Morgunblaðið - 03.06.1984, Síða 1
96 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
125. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Semur
Botha um
ratsjár-
flugvélar?
London, 2. júní. AP.
P. W. BOTHA, forsætisráð-
herra Suður-Afríku, kora til
Lundúna í dag frá Sviss til við-
ræðna við Margréti Thatcher,
forsætisráðherra, Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra, og
Malcolm Rifkind, aðstoðarut-
anríkisráðherra, sem hefur
með málefni Afríku að gera. Er
þetta fyrsta heimsókn leiðtoga
S-Afríku til Bretlands í 23 ár,
eða frá því S-Afríkumenn
sögðu sig úr brezka samveld-
inu.
Mikil öryggisgæsla var við-
höfð vegna komu Botha vegna
hugsanlegra mótmælaaðgerða.
Frá Heathrow flaug Botha í
sérstakri þyrlu til sveitaseturs
Thatcher, þar sem viðræður
hans við ráðamenn fóru fram.
Þaðan átti hann að halda aftur
til Heathrow með þyrlu sex
stundum síðar.
Thatcher sagði að með heim-
sókn Botha fengist tækifæri til
að létta á spennu í suðurhluta
Afríku. Búist var við að ástand-
ið í S-Afríku og samskipti
landsins við grannríkin yrðu
aðalefni fundar leiðtoganna, og
að Thatcher mundi leggja hart
að Botha að taka tillit til óska
þeldökkra S-Afríkubúa um full
pólitísk réttindi.
Botha reynir í heimsókninni
að fá Breta til að selja S-Afríku
allt að átta fullkomnar breskar
eftirlitsflugvélar til strand-
gæslu, þar sem brýnt er að
endurnýja úreltar gamlar
Shackleton-flugvélar. Talið er
ólíklegt að Bretar samþykki þá
málaleitan, þar sem slíkar
flugvélar flokkast undir her-
gögn.
Til hamingju
með daginn,
sjómenn
Vilja
íranir
frið?
Manama, Bahrain, 2. júní. AP.
ÍRANIH hafa í fvrsla sinn gefiö í
skyn, aö hugsanlega megi binda endi
á Persaflóastríðið með samningum.
Samtímis hafa þeir uppi stór orð um
að vinna skcmmdarverk á herstöðv-
um Bandaríkjamanna um heim allan
ef þeir hafa bein afskipti af stríðinu.
I yfirlýsingu frá Hashemi Rafs-
anjani, talsmanni íranska þingsins,
kveður við nokkuð sáttfúsan tón en
þar segir hann, að íranir hafi ekki
áhuga á „stórslysi við Persaflóa" og
vilji forðast það með viðræðum og
samningum. Ber öllum saman um,
að þetta sé fyrsta vísbendingin um
að íranir séu ekki fráhverfir frið-
arviðræðum, en hingað til hafa þeir
krafist mikilla stríðsskaðabóta .af
Hussein, Iraksforseta, og helst að
hann færi frá.
Helstu frammámenn byltingar-
varðanna írönsku komu saman til
fundar í gær og samþykktu þar að
„vara erkisatan, hin glæpsamlegu
Bandaríki og þá, sem eru í ráða-
bruggi með þeim, við því að blanda
sér í Persaflóastríðið". Að öðrum
kosti sögðu þeir, að ráðist yrði á
herstöðvar Bandarikjamanna um
allan heim.
MORGUNBLAÐIÐ í dag er að
mestu helgað sjómönnum, þar sem
rætt er við tugi sjómanna um allt
land. Blaðamenn Mbl. fóru m.a. til
Vcstmannaeyja, Grindavíkur,
Sandg"-ðis, Þorlákshafnar, Eyr-
arbab , Stokkseyrar, Neskaup-
staðar, Ólafsfjarðar og Akraness
auk Reykjavíkur til þess að ræða
við sjómenn um líðandi stund.
Vegna góðs „af1a“ í efnisöflun
sprakk „lestarrýmið" á síðum
blaðsins í dag og hluti efnisins
kemur því á næstu dögum. í blað-
inu eru einnig lúkarssögur úr ýms-
um áttum.
