Tíminn - 24.08.1965, Side 5

Tíminn - 24.08.1965, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 24. ágúst 1965 jmmu 5 Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristián Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug lýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur, Bankastræti 7 Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, sfmi 18300. Áskriftargjald kr 90.00 á mán innanlands — í lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f Utanríkísviðskipti og innanlandspólitík ÞRð er lífsnauðsyn íslendingum að eiga sem allra bezt verzlunarviðskipti við aðrar þjóðir, hvort sem þær búa í vestri, austri eða suðri, og hvernig, sem stjórnar- kerfi rí'kjanna er. Það er því mjög fordæmanlegt, þegar stjórnmála- flokkar hyggjast notfæra sér ástand utanríkisviðskipta í flokkspólitísku augnamiði og láta slík sjónarmið ráða gerðum sínum og skrifum. Fyrir ári komu íslenzkir kommúnistaleiðtogar úr mik- illi för austan frá Moskvu og gáfu út tilkynningu um för sína og viðræður við sovézka leiðtoga. Kváðust þeir meira að segja hafa rætt um sölu íslenzkra afurða aust- ur þangað, og myndi vera möguleiki á mjög aukinni sölu á íslenzkri síld til Rússlands. Með þessu frömdu kommúnistar í raun og veru tvenns konar óhæfu. Þeir blönduðu utanríkisviðskiptum í póli- tískar viðræður við samherja sína eystra og tóku með því fram fyrir hendur réttra ríkisfulltrúa, sem fara með utanríkisviðskipti íslendinga, og þeir reyndu síðan að beita þessu hér heima sem ádeilu á stjórnarvöld og til framdráttar eigin stefnu í innanlandspólítík. Á hinn bóginn geta svo Sjálfstæðismenn ekki leynt því, að þeir vilja draga úr viðskiptum íslendinga við Rússa og hlakkar mjög í þeim og málgögnum þeirra, þegar illa gengur með síldarsölu austur og lítið verður úr geipi kommúnista, eins og bezt sést á Morgunblaðinu þessa daga. Reyna íhaldsmálgögnin einnig að nota þetta sér til framdráttar í átökunum um innanlandsmálin. Þau falla því í svipaða gröf og kommúnistar og misnota þannig þessi hagsmunamál allrar þjóðarinnar á ósæmi- legasta hátt. Er þetta því ámælisverðara, sem hér á í hlut aðalstjórnarflokkurinn, sem ber öðrum fremur á- byrgð á utanríkisviðskiptunum um þessar mundir. Það er eðlileg krafa allrar þjóðarinnar, að stjórnmála- flokkarnir í landinu noti ekki utanríkisviðskipti hennar sem þrætuepli í innanlandspólitík. Liggur í augum uppi, að slík vinnubrögð geta mjög spillt hagsmunum þjóðar- innar. Verður því að krefjast þess, að íhald og kommún- istar hætti þessum hráskinnsleik. Sjálfsgagnrýni Morgunblaðið hefur látið sér tíðrætt um það með miklum hneykslunartón, að Eysteinn Jónsson og Þór- arinn Þórarinsson skuli þiggja opinber boð um að heim- sækja ríki austan tjalds. S.l. fimmtudag sagði Mbl. í forystugrein: „Það má með sanni segja, að Framsóknarforingjarn- ir sýna mikla virðingu eða hitt þó heldur við málstað kúgaðs fólks, sem býr í þessum tveim auðsveipustu leppríkjum kommúnista." í Reykjavíkurbréfi Mbl. á sunnudaginn stýrir for- sætisráðherrann hins vegar penna sínum á þessa leið: „Ekki er heldur ástæða til að amast við því þó Eysteinn Jónsson hafi þegið boð til að ferðast um land austan járntjalds. Slík boð eru nú alltíð og hafa menn 1 öllum flokkum og öllum löndum þegið þau.