Morgunblaðið - 04.01.1984, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.01.1984, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 Minning: jr Gunnar Arnason framkvœmdastjóri Fæddur 4. júní 1912 Dáinn 26. desember 1983 Gunnar Árnason lést annan dag jóla. Hann var fæddur í Reykjavík 4. júní 1912. Foreldrar hans voru Árni Eiríksson kaupmaður og Vilborg Runólfsdóttir, síðari kona hans. Árni var þekktur fyrir leik- listarstörf sín; hann var einn fremstur leikari landsins á sinni tíð og burðarás Leikfélags Reykjavík- ur meðan hans naut við. Hann féll frá 1917 langt um aldur fram. Vilborg var skaftfellskrar ætt- ar, merkiskona á alla lund, búin mörgum kostum góðum, en hafði sig lítt í frammi. Þegar hún missti mann sinn frá fjórum börnum ungum og tveimur stjúpbörnum þá hélt hún heimilinu saman og kom bömum sínum til manns óstudd og ein, enda til engra að leita þá, einstæðri móður. Hún dó í hárri elli og naut þeirrar gleði að sjá afkomendur sína vaxa úr grasi og verða efnisfólk. Gunnar kvæntist Salmaníu Jó- hönnu Jóhannesdóttur árið 1937. Þau hneigðu ung saman hugi. Hún varð honum stoð og sterkust er mest reyndi á nú síðustu árin þeg- ar heilsu hans tók að hraka. Börn- um sínum og barnabörnum var hún tryggt athvarf og þá helst er erfiðleikar steðjuðu að. Varð þeim fimm barna auðið og eru þau talin eftir aldri: Styrmir, ritstjóri, kvæntur Sigrúnu Finnbogadóttur. Hjördís, B.A., kennari. Gunnar, stjórnmálafræðingur, kvæntur Unni Úlfarsdóttur. Vilborg Sigríð- ur, hjúkrunarfræðingur, gift Har- aldi Friðrikssyni. Margrét, starfar í heilbrigðisráðuneytinu. Eftir nám í Verslunarskóla lagði Gunnar stund á verslunar- störf, vann fyrst í verslun Björns Kristjánssonar, en þar hafði faðir hans unnið þar til hann stofnaði eigið fyrirtæki. Hann fékkst við kaupsýslu æ síðan í einhverri mynd, lengst af þó við iðnaðar- framleiðslu. Hann hafði þá trú, að íslenskur iðnaður gæti blómgast ef aldrei væri hvikað frá því marki að framleiða vandaða vöru, hún auglýsti sig sjálf og ynni sér markað. Væri slegið af ströngustu kröfum yrði framleiðslan léleg. Slæmri vöru mætti prakka upp á menn einu sinni, en aldrei aftur og væri lítil framtíð í því. Sjálfur þyrfti iðnaðurinn að ryðja sér braut án þess að til kæmi ríkis- forsjá eða dauð hönd miðstýr- ingar. Gunnar sá snemma, að húsgögn voru munaður á þessu landi í þann tíð. Það þurfti að teikna þau fyrir hvern einstakan og handsmíða hvern hlut. Það þýddi, að allur al- menningur hlaut að verða afskipt- ur. Hann hafði aflað sér vitneskju um fjöldaframleiðslu húsgagna í Bandaríkjunum og að þau voru þar á markaði á verði, sem þorri fólks réði við. Hann fékk í lið með sér einn fremsta húsgagnasmið landsins, Max Jeppesen, og fóru þeir vestur um haf í stríðslok til þess að kynnast af eigin raun þessum verksháttum. Þegar heim kom, hugðust þeir taka til við framleiðslu af þessu tagi, og höfðu fengið vilyrði fyrir góðviði frá Mið-Ameríku á lágu verði. En þá tók ríkisforsjónin af þeim ráðin. Þeir höfðu ekki fengist við inn- flutningsverslun áður og höfðu engan „kvóta" og fengu þá að sjálfsögðu ekki leyfi til innflutn- ings þó allt byðu þeir hagstæðara en aðrir. Var Gunnar þar eins og oftar á undan sínum tíma. „Fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá.“ Hann byrjaði að framleiða pappaöskjur í félagi við þá Eggert P. Briem bóksala og Gunnar Ein- arsson, prentsmiðjustjóra ísafold- ar, en bætti síðan við skrifstofu- vörum af ýmsu tagi og bók- bands. Stofnuðu þeir fyrirtækið Öskju hf. 1941. Var þetta braut- ryðjendastarf á þessu sviði, en Kassagerð Reykjavíkur hafði áður byrjað á framleiðslu pappakassa undir fisk og aðrar iðnaðarvörur. Öll var framleiðslan í hæsta gæðaflokki en honum varð þungt undir fæti og seldi fyrirtækið. Gunnar Árnason var fjölgáfað- ur maður, margfróður og gagn- menntaður. Ég hefi engum manni