Morgunblaðið - 04.01.1984, Side 20

Morgunblaðið - 04.01.1984, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 20 Athugasemd frá Flateyri EFST á baksíöu Þjóðviljans 21. des. sl. er fimm dálka stórfrétt, segir þar frá fundarsamþykkt á borgarafundi á Flateyri og miklum hrakförum „íhaldsins" þar á bæ. Hefur blaöið frétt þessa eftir málvini sínum Guð- varði Kjartanssyni. I>ar sem það er ekki á hverjum degi að hér gerist þau tíðindi sem svo þykja fréttnæm, er ekki úr vegi að líta á málið aðeins nánar. Þannig hagar til á Flateyri að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hreinan meirihluta í hreppsnefnd Flateyrarhrepps, hlaut rúm 50% atkvæða í síðustu kosningum og sigraði þannig sameiginlegan lista allra vinstri flokkanna, naumlega þó. Þann 8. desember sl. boðaði hreppsnefndin til almenns borg- arafundar um málefni Flateyrar- hrepps. Hófst fundurinn kl. 20.00, var hann vel sóttur og einkennd- ust umræður allar af eindrægni og góðri samstöðu Flateyringa um málefni sín. Það var kl. 0.25 um nóttina, sem þau tíðindi gerðust sem Þjóðviljanum er svo mikill matur í. Fundarbekkirnir voru orðnir þunnskipaðir, sem ekki var óeðlilegt á þessum tíma nætur. Umræður um málefni Flateyr- arhrepps höfðu staðið í 4'/i klst og ætla hefði mátt að fundinum væri rétt ólokið, en aðrir vissu betur hvað til stóð, og sátu því sem fastast. Nú kvaddi sér hljóðs „friðar- sinni" einn og mælti fyrir tillögu sem hann ásamt þremur öðrum fundarmönnum fluttu, þess efnis að fundurinn mótmælti radarstöð, sem heyrst hefði að hugsanlega, ef til vill, yrði reist á Vestfjörðum einhverntíma. Röksemdin var gamalkunn í þá veru að bágt sé að fá í hausinn — atómbombu, og því vart hygginna manna háttur að hafa nærri sér þau mannvirki sem vakið gætu tortryggni góðra vina í Austri. Eins og vænta mátti tók „frið- arsinninn" það skýrt fram að til- laga þessi væri algjörlega ópóli- tísk. Ekki voru allir fundarmenn sáttir við þessa tillögu, bæði efni hennar og tilgang, en ekki hvað síst það, hvaða nauð ræki þessa góðu menn til að læðast um nótt með þetta hjartans mál sitt, þeir hlytu að eiga margan betri kost, ef þeir af einlægni vildu kanna hug Flateyringa til þessa máls. Einn flutningsmanna, Guðvarð- ur Kjartansson, sögumaður Þjóð- viljans, þótti fljótlega nóg um mál þetta rætt, því hann flutti aðra tillögu um að mælendaskrá um hans fyrri tillögu skyldi fyrirvara- laust lokað. Að sjálfsögðu tók fundarstjórinn ekki mark á þess- ari sérstæðu gamansemi, en leyfði þeim sem það vildu að tjá sig um málið. Eflaust er þetta tilefni að frásögn Þjóðviljans en þar stend- ur „ ... marg braut fundarstjórinn fundarsköp ..." Þegar gengið var til atkvæða um tillöguna var kl. 1.10, voru þá liðnar 45 mínútur frá því hún var flutt. Frásögn Þjóð- viljans er því furðu nákvæm, en þar stendur „... tóku þeir íhaldsmenn það til bragðs að halda uppi málþófi í eina og hálfa klukkustund". Ekki sér Þjóðvilj- inn ástæðu til að greina frá at- kvæðagreiðslunni. Þegar hin „ópólitíska" tillaga var flutt voru aðeins 26 eftir í fundarhúsinu. Aðrir voru farnir heim. Atkvæði féllu þannig að já sögðu 13, nei sögðu 10 en 3 greiddu ekki at- kvæði, þannig vannst þessi mikli sigur. Einhverjum er það ef til vill ráðgáta hvernig svo nauða ómerkileg uppákoma á nætur- fundi á Flateyri, má verða að stór- frétt í Þjóðviljanum, er því vert að hafa í huga að sumum virðist nú vera flest hey í baráttunni fyrir kremlarfriði. Einar Oddur Kristjánsson er fram- kvæmdastjóri Hjálms hf. á Flat- eyri. INNLENT Egilsstaðir: Karlakór Fljótsdals- héraðs vaknar af áralöngum dvala KgilsNtöAum, 27. desember. KARLAKÓR Fljótsdalshéraðs hefur nú verið endurvakinn, en hann starfaði af þrótti hér á árum áður, eða 1960—68 og hélt víða tónleika á Austurlandi. Nokkrir fyrrum kórfélagar komu saman í sumar og ákváðu að freista þess að endurvekja kórinn. Tókst það með þeim ágætum að æfingar hófust á haustmánuðum og er