Morgunblaðið - 04.01.1984, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984
29
fclk í
fréttum
Karólína
komin
í örugga
höfn
Jagger
og Jerry
í sól
og sjó
+ Rokksöngvarinn Mick Jagg-
er og unnusta hans, Jerry Hall,
hafa að undanförnu dvalist á
Barbados í Karíbahafi og látið
sér líða vel í sólinni og sjónum.
Jerry á brátt von á sér, er kom-
in sjö mánuði á leið, en þau eru
enn á báðum áttum um hvort
þau muni giftast. Það eina sem
er nokkuð víst er að barnið
kemur í febrúar og þess vegna
hafa þau látið hendur standa
fram úr ermum við að endur-
bæta höllina sína í Frakklandi.
Ekki svo að skilja að þau
standi í því sjálf, heldur hafa
þau 20 smiði í þjónustu sinni
og áætla að fara með 10—20
milljónir ísl. kr. í breytingarn-
ar.
„Endurbæturnar eru svo
gagngerar," sagði verktakinn,
„að þegar þau hjónaleysin voru
hér síðast urðu þau að sofa í
hallarkapellunni. Annars stað-
ar var allt á rúi og stúi.“
beðið páfa um skilnað og fyrir 15
mánuðum lofaði hann að hraða
málinu eftir föngum. Það var eftir
að Grace furstaynja hafði látist í
bílslysi en skömmu áður hafði hún
fengið einkaáheyrn hjá páfa og
beðið hann að leggja inn gott orð
fyrir Karólínu. „Ég vil gjarna
verða við sfðustu ósk hennar,"
sagði páfi.
Síðan hefur þó ekkert gerst en
þegar Karólína sagði föður sínum
að hún vildi giftast hafði hann
samband við páfagarð og var þá
sagt, að Karólína gæti gifst ef
vígslan yrði borgaraleg og ekki
með neinu tilstandi.
Stephano, eiginmaður Karólínu,
lagði stund á hagfræði og auglýs-
ingakúnst við háskólann í Mílanó
en lauk aldrei neinum prófum.
Þess í stað setti hann á stofn
ráðgjafarfyrirtæki, hófst handa
við fasteignasölu og keypti helm-
inginn í veitingastaðnum Cafe
Roma, sem fína fólkið á Norður-
Ítalíu sækir stíft.
Þegar Stephano var kynntur
fyrir Karólínu í fyrravor voru þau
hálftrúlofuð. Hún Roberto Ross-
ellini, syni Ingrid Bergman, og
hann ítalskri fegurðardís, Pinn-
ucia Macheda að nafni.
Karólína og Stephano urðu
fljótt góðir vinir en kynntust þó
fyrst fyrir alvöru þegar Karólína
fór í fússi til Korsíku eftir að Rob-
erto hafði brugðist henni. Eftir
Korsíkuævintýrið sleit Stephano
sambandinu við Pinnucia og hefur
hún síðan ekkert verið að vanda
honum kveðjurnar.
„Hann kastaði mér frá sér á
auðmýkjandi hátt,“ sagði hún í
viðtali við ítalskt blað.
+ Eins og kunnugt er af fréttum er
Karólína prinsessa af Mónakó geng-
in í hjónaband með ítölskum auðkýf-
ingssyni, Stephano Casiraghi að
nafni, og er þetta annað hjónaband
hennar því að hún var áður gift
franska glaumgosanum Philipe Jun-
ot. Hjónavígslan að þessu sinni fór
fram í furstahöllinni í Mónakó og
var hvorki með pomp né prakt af
þeirri ástæðu, að kirkjan hefur ekki
enn lagt blessun sína yfir skilnað
Karólínu og Philipe.
Karólína og Philipe hafa bæði
COSPER
PIK
•\U|.
COSPtR
»10
— Og hvaða afsökun hefurðu nú fyrir að koma seint
heim?
Enskir
samtalstímar
Enskir úrvalskennarar.
Málaskólinn Mímir
15 s. 10004 og 11109 kl. 1—5 e.h.
J.H. Parket
auglýsir:
Er parketíd
orðið ljótt?
Pússum upp og lökkum
PARKET
Einnig pússum við
upp og lökkum
hverskyns viðargölf.
Uppl. í síma 12114 eftir
kl. 2 á daginn.
Ballett
Kennsla hefst á ný mánu-
daginn 9. janúar
Innritun nýrra nemenda og
allar upplýsingar í síma
15359 kl. 13—19, dag-
lega.
Nemendur frá fyrra nám-
skeiði komi á sama tíma og
áöur.
Ballettskóli
Guðbjargar Björgvins.
íþróttahúsinu Seltjarnarnesi, Litla sal.
DaSIU
öS
Kennslai
hefst
mánudaginn
9. janúar
JAZZ-MODERN —
CLASSICAL TECHNIQUE —
PASDEDEUX-SHOW
Endurnýjun skírteina í Suðurveri
laugardaginn 7. janúar. ^
Framhaldsflokkur kl. 2. Byrjendur frá í haust kl. 4. Nýir nem
endur kl. 5.
Mætið meö stundaskrá.
Strákar ath.
• Pas de Deux-tímar
hefjast aftur og eru á laugardögum. Fram-
hald og byrjendur
Innritun í síma
40947.