Morgunblaðið - 03.06.1984, Page 34

Morgunblaðið - 03.06.1984, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984 Á dulrænum sólskinsdegi Eftir Jónas Guðmundsson rithöfund Að vera beðinn um grein í Morgunblaðið á Sjómannadag- inn, eða stutta sjóferðasögu, er á vissan máta uppörvandi. Ekki aðeins það, að þú færð að leika sjómann eftir öll þessi ár, heldur verður það til þess að hinir ungu dagar ævinnar standa allt í einu í björtu báli í huganum. Með dul- arfullum hætti rifjast upp dag- ar, sem þú hélst að væru ekki lengur til. Sólbjartir dagar, þeg- ar vindurinn hvíslaði drauma þína í reiðann, eða þú ert horf- inn til þeirrar tíðar er þú varst á skipi, sem eftir að fjöllin voru sokkin, varð að sérstökum heimi, sem ekki gekk samstða þeim sem var í landi, og var í alltöðrum veltingi. Á sjónum voru allir dagar jafnir. Þeir voru virkir dagar, því enginn munur var á sunnu- degi og mánudegi. Og sama gegnir reyndar um stórhátíðir líka, jól og páska. í skipinu gilti eitthvert óskilgreint, járnhnoðað tímatal, sem aldrei haggaðist, nema þegar eitthvað brotnaði í vélinni, eða í spilinu. Dagur og nótt fóru ekki heldur til sjós. Allavega ekki í þeim skilningi sem lagður er í daga og nætur í landi. Það var togað dag og nótt og fyrir kom á Halanum, að sólin gleymdi því alveg að búa til nýjan dag og þykkt vetrar- myrkrið grúfði stöðugt yfir skip- inu, yfir þjáningu okkar og gleði, dag og nótt, eins og almættið hefði endanlega sett lok yfir þennan járnpott soðningarinnar, togarann, og gjört hann að sér- stakri plánetu, er sigldi um geiminn, ásamt þögninni og eilífðinni. En hvað um það. Einstakt at- vik úr svona lífi er erfitt að taka með sér í land. Bera það inni á sér og koma því síðan í blöðin, því þau eru eins og bréf, sem aldrei komst til skila. Inniheldur gleði þína og sorg, en kemst aldrei í hendurnar á réttum við- takanda, því utanáskriftin er röng. BOTANY BAY Ég veit heldur ekki hvers- vegna eitt ákveðið atvik úr svo- kölluðum sjómannsferli mlnum kemur í hugann, eða saga úr langfartinni, þegar ég er beðinn um grein. En ef til vill er það vegna þess að sagan stendur í Jónas Guðmundsson. Myndin er tekin á siglingaárunum eða í langferð. rauninni enn yfir, eins og út- burðurinn á bréfinu er drepið var á hér að framan. Það var um vor, fyrir um það bil hálfum öðrum áratug, að ég réði mig sem 1. stýrimann á danska kaupfarið Botany Bay, sem var nýlegt skip, smíðað í Þýskalandi og minnti ofurlítið á skip Eimskipafélagsins, er smíð- uð voru um þetta leyti, eftir að verkfræðin var búin að finna það út að yfirbygging og stjórnklef- inn ætti að vera aftast á skipinu, eins og verið hafði á skipi Kol- umbusar. Þetta var ósköp venjulegt skip eða kaupfar og það sigldi í tramp, eins og það hét, eða það hafði með öðrum orðum enga fasta áætlun, og flutti svo að segja hvað sem var. Sálmabækur til Jerúsalem, sekúnduvísa til Sviss, eða sand sem átti að fara til Sahara, eins og gjarnan var sagt, ef einhver spurði, hvert áformað væri nú að sigla næst, þegar búið væri að losa skipið. Eg kom um borð í Napólí, eða í Acrofelice öllu heldur, og leið okkar lá til New York. Þaðan fór skipið síðan í fart milli Banda- ríkjanna og Mið-Ameríku, aðal- lega þó til Hondúras og Costa Rica. Yfirmenn voru danskir, en há- setar og undirmenn voru frá Spáni og Portugal, og nokkrir svertingjar frá Karabíska haf- inu. Við vorum í bananafraktinni, eins