Morgunblaðið - 03.06.1984, Side 35

Morgunblaðið - 03.06.1984, Side 35
wei ívífn. c. aiiOAOTivrMTTR aiaA.iavnioaoNT MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984 35 „í festarnar toga hin friðlausu skip“, kvað Tómas. { |angfert á beimshöfunum. sem skipsdraugurinn var í raun og veru jafn sjálfsagður og kompásinn, eða lensportið. Öll skip hafa draug, hefi ég heyrt, og þeir virðast fremur til þæginda en hitt, og nægir að vitna til rita Sveinbjarnar Egils- sonar um það atriði, eða endur- minninga hans. Og ég lagðist aftur til svefns og svaf draum- laust þar til ég var ræstur á vaktina um morguninn. Ég held að ég hafi þá verið búinn að gleyma þessu atviki, nema að nú bregður svo við, að eftir að myrkur er skollið á, fæ ég þá einkennilegu tilfinningu, að ég sé ekki einn í brúnni. Eg stend þar vaktina einn. Háseti er á verði á brúarvængnum, en sjálfstýring stýrir skipinu. Lítið er um athuganir og radarinn fylgist með skipaferðum, eða landi ef svo ber undir. Og ef þessu skipi hefði ekki verið siglt mest eftir sól og stjörnum, var það í raun og veru fátt er minnti á Hollendinginn fljúgandi í þeirri langfart, er nú var stund- uð. Það liðu nokkrir dagar. Nokkrar vaktir og þessi sifellda, eða stöðuga óskýrða návist ein- hvers, sem ég vissi ekki hvað var, hélt áfram og var farin að valda mér nokkrum óþægindum, eða heilabrotum. 1 klefanum fékk ég þó yfirleitt að vera í friði. Og það sem hjálpaði var að ég var alveg — og er — laus við svokallaða myrkfælni. Sem áður sagði, þá komu þessi óþægindi yfirleitt í myrkri í stýrishúsinu og í bestikkinu, en á síðarnefnda staðnum var það einna líkast því að horft væri yf- ir öxlina á mér, og þá fylgdu samskonar þægindi og því, þegar einhver les blaðið, sem þú ert að lesa, með þér, eða yfir öxlina á þér. En þó skeði einu sinni það atvik á sunnudegi, þegar enginn var á þilfari, að ég sé mann á fremstu lúgu skipsins, en þangað hafa verið 80—100 metrar. Þar átti enginn að vera, þann- ig að ég sendi Orosco háseta frammá til að kanna málið, því við vorum með dekklest. Þar á meðal nokkra bíla. Orosco kom til baka. Nei, enginn var á sól- bökuðu þilfarinu frammá skip- inu og ég þakkaði fyrir, lét sem ekkert væri — en hugsaði þó mitt. Þótt margt væri skrafað í matsalnum, eða í setustofunni, minntist ég aldrei á þetta atvik, hvorki við skipstjórann, eða aðra. Það var einhvern veginn ekki viðeigandi. Þeir hefðu sjálfsagt talið, að ég væri að missa vitið. Og dagarnir liðu, eða öllu heldur næturnar, og allt sat við það sama. Við losuðum að þessu sinni í La Ceiba í Hondúras og tókum stykkjavöru til baka til Charl- eston í Suður-Karólínu, sem í sjálfu sér er ekki frásagnarvert, nema þar skeði nokkuð merki- legt. Svo var málum háttað, að ég var þarna í afleysingum fyrir færeyskan stýrimann, sem lengi hafði siglt hjá félaginu, en var nú í nokkurra mánaða fríi, en ég leysti hann og fleiri af um nokk- urt skeið. Þegar til Bandaríkjanna kom fengum við póst, eins og vant var, en útgerðin sendi ávallt póst í veg fyrir skip sín, eins og út- gerðir af þessu tagi gjöra. Menn senda einkabréf til skrifstof- unnar, sem síðan sendir þau í veg fyrir skipin, ásamt öðru. Og meðal bréfa, er skipið fékk, var bréf frá lögreglunni í Kaup- mannahöfn, skiptráðanda og út- gerðinni, þar sem okkur er tjáð, að færeyski stýrimaðurinn hefði verið myrtur á götu í Kaup- mannahöfn og líkið hefði fundist í einu síkinu. Líklega myrtur til fjár. Málið var óupplýst, en við beðnir um skýrslu, ef við hefðum eitthvað fram að færa, sem hugsanlega gæti varpað ljósi á málið, og eins var spurt um það, hvort nokkuð af eigum stýri- mannsins væri um borð, því menn tóku ekki endilega allt sitt hafurtask með, þótt þeir færu í frí. En við gátum lítið gjört og ekkert fannst af persónulegum munum um borð. Ekki veit ég hvernig lögregl- unni í Kaupmannahöfn gekk að upplýsa sín mál, en mín mál voru nú með vissum hætti komin á hreint. Og eftir það hurfu þessi