Tíminn - 24.08.1965, Side 2

Tíminn - 24.08.1965, Side 2
TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 24. ágftst »65 Geimfararnir fara a.m.k, 47 sinnum um jöröina MÁNUDAGUR 23. ágúst. NTB—Saigom. Bandarískar sprengjuflug- vélar fóru í dag árásarferðir á aflstöSvar í NorSur-Víetnam. Forsætisráðherra Suður-Víet nam fer á næstunni til Suður- Kóreu O'g Malaysíu til að afla stuðnings tillögum sínum um varnarbandalag Suðaustur- Asíu. Alþýðublaðið í Peking skrif ar í daig, að Bandaríkjamenn undirbúi nú staðbumdna styrj- öld eins og í Kóreu á sínum tíma. Þeir staðsetji her sinn við ströndina til þess að hindra, að þeir lokist inni í landi. Blaðið segir, að til þessa hafi Víetkong fellt, tekið til fanga, sært eða tekið við sem liðhlaupum 110.000 hermönn- um frá Suður-Víetnam. Þá hafi 3000 bamdarískir hermcnn ver ið felldir og 500 bandarísímr flugvélar eyðilagðar. f Washington ríkir nú meiri bjartsýnl en áður um styrjöld- ina í Víetnaift. Alþjóða Rauði krossinn hef ur ákveðið að senda lyf og læknistæki til Víetnam. NTB—Bonn. Ludwig Erhard, kanslari Vestur-Þýzkalands, og Konrad Adenauer fyrrverandi kanslari hafa nú orðið sammála um stefnu flokks Kristilegra demó krata í málum, er snerta kjarn orkuvarnir Vestur-Þýzkalands. Segir í yfirlýsingu, sem gef- in var út á fundi í flokks- ráði Kristilegra demókrata, að Þýzkaland eigi að vera með í ráðum, er gengið verði frá g kjarnorkuvörnum Vesturlanda. Fundur þessi var haldinn til þess að jafna ágreining innan flokksins eftir ræðu Adenau- ers, þar sem hann gagnrýndi tillögur Bandaríkjamanna í kj arnorkumálum. NTB—Nýja Dehli. Harðir bardagar voru við vopnahléslínuna í Kasmír í gær, wg felldu indverskar her- sveitir 50 hermenn frá Pakist- an, að því er upplýst er í Nýju Dehli í dag. Formælandi Indla,ndsstjórn- ar sagði, að Pakistanmenn hefðu ráðizt á Indverja með stórskotahríð og sprengjuvörp um, en verið hraktir til baka. NTB—New York. Mikill vatnsskortur er nú í New York, og til að ráða bót á honum var gripið til þess ráðs að taka í notkun gamla vatnsleiðslu. Sú leiðsla sprakk í dag með þeim afleiðingum. að neðanjarðar- brautin milli Manhattan og Brooklyn fylltist af vatni. Varð að loka brautinni um hríð. NTB—Houston, mánudag. Geimfararnir Cooper og Con rad, sem nú hafa verið á þriðja sólarhring á lofti, eiga að halda förinni áfram í að minnsta kosti einn sólarhring ennþá. Hafa þeir þá farið 47 hrimgi um jörðu. Ákvörðun um þetta var tekin eftir að sér- fræðingar bandarísku geim- ferðastofnunarinnar höfðu rannsakað uipplýnimgar frá Gemini V. Allt gengur sam- kvæmt áætlun núna, en fyrsta daginn varð vart bilunar í raf kerfi geimfarsins. Verður geim förunum nú gefið leyfi til þess að halda förinni áfram eimn dag í senn, og athugað á hverj um degi, hvort ástæða sé til að láta þá koma niður aftur. Verði þeir átta sólarhringa á lofti eins og áætlað var, munu þeir hafa farið 4.8 millj. kílómetra vegalengd og verið 191 klukkustund og 55 mínút ur úti í geimnum. Eru það hvort tveggja ný met í sögu geimferðanna. Cooper og Conrad hafa nú farið rúmlega 30 hringi og undirbúa nú tilraun til að ná sambandi við ímyndaðan gervi hnött. Þeir slepptu sjálfir litl um gervihnetti fyrsta daginn og áttu að komast nálægt hon um aftur, éh sú tilraun mis- tókst. NÚ hafa vísindamenn gefið þeim upp braut ímyndaðs tungls og á að gera tilraun til að komast á þá braut. Verður fylgzt með því frá radarstöðv um hvort það tefest. Geimfararnir sváfu báðir vel í nótt og eru úthvíldir og við beztu heilsu. Enda þótt nú þyki sýnt, að ekkert sé því til fyrirstöðu, að þeir verði á lofti í átta daga