Myndin er af Björgu VE 5 að
sigla til hafnar í Vestmannaeyjum.
UjosmyndiKrióþjofur llelgason.
Er Sakharov lif-
andi eða látinn?
Dularfullt sím-
tal til Flórens
Rómaborg, 2. júní. AP.
KONA NOKKUR í Flórens telur að
eiginkona Andrei Sakharovs, Yelena
Bonner, hafi hringt í sig í gærmorgun
og tjáð sér að Sakharov væri látinn
og beðið um hjálp, að sögn blaðsins
La Citta í Flórens.
La Citta segir Yelenu hafa
hringt í Giovanna Giubelli árla á
föstudag og tjáð henni í hálfrar
mínútna samtali, þar sem hún brá
fyrir sig frönsku, ítölsku og ensku,
að „hjúkrunarfræðingur á sjúkra-
húsinu segði sér að maður sinn
væri látinn".
Giubelli kveðst ekki vita hvort
Yelena Bonner hringdi frá Moskvu
eða Gorki, en kvaðst sannfærð um
að það hefði verið Bonner sem
hringdi, segist þekkja rödd hennar
frá tveimur fundum þeirra 1975 og
1977 í Flórens. Sagði Giubelli, sem
er tungumálakennari og höfundur
greina sem birst hafa í blöðum í
Flórens, að Yelena Bonner hefði
árangurslaust reynt að hringja i
þrjá aðra aðila í Flórens áður.
Kvaðst Giubelli eigi heldur vita
hvernig Bonner hefði komist yfir.
símanúmer sitt, sem hefði verið
breytt 1980.
Læknir í Flórens og vinur Bonn-
er um langt skeið, Nina Harkavich,
kvaðst aldrei hafa hitt Giubelli og
dró í efa sannleiksgildi frásagnar
hennar. „Yelena dvaldi hjá mér
Andrei Sakharov
1975, 1977 og 1978, og ég hef aldrei
séð eða heyrt um frú Giubelli. Og
er það ekki undarlegt að hún bíði
með það daglangt að skýra um-
heiminum frá samtalinu?"
Sjá Reykjavíkurbréf um Sakhar
ovhjónin á miðopnu.
Ferð Shultz til Nicaragua:
Fleiri fundir med
fuUtrúum
Managua, 2. júní. AP.
GEORGE P. Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, fór óvænta ferð
til Nicaragua í gær, fostudag, og
ræddi þar við leiðtoga herstjórnarinn-
ar, Daniel Ortega. Urðu þeir sammála
um að eiga fleiri fundi í þeim tilgangi
að draga úr spennu í Mið-Ameríku.
Ortega lét í Ijós ósk um að fara til
Bandaríkjanna til fundar við Reagan
forseta.
Á fréttamannafundi, sem efnt
var til að fundinum loknum, sagði
Shultz, að vonandi yrði hann til að
draga úr tortryggni milli stjórn-
valda í ríkjunum báðum en lagði
jafnframt áherslu á, að Bandaríkja-
stjórn myndi áfram styðja skæru-
liða í Nicaragua. Sagði Shultz, að á
næstunni myndi Harry Schlaude-
ríkjanna
mann, sérlegur sendimaður Banda-
ríkjastjórnar í Rómönsku-Ameríku,
eiga fundi með fulltrúa herstjórn-
arinnar í Nicaragua, sem ekki var
tilgreindur. Shultz fór ásamt föru-
neyti sínu til Washington í gær-
kvöldi.
Haft er eftir ónefndum, banda-
rískum embættismanni, að skilyrð-
in fyrir bættum samskiptum
stjórnanna í Washington og Man-
agua séu af hálfu Bandaríkjastjórn-
ar þau, að sandinistar í Nicaragua
hætti að styðja skæruliða í öðrum
Mið-Ameríkuríkjum, að sovéskir
hernaðarráðgjafar verði látnir fara
á brott, að fækkað verði í heraflan-
um í landinu og að staðið verði við
fyrri heit um lýðræði og full
. mannréttindi í landinu.