Morgunblaðið - 04.01.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984
33
r*r/MZLfk “
M N | Í 'i { "
t H 1115
r: T. t
^lVakandi
Æ SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGi
1
„Lengst af var aðstaða til fþróttaiðkana innanhúss léleg í Keflavík. En þegar íþróttahúsið við Sunnubraut var
tekið í notkun 1980, færðist fjör í starfið.“
Hestamannaféiagið Máni var
stofnað í Keflavík 6. des. 1965.
Stofnfélagar voru um 40. Fyrsti
form. var Hilmar Jónsson,
starfsmaður Kaupfélags Suður-
nesja. Félagið hélt fyrstu kapp-
reiðar sínar í sept. 1966, í As-
garðslandi, skammt frá Garð-
skagavita.
Framan af var aðstaða hesta-
eigenda erfið. Hestana varð að
geyma í skúrum hingað og þang-
að og samastað höfðu félags-
menn engan. En þegar nýtt
skipulag var gert af byggð á
Hólmsbergi skömmu eftir 1970,
var félaginu úthlutað svæði við
vegamót þjóðvegar til Garðs og
Sandgerðis. Þar heitir nú Mána-
grund. Sú ráðstöfun var í raun
mjög skynsamleg, þar sem fé-
lagsmenn Mána ræktuðu á
skömmum tíma upp mikið tún úr
örfoka melum og reistu sér
hesthús. Um leið var heft að
hluta hið mikla moldrok sem oft
gerði Keflvíkingum lífið leitt,
einkum á vetrum í norðlægum
áttum. (Faxi, jan. og sept. 1966.)
íþróttafélag Keflavíkur var
stofnað 30. sept. 1967. Að stofn-
un þess stóðu áhugamenn um
frjálsar íþróttir. Knattspyrna
var þá sú íþrótt sem mest hafði
verið lögð stund á í bænum. í
des. 1980 voru félagar 223. Félag-
ið æfir nú körfubolta og frjálsar
íþróttir. (Faxi, okt. 1972.)
Skákfélag Keflavíkur var
endurvakið í jan. 1972, eftir 9
ára svefn. Vegna heimsmeist-
araeinvígis þeirra Spasskys og
Fischers óx skákáhugi verulega
hérlendis. Stofnendur voru 14.
Fyrsti formaður var Ólafur
Kjartansson. Félagið hefur
starfað af krafti sl. ár og innan
þess eru ýmsir ágætir skák-
menn. (Faxi, nóv,—des. 1973.)
Badmintonfélag Keflavíkur var
stofnað 6. nóv. 1980. Lengst af
var aðstaða til íþróttaiðkana
innanhúss léleg í Keflavík. En
þegar íþróttahúsið við Sunnu-
braut var tekið í notkun 1980,
færðist fjör í starfið. Þremur
vikum eftir stofnun félagsins
voru félagsmenn þess orðnir 110.
Formaður er Hjörtur Zakarías-
son. Félagið hefur nú æfingar
tvisvar i viku í nýja íþróttahús-
inu og er öllum opið, ungum sem
öldnum. (Víkurfréttir, 20. nóv.
1980.)
Skíöafélag Suöurnesja var
stofnað 9. nóv. 1981. Vegna að-
stæðna hefur vetraríþróttum lít-
ið verið sinnt á Suðurnesjum og
skíði lítið komið við sögu, en
skautar alltaf verið vinsælir.
Skautafélag hefur þó aldrei
starfað í Keflavík.
Fyrr á þessari öld var vinsæll
skautastaður í kvosinni þar sem
Skrúðgarðurinn er nú. Einnig
var farið upp á „Vötn“, sem svo
eru kölluð, en þau eru skammt
ofan við Keflavík. Þar var farið á
skauta allt fram yfir 1970. Aðal-
lega voru það börn og unglingar.
Eiginlega heita „Vötnin" Rósa-
selsvötn eftir gömlu seli Leiru-
bænda, sem þar var áður en
byggð hófst í Keflavík.
Með breyttum aðstæðum til
skíðaiðkana í Bláfjöllum og víð-
ar ásamt auknum áróðri fyrir
útiveru og hreyfingu óx skíða-
áhugi á Suðurnesjum. Þetta ýtti
undir stofnun skíðafélagsins.
Stofnfundurinn var haldinn í
Holtaskóla í Keflavík 9. nóv.
1981, eins og áður er getið.
Stofnendur voru 185. Fyrsti
formaður félagsins var Pétur Jó-
hannsson. Félagið hefur aðallega
staðið að eflingu skíðaíþrótta
með kennslu, fræðslufundum og
ferðalögum. (Víkurfréttir, 19.
nóv. 1981.)“
irstöðvar voru verðtryggðar. Fólk
varaðist þetta ekki og þegar upp
er staðið, kemur í ljós, að vextir
reiknast mánaðarlega af þessum
bréfum og síðan bætast vextir við
höfuðstól og teljast með við næsta
vaxtaútreikning. Þannig hafa
þetta orðið himinháar upphæðir,
þegar að skuldadögum hefur kom-
ið, og hefur fólk af þessum sökum
lent í miklum erfiðleikum.
