Morgunblaðið - 04.01.1984, Page 13

Morgunblaðið - 04.01.1984, Page 13
MORGUMBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANtJAR 1984 13 Byltingin í Nígeriu Shagari var of linur , MorgunblaAíó/ ÓI.K.M. Fídelía Olafsson med dóttur sinni, Guðrúnu Sóleyju Olafsdóttur, í stofunni heima hjá þeim mæðgum. — segir Fídelía Ólafsdóttir, kona frá Nígeríu sem búsett hefur ver- ið á íslandi sl. 9 ár „ÍSLENDINGAR ættu aö fara sér hægt í samskiptum við hina nýju stjórn í Nígeríu, ekki falast eftir skuldauppgjöri strax. Það er Ijóst að fyrir dyrum stendur gagnger endurskoöun á öllu viðskiptalífi landsins, það verður gengið hart fram í því að uppræta spillingu og það er mjög vafasamt að herstjórn- in telji sig um of bundna af ýmsum fyrri viðskiptasamningum," er álit Nígeríukonunnar Fídelíu Pálsson á því hvernig íslensk stjórnvöld eigi að bregðast við breyttum að- stæðum í kjölfar byltingarinnar, en Nígeríumenn skulda íslending- um nú um einn milljarö íslenskra króna og eru ýmsir uggandi um að slegið verði striki yfir þessa skuld. Fídelía hefur verið búsett á íslandi sl. 9 ár, en fylgist vel með þróun mála í heimalandi sínu. „Viðskiptalíf þjóðarinnar verður rannsakað ofan í kjölinn. Það verður stungið á kýli spill- ingarinnar og efnahagsmálin tekin föstum tökum. Shagari forseti var of linur og svifaseinn. Hann réð ekki neitt við neitt, þrátt fyrir góðan vilja kannski, og fátækt, spilling og atvinnu- leysi hafa magnast mjög undir hans stjórn, svo mjög að herinn hafði gjörsamlega misst traust á honum og því fór sem fór. Persónulega finnst mér, og vafalaust mörgu fólki í Nígeríu, að það hefði átt að gefa honum annað tækifæri, leyfa honum að stjórna næstu fjögur árin. Og ég held að herinn hefði ekki tekið af skarið nú, ef ekki hefði komið tii áform Shagari um að þiggja tveggja milljarða lán frá Al- þjóða gjaldeyrissjóðnum og þær aðhaldsaðgerðir sem hann boð- aði tveimur dögum fyrir valda- töku hersins. Þykir ýmsum sem nóg sé komið af lántökum og að ekki sé stætt á því að ganga harðar að fólkinu í iandinu. En það er enginn vafi á því að Shag- ari hefur tekist illa til, hann hef- ur ekki hirt um að bæta kjör almennings og sama og enga til- raun gert til að uppræta spill- inguna. Auk þess er ýmislegt á huidu varðandi kosningasigur hans í haust og telja ýmsir að Shagari hafi beitt miður heiðar- legum brögðum til að tryggja sér sigur.“ — Er Shagari fyrst og fremst um að kenna hvernig nú er kom- ið málum í Nígeríu, er ekkert til í því sem sumir segja að þjóðin sé einfaldlega ekki tilbúin til að lifa við lýðræðisskipulag? „Aðalástæðan er sú, að mínu mati, að Shagari hafi verið of linur. Hann tók ekki á málum af þeirri festu sem þurfti. Þessi linkind hefur leitt til þess að fólk gekk á lagið, opinberir starfs- menn hikuðu ekki við að nota aðstöðu sína til að hagnast sjálf- ir og í viðskiptum mynduðust alls konar undirheimareglur sem hvergi þekkjast hjá siðmenntuð- um þjóðum. Þetta hefði ekki þurft að gerast ef tekið hefði verið á málunum af festu. En Shagari ól frekar á spillingunni en að ráðast til atlögu gegn henni." — Hvað segirðu um þá hug- mynd sem stundum er varpað fram, að íslendingar og Nígeríu- menn stundi viðskipti sín sem vöruskipti, skipti á skreið og olíu? Heldurðu að nýja stjórnin sé tilbúin til þess? „Það verður aldrei gert. Olían er eign allra landsmanna, á henni byggist líf þjóðarinnar og það mun aldrei í alvöru hvarfla að stjórnvöldum í Nígeríu að skipta á olíu og annarri vöru. Skreiðin, til dæmis, fer ekki um alla Nígeríu. Þetta er lúxusvara fyrir hluta þjóðarinnar, og það verður ekki skipt á slíkri vöru og olíunni. En af því ég ber hag beggja landanna fyrir brjósti vil ég ráð- leggja fslendingum að bíða um stund áður en þeir fara að huga að sínum málum í Nígeríu. Eg hef trú á því að nýja stjórnin hyggist greiða skuldir þjóðar- innar, en það verður ekki strax. Fyrst verður farið í saumana á öllu efnahagskerfinu, sem tekur að minnsta kosti hálft ár. Þar til því er lokið verður ekkert borg- að, og það gæti aðeins orðið til að spilla fyrir að ýta um of á.