kynnst, sem hafði jafn djúpstæða þekkingu á jafnmörgum mála- flokkum og hann. Það var sama hvar borið var niður, hann var alls staðar heima. Þegar hann fékk hug á einhverju, varð hann sér úti um þau gögn, sem skiptu máli, safnaði að sér bókum og tímarit- um og sökkti sér niður í þau þar til hann hafði komist til botns. Strax í æsku var hann þessu marki brenndur, hann las oft fram undir morgun, en gætti þess að lesa ekki meira í kennslubókum en þurfti til þess að skila prófi. Lestrarefni hans á þeim árum voru öndvegis- verk heimsbókmenntanna, auk heimspekirita og sagnfræði, ekki síst stjórnmálafræði. Á þessum árum samdi hann Socialismann, verk sem var gefið út í tveimur heftum. Ég þekkti engan annan á þeim tíma, sem hafði lesið Das Kapital eftir Marx spjaldanna á milli, enda þarf nær ofurmannlegt þrek til þess að lesa þá bók til enda, jafn tyrfin og hún er aflestr- ar. Má þá nærri geta hver leikur það hefir verið honum að tileinka sér það, sem læsilegt var. Hann varði um þetta leyti hverjum eyri, sem hann gat við sig losað til bókakaupa, ekki til þess að raða í hillur, heldur til þess að lesa. Það var með ólíkindum hve mikið lestrarefni hann komst yfir. Hann gat tekið undir með dr. Jóni: „Kyrrlát önn skal klungrin erja kafa til alls þó djúpt sé að grafa." Hann hefði, tel ég, unað sér við rannsóknastörf og sómt sér þar vel og þó var hann maður félags- lyndur og athafnasamur og sat aldrei auðum höndum. Ekki svo að skilja, að rúm hans hafi ekki verið vel skipað í athafnalífinu, hann hefði aldrei getað gert neinn hlut illa. Hann var fagurkeri. En ég trúi, að hann hafi skort þá hörku, sem þarf til þess að ryðja öðrum frá í miskunnarlausu kapphlaupi um auð og völd. Það ræður að lík- um, að hann var aldrei fjáður maður, en hann var höfðingi í lund og ör á fé hvort heldur var til þess að gleðja aðra eða styðja við bakið á þeim. Árið 1965 réðst hann til starfa hjá Kassagerð Reykjavíkur, sem þá var að stíga fyrstu sporin í íitprentun. Sökkti hann sér niður í það verkefni af þeirri elju, sem var honum eiginleg, og var hann orðinn fróðastur maður á landi hér um allt er laut að litprentun, að mér er tjáð af nákunnugum. Var þá sama hvort um var að ræða fræðilegan grundvöll eða tæknilega framkvæmd. Átti hann ríkastan þátt í undirbúningi þess árangurs, sem náðst hefir hjá fyrirtækinu í þessari grein. Hann gjörþekkti sögu prentiðnaðarins og vissi um alla vélaframleiðslu, sem að prentverki laut, hvar sem var í heiminum. Á iðnsýningum í þessari grein var hann óþreytandi að sjá allt og skoða og voru samstarfsmenn hans og ferðafélagar oft uppgefnir löngu áður en hann hafði kynnt sér allt niður í grunn. Þessi fróðleikssöfnun kostaði mikla vinnu og hélt hann háttum sínum með lestur fram á síðkvöld. t Maöurinn minn, GUNNLAUGUR HOLM, Álfhólsvegí 61, lést í Landakotsspítala 3. janúar. Fyrir hönd barna og tengdabarna, Jóhanna Jónsdóttir. t Sonur okkar og bróöir, KRISTINN SVEINSSON, Vallarbraut 21, Seltjarnarnesi, lóst af slysförum 31. desember. Jaröarförin auglýst síöar. Sveinn Kristinsson, Elín Snorradóttir og systkini hins látna. t Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóöir, ESTELLA DAGMAR BJÖRNSSON, andaöist í sjúkrahúsi 2. janúar. Júlíus Björnsson, Ottó J. Björnsson, Þóra Eyjalín Gísladóttir, Ellen Júlíusdóttir, Þóra Júlíusdóttir. t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, NÓI MATTHÍASSON, Stakkholti 3, lést í Landspítalanum aö morgni 31. desember. Elín Nóadóttir, Ásgeir Sigurösson, Matthías Nóason, Vigdís Hansen, Margrét Nóadóttir, Pierre Granquist og barnabörn. t Eiginkona mín, MAGNEA VIGFÚSDÓTTIR, Borgarholtsbraut 44, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum þriöjudaginn 3. janúar. Stefán Björnsson. t Eiginmaður minn og faöir okkar, VILHJÁLMUR ÞORSTEINSSON, Reynimel 40, lést aö heimili sínu hinn 3. þ.m. Kristín M. Gísladóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson, Sigríöur Vilhjálmsdóttir, Svanlaug Vilhjálmsdóttir. t Eiginmaður minn, JÓNAS S. JÓNASSON, kaupmaöur, lést að heimili sínu, Amtmannsstíg 5, aðfaranótt 3. janúar. Ásta G. Pétursdóttir. Lokað Vegna útfarar GUNNARS ÁRNASONAR, fram- kvæmdastjóra, veröur verksmiöja vor lokuö eftir há- degi í dag, 4. janúar. Kassagerö Reykjavíkur. Þetta verk átti vel við hann og aldrei gætti hann hófs um vinn- una. Eigendur fyrirtækisins mátu störf hans mikils og tókst náin vinátta með þeim og honum. Gunnar var veglyndur maður, hógvær, óáleitinn og fáskiptinn um annarra hagi. En þyrfti maður hans hjálpar, kom enginn að tóm- um kofum. Hann vildi öllum vel og lagði sig í líma, hugsunin var skýr og þekkingin djúpstæð. Það var gott að leita til hans. Hann var jafnlyndur og ætíð léttur í máli og seinþreyttur til vandræða, svo seinþreyttur, að hann kaus heldur að láta ganga á hlut sinn en eiga í illdeilum. Brá honum þar til móður sinnar, sem allt vildi til betri vegar færa. Hann var vel lát- inn af öllum og því betur, sem menn áttu við hann meiri skipti. Lífsreyndur gáfumaður sagði við mig ungan, að menn ættu að kvænast systrum vina sinna, og þó þau orð hafi ekki ráðið mægðum mínum við Gunnar, held ég að þau séu sönn. Með Gunnari Árnasyni er fall- inn mætur maður, ein af grunn- stoðum þjóðfélagsins, maður sem vann landi sínu og þjóð meira gagn í hljóðlátri önn en ýmsir, sem berast á. Ég þakka náin kynni í hálfa öld, sem aldrei bar á skugga. Ég sakna hans. Bjarni Jónsson Við andlát Gunnars Árnasonar er mér bæði ljúft og skylt að minnast nokkrum orðum sam- starfs okkar er hófst fyrir hart- nær tveimur áratugum. Gunnar réðst til starfa hjá Kassagerð Reykjavíkur árið 1965 sem aðstoðarmaður minn. Starf Gunnars fólst einkum í samskipt- um við erlenda viðskiptaaðila, söfnun og úrvinnslu tæknilegra upplýsinga og ráðgjöf um fram- leiðsluaðferðir og kaup véla og tækja. Fljótlega varð samvinna okkar Gunnars mjög náin enda var áhugi hans á viðfangsefnunum og starfsgleðin með ólíkindum. Þá eins og nú var tíminn naumt skammtaður þeim er nóg hefur að starfa og oftar en ekki var setið áfram að loknum venjulegum vinnudegi og brýnustu verkefni ígrunduð. Þar var líka af nægu að taka. Þegar Gunnar kom til starfa hjá Kassagerðinni var nýhafin mikil uppbygging á prentdeild fyrirtæk- isins. Þar féll svo sannarlega sam- an þekking og starfssvið Gunnars. Eftir á að hyggja er vart hægt að ofmeta hlut Gunnars í þeirri vinnu sem þar lá að baki. Allt framundir síðasta dag var Gunnar augu og eyru fyrirtækisins gagn- vart hinni hröðu tækniþróun á þessu sviði. Að öðrum ólöstuðum skal fullyrt að Gunnar hafði meiri yfirsýn og þekkingu á því er verið hefur að gerast á hinum ýmsu sviðum prenttækninnar á undan- förnum áratugum en aðrir menn hérlendis. En störf Gunnars voru ekki af- mörkuð við ákveðinn hluta fram- leiðslunnar. Sem tæknilegur framkvæmdastjóri hjá fyrirtæk- inu fékkst hann við hin margvís- legustu verkefni. Við öll þau störf var hans aðalsmerki brennandi áhugi og eljusemi en ekki síst að styðja við samstarfsmenn sína og deila með þeim öllu því er þeim og fyrirtækinu mátti verða til fram- dráttar. Það er ef til vill sá þáttur í fari Gunnars, sem okkur vinum og samstarfsmönnum hans er hug- stæðastur nú. Geðprýði hans og óeigingirni ávann sér virðingu okkar allra. Ég hygg að ég mæli ekki um of með að segja að hann hafi verið mikils metinn og virtur af öllu starfsfólki og viðskiptavin- um Kassagerðarinnar, eada glæsi- menni bæði í sjón og raun. Gunnar var að öðrum ólöstuð- um minn kærasti og eftirminni- legasti samstarfsmaður. Hans miklu hollustu við mig og fyrir- tækið vil ég þakka honum af al- hug. Á þessari stundu hvílir hugur okkar hjá ástvinum hans. Ég óska þeim öllum Guðs blessunar. Agnar Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.