Bakkað á ljósblá-
an Peugeot-skutbfl
Sigurveig Ástgeirsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Ég varð fyrir því óhappi um miðj-
an dag 22. des. sl., að bakkað var á
bílinn minn, R-4355, ljósbláan
Peugeot station, þar sem hann var
kyrrstæður fyrir utan Suður-
landsbraut 10. Við þetta eyðilagð-
ist vinstri framhurð og kostar við-
gerð um 20 þús. kr. Ökumaðurinn,
sem árekstrinum olli, sneri sér tií
afgreiðslufólks verslunar á Suður-
landsbraut 10 og spurðist fyrir um
eiganda R-4355 vegna óhapps
þessa, en láðist að skilja eftir
heimilisfang og síma. Bið ég hann
vinsamlegast um að hafa samband
við lögregluna, eða hringja í síma
14542. Og sjónarvotta bið ég að
gera slíkt hið sama.
Kannski verður þetta einhvern tímann
Ebba Ebenezerdóttir skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég les oftast pistlana þína og
þakka fyrir þá. Þeir eru ágætir
og gott að vita af þeim, ekki síst
þegar maður þarf að koma ein-
hverju á framfæri eins og ég
þarf nú.
Svo er mál með vexti, að und-
anfarin jól hef ég gefið syni mín-
um bækur sem bera nafnið
„Landið þitt ísland", nú síðast 4.
bókina. Þær líta mjög vel út og
það eru fallegar myndir í þeim,
fínn pappir og flest eftir því.
Svo fórum við að líta í nýjustu
bókina og flettum upp á Stykk-
ishólmi, en þaðan erum við. Og
okkur brá i brún, þrátt fyrir
fjölda upplýsinga sem vafalaust
eru sannar og réttar. Þar er
nefnilega sagt frá því, að ný
kirkja hafi verið vígð í Stykkis-
hólmi árið 1980, já, meira að
segja steinsteypt með forkirkju
og turni og taki 300 manns í
sæti. Kannski verður þetta ein-
hvern tímann, en er ekki lengra
komið en svo, að verið er að
byrja á veggjum.
Hvaðan hefur útgáfan fengið
svona upplýsingar?
Talað er um hólma, sem hafi
verið í höfninni og heitið Stykk-
ishólmur. Rétt held ég hins veg-
ar að sé, að hólmi þessi, sem var
milli Súgandiseyjar og lands,
hafi verið kallaður Stykkið og af
því beri Stykkishólmur nafn.
Mér finnst bækur eins og þessi
ekki eins eigulegar, þegar maður
getur átt von á slíku og þvílíku.
En líklega álpast ég til að kaupa
þær áfram, aðallega vegna
myndanna."
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Maðurinn segir, að aldrei hafi verið haft viðtal við
hann í blöðunum.
Rétt væri: Maðurinn segir, að aldrei hafi verið rætt við sig í
blöðunum.
(Hið fyrra er rétt, ef maðurinn er að tala um annan en sig.)
Viö störfum áfram um óákveö-
inn tíma og bjóöum ykkur vel-
komin á nýju ári. Þökkum viö-
skiptin á liönum árum. Nýjar
perur.
Stólbaðsstofan
Ströndin Nóatúní 17
Sími 21116
(Sama húsi og verslunin Nóatúni).
Mjúkar plötur undir þreytta fætur
T«*. „HwntMirg" Ttg. _Rott»rd»m-
VMurgMu 1«. úw 132M/146aO
Lærið vélritun
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Ný námskeiö
hefjast mánudaginn 9. janúar. Engin heimavinna.
Innritun og upplýsingar í síma 36112 og 76728.
Vélritunarskólinn
Suöurlandsbraut 20, sími 85580
v....___. _____ _ ...
NAMSKEIÐ
í SJÁLFSSTYRKINGU
(assertíveness traíníng)
í samskiptum manna á milli kemur óhjá-
kvæmilega til vandamála og togstreitu. í
slíkum tilvikum er aukið sjálfstraust,
sjálfsvitund og þekking hverjum manni
styrkur á sama hátt og það er undirstaða
ánægjulegra samskipta.
Námskeiðið er sniðið að bandarískri fyrir-
mynd og lögð áhersla á að gera þátttakend-
um grein fyrir hvaða rétt þeir og aðrir eiga
í mannlegum samskiptum og hvernig þeir
geta komið fram málum sínum af festu og
kurteisi án þess að láta slá sig út af laginu
með óþægilegum athugasemdum. Ennfrem-
ur að læra að líða vel með sjálfum sér og
hafa hemil á kvíða, sektarkennd og reiði
með vöðvaslökun og breyttum hugsunar-
hætti.
Upplýsingar í síma 27224 og 12303 á milli kl.
15.30 og 22. Athugið að fjöldi þátttakenda er
takmarkaður.
>1NNK
NN.DIMN3SDÓTTIR
sálfræðingur
Bræðraborgarstíg 7
Bladburðarfólk
óskast!
Austurbær Vesturbær
Miöbær I
Ármúli 1 —11
Stigahlíö frá 37—97
Úthverfi
Tjarnargata frá 39
Faxaskjól
Fjörugrandi
Ártúnsholt
ffovguiiHfiMfe