Morgunblaðið - 04.01.1984, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984
Sendiherra
Bangladesh
í Moskvu
farinn heim
Moskvu, 3. janúar. AP.
SOVÉZKA stjórnin reyndi frá
því á sunnudaginn, að Rashid
Ahmad, sendiherra Bangla-
desh í Sovétríkjunum, væri
farinn úr landi. Þessi frétt kom
í kjölfar skipunar stjórnar
Bangladesh til Kremlarherra
um að fækka sovézkum dipló-
mötum og starfsliði í Bangla-
desh, en umsvifin þar á vegum
sovézka sendiráðsins hafa far-
ið mjög vaxandi að undan-
förnu. Bangladesh-stjórn skip-
aði Sovétmönnum að fækka í
sendiráðinum þann 28. nóvem-
ber sl. og svo virðist sem sov-
ézku menningarstofnuninni í
Dhaka hafi verið lokið. Bangla-
deshar hafa krafizt lokunar
fleiri stofnana á vegum Sov-
étmanna í Bangladesh. Fimm
háttsettir diplómatar héldu á
braut frá Dhaka á mánudag í
fyrri viku og fleiri munu fylgja
á eftir. Búizt er við að brottför
sendiherra landsins í Moskvu
sé í tengslum við þessi versn-
andi samskipti, þótt það hafi
ekki verið staðfest af opinberri
hálfu.
íran leysir
vanda
UNESCO
London, 3. janúar. AP.
Utanríkisráðherra írans, Akb-
ar Velayati, hefur lýst því yfir ad
íran muni, í samvinnu vid önnur
aðildarríki, leysa vanda UN-
ESCO, Menningar- og fræðalu-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, í
sambandi við úrsögn Bandaríkj-
anna.
Ráðherrann sagði að standi
Bandaríkin við hótunina um að
hætta aðild að UNESCO, leiði
það til þess að stofnunin verði
sjálfstæðari í aðgerðum sínum,
og hagstæðari „kúguðum þjóð-
um“.
Hákarl ban-
aði kafara
Aþenu, 3. janúar. AP.
IIÁKARL réðst á froskkafara,
sem var að ólöglegum veiðum
neðansjávar á Kórinþu-flóa um
helgina. Læsti hákarlinn tönnun-
um í fótlegg kafarans, Christo-
pher Skiadas, og varð af svo mik-
ið sár að honum blæddi út áður
en unnt var að koma honum í
sjúkrahús. Skiadas og vinir hans
tveir voru á veiðum á tuttugu
metra dýpi um 300 metrum frá
ströndinni út af þorpinu Andik-
ira þegar hákarlinn birtist.
Öll köfun er bönnuð við
strendur Grikklands í nánd við
fornar minjar, en þorpið Arid-
ikira er um 15 km fyrir sunnan
Delfi. Að sögn yfirvalda eru
hákarlar sjaldséðir gestir á
Kórinþu-flóa.
Til viðræðna
í Washington
Tókíó, 3. janúar. AP.
JAPANSKA fréttastofan
KYODO hefur skýrt frá því að
Shintaro Abe, utanríkisráð-
herra, færi 26. þessa mánaðar
til Washington til viðræðna við
bandarísk yfirvöld um efna-
hags- og varnarmál. Abe hélt
embætti sínu og var endurskip-
aður utanríkisráðherra við síð-
ari stjórnarmyndun Yasuhiro
Nakasone 27. fyrra mánaðar og
er reiknað með að hann skýri
bandarískum yfirvöldum frá
áhrifum nýafstaðinna þing-
kosninga í Japan á sameiginleg
áhugamál ríkjanna beggja.
Henning Christopherson, fjármálaráðherra Dana, sýnir hér á gamalli skólatöflu muninn á niðurskurði stjórnarinnar og sparnaðartillögum jafnaðarmanna.
