Morgunblaðið - 04.01.1984, Page 35

Morgunblaðið - 04.01.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 35 Venables faer girnilegt tilboð: „Hann má skrifa samninginn sjálfur“ — segir formaður QPR, sem bauð honum tíu ára samning Frá Bob Hennesty, fréttamanni Morgunblaösint i Englandi. Milljónamæringurinn J.A. Gregory, stjórnarformaður Queens Park Rangers, hefur gert Terry Venables, framkvæmdastjóra liösins, girni- legt tílboð. Hann hefur boðið Venables tíu ára samning — og segir aö hann muni gera allt til aö halda í stjórann. „Venables getur sjálfur ákveðið þá fjárhæð sem hann mun fá í laun ef hann skrifar undir tiu ára samn- ing. Hann má skrifa samninginn sjálfur mín vegna. Ég vil gera allt til aö halda honum hjá liðinu. Hann hefur gert mjög góöa hluti hjá okkur,” sagði Gregory í gær, en vitað er að Lundúnaliöiö Arsenal hefur mikinn áhuga á aö fá Ven- ables sem næsta framkvæmda- stjóra sinn. Gregory sagðist ekki undrandi þó Arsenal heföi áhuga á aö næla í Venables, hann væri snjall fram- kvæmdastjóri, en hann sagöi ennfremur að yfirgæfi Venables QPR til að taka við Arsenal-liðinu væri það ekki vegna peninga held- ur frægðar Arsenal. Venables segist sjálfur ekki munu sækja um framkvæmda- • Terry Venables, framkva stjóri QPR. imda- stjórastööu Arsenal þar sem hann sé samningsbundinn QPR fram á næsta ár — og hann íhugar nú tilboðið góða frá Gregory. Pleat einnig boöinn tíu ára samningur Þess má geta að Luton hefur einnig boðiö sínum framkvæmda- stjóra, David Pleat, tíu ára samn- ing. Hann er einn þeirra sem orða- ður hefur verið viö Arsenal að und- anförnu. Samningurinn sem hon- um hefur verið boöinn af forráöa- mönnum Luton er viröi 500.000 sterlingspunda, sem greidd yrðu á tíu ára timabili — 50.000 pund á ári — en Pleat er nú einn láglaun- aðasti framkvæmdastjórinn í 1. deildinni ensku með 20.000 pund í árslaun. Þess má geta að fram- kvæmdastjórastaöa Arsenal var augýst til umsóknar á dögunum, og býður félagið næsta fram- kvæmdastjóra sínum upp á 70.000 sterlingspund 1 árslaun. - SH. • Ray Clemence «1 • Gary Stevens Eigum enga möguleika lengur“ Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaösins í Englandi. „VID EIGUM enga möguleika lengur á aö tryggja okkur Eng- landsmeistaratitilinn í vetur,“ sagöi Keith Burkinshaw, fram- kvæmdastjóri Tottenham, í gær, en liöi hans hefur gengiö hroöa- lega illa aö undanförnu. Liöiö hef- ur fengiö fimmtán mörk á sig í síðustu fjórum leikjum. „Ég veit ekki hvaö ég á aö taka til bragðs — allir leikmenn mínir hafa gert sig seka um mistök aö undanförnu þannig að ekki er hægt aö kenna neinum einum um. Ray Clemence hefur átt slæmt Mótmæli ÍSÍ tekin til greina f NÝÚTKOMNU fróttabréfi frá ÍSÍ mátti sjá þessa frétt: Menntamálaráðuneytiö sendi utanríkisráöuneytínu svofellt bréf fyrir í þessum mánuöi. „í framhaldi af viöræöum og bréfaskiptum viö utanríkisráðu- neytiö samþykkir þetta ráðuneyti fyrir sitt leyti, aö íþróttasamband íslands veröi framvegis hinn formlegi samningsaðili að sam- komulagi um íþróttasamskipti milli íslands og Sovétríkjanna með svipuöum hætti og tíökast annars staöar á Noröurlöndum." Þessi skipan mála er aö ósk ÍSÍ, sem mótmælti því á sínum tíma, aö íslenzk stjórnvöld væru samningsaöili um íþróttasam- skipti viö Sovétríkin. Erlendir skíðamenn á Landsmótið? SVO GÆTI fariö aö erlendir skíöamenn kepptu sem gestir á 45. Skíöamóti Islands sem haldið veröur í Hlíðarfjalli viö Akureyri um páskana. Fyrirspurnir hafa borist frá norskum og sænskum skíöamönnum þess efnis og eru það allt alpagreinamenn. Undir- búningur fyrir Landsmótiö er nú þegar kominn í fullan gang. Morgunblaölð/Krlstján Einarsson Reykjavíkurmeistarar Próttar • Meistaraflokkur Þróttar sem varö Reykjavíkurmeistari í innanhússknattspyrnu í fyrrakvöld með því aö sigra KR-inga í úrslitaleik, 7:5, eftir framlengingu. Ásgeir