Tíminn - 24.08.1965, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 24. ágúst 1965
TÍMINN
$Ép|
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum lögðu geimfararnir
Gordon Cooper og Charles Conrad í átta daga geimferð á spor-
brau.t umhverfis jörðu sl. laugard. Þetta er 2 ferð Gordons en 1
ferð Charles um geiminn. Ef allt gengur að óskum verður þetta
lengsta geimferðin og um leið sú stórkostlegasta, scm farin hef-
ur verið fram að þessu. Myndirnar hér á síðunni sýna Þá félaga
skömmu áður en Gemini-5 tilraunin hófst. Eins og skýrt hefur
verið frá, munu þeir gera tilraun til að nálgast lítinn gervihnött
á þessari ferð, en það er aðeins einn af mörgum iiðum í undir-
búningnum fyrir sjálft tungskotið 1969 eða ‘70. Efsta myndin sýn-
ir hvernig sams konar tilraun verður gerð í Gemini-6 tilraun-
inni, sem hefst eftir 2 mánuði, en þá reyna geimfararnir að nálg-
ast hluta af eigin eldflaug og tengja stjórnklefann við liana í
smástund. Myndin á miðri siðunni sýnir þá félaga inn í stjóm-
klefanum á geimfarinu skömmu áður en því var skotið á loft.
Myndin neðst á síðunni er tekin af Gordon Cooper, Þar sem hann
er að snæða síðasta morgunverðinn sinn hér á jörðinni fyrir ferð-
ina. Eins og sjá má, virðist hann mjög rólegur. Eindálkurinn er
af Charles Conrad geispandi, enda var hann orðinn óþolinmóður
að komast um borð i.geimfarið og út í hláan geiminn.
3
Iðnaðurinn
Verksmiðjuiðnaðurinn er
yngsta atvinnugrein hér á landi
og hefur átt meginþáttinn í því
að taka við þeirri öru fólks-
fjölgun, sem orðið hefur í land
inu. Iðnaðurinn hefur stuðlað
að stóraukinui framleiðslu og
nýtingu innlendra hráefna.
En hvemig er búið að þess-
ari mikilvægu atvinnugrein
undir ríkjandi stjórnarfari?
Það er samdóma álit iðnrek-
enda og iðnverkafólks, að
óvissa ríki um framtíð margra
Igreina íslenzks iðnaðar og
þessi óvissa stafar fyrst og
fremst af aðgerðum ríkisstjórn-
arinnar í tolla- og verzlunar-
málum. Ríkisstjórnin hefur
haft meiri áhuga á að auka
skyndilega innflutning erlendr-
ar iðnaðarvöru en að tryggja
hag sambærilegs iðnaðar í land
inu sjálfu. Iðnaðinum var ekki
veittur sjálfsagðu.r umþóftunar
’| tími og aðstoð til aukinnar vél-
væðingar og framleiðniaukn-
ingar til að standast stórharðn-
andi samkeppni.
Drepinn í burðarlið
Að sjálfsögðu má ekki fara
fram á það, að vernda iðnað-
inn óskorað og um alla fram-
tíð með höftum og háum inn-
flutningstollum á erlendum
iðnaðarvörum, en eigi að síður
verður að taka tillit til þeirra
aðstæðna, sem hér hafa verið í
uppbyggingu iðnaðarins, frann-
ig að þess sé gætt, að innlend-
ur iðnaður verði ekki ósam-
keppnisfær áður en ráðstafanir
hafa verið gerðar, er geri hon-
um kleift að hann geti lagað
sig að breyttum aðstæðum í
þeim greinum, sem allt inælir
með að geti verið lífvænlegar
hér á Iandi í samkeppni við er-
Ilendar iðnaðarvörur.
Framsóknarmenn hafa á
mörgum undanförnum þingum
flutt tillögu um að Seðlabank-
inn endurkaupi hráefna- og
| framleiðsluvíxla iðnaðarins, en
H ríkisstjórnin hefur ekki ljáð
jí máls á samþykkt hennar. Inn-
| flutningsfrelsið verður þó tæp
'■ lega þjóðinni að gagni, ef það
í leiðir til samdráttar í lífvæn-
?' legum innlcndum iðnaði. Áhrif
; vissra innflytjenda í Sjálfstæð-
isflokknum virðast greinilega
sterkari en margra iðnrekenda,
sem stutt hafa þann flokk og
greitt honum skatta. Vissir inn
flytjendur ásamt sífelldri
áráttu ríkisstjórnarinnar til að
reyna að heimfæra efnahags-
lögmál auðvalds- og iðnaðarstór-
velda upp á okkar sérstaka og
sérstæða efnahagskerfi eru
hættulegustu meinsemdir ís-
lenzks efnahagslífs um þessar
mundir.
Ríkisstjórn vonleysis
Núverandi ríkisstjóm er
ríkisstjórn svartsýnar og trú-
leysis á íslenzka atvinnuvegi.
Þannig hefur ríkisstjómin
alltaf verið að reikna út opf
halda að þjóðinni, að höfuðnt
vinnuvegir okkar séu svo
ótraustir, að þeim sé ekki hægt
að byggja eðlilegan hagvöxt.
Samt leikur liún okkar íslenzka
iðnað eins illa og raun ber
vitni. Reynslan sannar, að fiski
miðin, ræktunarlandið og verk
«smiðjukosturinn hefur reynzt
okkur vel og þetta hljóta að
Iverða meginstoðir undir at-
vinnulífinu og þeim efnahags-
framfömm, sem keppa ber að.
Þetta eru okkar bjargræðisveg-
1 Framhald á bls 14