“ Er sýnilegt, að hér er foringinn að reyna að bæta fyrir glappaskot vikapilta, og einnig hitt, að nokkuð kunna þeir til sjálfsgagnrýni í Sjálfstæðisflokknum. Kommúnistaríkin reyna að breyta efnahagsmálastefnu Líkja œ meira eftir aðferðum Vestur-Evrópu- ríkja. — Pólverjar veita samtökum verksmiðja meiri ákvörðunarrétt. í ÖLLUM Evrópuríkjum kommúnísta er verið að gera ákveðna tilraun. Verið er að reyna að komast að raun um, hvort unnt sé að tileinka sér ofurlítið af auðvaldsskipulag- inu. Austur-Evrópu ríkin eru hvert af öðru — ásamt Rúss um — að hverfa frá þeim góða gamla tíma, þegar keppzt var við að framleiða sem allra mest magn af tiltölulega ein- földu vörum, en ekkert horft í smámuni eins og vörugæði og framleiðsluverð- Nú er aftur á móti farið að reyna að gera neytandann á- nægðan, en það þýðir, að gefa verður neytandanum kost á fjöibreyttara úrvali en áður og betri vörum. Fyrrum dugði vel áætlunarbúskapur eftir sovézkri fyrirmynd, — þar sem öll yfirstjórn heildarkerfisins var á einni hendi eins og Rúss ar byrjuðu með og flest Aust- ur-Evrópu ríki tóku upp eftir þeim, með ofurlitlum afbrigð um eftir staðháttum. — Nú fullnægir þetta kerfi ekki fram ar kröfum tímans. Af þessu leiðir margs konar daður við ýmsar aðferðir auð- valdsstefnunnar, verðmyndun- arkerfið, arð sem prófstein á afköstin, eða ýmislegt, sem umibótamenn kommúnista nefna ,,lögmálsatriði markaðar ins“. Júgóslavía hefir haft for ustu í þessum tilraunum. Pól verjar eru nú fyrst að dífa tánni með varúð í þessi fram andi vötn. f köflunum tveimur hér á eftir er sagt frá því, sem þeir hafast að. ÞRJÚ atriði skera einkum úr um, hve langt þjóð er á veg komin að tileinka sér „lögmálsatriði markaðarins". Fyrsta atriðið er, hve verði er leyft að hvarfla mikið eftir framboði og eftirspurn. Gamla kerfið, þar sem skipuleggjend urnir að ofan sögðu forstöðu mönnum verksmiðja, hvaða verðs þeir ættu að krefjast fyrir framleiðsluna, var eins konar lyfseðill að sóun. Illa gerð útvarpstæki, boðin á sama verði og vel gerð tæki, ryk- féllu eðlilega óslend í hillum verzlananna. En verksmiðjan, sem framleiddi góðu tækin, hafði enga sérstaka ástæðu til að auka framleiðslu sína. Tékkar áforma að láta verð margra neyzluvara hækka og lækka að vissu marki sam- kvæmt eftirspurninni. Rússar eru að gera sérstaka tilraun með 400 vefnaðarvöru- og skó- verksmiðjur og segja, að verðið eigi að ákveða með samkomu- lagi verksmiðjanna og verzlan- anna. Þetta er mjög mikilvægt skref- Ef forstöðumenn verzl ananna tileinka sér auda hins nýja kerfis verða það neytend urnir en ekkí skipuleggjendurn ir, sem að síðustu ákveða verð ið. ANNAÐ atriði, sem úr sker, er að hve miklu leyti hag- kvæmum verksmiðjum, sem framleiða vörur, sem fólk gimist, leyfist að njóta ávaxt anna af góðum rekstri. Ef góð ur rekstur og góð framleíðsla breytir engu um arðinn hætta stjórnendumir sennilega að reyna að bæta árangurinn. Tékkar koma næst á eftir Júgóslövum að viðburðasemi í breyttum háttum. Þeir hafa stungið upp á einni leíð, en hún er að leyfa stjórnendum fyrirtækja, sem vel gefast, að verja nokkrum hluta arðsins til minni háttar fjárfestingar, sem enn eigi að bæta árangur inn. Þeim leyfist einnig að greiða starfsmönnum nokkra aukaþóknun. Einn alvarlegur galli fylgir þessari aðferð. Sé þeim góðu leyft að verða enn betri og undirbjóða keppinautana, hvað verður þá um vesalings verð- háu verksmiðjurnar, sem halda áfram að framleíða hluti, sem enginn vill. Auðvaldsskipulag ið á einfalit en að vísu nokkuð harkalegt svar við Þessari spumingu, en kommúnistar era enn að brjóta heilann og þrefa við sína félagslegu sam vizku- FYRRI GREIN ÞRIÐJA atriðið er mikilvæg ast, en heita má að enginn hafi enn tekið það föstum tökum í heimi kommúnistanna: Hvað á að opna mikið fyrir innflutning vestrænna vara, tíl þess að örva framleiðslubæturn ar? Séu innlendir framleiðend ur ekki knúðir til að bera sinn árangur saman við það, sem gerist á Vesturlöndum, er hætt við að gæðin aukist hægt, nýj ar aðferðir og gerðir ryðji sér til rúms og áframhald verði á sóun efnis 'og vinnu. En hindrunarlaus samkeppni við Vesturlandabúa veldur