Morgunblaðið - 09.02.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984
27
Punktar frá bæjar-
stjórn Akureyrar
Akureyri, 8. febrúar.
Siguröar Óla minnst
I upphafi fundar bæjarstjórnar
Akureyrar í gær kvaddi forseti,
Valgerður Bjarnadóttir, sér hljóðs
og minntist með nokkrum orðum
Sigurðar Óla Brynjólfssonar, bæj-
arfulltrúa, sem lést í síðustu viku.
Sigurður varð varamaður í bæjar-
stjórn 1958, en aðalbæjarfulltrúi
Framsóknarflokks frá 1962 og í
bæjarráði frá 1966 allt til dauða-
dags. Sigurður Óli var heillandi
persónuleiki og ekki vafi á að fáir
höfðu meiri þekkingu og reynslu á
bæjarmálefnum Akureyrar. Bæj-
arfulltrúar og aðrir viðstaddir
minntust Sigurðar Óla með því að
rísa úr sætum.
Bæjarábyrgð fyrir
láni til Haga
Bæjarstjórn samþykkti fundar-
gerð atvinnumálanefndar, þar
sem lagt er til að Haga hf. verði
veitt bæjarábyrgð fyrir láni, allt
að 3 milljónum króna, að því til-
skildu að fullnægjandi veð finnist
til tryggingar ábyrgðinni. At-
vinnumálanefnd hefur nú til at-
hugunar rekstrarstöðu og rekstr-
armöguleika fyrirtækisins.
Strætisvagnabiðskýli reist
Bæjarstjórn samþykkti erindi
frá Stefáni Baldurssyni fyrir hönd
Strætisvagna Akureyrar, þar sem
sótt er um leyfi til að reisa þrjú
biðskýli úr steinsteypu við Drottn-
ingarbraut, Skógarlund og Vestur-
síðu.
Giljahverfí skipulagt
Deiliskipulagsteikningar að
Giljahverfi, sem verður næsta
byggingarsvæði Akureyrarbæjar,
voru lagðar fram á fundinum. Er
þarna um að ræða deiliskipulag að
hverfi fyrir 600 íbúðir eða 1.800
mannna byggð. Hverfið er sunnan
Borgarbrautar og vestan Hlíð-
arbrautar. Skipulagsnefnd hefur
samþykkt drögin fyrir sitt leyti og
var skipulagsstjóra falið að vinna
frekar að deiliskipulaginu.
Húsnæðismál
Verkmenntaskólans
Bæjarráð fól í desember sl.
Bernharð Haraldssyni, skóla-
meistara Verkmenntaskólans,
Ingólfi Ármannssyni, formanni
skólanefndar Akureyrar og Hauki
Árnasyni, formanni skólanefndar
Verkmenntaskólans, að gera
könnun á því hvernig unnt væri að
leysa húsnæðisþörf skólans fyrir
næsta ár fyrir bóklega kennslu, en
starfsemi skólans hefst í haust og
bóknámsálma byggingar skólans
er enn óbyggð.
Þremenningarnir hafa nú skilað
áliti til bæjarstjórnar og telja að
leysa megi vanda skólans til eins
árs með því að semja um leigu á
tveim sölum í vesturhluta nýju
íþróttahallarinnar, þar sem fyrir-
hugað er gistirými í framtíðinni.
Þá er útlit fyrir að ein kennslu-
stofa fáist í húsnæði Iðnskólans,
og unnt mun vera að fá á leigu sal
í Þingvallastræti 14, sem er f eigu
Verkalýðsfélaganna. Þá benda
þeir á að leitað verði eftir samn-
ingum við ÍBA um leigu á sal í
íþróttahúsinu við Laugargötu.
Með þessu móti væri unnt að
bjarga málum fyrir horn, en
áhersla er lögð á að bóknámsálma
Verkmenntaskólans verði að vera
tilbúin til kennslu í september
Tónleikar
Tic Tac
í Safari
í kvöld
Hljómsveitin Tic Tac frá Akranesi
efnir í kvöld til tónleika í skemmi-
staðnum Safari við Skúlagötu.