og það hét, en sigldum þó ekki með ávextina, heldur það sem nefnt var kemikal, en það voru aðföng fyrir plantekrurnar. Áburður, eitur, pappír fyrir kassagerð, jarðvinnuvélar, hús- munir og bílar. Allt milli himins og jarðar, því bananaræktin er ekki neitt dútl þarna. Mörg kæli- skip hlaðin á hverjum degi af grasgrænum banönum, sem á réttri tíð koma svo gulir á búð- arborðið vestur á Grímstaða- holti, eða á markaðstorgið í London og París. Allt var hnit- miðað og jörðin svo frjósöm, að ef þú spýttir út úr þér steini úr appelsínu, þá áttirðu það á hættu að ganga á tréð, eins og þeir orðuðu það. Um borð gekk allt sinn vana- gang líka, í réttum takti, og veðrið var yfirleitt eins alla daga. Sól og hiti, og þrumuveður að næturlagi, eftir að suður var komið. Og Botany Bay smaug ölduna, blátt hafið og svartnætt- ið og slög vélarinnar voru í föst- um takti við hið mikla skipulag United Fruit og kontórsins í Dronningens Tværgade. Lífið var tíðindalaust, aðeins dagur og nótt. Og þarna kom dagurinn eins og kveikt væri ljós í myrku herbergi og á kvöldin kastaði al- mættið svörtu klæði yfir heim- inn og myrkur datt á I einu vet- fangi. Sumsé þarna var ekkert blæðandi morgunsár, eða sólset- ursljóð handa elskendum vestast í Vesturbænum. ÞEGAR DRAUGA- GANGURINN BYRJAÐI Ég man nú ekki lengur hvern- ig þetta byrjaði, þótt allt annað sé í rauninni f fersku minni. En þó hygg ég að ég hafi fyrst orðið hans var, er ég vaknaði við um- gang í íbúð minni um nótt. Ég kveikti ljósið, en mér til undrun- ar var ég aleinn í klefanum. Þetta var þó án nokkurrar skelfingar, en vakti þó með mér nokkra furðu. — Var draugagangur í þessu skipi, hugsaði ég með mér, en þetta var auðvitað á þeirri tíð, „Öll eigum við hingað nokkuð að sækja“ Ragnhildur Helgadóttir Háttvirta samkoma. Til Listahátíðar fyrir okkur íslendinga er efnt á tveggja ára fresti og alltaf á þessum árs- tíma, þegar sumarið er að leysa vorið af hólmi og nóttin er björt, eiginlega engin nótt. I viðlaginu einkennilega segir: „Fuglarnir syngja fagurt á aldinkvist. Lukkan ber mann langt í burt frá angist." Við getum spurt: Til hvers er- um við að halda Listahátíð? Við spyrjum ekki til að draga í efa, að svo skuli gert, heldur til að skilja, hvað við getum þangað sótt okkur til sálubótar. Sem betur fer er listin nú orðin þátt- ur í daglegu lífi okkar og að sumu leyti nýlega. Bókina hefur þjóðin vitanlega lengi átt, frá- sagnarlistina og sumt I tónlist- inni, en þó er þar flest nýtt, og svo er einnig um myndlist, leik- list og listdans. Ný tækni og nýj- ar aðstæður að öðru Ieyti hafa greitt okkur leið svo að við meg- um njóta þessara lista, fyrst blöðin, svo kvikmyndir, þá hljóð- ritanir, eftir það útvarp og loks sjónvarp og myndbönd. Skáldið á Bessastöðum, Grímur Thom- sen, tengdi saman í ljóði guð- dóminn og listirnar og sagði þá um tónlistina: „IIísjpIí jarnan herrana nær hejri’ <*g hinn fagra kliA, englanna hljóma hljódin sk**r, hnattanna fléttuó nió; vió |M*nnan undra xaman.söng sálnanna græóam ben; meistarans bera merkistitöng Mozart, Ilaydn og Beethoven.