Morgunblaðið - 06.04.1984, Síða 15

Morgunblaðið - 06.04.1984, Síða 15
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984 47 Kasper og Jesper og Jónatan. Kardemommubærinn á Akureyri KARDEMOMMIJBÆRINN , barnaleikrit Thorbjörns Egner, verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar á sunnudag kl. 15.00. Leikstjóri er Theódór Júlíusson, leikmyndasmiður Þráinn Karlsson, Ijósagerð annast Viðar Garðarsson og hljómsveitarstjóri er Roar Kvam, en Kristján frá Djúpala k og Hulda Valtýsdóttir þýddu leikritið. I sýningunni taka þátt 28 manns, þar af nokkur börn og 11 hljóðfæraleikarar sjá um tónlist- ina. í hlutverkum þremeninganna eru þeir Þráinn Karlsson, Bjarni Ingvarsson og Gestur E. Jónas- son, Soffíu frænku leikur Sunna Borg, Bastían bæjarfógeta Björn Karlsson og Tóbías gamla Marínó Þorsteinsson. Aðrir leikarar eru Signý Pálsdóttir, Þórey Aðal- steinsdóttir, Gunnar Rafn Guð- mundsson, Guðlaug María Bjarnadóttir, Leifur Guðmunds- son, Jónsteinn Aðalsteinsson, Halla Jónsdóttir og Haukur Steinbergsson. Önnur sýning á leikritinu verð- ur þriðjudaginn 10 apríl. Listmunahúsið: AFMÆLISSÝN- ING VALTÝS PÉTURSSONAR I Listmunahúslnu viö Lækjar- götu er nú sýning á verkum Valtýs Péturssonar, sem haldin er í tilefni 65 ára afmælis listmálarans. Á sýningunni eru 66 gouache-myndir sem Valtýr geröi á árunum 1951 — 1957 og eru þær til sölu. Valtýr hélt sýningu haustiö ’52 í Listvinasalnum, Ásmundarsal, sem þeir ráku í félagi Björn Th. Björns- son og Gunnar heitinn Sigurösson og er kjarni sýningarinnar í List- munahúsinu frá þeirri sýningu. Sýningin er opin um helgina frá kl. 14.00—18.00, þetta er síðasta sýningarhelgi. Mokka: MYNDLISTAR- SÝNING SKÚLA Á kaffihúsinu Mokka viö Skóla- vöröustíg stendur nú yfir sýning á verkum myndlistarmannsins Skúla og eru á henni 29 myndir, unnar meö vaxlitum, aguarel-litum og vatnslitum. Er þetta fjórða einka- sýning Skúla, en hann á þar aö auki tólf samsýningar að baki. Myndirnar á sýningunni, sem stendur í þrjár vikur, eru allar til sölu. Skúli er fæddur í Vestmannaeyj- um. Hann stundaöi nám viö Myndlista- og handíöaskóla is- lands og lauk námi úr grafíkdeild áriö 1977. Gallerí Langbrók: SKINNFATNAÐ- UR, SKARTGRIP- IR OG KERAMIK í Gallerí Langbrók veröur á morgun opnuö kynning á nýjum skinnfatnaöi eftir Evu Vilhelms- dóttur, skartgripum úr leir og post- ulíni eftir Kolbrúnu Björgúlfsdóttur og keramiki eftir Borghildi Óskarsdóttur. Kynningin veröur opin um helg- ina frá kl. 14.00—18.00 og á virk- um dögum frá kl. 12.00—18.00. Ásmundarsalur: SKURÐLISTAR- SÝNING Skurölistarskóli Hannesar Flosasonar heldur vinnusýningu í Ásmundarsal nú um helgina og veröur hún opin frá kl. 14.00- —22.00 bæöi á laugardag og sunnudag. Á sýningunni eru sýnd tréskurðarverk og hópur tréskera veröur þar að vinnu. Skurölistarskólinn er byggður upp á óslitinni röö kvöldnám- skeiða, þar sem byrjendur og þeir sem lengra eru komnir koma sam- an eitt kvöld í viku hverri og njóta einstaklingsbundinnar leiðsagnar. SAMKOMUR Nýja bíó: HRAFNINN FLÝGUR Hrafninn flýgur, kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, hefur nú veriö flutt um set úr Háskólabíói yfir í Nýja bíó, þar sem hún er nú sýnd á öllum sýningum. í myndinni segir af fóstbræörum á landnámsöld og viöureign þeirra viö gest er sækir þá heim. Meö aöalhlutverk fara m.a. þau Edda Björgvinsdóttir, Helgi Skúlason, Jakob Þór Einarsson, Flosi Ólafs- son, Egill Ólafsson og fleiri. Austurbæjarbíó: ATÓMSTÖÐIN Atómstööin, íslensk kvikmynd, gerö eftir samnefndri sögu Hall- dórs Laxness, er nú sýnd á öllum sýningum í Austurbæjarbíói. Leik- stjóri myndarinnar er Þorsteinn Jónsson, en meö aöalhlutverk fara þau Tinna Gunnlaugsdóttir og Gunnar Eyjólfsson. Norðurljós: ÞRJÁR KVIK- MYNDIR Kvikmyndaklúbburinn