æft einu sinni í viku í Egilsstaðakirkju. Söngstjóri hefur verið ráð- inn Arni ísleifsson, og eru söngmenn nú 33 talsins og enn vantar söngmenn í ákveðnar raddir, s.s. tenór, að sögn formanns kórsins, Jónasar Magnússonar, bónda á Uppsöl- um í Eiðaþinghá. Jónas sagði kórinn upphaf- lega hafa verið stofnaðan upp úr hátíðahöldum á Eiðum vegna 75 ára afmælis Alþýðu- skólans 1958 — en starfi kórs- ins hafi verið sjálfhætt um 1968 er söngstjórar fluttu burtu. Árni ísleifsson, söngstjóri, kvað stefnt að tónleikum að vori og væri æfingaprógramm- ið hefðbundið. Hann kvað það ómetanlega hjálp að hann nyti aðstoðar David Knowles, tón- listarmanns, við raddþjálfun kórfélaga. Eins og áður sagði er Jónas Magnússon formaður stjórnar Karlakórs Fljótsdalshéraðs — en með honum í stjórn eru: Björn Pálsson, Egilsstöðum og Björn Hólm, Stangarási. — Ólafur. Hér standa verðlaunahafarnir við teikningu að tillögu sinni. F.v. Hilmar Þór Björnsson, arkitekt, og Finnur Björgvinsson, arkitekt. Myndin er tekin að Hallveigarstíg 1, en þar stendur nú yfir sýning á þeim tillögum sem bárust. Ljósm. Mbl./Július. Húsnæðisstofnun ríkisins: Úrslit tilkynnt í hug- myndasamkeppni Húsnæðisstofnun ríkisins efndi á síðast liðnu ári til hugmyndasam- keppni þar sem leitað var eftir nýj- um hugmyndum um vinnu- og snyrtirými í íbúðum. Hafa úrslitin í samkeppninni nú verið kynnt, en alls bárust dómnefndinni 7 tillög- ur. Hlaut tillaga arkitektanna Finns Björgvinssonar og Hilmars Þórs Björnssonar fyrstu verðlaun, að upphæð kr. 60.000, fyrir frum- legar hugmyndir og skemmtilega framsetningu. Verðlaunin afhenti Guðni Pálsson arkitekt sem var for- maður dómnefndar. Kom það fram í máli hans að borist hefðu mun færri tillögur en vonast var til. Sagði hann að mikil vinna hefði verið lögð í allar tillögurn- ar, en með misjöfnum árangri og að það hefði valdið vonbrigðum dómnefndar að í engri tillögunni var tekið tillit til fatlaðra. Við mat á tillögunum lagði dóm- nefndin megináherslu á frum- leika, formfegurð og hugmynda- ríkt efnisval. Aðrar tillögur sem hlutu verð- laun voru frá Kjartani Á. Kjart- anssyni húsgagnaarkitekt, en hann hlaut kr. 35.000 fyrir skemmtilegar hugmyndir um uppdeilingu á eldhúsi og snyrti- rými. Þriðju verðlaun hlaut til- laga arkitektanna Helgu Gunn- arsdóttur, Jóns Þórissonar og Ragnheiðar Ragnarsdóttur, kr. 20.000 fyrir vel hannað vinnu- rými. Þá keypti Húsnæðisstofn- un ríkisins tillögu Guðjóns Magnússonar arkitektnema, en ráðgjöf við tillögu hans veittu arkitektarnir Jörg Kerchlango og Erik Willesen. Að lokinni verðlaunaafhend- ingu óskaði Sigurður E. Guð- mundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins verðlaunahöfunum til hamingju og þakkaði þátttökuna. Sagði hann að hugmyndasamkeppni sem þessi væri nauðsynleg og kvaðst vona að fleiri slíkar yrðu haldnar í framtíðinni. í húsa- kynnum Byggingarþjónustunnar á Hallveigarstíg 1 stendur nú yf- ir sýning á tillögunum sem bár- ust í samkeppninni. Árni ísleifsson, söngstjóri, og Jónas Magnússon, formaöur Karlakórs Fljótsdalshéraðs, glugga í nótur. Samningafund- ur með BHM og ríkisvaldinu Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar með samninganefnd Banda- lags háskólamanna og fulltrúum ríkisvaldsins, mánudaginn 9. janúar klukkan 10.00. Þetta er fyrsti fund- urinn með deiluaðilum eftir að deil- unni var vísað til sáttasemjara. Þá eru einnig væntanlegir fund- ir á næstunni með Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og ríkisvaldinu og Félagi bókagerð- armanna og Félagi prentiðnaðar- ins. Sótt um lóð fyrir gistiheimili SÓTT hefur verið um lóð undir gisti- heimili á horni Bólstaðarhlíðar og Stakkahlíðar, en erindið sendi Viðar Guðjohnsen til borgarráðs. í borgarráði var málið tekið fyrir og samþykkt þar að vísa því til umsagnar Kennaraháskóla Is- lands, þar sem lóð sú sem um er sótt liggur við skólann. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.