Morgunblaðið - 04.01.1984, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984
r^) HÚSEIGNIN
M ( 1 y-- -
Sími28511
Skólavörðustígur 18, 2. hæð.
Þórsgata
Ný 2ja—3ja herb. íbúð á 2.
hæð. Tilb. undir tréverk og
málningu. Bilskýli á jarðhæð
fylgir.
Frakkastígur
Glæsileg ný 2ja herb. íbúö.
Suðursvalir. Bilskýli.
Njarðargata
3ja herb. íbúö á 1. hæð í stein-
húsi. Skipti koma til greina.
Hlíðarhverfi — sérhæö
110 fm íbúö. 2 saml. stofur, 2
svefnherb., aukaherb. í kjallara.
Ekkert áhvílandi.
Hringbraut
3ja herb. íbúö á 1. hæð. Auka-
herb. í risi fylgir.
Meistaravellir
140 fm íbúð á 4. hæö. Bílskúr
fylgir.
Pétur Gunnlaugsson,
lögfræöingur.
^0)JHIÚSEIGNIN
^Sími 28511 ’rf1
Skólavöröustígur 18, 2 hæð.
28444
2ja herb. íbúðir
Grundarstígur, ris 550 þús.
Mosgeröi, kj. 620 þús.
Bergþórugata, ris. 800 þús.
Lokastígur, 2. hæð. 1200 þús.
Laufvangur, 2. hæö. 1400
þús.
Rauöalækur, kj. 1020 þús.
Frakkastígur, 2. hæð. 1650
þús.
3ja herb. íbúðir
Bólstaöarhlíö, ris. 1250 þús.
Álftamýri, 1. hæð. 1600 þús.
Klapparstígur, ris. 980 þús.
Sörlaskjól, 1. hæö. 2000 þús.
Grundargeröi, ris. 1250 þús.
Laugarnesvegur, 1. hæö.
1500 þús.
Barónsstígur, 2. hæö. 1080 þús.
Leifsgata, 3. hæö. 1950 þús.
Sörlaskjól, ris. 1600 þús.
4ra herb. íbúðir
Eyjabakki, 1. hæö. 1700 þús.
Sléttahraun, 3. hæö. 1800 þús.
Barmahlíð, jaröhæö. 1500 þús.
Kelduhvammur, 1. hæö. 2400
þús.
Leirubakki, 1. hæö. 1700 þús.
Hjallabraut 1. hæö. 1750 þús.
Víöimelur, 2. hæö. 2400 þús.
Holtsgata, 3. hæö. 1750 þús.
Einbýlishús
og raðhús
Engjasel, kj.+2 hæöir. 2900
þús.
Ásgarður, kj.+2 hæöir. 1800
þús.
Hraunbær, ein hæö. 3000 þús.
Völvufell, ein hæö. 2600 þús.
Vesturberg, ein hæö. 2800 þús.
Lækjarás, tvær hæöir. 5300
þús.
Árland, ein hæð. 550 þús.
Akraholt, ein hæö. 2800 þús.
Trönuhólar, tvær hæöir. 4500
þús.
Ásbúö, tvær hæöir. Tilboð.
í byggingu
Réttarsel, raöhús. 2000 þús.
Rauöás, raöhús. 2000 þús.
Krókamýri, einbýli. 2800 þús.
Heiðarás, einbýli. 2500 þús.
Mýrarás, einb.grunnur. 750
þús.
Álftanes, grunnur og fl. 600
þús.
Frostaskjól, einb. 2800 þús.
Víðihlíö, raöhús. Tilboð.
28444
HÚSEHSMIR
VELTUSUNOM o enn
SIMI 38444
Daniel Arnason. lögg. fasteignasali.
örnólfur örnólfsson, sölustjóri.
Ástand í Póllandi fer skánandi
— segir Magnús Kristjánsson sem hefur veriö þar síðastliðna sjö mánuði
„Kg fæ ekki annað séð en
ástandið í Póllandi fari skán-
andi,“ sagði Magnús Kristjáns-
son í spjalli við blm. Mbl. í gær.