óþægindi með öllu, eða hin óskýrða návist. Og ég hafði þar með misst svo að segja það eina dularfulla er fyrir mig hafði bor- ið. — og í rauninni saknaði ég þess öðrum þræði. Einkum er skipið klauf svartan hafflötinn í ljósagangi og þrumuskúrir þvoðu heiminum í framan fyrir næsta dag. — Maðurinn er alltaf einn. Dagskrá Sjómanna- dagsins í Reykjavík SJÓMANNADAGURINN verður hald inn hítíðlegur um land allt í dag í 47. sinn. Útihátíðarhöld í Reykjavík verða nú við Reykjavíkurhöfn, en þar voru þau síðast haldin fyrir 14 árum. Dagskrá Sjómannadagsins er sem hér segir: Khikkan: 08.00 Fánar dregnir að húni á skipum í Reykjavfkurhðfn. 10.00 Lúðrasveit Reykjavfkur leikur létt sjómannalög við Hrafnistu, Reykja- vík. Stjórnandi er: Stefán Þ. Steph- ensen. 11.00 Minningarguðsþjónusta f Dómkirkj- unni. Biskupinn yfir lslandi, herra Pétur Sigurgeirsson, minnist drukknaðra sjómanna. Séra Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, dómorg- anista. Einsöngvari verður Guð- mundur Jónsson, óperusöngvari. Skemmtisigling um sundin blá 13.00 Skemmtisiglingar með hvalbátum um sundin við Reykjavík. Farið verður frá Faxagarði f Reykjavfk- urhöfn. Bðrn yngri en 12 ára verða að vera i fylgd með fullorðnum. fltihátíðarhöld við Reykjavíkurhöfn 13.30 Lúðrasveit Reykjavfkur leikur sjó- mannalög. Stjórnandi er: Stefán Þ. Stephensen. 14.00 Samkoman sett. Þulur og kynnir dagsins er Anton Nikulásson. Ávörp: A: Fulltrúi rfkisstjórnarinnar Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra. B: Fulltrúi útgerðarmanna, Eirfkur Tómasson, útgerðar- maður i Grindavfk. C: Fulltrúi sjómanna, Guðmund- ur Kjæmested, skipherra. D: Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs, heiðrar aldraða sjómenn með heiðurs- merki Sjómannadagsins. Skemmtanir dagsins 14.45 Kappróður f Reykjavfkurhöfn. Keppt bæði i karla- og kvennasveit- um. Björgunarsýningar: Björgunarsveitin Ingólfur f Reykjavík. Þyrla björgunar- sveitar varnarliðsins á Kefla- vfkurflugvelli. Félagar úr sport- bátafélaginu Snarfara sýna tist- ir á sjóskfðum og sigla f skrautsiglingu um ytri og innri höfn. Atriði frá Listahátfð 16.30 Þau atriði sem Listahátfð auglýsti á Lækjartorgi kl. 14.00 og 16.30 flytj- ast að Reykjavfkurhöfn. Látbragðs- leikur og grinhljómsveit. Veitingar verða til sölu á hafnarsvæðinu. Kinnig fer fram sala á merki dagsins og Sjómannadagsblaðinu 1984. Ilrafnista llafnarfirði 10.00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur létt sjómannalög við Hrafnistu Hafnar- firði. 11.00 Sjómannamessa f kapellu Hrafn- istu, Hafnarfirði. Prestur séra Sig- urður H. Guðmundsson. 15.00 - 17.00 Kaffisala f borð- og samkomusal. Jafnframt verður sýning og sala á handavinnu vistmanna Hrafnistu. Allur ágóði rennur f skemmti- og ferðasjóð vistmanna Hrafnistu, Hafnarfirði. Verndaðar þjónustufbúðir aldraðra f Garðabæ, en rétt við Hrafnistu, Hafnarfirði, verða til sýnis frá kl. 15.00-17.00. Eigendur og forráðamenn „Tommaham- borgara“ i Reykjavik og Hafnarfirði hafa tilkynnt Sjómannadagsráði f Reykjavik og Hafnarfirði að öll innkoma af sölu „Tommahamborgara" þennan dag renni til Sjómannadagsins, enda verði þessum fjármunum varið til málefna aldraðra. Athugið: Sjómannadagshóf verður haldið að Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 3. júnf og hefst kl. 19.30. Miðasala og borðapantanir verða að Hótel Sögu laugardaginn 2. júnf frá kl. 17.00-19.00. Stjórn Sjómannadagsins 1984, talið frá vinstri: Þórhallur Hálfdánarson, gjaldkeri, Garðar Þorsteinsson, ritari, Pétur Sigurðsson, formaður, Anton Nikulásson, varaformaður, og Guðmundur Hallvarðsson, meðstjórnandi. Morgunblaðið/RAX. við allra hæfi og stærsta úrval heimilistækja, frístandandi og til innbyggíngar, 5 lítra Líttu inn, það borgar sig Afgreiðslufólk okkar leiöbeinir þér og spjallar viö þig um kjör Verið velkomin FINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI 16995

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.