“ Fólkið þráði byltingu — segir nígeríski skreiðarkaupmaðurinn Kóiki „ALLIR íbúar Nígeríu þráðu bylt- ingu eins og ástandið var orðið í landinu og hún var nauðsynleg. Það er ekkert rangt við lýðræði eða lýðræðislega kosna stjórn, en þegar þaö er augljóst að kosin stjórn virðist ekki njóta vinsælda og þegar það eru uppi grunsemdir um lögmæti kosninga, lítur dæmið öðru vísi út. Fyrir síðustu kosn- ingar var það almenn skoðun að stjórn fyrri ára ætti ekki að við- halda vegna þess að hún hafði ekki náð neinum árangri í barátt- unni við efnahagsmálin. Það var efnahagskreppa um allan heim, en það ætti ekki að vera afsökun fyrir þeirri stöðu, sem Nígería er nú í,“ sagði nígeríski skreiðarkaupmað- urinn Kóiki í samtali við Morgun- blaðið, en hann kom hingað til lands í gær. „Nígería er ekki fátækt land og við erum ekki aðeins háðir olíu. Þessi ríkisstjórn hafði góða fjögurra ára áætlun um ráðstöf- un olíuteknanna, en þegar að- stæður breytast, verður áætlun- in að gera það líka, sérstaklega með tilliti til þess, að stjórninni hafði verið ráðlagt að gera svo. Þó stjórninni væri ljóst að tekj- ur yrðu minni en ráð var gert fyrir, breytti hún ekki áætlun- inni og hélt áfram ónauðsynleg- um hlutum. Þessi stjórn var sú spilltasta, sem um getur í Vestur-Afríku. Það lagði af henni spillingar- óþefinn. Spilltri stjórn er mjög erfitt að koma frá samkvæmt stjórnarskránni. Því var bylting hersins eina svarið við ástandinu og ég er aðeins ánægður með, að hann gerði þetta í tíma, því ef ástandið hefði enn farið versn- andi, hefði komið til byltingar almennings, sem herinn hefði kannski ekki ráðið við. Herinn tók völdin, þegar fólkið vildi það og vissi að ekki var um neina aðra leið út úr ógöngunum að ræða. Ef herinn hefði ekki gert svo, gæti hafa komið til aðgerða aimennings, sem hefðu getað leitt til fjöldabyltingar, sem rík- isstjórnin og herinn hefðu ef til vill ekki ráðið við. Hins vegar tók herinn völdin á þeim tíma, sem fólkið óskaði þess og forðaði þannig blóðsúthellingum. Þegar Shagari kynnti fjár- hagsáætlun sína 29. desember, sá hver maður að ástandið myndi ekki batna og efnahags- aðgerðir yrðu hertar og eðlilegt ástand kæmist ekki á í nánustu framtíð. Allir sáu að áætlunin var vonlaus og þar með var mæl- irinn fullur. Verðlag fór hækk- andi og gjaldmiðill okkar rýrn- aði vegna stjórnarháttanna. Fólkinu var engin von gefin og því var ekki um annað að ræða en að handtaka stjórnina. Við Nígeríumenn og erlendar þjóðir, sem skipta við okkur, ættum því að gefa nýju stjórninni ráðlegg- ingar um það, hvernig við eigum að bregðast við vandanum. Þessi nýja stjórn mun berjast gegn spillingunni, enda er það þjóðar- nauðsyn. Spilling er í flestum löndum, en hún var einfaldlega orðin nígerísku þjóðinni um megn. Við biðjum þess nú að nýju stjórninni takist að leiða okkur á ný til betri tíðar og óttumst ekki frekari sviptingar. Nígeríumenn eru gáfað fólk. Nú bíðum við og sjáum hverjar áætlanir nýja stjórnin hefur á prjónunum. Við getum ekki búizt við þeim á fyrstu dögum hennar. Ætíð, þegar stjórnum hefur verið bylt í Nígeríu, nema i fyrsta sinni er um blóðsúthell- ingar var að ræða, hafa nýju stjórnvöldin staðið við fyrri skuldbindingar þjóðarinnar. ís- lendingar þurfa ekki að óttast það, að við greiðum ekki skuldir okkar, þó hugsanlega yrði ein- hver dráttur á því. Við þörfn- umst ykkar og íslenzka þjóðin ætti að aðstoða okkur við að vinna bug á efnahagsvandanum í stað þess að auka á hann. Ef um einhverja skreiðarsölu til Nígeríu verður að ræða ættu ís- lendingar að hætta að greiða umboðsmönnum undir borðið, hætta að gefa afsláttinn nema hann skili sér í Nígeríu, annars kemur hann okkur ekki að gagni. 25% afsláttur til umboðsmanns- ins er of mikið, 2% væri kannski eðlilegt. Afslátturinn hefur verið notaður i mútur, sem grafa und- an lýðræðinu og auka á spilling- una og ríkisstjórn íslands ætti ekki að láta það viðgangast. ís- lendingar og Nígeríumenn ættu að setjast að samningaborðinu og semja um raunhæft verð fyrir skreiðina og hætta afslættinum. Þið munið þurfa að framleiða skreið áfram og við munum þurfa að borða hana. Það á bara eftir að koma í ljós hve mikið af skreið við getum keypt á þessu ári,“ sagði Kóiki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.