Magnús hefur verið í Póllandi
síðastliðna sjö mánuði þar sem
þrjú fiskiskip eru í smíðum fyrir
Islendinga, en hann hefur um-
sjón með smíði þeirra.
Magnús sagði að vöruúrval í
verslunum hefði aukist frá því í
vor. „Ýmsar vörur eru þó
skammtaðar. Til dæmis kjötvör-
ur, sykur og fleira. Skömmtunin
er miðuð við áætlaða þörf mann-
anna. Kjötskammtur skrifstofu-
manns er 2 kíló á mánuði, en
maður sem vinnur erfiðisvinnu
fær allt að 4'k kíló á mánuði.
Nautakjöt sést þó aldrei í
verslunum. Pólverjarnir fá að-
eins svína- og kindakjöt. Kjúkl-
ingakjöt, sem ekki sást í verslun-
um þegar ég kom til Póllands í
vor, er nú fáanlegt í sumum
kjötverslunum.
Fiskiskipið Gideon, sem er í smíðum í Póllandi fyrir Samtog sf. í
Vestmannaeyjum. Myndin var tekin í Gdansk í Póllandi þann 7.
október síðastliðinn er skipið var sjósett. Það verður afhent eigend-
um síðari hluta þessa mánaðar.
Sjálfur hef ég það nokkuð
gott, því ég á þess kost að versla
í svonefndum dollaraverslunum,
þar sem flest er fáanlegt. Al-
menningur í landinu á ekki kost
á að versla þar, því menn þurfa
að greiða með dollurum fyrir
keyptan varning. Þessum doll-
araverslunum, sem eru ríkis-
reknar, fer nú fjölgandi.
Eins og ég sagði áðan fæ ég
ekki annað séð en ástandið
þarna austurfrá fari batnandi.
Ég hef til dæmis ekki orðið var
við neinar óeirðir. Aftur á móti
var lítið sem ekkert rætt um það
í fjölmiðlum, þegar Danuta Wal-
esa, eiginkona Lech Walesa tók
við Nóbelsverðlaununum fyrir
hönd manns síns.“
Magnús sagði að þann 6. janú-
ar yrði síðasta skipið af þremur,
sem eru í smíðum fyrir íslend-
inga, sett á flot, en þau yrðu öll
afhent á þessu ári og það síðasta
væntanlega í enda marsmánað-
ar.
Gefur silfurrefa-
parið jafti mikið
af sér og 70 ær?
Rætt við eina íslenska
silfurrefabóndann, Gísla á Hofi
„JÍI, ÞETTA er mjög spennandi við-
fangsefni, silfurrefurinn er vitur
skepna, miklu vitrari en blárefurinn
og ákaflega var um sig. Hann er mjög
viðkvæmur og skapmikill, svo að sami
maðurinn verður ávallt að hirða um
hann og alltaf í sömu fötunum," sagði
Gísli Pálsson, bóndi á llofi í Vatnsdal
í Austur-Húnavatnssýslu, en allir silf-
urrefírnir úr refahópnum, sem fluttur
var til landsins nú fyrir skömmu, fóru
að Hofí.
„Þeir voru ókyrrir fyrst eftir að
þeir komu,“ sagði Gísli, „sumir
þeirra vildu ekkert éta en enginn
hefur drepist enn sem komið er. En
þetta eru gullfallegar skepnur.
Hingað komu 55 silfurrefalæður og
12 högnar auk tveggja platínu-
högna sem notaðir verða til blend-
ingsræktar með silfurrefalæðunum.
