Morgunblaðið - 04.01.1984, Síða 14

Morgunblaðið - 04.01.1984, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 AF ERLENOUM VETTVANGI Eftir MAUREEN JOHNSON Tekst að stöðva ólögleg tölvukaup Sovétmanna? Sovétmenn hafa stundað það um langan aldur að gera eftirlíkingar af handarískum og vestur-evrópskum tæknibúnaði. Svo er t.d. með þetta hlustunardufl, sem fannst út af Krísuvíkurbjargi. AÐ undanförnu hafa verið mikið í fréttum tilraunir Sovétmanna til að komast yfir háþróaðan, banda- rískan tæknibúnað og vitað er, að þá iðju hafa þeir stundað um margra ára eða áratugaskeið. Toll- þjónustumenn í Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu hafa nú skorið upp herör gegn þessari starfsemi og hefur þeim þegar orðið allmikið ágengt. Vegna upplýsinga frá banda- rískum yfirvöldum lögðu vestur-þýskir tollverðir í nóv- embermánuði sl. hald á vöru- sendingu um borð í sænska gámaflutningaskipinu Elgaren aðeins nokkrum mínútum áður en það lagði úr höfn í Hamborg. Hluti sendingarinnar var þó fluttur áfram til Helsingjaborg- ar í Svíþjóð þar sem hann var kyrrsettur en sendingin öll var bandarísk Vax II-782-tölva, sem nota má til að stýra eldflaugum búnum mörgum kjarnaoddum. Snemma í desember lögðu tollgæslumenn í ensku hafnar- borginni Poole hald á sex banda- rískar tölvur, sem átti að flytja til Sovétríkjanna um Frakkland, og jafnframt voru tveir breskir kaupsýslumenn kærðir fyrir smygltilraunina. Rúmri viku síð- ar voru tveir kaupsýslumenn handteknir í Englewood í Col- orado í Bandaríkjunum og kærð- ir fyrir að hafa ætlað að smygla til Sovétríkjanna um Vestur- Þýskaland háþróuðum skjálfta- mæli, sem notaður er til að fylgj- ast með kjarnorkuvopnatilraun- um. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum hafa nú hafið nokkurs konar tangarsókn gegn fjármála- mönnum, sem fást við það áhættusama en um leið ábata- sama starf að smygla tæknibún- aði til Austur-Evrópu, og gegn þeim njósnurum kommúnista- ríkjanna, sem hafa það að sér- grein sinni að fá menn til þess- ara starfa. Bandarískir emb- ættismenn segja, að í raun sé þessi starfsemi stórkostleg ógnun við heimsfriðinn. „Við erum í raun og veru að færa Sovétmönnum upp í hend- urnar vopn, sem þeir síðan beina að okkur," sagði Richard Perle, háttsettur starfsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, í viðtali við breska ríkisútvarpið nýlega. Sú gífurlega njósnastarfsemi, sem Sovétmenn stunda á Vestur- löndum og víðar, sést best á því, að á síðasta ári voru um 100 sov- éskir sendiráðsstarfsmenn rekn- ir úr landi í NATO-ríkjunum Ástralíu, Japan og Sviss, helm- ingi fleiri en árið áður. Banda- rískir leyniþjónustumenn telja, að aðeins 20—30% þess tækni- búnaðar, sem fluttur er til Sov- étríkjanna, fari þangað eftir löglegum leiðum. Lýsandi dæmi um hvernig þessi smyglstarfsemi fer fram er mál Vestur-Þjóðverjans Richard Múllers, sem settist að í Suður- Afríku fyrir nokkrum árum en er nú aftur kominn til Evrópu þar sem hann stjórnar fjölda fyrirtækja með aðsetur í Sviss og jafnvel enn fleiri dótturfyr- irtækjum. Múller var dæmdur í Bandaríkjunum árið 1979 að honum fjarstöddum fyrir að hafa smyglað tölvum til Sovét- ríkjanna og í sambandi við það mál sætti viðskiptaráðuneytið bandaríska miklu ámæli fyrir kæruleysi við útgáfu útflutn- ingsleyfa. Múller á svissneska fyrirtækið „Integrated Time“ og auk þess dótturfvrirtæki í Vestur-Þýska- landi. I fyrra seldu Kongsberg, norsku vopnaverksmiðjurnar, dótturfyrirtækinu hluti í Vax II-782-tölvuna eftir löglegum leiðum og með leyfi bandaríska viðskiptaráðuneytisins í hönd- unum. „Svo er að sjá, að þótt Múller og svissneska fyrirtækið séu á svarta listanum, þá sé vestur- þýska dótturfyrirtækið ekki þar að finna," sagði Egil Eiden, yfir- maður tölvudeildar Kongsberg- verksmiðjanna, við fréttamenn. Það er til að stöðva þessa starfsemi, sem stunduð er í skjóli fyrirtækjafrumskógar og falsaðra farmskírteina, sem Bandaríkjamenn hrintu af stað aðgerðinni „Exodus" árið 1981 og að sögn tollyfirvalda hefur ár- angurinn orðið framar öllum vonum. Yfirmaður bandarísku tollgæslunnar, William von Raab, segir, að á síðasta ári hafi verið lagt hald á meira en 2000 tölvur eða tölvuhluti til hernað- arnota, sem átt hafi að smygla til Sovétríkjanna. „Fyrir tveimur árum var eftir- litið ekkert en nú hefur okkur tekist að stöðva smyglið að mestu. Sovétmenn verða nú að fara að nota sína eigin peninga til að halda í við