Stjórnin hefur sparað 50 milljarða danskra króna en jafnaðarmenn lagt til 25 milljarða sparnað. Á veggnum stendur „Það er hyldýpi á milli“ og er þá líklega
átt við muninn á stefnu flokkanna tveggja, jafnaðarmanna og íhaldsmanna.
Efnahagsmálin aðalmál-
ið í dönsku kosningunum
— en staða grænlensku og færeysku þingmannanna mikið til umræðu
Kaupmannahörn, 3. janúar. Frá fréttaritara Mbl., Ib Björnbak.
í ÞINGKOSNINGUNUM í Danmörku 10. janúar nk. verður tekist á um
efnahagsmál. Poul Schliiter, forsætisráðherra, vitnar nú óspart í nýjar tölur
frá danska vinnuveitendasambandinu, sem segja, að kaupmáttur launa hafi
vaxið á síðasta ári. Þessari fullyrðingu hafa samtök opinberra starfsmanna
mótmælt.
Enn er allt á huldu um hvort
sjónvarpsáhorfendur fá að verða
vitni að úrslitaátökunum milli
flokkanna og er það allt undir náð
og miskunn tæknimannanna kom-
ið. Viðræður hafa farið fram á
milli þeirra og forstöðumanna
danska sjónvarpsins og verður úr
þessu skorið á fundi tæknimann-
anna nk. fimmtudag.
I kjölfar skoðanakannana að
undanförnu hefur gamalt vanda-
mál komist í sviðsljósið á nýjan
leik en það er hvort komið skuli í
veg fyrir, að Færeyingar og Græn-
lendingar geti ráðið úrslitum um
meirihlutamyndun á danska þing-
inu. Samkvæmt síðustu Gallup-
könnun mun stjórnin styrkja
stöðu sína svo í kosningunum, að
hún mun hafa meirihluta með
stuðningi annaðhvort Róttæka
Yevtushenko skrif-
ar um Stalínstímann
— og harðlega gagnrýndur fyrir vikið
Moskvu, The Guardian
EITT fremsta Ijóðskáld Sovét-
manna, Yevgeny Yevtushenko,
hefur að undanfórnu verið gagn-
rýndur mjög harkalega í landi
sínu fyrir að fjalla um hörmungar
Stalínstímans í nýútkominni bók.
Bókmenntatímaritið Nash
Sovremyennik eða Vorir tímar,
sem kemur út mánaðarlega, seg-
ir um bokina, „Berjagarðana",
að hún sé ruglingsleg, óheiðar-
leg og ósiðleg, bók, sem sé ein-
skis virði og hefði aldrei átt að
koma fyrir almenningssjónir.
í Vorum tímum segir, að þá
bregðist Yevtushenko ekki síst
bogalistin þegar hann lýsir því
hvernig Stalín útrýmdi kúlökk-
unum (rússneskum sjálfseign-
arbændum) með því að skipa svo
fyrir, að þeir skyldu skotnir eða
sendir í þrælkun. Yevtushenko
segir í bók sinni að lögreglunni
um allt landið hafi verið gefinn
kvóti yfir fjölda kúlakka, sem
smala átti saman, en sums stað-
ar, t.d. í Síberíu þar sem Yevtu-
shenko ólst upp, voru engir kúl-
akkar og þá greip lögreglan til
þess að handtaka og skjóta
venjulegt sveitafólk til að fylla
kvótann.
Yevtushenko var í eina tíð
ungi, reiði maðurinn í sovéskum
bókmenntaheimi og átti stund-
um í dálitlum útistöðum við yf-
irvöldin. Á síðustu árum hefur
þó lítið borið á gagnrýni á hann
en augljóst er, að hann hefur
áunnið sér litla hrifningu ráða-
manna með sinni fyrstu bók að
ljóðabókunum undanskildum.
vinstriflokksins eða Framfara-
flokksins en til þessa hefur hún
orðið að styðjast við þá báða. Svo
getur þó farið, að atkvæði græn-
lensku þingmannanna tveggja geti
riðið baggamuninn í atkvæða-
greiðslum um málefni, sem aðeins
snerta Dani sjálfa. Færeysku
þingmennirnir hafa hins vegar
jafnan fylgt Jafnaðarmanna-
flokknum og Vinstriflokknum,
sem er borgaraflokkur, og atkvæði
þeirra falla því oftast dauð.
