Morgunblaðið - 09.02.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1984
47
Morgunblaðið/ Símamynd AP.
Keppendur og fararstjórar og þjálfarar íslenska Ólympíuliðsins ganga inn á Kosevo-leikvanginn í gærdag þegar 14. vetrarólympíuleikarnir voru
settir í Sarajevo. Fánaberi íslenska liösins var Nanna Leifsdóttir. Fremstir fara svo þjálfararnir Hafsteinn Sigurósson og Björn Þór Ólafsson.
Síðan göngumennirnir Einar Ólafsson og Gottlieb Konráðsson. Þá Guðmundur Jóhannsson, Árni Þór Árnason og formaður Skíðasambands
íslands, Hreggviður Jónsson.
Björn Þór Ólafsson:
„Aóbúnaður og aðstaóa eins
og best verður á kosió“
Setningarathöfnin hér í Saraj-
evo var hreint út sagt stórkostleg
í alla staði, sagði Björn Þór
Ólafsson, þjálfari íslensku skíða-
göngumannanna í gærkvöldi, er
Valur sigraöi ÍR
• Valsarar sigruðu ÍR, 84—79, í
bikarkeppninni í körfubolta í
gærkvöldi í íþróttahúsi Selja-
skóla.
Mbl. náöi sambandi við hann í
Sarajevo. Björn sagöi að Nanna
Leifsdóttir hefði verið fánaberi ís-
lenska hópsins, og þaö heföi ver-
ið frábærlega vel staðið að öllu
skipulagi við inngöngu íþrótta-
fólksins. Fyrst heföi verið gengið
um götur borgarinnar og síðan
inn á sjálfan leikvanginn.
— Litadýröin og sýningar þær
sem boöið var upp á viö setning-
una voru eins og best gerist. Þetta
á seint eftir aö líöa manni úr minni.
Allur aöbúnaöur hér í Sarajevo er
einstaklega góöur. Og ekki hægt
aö kvarta yfir neinu. Hér er nægur
snjór og aöstaöan til aö æfa stór-
kostleg, sagöi Björn.
Hann sagöi aö þeir Einar Ólafs-
son og Gottlieb Konráösson væru
eins vel undir göngukeppnina bún-
ir eins og nokkur kostur væri. Ein-
ar heföi æft erlendis í heila fimm
mánuöi fyrir leikana og væri í góöri
æfingu. Gottiieb líka, þó svo aö
hann heföi ekki dvalist eins lengi
viö æfingar ytra.
Göngumennirnir keppa fyrstir
íslendinganna í Sarajevo á morg-
un, föstudag, í 30 km göngu. i
gærkvöldi átti aö draga um rás-
númer keppenda. Mánudaginn 13.
febrúar keppa þeir síöan í 15 km
göngunni.
— ÞR
Stenmark:
„Ekki meiri
atvinnumaður
en aðrir
skíðamenn“
Sarajevo. AP.
Sænska skíðastjarnan Ingemar
Stenmark sem var dæmdur frá
keppni á ólympíuleikunum er nú í
Sarajevo og fylgdist hann meö
setningarathöfninni í gærdag.
Stenmark sagöi viö fréttamenn í
gær að hann væri sannfæröur um
þaö að innan átta ára yröu
ólympíuleikar opnir öllum
íþróttamönnum. Sama hvort þeir
væru atvinnumenn í íþrótt sinni
eða ekki. „Mér finnst ég ekki vera
neitt meiri atvinnumaöur í skíöa-
íþróttinni en margir keppenda
sem munu taka þátt í ólympíu-
leikunum hér,“ sagði Stenmark.
Þegar Stenmark var beöinn um
aö spá um úrslit í svigkeppninni
sagði hann: „Það eru í þaö
minnsta 10 skíöamenn sem koma
til greina sem sigurvegarar og út-
ilokað er aö spá nokkru um úrslit.
En verði svigbrautin hörö og ísi-
lögð eins og oft gerist spái ég
heímamanninum Bojan Krizaj
sigri.“ Stenmark sagöist myndi
keppa áfram í heimsbikarkeppn-
inni á skíðum næstu tvö til þrjú
ár. „Ég hef enn mjög gaman af
skíöaíþróttinni og nýt þess að
keppa í heimsbikarnum og hví
skyldi ég þá ekki halda ótrauöur
áfram,“ sagði Stenmark.
• Ingemar Stenmark
Brunkeppnin í dag
KEPPT verður í eftirtöldum grein-
um á ólympíuleikunum í dag: 10
km skíðagöngu kvenna, bruni
karla, sleðakeppni, 1500 m
skautahlaupi kvenna og íshokkí.
Getrauna- spá MBL. i 1 Sunday Mirror Sunday People Sunday Expresi i * I ö • i Sunday Telegraph SAMTALS
Coventry — West Ham 2 1 1 X X 2 2 2 2
Luton — Man. Utd. X
Norwich — Aston Villa 1 1 X 2 X X 2 3 1
Notts County — Watford X 2 1 2 2 2 1 1 4
QPR — Nottingham Forest 1 X X X X X 1 5 0
Southampton — Sunderland 1 1 1 1 1 X 5 1 0
Stoke — Ipswich X 1 1 2 1 2 3 1 2
WBA — Everton 2
Derby — Blackburn 1
Fulham — Crystal Palace 1 1 X X X 1 3 3 0
Middlesbro — Barnsley 1 1 X 1 1 1 5 1 0
Shrewsbury — Carlisle 1 X X 2 1 2 2 2 2
Okkur barst því miöur ekki spá ensku blaðanna um þrjá leikjanna.
Stórkostleg
setningarathöfn
FJÓRTÁNDU vetrarólympíuleik-
arnir voru settir í gærdag í Saraj-
evo í Júgóslavíu. Sextán hundruð
íþróttamenn frá fjörutíu og níu
þjóöum taka þátt í leikunum. Var
litadýrðin með ólíkindum mikil
þegar keppendur gengu inn á
leikvanginn undir þjóðfánum sín-
um í hinum ýmsu geröum bún-
inga. Kosevo-leikvangurinn þar
sem setningarathöfnin fór fram
var fullsetinn af 50 þúsund áhorf-
endum og milljónir manna fylgd-
ust með athöfninni í beinni sjón-
varpsútsendingu. Að venju fóru
Grikkir fremstir en síöastir gengu
heimamenn inn á leikvanginn.
Nýfallinn snjór var í borginni og
fjöllin í kring snæviþakin og var
umgjörð setningarathafnarinnar
eins og best varö á kosið. Forseti
alþjóöaólympíunefndarinnar, Juan
Antonio Samarance, óskaði kepp-
endum góös gengis á leikunum og
mælti á júgóslavnesku „Hvala
JúgóslavíaU Hvala Sarajevo!" en
„hvala" þýðir „þökk fyrir“. Síöan
setti forseti landsins, Mika Spitjak,
leikana.
Nítján ára gömul stúlka, Sandra
Dubravicic, kom síðan hlaupandi
meö ólympíueldinn, hljóp léttilega
upp 94 þrep og tendraöi ólympíu-
eldinn sem mun loga þar til 19.
febrúar, en þá lýkur leikunum.
Átta hundruö fimleikamenn
klæddir í rautt, blátt og hvítt,
mynduöu ólympíuhringina inni á
leikvanginum. Setningarathöfnin
þótti mjög tilkomumikil.