tækniþróun- ina,“ sagði Raab. Það hefði t.d. í för með sér, að Sovétmenn yrðu að fara að fylgjast með banda- rískum kafbátum með sínum eigin tækjabúnaði en ekki með eftirlíkingum af bandarískum hlustunarbúnaði. Ríkisstjórnir Atlantshafs- bandalagsríkjanna og Japan hafa með sér samstarf um það hvaða vörur megi ekki flytja til Austantjaldsríkjanna og koma fulltrúar þeirra reglulega saman til fundar í París. Talið er, að viðræður hafi verið í gangi allt frá janúar 1982 um nýjan lista yfir bannvörur en orðrómur er á kreiki um að samkomulag hafi strandað á sumum Evrópuþjóð- anna og Japan, sem finnst Bandaríkjamennirnir vilja hafa bannlistann of víðtækan. Um þetta vilja embættismenn þó ekkert segja. Maureen Johnson er íréttamaður AP-fréttastofunnar. Sænskir tollverðir létu loks til skarar skríða og opnuðu kassana, sem voru fluttir til Helsingjaborgar. í þeim reyndist vera bandarískur tölvu- búnaður. Frú Valgerður Halldórsdóttir afhendir Kristjáni Sigurðssyni, yfirlækni, gjöf- ína. MorgunhladiðHeimir. Keflavík: Vandað sónartæki gefíð sjúkrahúsinu Kedavík, 2. janúar. SJÚKRAHÚSINU í Keflavík var fimmtudaginn 29. desember afhent sónarætki af Hitachi-gerð. Tæki þetta er af fullkomnustu gerð og er að verðmæti 1.100.000 kr. Eru þá tollar og söluskattur reiknaðir í verðinu. Tækið er fyrst og fremst notað til fóstur- og mæðraverndar. Einnig má nota það til annarra rann- sókna, svo sem til rannsókna á líf- færum í kviðarholi. Gefendur eru eftirtaldir aðilar: Styrktarfélag Sjúkrahúss Kefla- víkurlæknishéraðs, en Keflavíkur- verktakar gáfu styrktarfélaginu ríflega-fjárupphæð til kaupa á þessu tæki, Kvenfélagið Fjólan, Vatnsleysuströnd, Kvenfélagið Gefn, Garði, Kvenfélagið Hvöt, Miðneshreppi, Kvenfélag Kefla- víkur, Kvenfélag Njarðvíkur, Sor- optimistaklúbbar Keflavíkur, Verkakvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur. Forráðamenn sjúkrahússins vilja þakka gefendum fyrir þessa höfðinglegu gjöf og minna á að þetta er ekki í fyrsta skipti, sem samtök þessi hafa sýnt málefnum sjúkrahússins velvilja. Valgerður Halldórsdóttir, for- maður Styrktarfélags Sjúkrahúss- ins, afhenti tækið fyrir hönd gef- enda. Steinar Júlíusson, formaður Sjúkrahússtjórnar, ávarpaði gesti við athöfnina. — Heimir Jón Hannesson, læknir, lýsir tæk- inu. Aukinn hagnaður af rekstri Hafskips „LIÐIÐ ÁR hefur verið gott ár fyrir Hafskip að mörgu leyti og þótt endanlegar tölur um rekstrarafkomu liggi enn ekki fyrir, þá er Ijóst að hagnaður verður af rekstri fyrirtækisins, reyndar nokkru meiri hagnaður en á síðasta ári,“ sagði Páll Bragi Krist- jónsson, framkvæmdastjóri hjá Hafskip, í samtali við Mbl. „Áætlanir okkar hafa staðizt vel og reyndar hefur útkoman úr sumum þáttum verið betri en gert var ráð fyrir í ársbyrjun. Reyndar vorum við efins um að þessar áætlanir okkar myndu standast fyllilega, þegar verulega tók að syrta í álinn í efnahagslífi lands- manna," sagði Páll Bragi. Páll Bragi sagði að uppbygg- ingarstarf það sem hófst fyrir lið- lega fimm árum hjá fyrirtækinu væri farið að skila sér í verulegum mæli, en verulegt tap var af- rekstri fyrirtækisins um árabil. Á síðasta ári komst Hafskip síðan réttum megin við strikið. Aðspurður um ástæður þess, að hagnaður yrði af rekstri Hafskips XJöföar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! á sama tíma og efnahagsástand hefur verið slæmt hér á landi og flutningar hafa dregizt saman, sagði Páll Bragi þær nokkrar. „Hagræðingarstarf hefur skilað sér mjög vel, þ.e. fjárfesting í skipum og tækjum í landi, auk breyttra starfshátta. Þá hefur eldsneytiskostnaður ekki hækkað eins mikið og gert var ráð fyrir vextir á erlendum mörkuðum hafa verið stöðugir og vextir innan- lands hafa farið verulega lækk- andi á allra síðustu mánuðum. Þetta skilar sér auðvitað beint í betri afkomu. Þá hefur starfsemi dótturfyrirtækja Hafskips erlend- is skilað betri árangri en bjartsýn- ustu menn þorðu að vona í upp- hafi. Ekki má síðan gleyma þeirri kyrrð sem komst á gengismálin á síðari hluta ársins." Hafskip hefur verið með sjö skip í rekstri á árinu, en þar af á félagið fimm þeirra. Um er að ræða fjölhæfniskip, sem falla vel að rekstri Hafskips. Að endingu var Páll Bragi Kristjónsson, framkvæmdastjóri hjá Hafskip, inntur eftir því hvernig honum litist á komandi ár. „Við erum mjög bjartsýnir og sjáum ekki annað, en að rekstur- inn eigi að skila arði og aukast á þessu ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.