eins og ráðgert var, þykir heppilegast að ákveða daglega, hvort áfram skuli haldið eða ekki, en ekki taka endanlega ákvörðun um för- ina. Formælandi geimrann- sóknastofnunarinnar banda- rísku sagði í dag að eftir spfenn ingu og óróleika fyrsta dágsins væri nú all komið í fastar skorður og lítið, sem gerðist hjá geimförunum. Þeir eiga að borða þrjár máltíðir á dag en nú hefur matarskammtur þeirra verið minnkaður, þar eð þeir segja, að matarskammt ur þeirra hafi verið áætlaður of ríflega. f kvöld gerðu þeir hina fyrstu af fjórum tilraunum, sem miða að því að breyta braut geimfarsins. Tókst til- raunin vel og er nú mesta fjar lægð geimfarsins frá jörðu 312 kílómetrar í stað 444 áður. I i __ ' 11 BBW<H— ■ Skip strandaði í Akureyrarhöín HS-Akureyri, mánudag. Hollenzka skipið Mediterranean Sprinter kom hingað til Akureyr- ar á laugardaginn. Svo illa vildi til, að þegar skipið var að leggja að Togarabryggjunni, að það strandaði norðan við bryggjuna. Stóð Þar eina fjöru, en komst á flot á flóði síðdegis sama dag. Mediterranean Sprinter, sem er flutningaskip, tók hér frystan fisk hjá Útgerðarféilagi Akureyrar, samtals 9450 kassa. Um klukkan 7 á sunnudag hélt það frá Akur- eyri. Engar skemmdir urðu á skip- inu. Mediterranean Sprinter er 1538 brúttólestir og 803 nettólest- ir. Myndarleg gjöf til Sólvangs Hinn 9.8. ‘65 barst Sólvangi svohljóðandi bréf frá Páli Guð- mundssyni, Höfða við Hvamms- tanga: „Hér með sendi ég Sólvangi, Hafnarfirði, kr. 20.000.00 — tutt ugu þúsund krónur — til minn- ingar um móður mína, Guðrúnu Daníelsdóttur, og systur mína, Jónu Helgadóttur, minnugur þess að móðir mín naut skjóls og að- hlynningar á ævikvöldi sínu á Elliheimili Hafnarfjarðar. Fjárhæðinni má ráðstafa eftir ákvörðun forstjóra Sólvangs og Bæjarráðs, þó legg ég til að fénu verði varið til kaupa á einhverj- um hlut, sem megi verða til á- nægju vistfólki á dvalarheimili Framliald á 14. síðu Ferð Náttúrufræðifél- agsins í Þjórsárdal MB—Reykjavík, laugardag. Næstkomandi föstudag, 27. ágúst, verður efnt til þriggja daga fræðsluferðar Náttúrufræðifélags ins um Þjórsárdal og Hreppa. Nokkrir félagsmenn geta enn kom izt að og nánari upplýsingar eru veittar í Náttúrufræðistofnun ís- lands, þar sem skrásetning fer einnig fram, sími 1 54 87. Aðal fararstjóri verður Eyþór Einars- son, en leiðbeinendur auk hans verða Guðmundur Kjartansson og Gísli Gestsson. Þetta verður al- hliða náttúruskoðunarferð, og einig verður komið við á Stöng og fornminjarnar þar skoðaðar. Farnir að steypa nyju brúna á Miðfjarðará BS—Hvammstanga, mánudag. f morgun hófst steypuvinna við nýju brúna yfir Miðfjarðará, sem unnið hefur verið við í sumar. Guðmundur Gíslason, yfirsmiður við brúna, tjáði fréttaritara Tím- ans, að steypuvinnan myndi taka sex daga, en steypt er úr 30 tonn um af efni á dag. Steypan er hrærð í stórri hrærivél, sem stað sett er við annan brúarendann og frá vélinni er steypunni ekið í tveim vélbörum inn á brúna. Stjórna tveir menn þessum ný- stárlegu börum, og er miklu erfiði létt af brúarflokknum með þess- um börum. Brúarbitarnir verða fyrst steyptir, og síðan brúargólf ið. Þetta er stærsta brúin, sem byggð er hér á landi í sumar. ÚTSVÖR OG 4DSTÚÐU- GJÖLD í ÖLAFSVÍK AS—Ólafsvík, mánudag. Lokið er álagningu útsvara og aðstöðugjalda í Ólafsvík. 