Það hefur lengi verið áhugi fyrir
því hjá bændum að fá að auka fjöl-
breytnina í loðdýraræktinni og fá
silfurrefi, en það er ekki fyrr en nú
að það hefur gengið. Ég og Jón son-
ur minn ætluðum að setja upp blá-
refabú hérna á Hofi en síðan æxlað-
ist það þannig að við tókum alla
silfurrefina í sóttkví, en það eru
refabændur út um allt land sem
eiga dýrin. Sóttkvíin stendur í 16
mánuði en að þeim tíma loknum
geta bændurnir sótt yrðlingana
sína en við verðum að kaupa öll inn-
fluttu dýrin, þau mega ekki fara
héðan aftur. Þetta hefur því atvik-
ast þannig að við höfum ákveðið að
einbeita okkur að silfurrefnum og
vera eingöngu með hann.
Jú, verðþróunin er vissulega upp-
örvandi þessa stundina, skinnið er
komið í 5.700 krónur á meðan blá-
refsskinnin eru í um 1.100 krónum.
Ég held að þetta sé mjög gott verð
og útkoman er áreiðanlega allt önn-
ur og betri en á blárefnum miðað
við stöðuna í dag. Frjósemi silfur-
refsins er mun minni en blárefsins,
hún er um 2,9 hvolpar eftir hverja
læðu, sem er rúmur helmingur af
því sem blárefurinn gefur, en
skinnaverðið er 5—6-falt eins og er.
Annars er hætt við að frjósemin
verði minni fyrsta árið. Menn óttast
að flutningarnir hafi slæm áhrif á
dýrin, þetta eru svo viðkvæm og
skapmikil dýr. Fyrsta silfurrefa-
parið á fyrra skeiði íslenskrar loð-
dýraræktar kom hingað til lands
árið 1929 en flestir voru þeir árin
1939 og 1940. Otkoman var mjög
góð fyrstu árin, og árið 1937 var
talað um að eitt silfurrefapar gæfi
jafn mikið af sér og 70 ær. Ég veit
ekki nema að svo sé einnig nú,“
sagði Gísli Pálsson á Hofi.
Arsrit Utivistar
1983 er komið út
ÁRSRIT Útivistar 1983 er komið út
og er þetta í níunda skipti, sem Úti-
vist gefur út slfkt ársrit. Um útgáf-
una sáu Sigurþór Þorgilsson og
Hörður Kristinsson.
Meðal efnis í ritinu má nefna
frásögn Jóns I. Bjarnasonar um
Jólaferð í Múlakot árið 1935, grein
um Kverkfjöll eftir Magnús Jó-
hannsson, Eyjafjallapistla eftir
Jón Jónsson og grein um Löngu-
hlíð og Hvirfil eftir sama höfund.
Grein er um vorblóm eftir ólaf B.
Guðmundsson, grein er eftir Hans
F. Christansen í ritinu, sem ber
heitið „I klyfsöðli yfir Sprengi-
sand“. Jón Kristinn skrifar grein,
sem nefnist „Getið í eyðurnar" og
Nanna Kaaber skrifar grein er
nefnist „Það er aldrei of seint að
byrja".
Útivist
9
Ymislegt fleira efni er í ritinu,
sem er um 146 blaðsíður að stærð.
Ritið er prýtt mörgum myndum,
bæði í lit og svart-hvítu.
NÚTÍMA
JWSS
BALLETT
Dansstúdíó auglýsir innritun í ný nám-
skeiö bæði fyrir byrjendur og framhalds-
flokka. Allir aldurshópar frá 7 ára aldri,
jafnt konur sem karlar.
Sérstök áhersla er lögð á jazzballett eins
og hann gerist bestur og góða leikfimi
við nútímatónlist.
Auk þess sem kenndir veröa sviðs- og
sýningardansar.
Námskeið hefjast þann 9. jan. í
Reykjavík og 16. jan. í Hafnarfirði.
Innritun:
Reykjavík:
Alla daga kl. 13—17 í síma 78470.
Hafnarfirði:
Alla daga kl. 14—17 í síma 54845.
Ath Kennt veröur einu sinni í viku í
Hafnarfiröi í Þrekmiöstööinni.
dANSSTÚdíÓ
Soley Jóhannsdóttir
tc