Grænlensku þingmennirnir
hafa setið hjá í flestum atkvæða-
greiðslum á valdatíma Schlúters
Yevgeny Yevtushenko
og hefur hann launað þeim það
með því að hafa ekki afskipti af
grænlenska vinnumarkaðnum.
Ovíst er hvernig þessi mál horfa
við að kosningum loknum því að í
Grænlandi verður nú nýr háttur
hafður á. Þar vannst ekki tími til
að prenta kjörseðla og þess vegna
verða kjósendur að skrifa sjálfir
nafn þess frambjóðanda, sem þeir
kjósa. Er það talið geta haft áhrif
á niðurstöðuna.
Veður
víða um heim
Akureyri +4 snjókoma
Amsterdam 8 rigning
Aþena 17 heiðskírt
Barcelona 7 mistur
Bertin 6 rigning
BrUssel 8 heióskirt
Buenos Aires 28 rigning
Chicego +1 skýjaó
Dublin 8 skýjaó
Feneyjar 5 rigning
Frankfurt 5 rigning
Genf 7 heióskírt
Havana 23 skýjað
Helsinki 1 skýjaó
Hong Kong 18 heióskfrt
Jenjsalem 10 skýjaó
Jóhannesarborg 21 skýjaó
Kairó 21 heióskfrt
Kaupmannahöfn 6 skýjaó
Las Palmas 21 skýjaó
Lissabon 8 skýjaó
London 7 skýjað
Los Angeles 24 heióskfrt
Malaga 14 heióskirt
Mallorca 16 skýjaó
Mexíkóborg 19 skýjað
Miami 23 skýjaó
Montreal -11 snjókoma
Moskva 2 skýjaó
New York 2 skýjaó
Parls 10 skýjaó
Peking 0 heióskfrt
Perth 29 heióskfrt
Reykjavík +4 táttskýjaó
Rio de Janeiro 37 heióskirt
Róm 11 skýjaó
San Francisco 18 heióskirt
Seoul 32 skýjaó
Stokkhólmur 5 skýjað
Sydney 33 heióskírt
Tókýó 8 heióskirt
Vancouver 8 skýjaó
Vinarborg 10 skýjaó
Varsjá 7 rigning
Þórshötn -3 alskýjað
Loftárás á hafnar-
borg í Nicaragua
Managua, Niraragua, 3. janúar. AP.
VARNARMÁLARÁÐUNEYTIÐ í Nicaragua sagöi í gær-
kvöldi, að uppreisnarmenn hefðu gert loftárás á hafnarborg-
ina Puerto Sandino en þar er skipaö upp mestallri olíu, sem
til landsins er flutt. Seinna heföi svo veriö skotið á borgina
frá ótilteknum fjölda hraðbáta.
Talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins sagði að um eina flugvél
hefði verið að ræða og hefði verið
skotið frá henni eldflaugum að
mannvirkjum í Puerto Sandino án
þess að nokkurt tjón hefði þó hlot-
ist af. Einn maður hefði hins veg-
ar fallið í árás hraðbátanna, sem
hefðu verið hraktir burtu «ftir
skamma stund. Skæruliðar í Nic-
aragua réðust á borgina í sept-
ember og október í haust og unnu
þá mikið tjón á olíumannvirkjum.
Stjórnin í Managua heldur því
fram, að í desember hafi 2.000
skæruliðar komið til landsins frá
Honduras og að þessi liðssafnaður
muni ásamt öðrum skæruliðum
hafa mikla sókn í undirbúningi.
Einnig hefur verið skýrt frá áköf-
um bardögum um a.m.k. fimm bæi
í norðurhluta landsins og eru
fréttir um mikið mannfall á báða
bóga.