Morgunblaðið - 04.01.1984, Page 21

Morgunblaðið - 04.01.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 Náttfari sf. keypti Náttfara 776 frá Ytra-Dalsgerði á 500 þús. kr. Ljósm:: Einar E. Gíslason. StóAhesturinn Náttfari frá Ytra-Dalsgerði { Eyjafirði, hér setinn af einum hinna nýju eigenda, Albert Jónssyni. Náttfari var í eigu Jakobínu Sigur- vinsdóttur á Akureyri til ársins 1974, er Sigurbjörn Eiríksson keypti hestinn. NÝTT sameignarfélag, Náttfari sf„ er nú oröinn eigandi stóðhests- ins Náttfara 776 frá Ytra-Dalsgerði í Eyjafirði. Sigurbjörn Eiríksson á Stóra-Hofi og veitingamaður í Klúbbnum í Reykjavík, er einn eigenda Náttfara sf. með 20% eignaraðild, en hinir nýju eigendur eru Jón Sigurösson bóndi í Skolla- gróf í Hrunamannahreppi, Gunnar M. Friðþjófsson á Selfossi, Símon Grétarsson á Selfossi og hjónin Freyja Ililmarsdóttir og Albert Jónsson á Stóra-Hofi. Kaupverð hestsins verður ekki gefið upp að því er Jón Sigurðsson í Skollagróf sagði í samtali við Morgunblaðið í g*r, en blaðið hefur fyrir því áreið- anlegar heimildir að Náttfari hafi verið metinn á 500 þúsund krónur og Sigurbirni hafi því verið greidd- ar 400 þúsund krónur við stofnun Náttfara sf. Jón Sigurðsson sagði í gær, að Náttfari 776 væri að sínu áliti einn allra fremsti stóðhestur landsins nú. „Ég á undan hestin- um ein 15 tryppi á öðrum vetri," sagði Jón, „og þau lofa góðu og blandast mjög vel í min hross, sem raunar eru skyld Náttfara, flestar mínar hryssur eru undan Neista og Neistasonum." Jón sagði menn staðráðna í að sýna Náttfara sem fyrst með af- kvæmum, á fjórðungsmóti á Hellu í sumar, ef unnt reyndist að koma því við. Náttfari verður hafður í girðingu í Hruna- mannahreppi fyrri hluta næsta sumars en síðari hluta sumars hefur Hrossaræktarsamband Suðurlands leigt hestinn. Jón Sigurðsson sagði Náttfara vænt- anlega verða sinn helsta undan- eldishest á næstunni, hann kæmi í stað Neista 587 frá Skollagróf, heiðursverðlaunahests Jóns, sem felldur var í sumar og heygður í Svignaskarði í Borgarfirði. Næsta sumar kvaðst Jón þó nota með stóðhestinn Gust 923, hálf- bróður Náttfara, að nokkru leyti. Svo sem sagði í Morgunblað- inu í gær, voru Sigurbirni Ei- ríkssyni nýlega boðnar 800 þús- und krónur í Náttfara af erlend- um hrossaræktarmönnum. Því tilboði hafnaði hann, en það hefði þýtt um 640 þúsund krónur til hans, þegar búið væri að greiða útflutningsskatt til Bún- aðarfélagsins. — Nýlega seldi Sigurbjörn einnig annan stóð- hest sinn, föður Náttfara, Sörla 651 frá Sauðárkróki. Kaupandi var Hrossaræktarsamband Skagfirðinga, og kaupverðið mun hafa verið um 250 þúsund krónur, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. — Verðið er lægra en verðið á Náttfara vegna aldursmunar; Sörli verður tvítugur í vor en Náttfari er að- eins 13 vetra. 21 Skagafjörður: Ótíð og snjóþyngsli Bjp á Höfðaströnd 3. janúar. NOKKUR ótíð og snjór tölu verður er um allan Skagafjörð og víða erfitt eða ófært á vegum. Árið byrjar því eins og stundum áður með harðncskjutíðarfari. Togarar, sem legið hafa inni - í höfn um jól og áramót, eru nú að fara til veiða og verður því nokkuð uppihald á at- vinnulífi í frystihúsinu. Á Hofsósi í sumar var mjög mikil vinna í sambandi við malbikun á götum og einnig mikið unnið við hafnarbætur. Enn vantar þó mikið á að þessi mál séu komin í það horf, sem verða á. — Þetta féll út úr ára- mótayfirliti mínu á dögunum, en bætist nú hér við. Við smábátaflotann á Hofs- ósi hefur bæst einn góður bát- ur og er skipstjóri hans Uni Pétursson, kunnur aflamaður í Skagafirði. — Björn í Bæ. Þú svalar lestrarjxirf dagsins ásíöum Moggans! Sovéski áróðursfiilltrúinn í Reykjavík: Pentagon vill stýri- flaugar hvað sem Geir Hallgrímsson segir E. BARBUKHO, forstöðumaður áróðursskrifstofu sovéska sendi- ráðsins í