Norðúr- Ijós sýnir um helgina þrjár kvik- myndir í Norræna húsinu. Á morg- un, laugardag, kl. 17.00 verður danska unglingamyndin „Mig og Charly" sýnd á vegum klúbbsins og danska sendiráösins. Leikstjór- ar eru Morten Arnfred og Henning Kristiansen, en í aðalhlutverkum eru Kim Jensen, Allan Olsen og Ghita Nörby, en myndin var valin besta danska kvikmyndin af gagn- rýnendum 1977. Á sunnudag kl. 17.00 veröur sýnd danska myndin „Thorvald og Linda" eftir leikstjórana Lene og Svend Grönlykke. Myndin gerist á Jótlandi 1912, þegar verið er aö leggja dönsku járnbrautirnar. Á mánudag veröur síöan kanadíska heimildarmyndin BIX endursýnd, en hún fjallar um líf bandaríska jasstónlistarmannsins Bix Beid- erbecke. Fimir fætur: AFMÆLISHÁTÍÐ Dansklúbburinn Fimir fætur er fimm ára gamall um þessar mund- ir. í tilefni afmælisins veröur haldin afmælishátíö á sunnudag kl. 21.00 í Hreyfilshúsinu. MÍR: FRÉTTA- OG FRÆÐSLU- MYNDIR í MÍR-salnum veröa á sunnudag sýndar sovéskar frétta- og fræöslumyndir kl. 16.00. Skýringar meö myndunum flytur Sergei Hali- pov, dósent í Leningrad, a ís- lensku. KFUM og K: FJÖLSKYLDU- SAMVERA Fjölskyldusamvera veröur í húsi KFUM og K á Amtmannsstíg á sunnudag og hefst hún kl. 16.15, en húsiö verður opnaö kl. 15.00. Hótel Loftleiðir: SÁK ’84 SÁK ’84 nefnist árleg kvik- myndahátíð Samtaka áhuga- manna um kvikmyndagerö, sú sjötta í röðinni, sem haldin veröur á Hótel Loftleiöum um helgina. Þar veröa sýndar kvikmyndir á 8mm og 6mm filmum og myndir á myndböndum sem áhugamenn hafa unniö. Hátíöin hefst á laugardag kl. 14.00 meö sýningu á öllum mynd- unum sem borist hafa og veröur þeim tvískipt, annars vegar myndir eftir framleiöendur undir tvítugu og hins vegar eftir þá sem komnir eru yfir tvítugt. Þær myndir sem hljóta verölaun t hvorum flokki fara síöan á norrænu kvikmyndahátíð- ina. Á sunnudag hefst hátíðin kl. 14.00 meö verölaunaafhendingu og aö henni lokini hefst þing sam- takanna kl. 15.00. JC Grindavík: HJÓLREIÐA- DAGUR JC Grindavík gengst á morgun, laugardag, fyrir Hjólreiðadegi viö grunnskólann í Grindavík, í sam- vinnu við lögreglu og foreldra- og kennarafélag skólans i þeim til- gangi að efla öryggi barna og ungl- inga í umferöinni. Hjólreiðadagurinn hefst kl. 10.00 meö skoðun lögreglu á hjól- unum og fær hver þátttakandi skoðunarmiða. Kl. 13.00 hefjast síöan þrautir og góöakstur um götur bæjarins og veitir klúbburinn Oruggur akstur á Suöurnesjum stigahæsta keppandanum verö- laun. FERÐIR Ferðafélagið: GENGIÐ OG SKÍÐAÐ Feröafélag islands fer á sunnu- dag í tvær feröir, sktöagönguferö og gönguferð. Skíöagangan hefst kl. 10.30 og veröur þá gengiö á skíöum frá Stíflidal yfir Kjöl og í Botnsdal. Gönguferðin hefst kl. 13.00 og veröur þá gengiö um Þyr- ilsnes í Hvalfirði. Brottför í báöar ferðirnar er frá Umferöarmiö- stööinni. SÝNING Á SEGL- BÁTUM OG SIGL- INGAR- BÚNAÐI Um helgina veröur haldin sýning á siglingarbúnaði, seglbrettum og seglbátum í lönbúö 2 í Garöabæ. Aö sýningunni standa Kr. Óli Hjaltason og Verslunin O. Elling- sen hf. Þrjár seglskútur veröa til sýnis, ýmist keppnisbátar eöa fljótandi sumarbústaöir, fimm tegundir af seglbrettum veröa sýndar, sigling- arfatnaöur, þurrbúningar og kaöl- ar, blakkir, lásar og annar búnaður til siglinga s.s. öryggisbúnaður. Sýningin veröur opin bæöi á laug- ardag og sunnudag frá kl. 10.00—21.00. Þjóðdansafélagið: NEMENDA- SÝNING Nemendasýning Þjóödansafé- lagsins veröur í veitingahúsinu Broadway á morgun, laugardag, kl. 14.00. Þar veröa sýndir íslensk- ir og erlendir barnadansar, grtskir þjóödansar og gestadansari frá Nýja Sjálandi sýnir. j tilefni 40 ára afmælis lýöveldisins veröur stærsti hluti sýningarinnar íslenskir dansar í íslenskum búningum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.