Elíasson, þjálfari og leikmaður Þróttar, er lengst til vinstri í fremri röö. í meistaraflokki kvenna varð Valur Reykjavíkurmeistari í innanhúss- knattspyrnu. Keppni í kvennaflokki lauk á föstudaginn og voru Valsstúlkurnar ásamt liöi KR meö yfirburöaliö. Liöin unnu bæöi alla sína leiki nema hvað KR tapaöi fyrir Val, þannig að leikur liðanna var úrslitaleikur mótsins. Valur fékk 8 stig, KR 6 stig, Víkingur 4 og KR 2. Markahæst í mótinu varð Kolbrún Jóhannsdóttir úr KR meö 9 mörk, Arna Steinsen, einnig úr KR, skoraöi 8 mörk og þaö afrekaði einnig Bryndís Valsdóttir úr Val og Alda Rögnvaldsdóttir, Víkingi, og Guðrún Sæmundsdóttir, Val, skoruöu sex mörk hvor. tímabil núna, en það sýnir best hvað mér finnst um hann sem markvörö aö hann skrifaði nýlega undir þriggja ára samning við okkur. Þegar sá samningur rennur út verðu Ray oröinn 38 ára og ég er sannfæröur um að hann veröur þá enn á toppnum/ sagði Burkin- shaw. Sjúkralisti Tottenham hefur ver- iö ótrúlega langur aö undanförnu og í leiknum gegn Watford í fyrra- dag lengdist hann enn. Miðvörður- inn Gary Stevens meiddist og óvíst er hvort hann getur leikið gegn Fulham í bikarkeppninni á laug- ardag: leiknum sem sjónvarpaö verður beint hingaö til lands. Latchford til Stoke? Bob Latchford ræddi við for- ráðamenn Stoke i gær og eru tald- ar töluverðar líkur á því að hann gangi til liðs við félagið. Coventry hefur einnig áhuga á honum í staö Mick Harford, sem liðið er tilbúið aö selja til aö afla fjár til kaupa á nýjum leikmönnum. Latchford fékk frjálsa sölu frá Swansea ásamt Gary Stanley og Gary Chivers. Mike Flanagan er sennilega á leiöinni til síns gamla félags, Charlton. Hann hefur ekki komist í liö QPR að undanförnu. Friðrik í UBK FRIÐRIK Friðriksson, hinn ungi og efnilegi markvöröur Fram í knattspyrnu, hefur tilkynnt fé- lagaskipti yfir í Breiöablik og mun leika með liöinu næsta sumar. Unglingarnir til Bandaríkjanna Unglingalandsliöiö í körfubolta hélt á mánudag til Kentucky í Bandaríkjunum í æfingaferö. Liö- ið spilar þar nokkra leiki og eru þeir liöur í undirbúningi fyrir Evr- ópukeppnina sem fram fer í Þýskalandí í vor. Kandídatar um þriðja alpagreinasætið á Ólympíuleikana: Fara út með landsliðinu MÍ innanhúss í frjálsum fært MEISTARAMÓT íslands í frjáls- íþróttum innanhúss hefur veriö fært fram á helgina 4.—5. febrúar næstkomandi, þar sem ekki reyndist unnt aö fá húsnæöi fyrir mótið þá helgi, sem áætlað haföí veriö aö halda mótið á, þ.e. 25.—26. febrúar. Innanhússmót 15—18 ára ungl- inga verður haldið helgina 11.—12. febrúar og mót 14 ára og yngri helgina 25.-26. febrúar. — valið verður efftír mót erlendis í janúar EKKI veröur valiö í þaö eina sæti í skíöalandsliðinu sem enn er laust fyrir Ólympíuleikana í Saraj- evo fyrr en eftir mót erlendis seinna í þessum mánuöi. Eins og við sögðum frá í gær hafa þau Nanna Leifsdóttir og Arni Þór Árnason verið valin til aö keppa í Sarajevo, en þrír alpa- greinamenn munu keppa þar fyrir hönd islands. Daníel Hilmarsson og Guömundur Jóhannsson voru í A-landsliöshópnum í vetur, en Sig- uröur Jónsson stóð sig vel á mót- um í Noregi á dögunum og kemur hann einnig til álita í landsliöiö nú. • Guömundur Jóhannsson (t.v.) og Daníel Hilmarsson keppa um þriðja alpagreinasætið ásamt Sigurði Jónssyni. Nú hefur verið ákveöiö aö þessir þrír kappar fari með landsliöinu utan 15 janúar og ákveðið veröi eftir mót sem þeir taka þátt í víða um Evrópu hver hreppir lausa sæt- iö. Skíöasamband islands hefur ekki haft úr miklum fjármunum aö spila undanfariö og voru skiptar skoöanir um það í stjórn sam- bandsins, skv. heimildum Mbl., hvort haga ætti valinu þannig aö senda alla þrjá kandidatana út með liðinu þar sem það er mjög kostnaðarsamt. Alpagreinanefnd vildi hafa þann háttinn á og fékk hún sínu framgengt. — SH.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.