“ Ræða Ragnhildar Helgadóttur menntamálaráð- herra á opnunar- hátíð Listahátíðar Vafalaust má segja með skáld- inu, að englarnir syngi við hinn hæsta stól svo fagurlega, að Mozart væri fullsæmdur af þeirri tónlist, og hitt líka, að sá söngur græðir sárin. En hvernig fékk Bessastaðabóndinn notið tónlistar fyrir 100 árum? Varla hér á landi nema verka fyrir pí- anó og önnur heimilishljóðfæri og sönglaga. Kynnin hafa verið erlendis á hans ungdómsárum, en vafalaust hafa þau geymst eða áhrifin enst fram til elliár- anna á Álftanesi. Nú hljóma verk höfuðtónskálda, sem bera meistarans merkisstöng, í hverju húsi af plötum eða bönd- um. Og til hvers þá Listahátíð? Er ef til vill nóg af list í bland við hið daglega amstur árið allt, já, ár eftir ár? Hátíð er til heilla best, og svo er á þessu sviði sem öðrum. Við höldum Listahátíð til að hvílast um stund, ekki „eins og lokið sé leið“, heldur til að taka mið, — til að njóta, til að einbeita okkur að sérstökum úr- valsviðburðum, lyfta huganum í þær hæðir, sem við hvert og eitt megum hæstum ná með atbeina listarinnar. Vafalaust tekst okkur misjafnlega að njóta at- burðanna næstu daga, því að áhorfendur og áheyrendur eru ekki síður hver með sínu marki en flytjendurnir eða höfundarn- ir, en öll eigum við hingað nokk- uð að sækja, vonandi öll mikið. Með Listahátíð gerum við okkur dagamun, það þurfa allir að gera, einnig þeir sem um margt eiga að velja alla daga. Á Lista- hátíð opnum við glugga til ann- arra landa, því að gestir þaðan gera hana alþjóðlega. Nóg er nú sagt um tilgang þess, að við erum í kvöld að hefja Listahátíð. Á þjóðhátíðardaginn kemur að því að dæma um hvernig til hefur tekist. Niður- staðan ræðst ekki aðeins af störfum þeirra, sem bera ábyrgð á undirbúningi Listahátíðar að þessu sinni, heldur og af áhuga og þátttöku ykkar allra. Ekki verður hér rætt um það, sem í boði er, bað er margt og marg- víslegt. I kvöld verður ekki að- eins íslenski dansflokkurinn á gólfinu heldur leikur sinfónóníu- hljómsveitin islensk dægurlög, byrjar á Fyrsta kossinum og endar á Draumaprinsinum. Ekki ætla ég heldur að minna ykkur á miðasöluna við Lækjargötu eða brýna fyrir ykkur að koma þang- að fyrr en seinna. Mig langar þess í stað til að taka aftur upp þráðinn um skáld á Álftanesi, ef það gæti orðið ykkur, eins og það hefur orðið mér, tilefni hugleið- inga um lífið og listina og þar með um það, sem þessi hátíð er helguð. Það vill svo til, að um þessar mundir, nær 88 árum eft- ir andlát Gríms Thomsen, sem orti um guðdóminn og tónlistina, býr annað skáld á nesinu. Það er Hannes Pétursson, sem yrkir um heimkynni við sjó, og okkur ætti að vera óhætt að ætla, að það sé Álftanesið. Þar kemur tónlistin við sögu og nú með þessum orð- um: „Ég dvel hér þöfrull inní þykkum hljómum, aö sunnan í þykkum hljómum þýzkrar sálumessu. I'rostdagur úti, heióstilla. Ifátt er til lofts! Kirkjurnar sýnasl lægri undir Ijóshvolfi s<*m þessu. Sjórinn dottar, ásælist ekkert á ströndu en unir vió djúp sín, þagnir oj; lygnur bláar. (Im heiminn gcngur sem fyrr hiröirinn góöi meö bloöugt enni." Búningurinn er með öðru sniði en hjá Grími forðum. Hannes dregur upp málverk, sem raunar minnir okkur á, hve háan sess myndlistin skipar á Listahátíð. En meginsamlíkingin hjá báðum skáldunum er hin sama: Listin og guðdómurinn eiga saman. Þetta var sagt seint á 20. öld, þetta var sagt á 19. öld, já, þetta hefur verið sagt víðar en á Álfta- nesinu og verður sjálfsagt sagt hér eftir, oft og viða. Og við mörg, sem ekki tjáum hugsanir okkar í skáldskap, höfum upplif- að, að þetta er satt. Þess vegna höldum við Listahátíð. Verið velkomin til hátíðar. Listahátíðin er hafin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.