurborgar hefur samþykkt með 7 samhljóða at- kvæðum að leggja til við borgarráð að þess verði farið á leit við mennta- málaráðuncytið að það samþykki að litið verði á byggingu Grafarvogs- skóla, sem framhald þeirrar tilraun- ar sem hafin var við byggingu Selja- skóla. Þar var lagt til grundvallar við hönnum skólans að skólinn yrði með þremur bekkjardeildum í hverjum árgangi, skólahúsin verði á einni hæð, húsnæðisþörf miðuð við samfelldan skóladag nemenda og einsetningu að mestu og að fyrirkomulag og gerð húsnæðis miðuð við að skólinn geti einnig verið félags- og menningarmiðstöð hverfisins. Þessar upplýsingar fékk blm. Mbl. hjá Markúsi Erni Antonssyni, formanni fræðslu- ráðs. { greinargerð með samþykkt fræðsluráðs segir m.a.: „í undirbúningi er nú hönnun skóla í hinu nýja hverfi við Graf- arvog. Gert er ráð fyrir að nýta, við byggingu hans, þá reynslu er fékkst af byggingu Seljaskóla en ríki og borg stóðu sameiginlega að þeirri framkvæmd. Með byggingu Grafarvogsskóla, sem framhaldi tilraunar þeirrar er samningurinn fjallar um, mætti reyna enn frek- ar að lækka byggingarkostnað skólabygginga, m.a. með því að reisa bygginguna á fleiri en einni hæð og nýta enn frekar stöðlun byggingarhluta. Þá er stefnt að því að Grafarvogsskóli miði starf- semi sína við það að skapa nem- endum samfelldan skóladag, svo sem frekast er unnt, jafnframt því sem honum er ætlað að verða miðstöð félags- og menningar- starfs í hverfinu en slík fjölþætt hlutverk skóla hefir verið talið æskilegt markmið að keppa að. RÁÐSTEFNA um fiskveiðimál, stöðu og stefnu fiskveiöa við Vest- mannacyjar og á Suðurlandsmiðum, verður haldin í Vcstmannaeyjum í dag og hefst hún kl. 17. Ráðstefnan er öllum opin, en fluttir verða stuttir fyrirlestrar af hálfu flestra félaga og fyrirtækja í Eyjum sem tengd eru sjávarútvegi og einnig munu skipstjórar og sjó- Markús Örn sagði í samtali við blm. Mbl. að í þeirri framkvæmda- áætlun sem til umræðu hefði verið hjá borgaryfirvöldum, væri nokk- ur forgangsröðun ákveðin varð- andi skólabyggingar. Þar væri númer eitt 3. áfangi Hólabrekku- skóla, síðan Seljaskóli, þar sem stefnt væri að því að nýtanlegt viðbótarkennsluhúsnæði yrði til- búið haustið 1985. Eins sagði Markús að Borgaryfirvöld yrðu að vera undir það búin að þörf yrði fyrir kennslurými í Grafarvogs- skóla það sama haust. menn af ýmsum bátastærðum fjalla um ákveðna þætti fiskveið- anna. Þá munu fulltrúar frá Haf- rannsóknastofnun og Fiskifélagi íslands fjalla um aflamagn af Suðurlandsmiðum m.a. og afla- skiptingu, stöðu fiskstofna og fleiri þætti sem varða fiskveiðarn- ar. Flutt verða liðlega 10 stutt er- indi, en síðan verða frjálsar um- ræður um stöðu og stefnu mála. Vestmannaeyjar: Ráðstefna um stöðu og stefnu fiskveiða á Suðurlandsmiðum opið TiL sjö í kvöld fjííj Vörumarkaðurinn hf. eiðistorgih mánudaga — þríöjudaga — miðvikudaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.