Tíminn - 22.08.1965, Side 9

Tíminn - 22.08.1965, Side 9
SUNNUDAGUR 22. ágúst 1965 TÍMINN 9 lýðræði og frelsi til að skapa sanna menningu og efla mann- réttindi. Eins og áður er sagt, gerir sérstök nefnd áætlun yfir starf- semi æskulýðshallarinnar ár hvert frá apríl til september — það er sumarstarfið og svo vetraráætlun frá oktober og út marz. Þessi áætlun er auðvitað gerð samkvæmt umsóknum sem borizt hafa um aðstöðu til nám- skeiða og fræðslustarfsemi. lEinnig eru ýmis félaigasatm- 'bönd hvött til starfs og þátt- töku af forystumönnum og full trúum. Nöfn nokkurra þátttakandi sambanda og starfshópa á þessu misseri sumarið 1965 gef ur nokkra hugmynd um fjöl- breytni, áhuga og eðli þessarar starfsemi. Hinn S. og 4. apríl var nám- skeið fyrir ritstjóra æskulýðs- blaða og tímarita, stjórnað og kostað af sambandi æskulýðs- ritstjóra í Hamborg. Sömu daga var námskeið fyr- ir barnavemdarstarfsfólk. Hinn 5—9 s. m. var nám- skeið fyrir félagsmálaráðu- nauta, þá heimilisráðgjafa, upp eldismálanámskeið, heimilis- fræðsla fyrir ungar húsfreyjur, helgamámskeið fyrir unga stjómmálaforingja, námskeið í móttöku útlendinga, söngmála- námskeið, fóstruskóli, hand- knattleiksnámskeið, barna- söngva- og bamadanskennsla, blokkflautunámskeið og gítar- grip, bam í hættulegum heimi, leiðbeiningar í fyrstu um- önnun ungbarna, félagsleikir, sænsk-þýzk vika, gamalmenna- hjálp, vandamálin í Suður-Af- ríku, þýzk-dönsk söngvika, al- þjóðlegt námskeið fyrir for ingja ungtemplara og svona mætti lengi telja. Það var þetta síðasttalda fyr ir Aiþjóðasamtök Ungtemplara, sem ég kynntist nokkuð. Og þar eð það gefur góða hugmynd um starfstilhögun yfirleitt skal hér nánar að því vikið. Alþjóðasamband ungtempl ara var stofnað fyrir tveim eða þrem árum og nefnist Inter- national Goodtemplar Youth Federation (IGTYF) og skal efla samstarf ungs bindindis- fólks um heim allan án tillits til þjóðernis, kynþátta, trúar- bragða eða félagsforma. Það var í fyrsta sinni, sem samtök þessi efna til námskeiðs eða fræðslu á sameiginlegum vettvangi, og var það í Rein- bek í sumar dagana 10—17 júlí. Stjórnandi var Marcel Hebbelinck frá Belgíu hieð að stoð Arvids Johnson frá Nor- egi, en framkvæmdastjóri Kurt Kirchner frá Hamborg. En all- ir þessir menn standa framar- lega í bindindissamtökum og félagsstarfi æskulýðs hver í sínu landi. Námskeiðið hófst með stuttu ávarpi um tilhögum þess og með hvaða hugarfari skyldi unn ið þessa daga, sem kennt yrði. Bregður það nokkru Ijósi yfir allar starfsaðferðir og háttu á þessum stað, að nú var minnt á, að allir þátttakendur höfðu fengið bréf þar sem þeir voru beðnir að hafa með sér eftir- farandi hluti ef mögulegt væri: Hljóðfæri helzt gítar, Söngbækur, Tvö Ijóð og lög á móðurmáli sínu, Myndaræmur og filmur frá landi sínu sérstakl. um bindind isstarfið og upplýsingar um það á hverjum stað. Ljóð, sögu eða söngva helzt þjóðlegt frá hverju landi sem nota mætti í dag- skrárefni undir fyrirsögninni, „Við horfum á heiminn út um gluggann“. Þjóðbúning og grímu, en síðast og þó helzt og fremst: Gott skap. Söngur, almennur söngur við einföld ljóð undir ljúfum auð- lærðum lögum skipar algjör- lega öndvegi í leiðbeiningar- starfinu. Ort hafði verið sér stakt erindi, um samstarfið sjálft og var það margendur- tekið eins og viðlag, unz allir kunnu og sungu af krafti: „We alltogether do better and bett- er.“ stóð þar. Og var ' ekki skáldskapnum fyrir að fara, en því fremur vakti það fjör, kát- ínu og samhug til átaks. Hvað eftir annað var staðið upp til að dansa og syngja milli ávarpanna. Og enginn fékk bók staflega leyfi til að tala nema örstutta stund í einu, jafnvel Framhald á bls 12 ÞÁTTUR KIRKJUNNAR Kanntu að biðja afsökunar? Oft heyrist orðið „Pardon“ í enskumælandi löndum „Af- sakaðu" er auðvelt orð í munni og oft notað um einskisverða eða lítilsverða smámuni. En þegar eitthvað meira er um að vera í samskiptum fólks en olbogaskot í strætisvagni eða óvarkárni á gangstéttinni getur hljómur þessa orðs orð- ið dýpri, vandinn meiri. Flestir reyna að breiða yfir mistök sín og yfirsjónir í lengstu lög og má telja það