288 ein staklingar og fyrirtæki greiða 4 milljónir 895 þúsund krónur í út- svar og 56 einstaklingar og fyr- irtæki greiða eina milljón og 485 þúsund í aðstöðugjöld. Útsvör eru lögð á samkvæmt lögum nr. 51 frá 1964 og breytingum þeim, sem gerðar voru á þeim lögum í maí 1965, og reiknuð samkvæmt útsvarsstiga 1965. Við útreikning útsvara gerði hreppsnefndin eftirtalin frávik: Framhald á bls. 14 116 menn sakaðir um undir- búning uppreisnar í Grikklandi AÞena, NTB, mánudag. Hinn opinberi saksóknari í Aþenu hefur höfðað mál á hendur 116 mönnum, sem gefið er að sök að hafa undirbúið uppreisn gegn hinni fjögurra daga stjóm Grikklands. Jafnframt hefur gríska stjórn- in bannað ólöglega mótmælafundi. Hinir ákærðu eru úr hópi þeirra 126, sem handteknir voru eftir blóðugar óeirðir í Aþenu á föstu dagskvöld. Lenti þá saman lög- reglu og vinstri sinnuðum and- stæðingum hinnar nýju stjómar. Voru þá aðeins liðnir nokkrir klukkutímar frá því að Elias Tsiri- mokos og stjórn hans höfðu unnið eið að stjórnarskránni. Meðal hinna ákærðu eru 14 menn, sem áður hafa verið sakaðir um að vera kommúnistar. Saksóknarinn hófst handa er inn anríkisráðherrann Stylianos Apla- manis hafði bannað mótmæla- göngur og fundi. Verða allir, sem taka þátt í slíkum mótmælaaðgerð um handteknir. Frestað hefur ver ið fjöldafundi, sem halda átti í leikhúsi í Aþenu í kvöld. Það voru vinstri sinnar, sem tiil fundarins boðuðu. Elias Tsirimo'kos, forsætisráð- herra, reynir nú að afla stjóm sinni meirihluta á þingi. Örlög stjórnarinnar verða ráðin annað kvöld, er greidd verða atkvæði um traust á ríkisstjórnina. Papandreu fyrrverandi forsætis ráðherra er kominn til Aþenu, en undanfama daga hefur ha-nn ferð- azt um landið og haildið fundi. Hann spáir því, að síjómin falli innan tíu daga. Pap-andreu telur einu lausnina á stjómarkrepp- unni þá, að efnt verði til þing- kosninga í landinu. LEIÐRETTING f grein minni um Þorstein M. Jónsson, 20. þ. m. hafa sl-æðzt inn nofekrar meinlegar prentviiliur, sem ég vildi gjam-an leiðrétta. Ég sagði, að Bergþóra, systir Óla Jósepsson-ar hefði veri-ð „föður- móðir Gísia föður míns“, en ekki fósturmóðir og er þetta snj-all púki. Þá sagði, að Þorsteinn hefði verið „ólatínulærður", eins og Jón Arason og er þ-að, sem kom í stað inn í greininni bæði pú-ki og mennfam-anma not. Annað, sem þarna er ekki rétt, mun skiiljast við athugun og hirði ég ekki u-m frékari glímu við púikann. Með þökk fyrir birtmig- una. Benedikt Gíslason frá Hofteigi. Lík finnst KJ-Reykjavík, m-ánudag. Um hád-egLsbilið á sunnuda-ginn fannst lík fljótaedi á Kngvalla- vatni undan Am-arfelli. Ö-rn Bjart- mars Pétursson tannlæknir var á gan-gi þam-a við vatnið, er hann kom au-ga á líkið. Lögreglumenn frá Se-lfossi og Reykjaví'k fóru á staðinn, og var farið með líkið til Reykjavíkur. Ómögulegt er að vita af hverjum það er og var e-kki í d-ag búið að ganga úr skugga um hvort líkið væri af fcarimanni eða kvenmanni, en lækn-avísindin geta vafalaust skor- ið úr um það, svo og af hve gam- alli m-anneskju hún er. Er sýni- legt að h-ann eða hún, se-m líkið er af, hefur drukknað í vatninu fyrir mörgum árum, og sennilegt að ta-kast megi að komast að því um hvern er að ræða. Smárakvartettinn til Vestfjarða. Hinn vinsæli Smárakvartett á Akureyri er á förum til Vestfjarða og mun syngja á mörgum stöðum, en fyrst söng hann í gærkveldi, 23. ágúst, í Ásbyrgi í Miðfirði. Síðan mun kvartetinn syngja að Tjarnarlundi í Saurbæ, Birki- lundi á Barðaströnd o. s. frv. Með þessari sön-gferð lýkur kvartett- inn hringferð sinni um landið, sem te-kin hefur verið í áföngum á árabili. Smárakvartettinn skipa Jóhann Konráðsson, Jósteinn Kon ráðsson, Gústaf Jón-asson og Magnús Sigurjónsson. Undirleikari er Jakob Tryggvason. Smárakvartettinn á Akureyri varð tvítugur i vetur og hélt þá afmælissamsöngva í heimabæ sín um fyrir troðfullu húsi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.