Hljómsveitin efndi til tónleika á
sama stað sl. sunnudag og heppn-
uðust þeir svo vel, að ákveðið var
að gefa borgarbúum kost á að
heyra í sveitinni öðru sinni.
Fimm ungir piltar skipa Tic
Hljómsveitin Tic Tac frá Akranesi.
Tac. Bjarni Jónsson syngur,
Gunnar Jónsson leikur á tromm-
ur, Friðþjófur Árnason á hljóm-
borð, Ólafur Friðriksson á gítar og
Jón Bentsson á bassa.
spurt og svarad
I Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINSI
Hér birtast spurningar lesenda um skattamál og svör ríkisskattstjóra,
Sigurbjarnar Þorbjörnssonar.
Námsmanna-
frádráttur
Hildur Steingrímsdóttir, Hjarð-
arhaga 54, Reykjavík, spyr: .
Þegar talið er fram til skatts
fyrir námsmann sem annars
vegar var fimm fyrstu mánuði
ársins í námi við öldungadeild
MH og hins vegar fjóra síðustu
mánuðina við nám í Bandaríkj-
unum, hvernig er námsfrádrátt-
ur reiknaður? Þ.e. er hann mis-
munandi eftir því hvort námið
fer fram innan lands eða utan og
hvaða tölu ber.þá að færa inn á
skattframtalið?
Svar:
Námsfrádráttur er 25.500 kr.
ef nám er stundað í a.m.k. 6
mánuði á árinu en 51.000 kr. ef
námið er stundað erlendis. Frá-
drátturinn lækkar hlutfallslega
ef nám er stundað skemur en 6
mánuði. I öldungadeildum
menntaskóla eru 23 stig talin
samsvara 6 mánaða námi.
Ofangreindur námsmaður á
rétt á hlutfallslegum námsfrá-
drætti, þ.e. 4/6 hlutum af 51.000
kr. eða 34.000 kr. auk 2/6 hlutum
af þeim námsfrádrætti sem
fjöldi stiga, er hann tók á árinu
1983 í öldungadeild, gáfu honum
rétt til, t.d. gefa 15 stig rétt til
frádráttar að upphæð 16.631 kr.
og 2/6 hlutar eru 5.514 kr.
Kreditkorta-
reikningar
Bryndís Brynjólfsdóttir, Háaleit-
isbraut 20, Reykjavík, spyr:
Eiga þeir sem áttu ógreidda
kreditkortareikninga um áramót
að telja þá fram sem skuld á
skattframtali?
Svar:
Já.
Framtöl sam-
búðarfólks
Erlingur Páll Ingvarsson, Máva-
hlíð 34, Reykjavík, spyr:
Hvort er hagstæðara fyrir fólk
sem er í óvígðri sambúð, bæði
með tekjur, en hvorugt með
mjög miklar tekjur, að telja
fram saman til skatts eða sitt í
hvoru lagi?
Svar:
Það getur verið hagstæðara
fyrir karl og konu, sem búa sam-
an í óvígðri sambúð og uppfylla
skilyrði laganna um samsköttun,
að telja fram og vera skattlögð
sem hjón ef annað þeirra er með
það lágan tekjuskattstofn að
reiknaður tekjuskattur verður
lægri en persónuafsláttur og um
er að ræða óráðstafaðan per-
sónuafslátt eftir að hluti hans
hefur gengið til greiðslu á eign-
arskatti og útsvari. Við sam-
sköttun millifærist óráðstafaður
persónuafsláttur til hins makans
og dregst frá reiknuðum skatti
hans.
Einnig getur það verið hag-
stæðara að telja fram saman þar
sem eignarskattstofni er skipt
jafnt milli aðila og nýtist þá
hvoru um sig lágmark eignar-
skattsálagningar.
Sjómenn á er-
lendum skipum
Birna Sigurðardóttir, Kleppsvegi
14, Reykjavík, spyr:
Falla íslenskir sjómenn sem
starfa á erlendum skipum undir
sömu skattareglur og þeir ís-
lensku hvað sjómannafrádrátt
varðar? (Spurt vegna starfsfólks
á ms. Eddu sl. sumar). Er það í
hlutverki sjómanna eða útgerðar
að gefa upp starfsdaga sjó-
manna?