eðlilega viðleitni og sjálfsvörn. Þeir leitast við að láta vini og samferðafólk gleyma þeim eða þá að réttlæta mistökin í ræðu eða riti. Við verðum því að játa, að þeir, sem biðja auðmjúklega fyrirgefningar á mistökum í orði eða verki eru eiginlega í sérflokki. Og slík framkoma sannar samkvæmt sálfræðileg- um ályktunum mjög þroskaða skapgerð. Það eru nánast sönn mikilmenni, sem geta af inni- leika og einlægni kannast við að þeim hafi yfirsést og dæmt sig sjálfa á sama hátt og flest- ir dæma aðra. Smámenni og lágsiglt fólk vill allt annað fremur gera t. d. bæði segja ósatt og svíkja lit, blekkja og múta en kann- ast við, að það hafi breytt rangt eða haft rangt fyrir sér. Það skortir siðferðislegt hug rekki. Og í stað þess að komast að raun um að hreinskilnisleg og heiðarleg viðurkenning á göllum eða mistökum mundi gera hvern mann meiri að heiðri og virðingu, þá er enda- laust lotið óttanum við að játa hið sanna og álitið að orðin: „Þetta var rangt hjá mér,“ séu veikleika merki. Ef til vill er það af skorti á sannri stórmennsku sem flest um okkar finnst svo erfitt að viðurkenna mistök sín, og staul ast niður af tignartróni sjálfs- ánægjunnar til að biðja afsök- unar, þegar þess þarf með. „Ég vil játa mínar yfirtroðsl- ur,“ stendur í einhverri bæn. En sú játning er frammi fyrir Guði. Og það er flestum auð- velt. En „trúaða fólkið,“ sem er svo innilega ánægt með aðstöðu sína gagnvart Guði og að sjálfs síns sögn fullt af syndavitund og auðmýkt frammi fyrir hon-. um, það þarf líka að muna, „að sá, sem segist elska Guð, en elskar ekki 'samferðafólk sitt á lífsleiðinni, segir ósatt.“ Að játa yfirsjón og móðganir við aðra fyrir Guði en neita að biðja viðkomandi afsökunar er áreiðanlega ekki kristilegt. Sannleikurinn er sá, að flest okkar eiga meira en nóg af mannlegum hégómaskap, sem er okkur bæði meðvitaður og ómeðvitaður. Og þessi hégómaskapur verk ar á þann hátt, að við erum hrædd við að viðurkenna, að við séum ekki eins góð og vit- ur eins og við þykjumst vera og viljum vera. Þannig viljum við ekki krenkja sjálfsálitið með „óþarfa játningum." Og þarna — og það er verst — stendur „trúaða fólkið" og „góða fólkið" freistingunni næst, eða hún hefur mest og sterkust tök á því, smbr. rödd freistarans: „Guð mun fela engl um sínum að sjá um, að þú steytir ekki fót við steini.“ En auðvitað höfum við í raun og veru engu að tapa, en allt að vinna. Þetta ættu sérstaklega stjórnmálamenn að athuga. Ef þeir tækju nú allt í einu upp á því að viðurkenna hreinskilninslega og með fullri dirfsku, að þeir eða þeirra flokkur hefði haft rangt fyrir sér í vissum málefnum, og auð- vitað er það oft tilfellið, þá mundu þeir auka geysilega það traust, sem við almennir kjós- endur getum sýnt þeim og þá virðingu, sem við getum borið fyrir þeim. Allir vita að — errare hum- anum est — það er mannlegt að skjátlast. Skólastjóri eða dómari, sem uppgötvar að hann hefur dæmt og refsað ranglega, en biður afsökunar og veitir fullar sárá- bætur, mun eignast sakborning inn, hvort sem það er nemandi eða borgari, að vini ævinlangt og finna virðingu sína í skóla og dómsal aukast verulega en ekki minnka. Það er dapurleg tilhugsun, að vita hve mörg ógæfan nær tök- um á mörgum bæði meðal vina og nágranna og þó ekki sízt í fjölskyldum og heimilislífi, af því að fólkið hefur ekki hug til að segja í fullri einlægni og góðvild: „Afsakaðu,* ,fyr- irgefðu" „ég hafði rangt fyrir mér.“ Hve mörgum hjónaböndum gætu þau orð bjargað, ef þau væru sögð nógu snemma, áður en hatur og óvild, misskilning- ur og rangsleitni hafa lokað öllum leiðum og dyrum. Fátt gæti fremur komið í veg fyrir hjónaskilnaði með öllum þeirra geigvænlegu afleiðingum. Hvers vegna ættum við alltaf að óttast að gera það sem er göfugt og stórmannlegt, endur speglar Guðs náð í vitundinni og sannar sterkan og drengi- legan persónuleika. Gætum við bent á nokkurt atvik, þar sem sú manneskja varð ekki meiri og göfugri að virðingu, sem þorði að standa upp og segja: „Afsakið, en ég viðurkenni að mér hefur skjátl azt.“ Árelíus Níelsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.