að sjálfsögðu vanda, sem er mjög erfiður viðfangs. Eígi sam- keppnin að geta notið sín verður að viðhafa verðskrán ingu, sem ekki brjáli verð samanburðinn við erlenda fram leiðslu. Þetta táknar, að verðið innanlands, — þar á meðal verðundirstaða efna eins og kola, rafmagns og stáls, — verður að nálgast það, sem markaðurinn myndar sjálfur. Þessu fer víðsfjarri í flestum löndum Austur-Evrópu. Umbótasinnar í flestum ríkj um kommúnista játa þennan veikleika, en engir hafa hert upp hugann og reynt að takast á við vandann nema Júgóslav- ar. Enn er sem sagt óséð, hve langt er unnt að ganga í því að lúta „lögmálsatríðum markaðarins“, án þess að því leiði „einkaeign" sem eng inn marxisti getur að sjálfsögðu fellt sig við. HVERNIG á að fara að því að njóta kostanna við allsherj- ar yfirstj. áætlananna að ofan og losn-a um leið við sóunin-a, sem leitt getur af þeirri aðferð, þegar ógæti-lega er farið? Þetta var meginefni miki-lla rök- ræðna í miðstjórn pólska komm únistaflokksins á fundi, sem haldinn var í Varsjá og hófst 27. júlí. Fundinn sátu einnig stjórnendur ýmissa iðnfyrir- tækja. Sýnilegt er, að Pólverja-r hafa alls ekki í hyggju að hverfa frá einni al-lsherjar yfirstjórn og áætlun-argerð. Formaður áætl- un-amefnd-ar rí-kisins, Jedry- chowski, va-r ei-nn af aðalræðu- mönnu'num á miðstjórn-arfund- inum í Varsjá. Hann setti fram þá skoðun, að al-lsherjar áætlun væri eitt „undirstöðuatriði yf- irburða sósía-ls-ka hagkerfisins". En-gin þeirra aðgerð-a, sem ræddar voru á fundinu-m, ógnar svo að um muni allsherjar valdi áætlendan-na á gerð framleiðsl- unna-r, magni og dreifin-gu fjár festin-gar eða verðmynduninni í heild. ÞRÁTT fyrir þetta eru ýms- ar breytingar fyrirhugaðar. Pólverjum er Ijóst, að nákvæm framleiðs-lu-markmið allsherjar- áætlunar stuðla að sóun. Ein af aðferðum þeirra til að gera áætlunargerðina sveigjanle-gri er að auka vald „samtaka“ allra fyrirtækja, sem framleiða sams konar vörur. Ráðuneyti og aðr ir yfirstjórnaraðilar eiga að snúa sér í auikn-um mæli að áætl unargerð til 1-an-gs tíma, rann- sóknum og yfirumsjðt), en láta samtö-k fyrirtækjanna‘ að inestu um hin daglegu verkefni og skam-mtíma ákvarðanir. Hlu-taðeigandi ráðherra í Varsjá ti-lnefnir formann sér- hverra samtaka, en hann stað- festir aftur á móti val þeirra manna, sem gerðir eru að stjórn end-um einstakra fyrirtækja í saimtökunum. Formaður sam- takann-a á nú að fá tillögu- og ákvörðunarrétt um ýmis mál eins og dreifin-gu undirstöðu- hráefna, ákvörðun þóknun-ar og skiptingu ágóða. Hver einstaikur verksmiðju- stjómandi á einnig að fá laus- ari tauma en áður. Hann á að geta ■ ákveðið, innan vissra marka, hvað verksmiðja hans fra-mleiðir til að fullnægja eft- irspurn kaupend-anna og a-uka hagnaðinn. Hann á einnig að geta haldið eftir h-luta ágóð- ans sem umbun fyrir góða stjórn o-g vinn-u. FRELSI stjómendanna verð- ur þó ta-kmarfcað á ýmsan hátt. Pólverjar hafna sém fyrr þeini kenningu sumra rúss- neskra ha-gfræðinga, að hagnað urinn eigi að vera eini mæli- kvarðinn á reksturinn. Flestir pólskir verksmiðjustj órar verða háðir ákvörðunum að ofan um takmörkun vinn-uafls og upp- hæð laun-a, sem þeir mega greiða. Útflutningsfyrirtæ-kin eru ein-a undante-kningin frá þessu. Mælikvarðinn á reksturinn verður einnig mismunandi fyr- ir hin-ar ýmsu fra-mleiðslu-grein ar. Við kolanám er til dæmis unnt að mæla af-köstin eftir smálestatölu, sem skilað er á da-g. f vélsmíði er torveld-ara og flóknara að mæla afköstin. Verið er að gera tilraunir með ýmsa flókna og margbreytta mæli-kvarða, sem byggjast m. a. á „vinnuaflsnotkun", og beita á mismunandi vöxtum til þess að hraða fjárfestin-gu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.