Svar:
Sjómannafrádráttur að fjár-
hæð 140 kr. er veittur fyrir
hvern dag sem lögskráður maður
á íslensku skipi telst stunda sjó-
mannsstörf (sjá 1. tl. C-lið 1.
mgr. 30. gr. laga nr. 75/1981 um
tekjuskatt og eignarskatt).
Lagaákvæðin eru tvímælalaus.
Til að njóta þessa frádráttar
verður maðurinn að uppfylla
bæði skilyrðin, annars vegar að
vera lögskráður af íslenskum
lögskráningaraðilum og hins
vegar að lögskráningin sé á ís-
lenskt skip.
Útgerðinni ber að tilgreina á
launaseðli bæði lögskráningar-
daga og fæðisdaga á sjó, svo og
vinnuvikufjöldann á árinu.
Skattstigi
Páll Bjarnason, Skálatúni, Sel-
fossi, spyr:
Er búið að ganga frá skatta-
þrepunum og hver eru þau?
Ennfremur hversu mikill er
persónufrádrátturinn og barna-
bæturnar?
Guðjón Kristinsson, Hringbraut
107, Reykjavík, spyr:
Hvernig á að reikna út skatt-
ana, skattstigann o.s.frv.?
Svar:
Á Alþingi er til umfjöllunar
frumvarp er kveður á um
skattstiga, persónuafslátt og
barnabætur og er því ekki hægt
að svara þessum spurningum.
Kvikmyndasýning
mannfræðinema
Á VEGUM mannfræðinemenda í
Háskóla íslands verður í kvöld kl. -
20.30, almenn sýning á kvikmyndum
sem fengnar voru hingað til lands í
tengslum við mannfræðikennslu.
Á kvikmyndasýningunni, sem
verður í stofu 102 í Lögbergi,
verða sýndar þrjár myndir, „Little
White Salmon", sem sýnir veiðar á
Columbia-fljóti, en þær hafa
lengst af verið helsta lífbjörg
Yakima-indíána. Eru veiðar þess-
ar nú orðnar bitbein fleiri fiski-
manna. „Magical Death" er heiti á
mynd sem greinir frá hinum her-
skáu Yanomamö-indíánum, sem
hafa andana sér til aðstoðar gegn
óvinum, og loks verður kvikmynd-
in „The Kawelka" sýnd. Hún segir
frá Ongka, sem er svonefndur
„stóri maðurinn" á hásléttum
Nýju Gíneu, og erfiðleikum hans
við að halda þeirri stöðu sinni.
Aðgangur að kvikmyndasýning-
unni er ókeypis.
tlr rrétutilkj'nningu.
Leiðrétting
í FRÉTT í Mbl. á þriðjudag var
skýrt frá því að sóknargjöld hefðu
lækkað úr 6% f 1%.
Það er ekki rétt, því það sem
lækkaði voru innheimtugjöld
Gjaldheimtunnar, þ.e. sú þóknun
sem Gjaldheimtan tekur fyrir inn-
heimtu. Lækkuðu þessi gjöld úr
6% í 1%.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum miðstökum.
Samhygð:
Er fátækt
á íslandi?
Framkvæmdahópur Samhygðar
um félags- og atvinnumál, boðar
til ráðstefnu að Hótel Hofi á laug-
ardaginn kl. 13.30 undir yfirskrift-
inni „Er fátækt á Islandi?" Á
ráðstefnuna, sem er öllum opin,
mæta alþingismenn, fulltrúar
verkalýðsfélaga og atvinnurek-
enda ásamt láglaunafólki, og ræða
málin.
Breiðholtsbúar
athugið
Viö höfum
nú tekiö upp
nýja opnunartíma
sem hér segir:
Virka daga opiö kl. 9—19.
Föstudaga kl. 9—19.30.
Laugardaga kl. 9—16.
VERIÐ VELKOMIN í VERSLANIR OKKAR.
Ásgeir Breidholtskjör HólagarÖur
Tindaseli Arnarbakka Lóuhólum
Kjöt og fiskur Straumnes Valgaröur
Seljabraut Vesturbergi Leirubakka