Morgunblaðið - 03.06.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.06.1984, Blaðsíða 22
.MQgGUNBL^Dffl, » Júyf 1984 t/22 Akranes „Einstaka maöur vill halda því fram að það sé fullur sjór af þessum kvikindum “ ÞAÐ var dumbungsveður og skúraleiöingar þegar við Morgunblaðsmenn lögðum leið okkar upp á Akranes í byrjun vikunnar í því augna- miði að ræða við sjómenn í tilefni sjómannadagsins. Það var ekki mikið um að vera á bryggjunni á Akranesi um hádeg- isverðarleytið og fátt sjómanna þar að sjá. Þó var Krossvíkin ný- lega lögst að bryggju eftir níu daga veiðitúr með milli 120—130 tonn af blönduðum afla, þorski og karfa, og unnið að því að landa aflanum úr henni. Það var þó ekki áhöfnin á Krossvíkinni sem að þvf starfaði, heldur menn úr landi, sjómennirnir höfðu drifið sig heim strax og að landi var komið. Óþénugar tekjur sem teknar eru á stuttum tíma. út úr matinu. „Á þessum bát hafa þeir dregið upp á hvern einasta dag, verið mjög harðir við að sækja hvernig sem viðraði, en matið þrátt fyrir það daprast mik- ið miðað við undangengin ár. Hann sagðist ekki hafa heyrt mikið talað um kvótafyrirkomu- lagið á Akranesi, menn virtust vera her rólegir yfir kvótanum. Veiða meiri loðnu á haustin „Það var byrjað allt of seint á loðnuveiðunum í vetur,“ sagði Guðjón, er hann var spurður um hvað honum fyndist um síðustu vertíð þegar ekki tókst að veiða allt sem leyft var að veiða. „Það á að veiða miklu meira á haustin, þegar hægt er að fá gott verð fyrir loðnuna og gefa henni frekar frið yfir hrygninguna. Það hlýtur að vera hægt að átta sig fyrr á því hvað má veiða, en kannski setur samningur okkar við Norðmenn þarna strik í reikninginn." — Er nóg til af loðnu? „Ég held ekki. Það eru einstaka menn sem vilja halda því fram að það sé fullur sjór af þessum kvik- indum. Við höfum ekki séð það magn sem þeir hafa séð, en það getur verið að við séum með lé- legri tæki en þeir. En það var óvenju mikið magn á ferðinni í vetur eftir áramót. Það verður bara að koma í ljós hvernig geng- ur í framtíðinni og hvað það verð- ur mikið um loðnu, þetta er happ- drætti allt saman," sagði Guðjón Valgeirsson að lokum. Langskemmti- legasta sjó- mennskan Guðmundur Daði og Viktor Pét- urssynir unnu við grásleppunet um borð f trillu sinni. Þeir sögðu að mjög vel hefði gengið á gráslepp- unni, en leyfilegt var að byrja 18. apríl og sögðust þeir myndu vera að fram um 20. júní og eftir það Viktor og Guðmundur Daði Péturssynir um borð í triliu sinni í Akraneshöfn. Um borð í einum bátnum sem lá í höfninni var unnið við viðgerð á ljósrofa. Þar hittum við að máli Guðjón Valgeirsson, vélstjóra á loðnuskipinu Víkingi. „Víkingur liggur alltaf á sumrin og þetta er sjálfkrafa dauður tími. Hann verður ekki hreyfður fyrr en í haust þegar farið verður á síld eða loðnu og á meðan er unnið við að ditta að honum og það eru einung- is yfirmennirnir sem haldið er á launum árið um kring,“ sagði Guðjón. Aðspurður um síðustu loðnu- vertíð og hvernig Víkingur hefði aflað kvaðst Guðjón ekki hafa það nákvæmlega á reiðum höndum, en þeir hefðu eitthvað farið framyfir kvótann. Hann vildi Iítið segja um þénustuna á loðnunni, og sagði að „það væru alltaf óþénugar tekjur sem væru teknar á stuttum tíma“. Guðjón kvaðst hafa verið á Vík- ingi frá því honum var breytt, en það var gert 1977. Aðspurður um hvort tekjurnar hefðu ekki dregist saman á þessum tíma kvað hann það tvímælalaust en það væri þó erfitt að gera sér grein fyrir hve mikið, því það væri búin að vera svo mikil verðbólga. Allt dregist saman sem að sjómennskunni snýr „Mér finnst að allt hafi dregist saman, sem að sjómennskunni snýr hér á Akranesi," sagði Guð- jón. Hann kvað vertíðina þó hafa verið sæmilega eftir því sem hann best vissi, en bátarnir komið illa Siglt inn. færu þeir á skak. „Þetta er lang- skemmtilegasta sjómennskan sem ég hef stundað, ég líki því ekki saman. 1 góðu veðri er þetta engu líkt,“ sagði Guðmundur, en hann hefur verið á togaranum óskari Magnússyni. Hann sagðist hafa fengið frí á honum í sumar. Á tímabili í vetur hefði hann legið við bryggju vegna erfiðleika út- gerðarinnar, en talsvert væri síð- an Óskar hefði farið til veiða á ný og ástandið væri eitthvað að skána. „Alltaf verið að hækka fisk sem ekki er til“ Þeir .félagar sögðust hafa sótt grásleppuna óvenjulangt miðað við aðra og væru nýbúnir að færa netin nær. Þeir hefðu eytt alltof miklum tíma utarlega og þetta væri fljótt að koma ef vel gengi. Aðspurðir sögðu þeir fremur þungt hljóð í sjómönnum á Akra- nesi. Þar kæmi bæði til kvótakerf- ið og svo væri fiskverðið alltof lágt. Miklar tekjur sjómanna væru liðin tíð. „1977 keypti ég íbúð á byggingarstigi og gat auðveld- lega klofið það með því að vera í fríi fjórða hvern túr og var þó aldrei blankur. Nú þyrfti ég ábyggilega að vera á tveimur tog- urum í einu til þess að kljúfa það sama. Það er alltaf verið að hækka fisk sem ekki er til og lækka fisk sem er til, eins og karfann til dæmis,“ sagði Guðmundur Daði. Goðjón Valgeirsson á bryggjunni i Akranesi. Stund milli striða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.