Reykjavík, APN-Novosti, hefur með skömmu millibili lýst því í tvcimur greinum í Rauðu stjörnunni, málgagni sovéska hers- ins, að skýrsla á vegum einkaaðila í Bandaríkjunum um hugsanlega framleiðslu á stýriflaugum sem nota má til að granda skipum frá stöðvum í landi hafi haft „áhrif eins og varpað hefði verið sprengju á íslandi" og vakið hér mikla „reiðiöldu". I báðum greinunum hefur E. Barbukho dregið taum Al- þýðubandalagsins, vitnað til Þjóð- viljans og dregið í efa að marka megi orð Geirs Hallgrímssonar, utanríkisráðherra. Tildrög þessara skrifa frá ís- landi í Rauðu stjörnuna má rekja til sjónvarpsfréttar sem flutt var 13. nóvember, þar sem vísað var til breskra blaða og skýrslu á vegum Science Appli- cations Inc. í Bandaríkjunum sem samin var fyrir forstjóra kjarnorkuvarnadeildar í varnar- málaráðuneytinu í Washington. Hinn 18. nóvember ritaði E. Barbukho fyrri grein sína um málið í Rauðu stjörnuna og tók þar undir með Svavari Gests- syni, formanni Alþýðubanda- lagsins, sem flutti ræðu um mál- ið utan dagskrár á Alþingi 14. nóvember. Hinn 18. desember birtist grein um þessa skýrslu Science 120 þúsund — ekki 120 milljónir í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær, sem birtist á bls. 3, segir frá styrk- veitingu borgarráðs til skíðakennslu. í fréttinni kemur fram að um sé að ræða styrk að upphæð 120 þús- und krónur, en í fyrirsögn segir að um 120 milljóna króna styrk sé að ræða. Það er ritvilla, þar sem upp- hæð styrksins er 120 þúsund. Er beðist velvirðingar á þessu. Applications Inc. í breska blað- inu Sunday Times og varð hún tilefni forsíðufréttar í Þjóðvilj- anum 20. desember. Þar segir meðal annars að grein breska blaðsins hafi „staðfest að Geir Hallgrímsson hafði rangt fyrir sér þegar hann hafði það eftir Marshall Brement, sendiherra Bandaríkjanna, í umræðum á Alþingi 14. nóvember að skýrsl- an „væri algjörlega marklaus". Áætlanir sem eru til opinberrar meðferðar í bandaríska varn- armálaráðuneytinu eru væntan- lega ekki marklausar." Þessi orð Þjóðviljans verða kveikjan að grein sem E. Barb- ukho ritaði í Rauðu stjörnuna 27. desember en sovéski áróð- ursfulltrúinn kemst þannig að orði í þýðingu starfsmanna sov- éska sendiráðsins í Reykjavík: „En samt flýtti Geir Hallgríms- son, utanríkisráðherra íslands og fulltrúi íslenskra íhalds- manna, sem er kunnur fyrir að vera hlynntur bandarískum aðil- um, sér að róa almenning með því að það væri langt frá því að allar áætlanir Pentagon væru framkvæmdar... Það kom í ljós að þrátt fyrir yfirlýsingar Geirs Hallgrímssonar og M. Brement er verið að ræða áðurnefnda skýrslu opinberlega í varnar- málaráðuneyti Bandaríkjanna." Bæði 18. nóvember og 27. des- ember leggur E. Barbukho á það megináherslu að Bandaríkja- menn séu í raun með áform um að koma stýriflaugum fyrir á ís- landi og annars staðar án þess að ræða þær aðgerðir við banda- menn sína. VZterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! Jólaskemmtun sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík var haldin sunnudaginn 18. desember í Valhöll við Háaleitisbraut og var skemmtunin fjölsótt, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Árna Sigfússyni, framkvæmdastjóra fulltrúa- ráðs. Voru ýmis atriði til skemmtunar, m.a. upplestur, söngur og spil, brúðuleikhús var á staðnum og jólasveinar skemmtu. Var skemmtunin haldin í þremur sölum og var fjölsótt, eins og áður sagði. Meðfylgjandi mynd var tekin á skemmtuninni. jazz spor/ð HVERFISGATA 105 SÍMI:13880 GLEÐILEGT NÝTT ÁR KONUR ATH. VEGNA GÍFURLEGRAR AÐSÓKNAR HÖFUM VIÐ OPNAÐ FLEIRI MORGUN OG EFTIRMIÐDAGSTÍMA í MÚSÍK- LEIKFIMI VIÐ BJÓÐUM UPP Á MISERFIÐA TÍMA FYRIR KONUR Á ÖLLUM ALDIRI INNRITUN I SIMA 13880 FRÁ KL. 10-17 FRAMHALDSNEMENDUR MUNIÐ SKÍRTEINI AFHEND ÁMORGUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.